Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 45
Danni var alltaf meira fyrir okkur
systkinunum en bara maðurinn henn-
ar Sollu frænku, hann var Danni
frændi. Hann sýndi okkur alltaf mik-
inn áhuga og spurði okkur út í smáat-
riði lífs okkar í hvert sinn sem við hitt-
umst.
Nóttina sem Danni yfirgaf þennan
heim dreymdi mig þau Sollu, þau voru
að passa barnabarnið sitt á Flateyri,
hana Svandísi Rós. Gleðin skein af
andliti þeirra. Ég trúi því að það hafi
einmitt verið þeirra fyrsti áfangastað-
ur saman á ný.
Þeirra verður sárt saknað.
Elsku Kjartan, Ívar, Kristín og
börn, ég votta ykkur samúð mína
vegna fráfalls ástkærs föður, tengda-
föður og afa.
Valdís.
Margt leitar á hugann og minningar
vakna þegar góðir vinir kveðja. Þær
tengjast gjarnan ákveðnum stöðum og
þannig er það einmitt þegar Kristján
J. Jóhannesson eða Danni, eins og
hann var jafnan nefndur, á í hlut, þá
kemur Flateyri ævinlega upp í hug-
ann. Þar var hann fæddur, átti sitt
heimili lengst af og heimabyggðin
naut hans starfskrafta stærstan hluta
starfsævinnar. Hann var sannur Flat-
eyringur í bestu merkingu þess orðs,
unni sinni heimabyggð og leið hvergi
betur en þar. Það sama á við um Sollu,
eiginkonu hans, sem lést 15. júlí 2005.
Kynni okkar hófust á árinu 1977, en
Danni hafði þá, með litlum fyrirvara,
tekið við starfi sveitarstjóra við mjög
erfiðar aðstæður og þannig vildi til, að
ég var beðinn um að aðstoða við bók-
hald og endurskoðun sveitarfélagsins.
Í hönd fór samstarf, sem átti eftir að
vara í næstum tvo áratugi og breyttist
mjög fljótlega í vináttusamband þar
sem sú venja varð til, að ég bjó jafnan
heima hjá sveitarstjórafjölskyldunni í
vinnuferðum mínum vestur. Þangað
var ávallt einstaklega gott að koma og
dvelja og ekki spillti, að vinir og
vandamenn sóttu mjög þangað og
þannig upplifði ég og naut hins ein-
staka mannlífs og andrúmslofts, sem
þarna ríkti á þessum árum. Í bland við
megintilgang hverrar ferðar, þ.e. að
sinna reikningshaldi sveitarfélagsins,
fylgdu ýmis „hlunnindi“ svo sem sund-
laugarferðir, Vagninn, góðir vindlar
og ýmis mannamót svo eitthvað sé
nefnt. Hver vinnuferð vestur var því
jafnan tilhlökkunarefni.
Það leyndi sér ekki, að sveitarstjór-
inn bar hag síns byggðarlags mjög
fyrir brjósti og dró ekkert af sér í þeim
efnum. Ekkert viðfangsefni á þeim
vettvangi var svo lítils virði að hann
sinnti því ekki, væri þess nokkur kost-
ur. Þetta kom ekki síst fram þegar
hinar miklu hörmungar snjóflóðsins
árið 1995 dundu yfir og viðfangsefnin
virtust óyfirstíganleg. Hann hafði ein-
stakt lag á að umgangast íbúana og
sinna þeirra þörfum, hvort sem ungir
eða aldnir áttu í hlut.
Þegar til stóð að sameina sveitar-
félögin á norðanverðum Vestfjörðum,
hafði hann efasemdir um, að hagur
síns byggðarlags væri nægilega
tryggður með slíkri sameiningu og lá
ekki á þeirri skoðun sinni við litla
hrifningu þeirra, sem sáu einungis
kosti við slíka aðgerð. Engu að síður
varð sú niðurstaðan og að því loknu
fluttu þau Danni og Solla suður þótt
ljóst væri, að slíkt var ekki fyrsti kost-
ur í stöðunni. Atvinnulegar aðstæður
réðu eflaust mestu þar um en það
leyndi sér aldrei, að hugur hans var
stöðugt fyrir vestan og vildi helst
hvergi þaðan fara. Landsbyggðin á
það stundum til að hafna sínum bestu
mönnum og leita langt yfir skammt en
það er önnur saga. Í árslok 2005 tók
hann þá ákvörðun að flytja aftur vest-
ur en sú dvöl varð skemmri en til stóð.
Að leiðarlokum er mér efst í huga
þakklæti til þeirra hjóna fyrir allar
góðu stundirnar á Flateyri. Sá tími lif-
ir í minningunni og mun gera um
ókomna tíð. Við Anna sendum Kjart-
ani, Ívari og fjölskyldunni allri inni-
legar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu þessara mætu
hjóna.
Guðmundur Jóelsson.
Kær vinur okkar, hann Danni, er
látinn. Fregnin um andlát Danna kom
okkur og öðrum sem til hans þekktu
ekki á óvart því veikindi hans síðustu
mánuðina reyndu verulega á hann og
alla sem stóðu honum nærri. Okkur
langar í örfáum orðum að kveðja góð-
an vin og rifja upp nokkur augnablik
sem við áttum með honum og hans
góðu konu, henni Sollu. Solla lést í júlí
á síðasta ári og var það Danna mikið
áfall, þar missti hann eiginkonuna og
einnig sinn besta vin. Segja má að
hann hafi aldrei náð sér eftir þann
dag, trúlega hefur Solla dregið Danna
sinn sterkt til sín því þannig var það
ávallt meðan bæði lifðu að þau máttu
hvorugt af hinu sjá.
Danni og Solla voru bæði í Flateyr-
arhópnum sem fæddist árið 1951 og
áttu drjúgan þátt í því að sá hópur hef-
ur haldið vel saman síðustu árin og átt
margar ógleymanlegar stundir. Þau
hjón voru sannarlega miklir gleðigjaf-
ar hvar sem þau voru meðal vina og
verður það mun fátæklegra þegar við
vinirnir komum saman næst vitandi
það að ekki er von á Danna og Sollu.
Við eigum minningar um góða vini og
þær munum við geyma vel, við mun-
um minnast ykkar á þann hátt sem
ykkur líkaði best og reyna að sætta
okkur við orðinn hlut. Margar góðar
minningar koma upp í hugann frá
unglingsárunum á Flateyri. Þessar
minningar munum við varðveita vel.
Ég var svo lánsamur að flytjast ásamt
fjölskyldu minni aftur til Flateyrar og
kynnast og taka þátt í því góða mann-
lífi sem þar var og hefur alltaf verið.
Þá endurnýjuðum við vináttuna og
áttum saman mörg góð og stór-
skemmtileg ár. Samstarf okkar var
mikið öll árin okkar á Flateyri, bæði í
gegnum ýmis félagsmál og síðar í
hreppsnefndarmálunum. Við vorum
reyndar ekki alltaf sammála í hrepps-
málunum en aldrei bar skugga á vin-
áttu okkar eða samstarf. Starf þitt
sem sveitarstjóri í nær 20 ár hefur trú-
lega oft verið erfitt en þú hafðir gaman
af þínu starfi og naust þess að leggja
góðum málum lið og gerðir það oftast
á þinn sérstaka hátt með glaðværð og
reisn svo eftir var tekið. Fyrir öll þessi
ár og allar samverustundirnar þökk-
um við af alhug og biðjum þér bless-
unar.
Danni var ekki einn á ferð, hann
eignaðist hana Sollu sína snemma og
hófu þau strax búskap á Flateyri þar
sem þau bjuggu þar til fyrir tíu árum
að þau fluttu til Reykjavíkur. Á Flat-
eyri eignuðust þau drengina sína báða
og ólu þar upp. Með Danna og Sollu
var ávallt mikið jafnræði og umhyggja
fyrir hvort öðru og fundum við það,
vinir þeirra, að þeim þótti ofurvænt
hvort um annað og sýndu það í öllum
sínum háttum. Við söknum góðra vina
og þökkum fyrir að hafa átt þau að vin-
um en tíminn þeirra var alltof stuttur.
Aðstæður haga því þannig að við verð-
um erlendis þegar þú verður til grafar
borinn og getum við því ekki fylgt þér.
Hugur okkar verður hjá þér og þínu
fólki.
Kæri Kjartan, Ívar, Kristín, barna-
börnin og aðrir aðstandendur, sendum
ykkur okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og vitum að minningar um
góð hjón og foreldra munu lifa.
Ægir og Margrét, Þorlákshöfn.
Mig langar að bjóða þér verkstjóra-
starf við sundlaugina á Flateyri.
Þannig hóf vinur minn og félagi til
margra ára ávarp sitt í símann vorið
1978, en ég var þá sestur að í Reykja-
vík og í námi. Kristján er nú allur, að-
eins 55 ára gamall og það aðeins rúmu
ári eftir að eiginkona hans yfirgaf
þetta jarðlíf. Með samtalinu 78 varð
Danni, eins og við vinir hans kölluðum
hann nánast alltaf, ásamt Sollu konu
sinni, líklega einn af stærri örlaga-
völdum í mínu lífi og konunnar. Nú
hafa þau bæði yfirgefið þetta jarðlíf.
Og eins og allt sem þau gerðu í einka-
lífinu, hefja þau nú förina um eilífðina í
sameiningu.
Böndin milli þeirra voru sérlega
sterk og Danni tók andlát Sollu mjög
nærri sér. Hann ákvað síðan að flytja
til Flateyrar í desember. Þegar hann
kom var ljóst að hann hafði miklar
væntingar til þess að koma aftur, ekki
hvað síst til að geta verið hjá nýfæddri
sonardóttur sinni og fjölskyldu. Hann
var búinn að festa kaup á litlu húsi hér,
en var aðeins búinn að flytja búslóðina
þangað, þegar hann var fluttur mjög
veikur á spítalann á Ísafirði og þaðan á
gjörgæslu LSH við Hringbraut, en
þaðan átti hann ekki afturkvæmt.
Danna hafði ekki unnist tími til að
ljúka við að jarðsetja ösku Sollu þegar
hann veiktist. Nú mun hann fá að hafa
jarðneskar leifar hennar með sér í
kistunni og þau bæði jarðsett í kirkju-
garðinum hér í dag. Enn á ný sam-
einuð.
Ég ólst upp með honum á Flateyri.
Meðal annars smíðuðum við kassabíla,
gerðum prakkarastrik saman og stóð-
um í bardögum á milli ,,efri-“ og
,,neðri“-Eyrar, stundum í sama liði,
stundum ekki. Minningarnar eru ótrú-
legar, fullar lífsgleði og athafnaþrár.
Ég þáði verkstjórastarfið, fór vest-
ur með mína reykvísku konu og barn.
Sumardvölin á Flateyri varð hins veg-
ar til þess að Gulla mín tók svo miklu
ástfóstri við staðinn að hér höfum við
búið síðan. Ekki er að efa að vinskapur
Sollu og Danna við okkur hjón varð til
þess að festa okkar búsetuvilja enn
frekar.
Við störfuðum nánast óslitið saman
frá vorinu 1978 til sumarsins 1995,
þegar ég sagði af mér oddvitastarfi,
eftir 13 ára setu í hreppsnefndinni.
Samstarf sem ég hafði magnaða lífs-
reynslu af, ferðalög sem voru hvert
öðru skemmtilegra, hvort heldur var
vegna sveitarfélagsins eða í einkaer-
indum. Kristján varð þeirrar gæfu að-
njótandi að fá að starfa sem sveitar-
stjóri hér á Flateyri frá árinu 1977 til
sameiningar hreppsins við fimm önn-
ur sveitarfélög í Ísafjarðarbæ í júní
1996 og geri aðrir betur.
Það var þeirra val að flytja búferl-
um til höfuðborgarinnar eftir samein-
inguna. Lífsbaráttan þar varð þeim
erfið og veikindi Sollu ágerðust með
árunum. Mikið reyndum við vinirnir
til að fá þau aftur hingað. Þegar hann
kom loks í desember var eftirtektar-
vert hversu innilega var á móti honum
tekið. Dvölin varð hins vegar stutt, en
nú eru þau bæði komin heim í heið-
ardalinn.
Við Gulla erum þakklát forsjóninni
fyrir allar ánægjulegu samverustund-
irnar með Danna og Sollu, um leið og
við vottum aðstandendum þeirra okk-
ar dýpstu samúð.
Guðlaug og Eiríkur F. Greipsson.
Okkur langar að minnast æskuvina
okkar, hjónanna Sólveigar Dalrósar
Kjartansdóttur og Kristjáns Jóns Jó-
hannessonar, sem bæði létust langt
um aldur fram, hún 15. júlí á síðasta
ári en hann 10. október sl. Við nutum
öll þeirra forréttinda að alast upp á
Flateyri samtíða. Þar var gott að vera,
frelsið algjört og ævintýrin á hverju
strái. Solla, Danni og Pálína voru jafn-
aldrar en Sigmar örlítið eldri, þannig
að vinskapurinn var í fyrstu meira á
milli Sollu og Pálínu annars vegar og
Danna og Sigmars hins vegar, en svo
seint á táningsárunum blandaðist
þetta saman. Hópurinn frá ’51 var
samstæður og hefur verið náinn allt
fram á þennan dag, en nú er höggvið
stórt skarð í hann við fráfall þeirra
beggja. Þau voru stór hluti hópsins og
það fór ekki framhjá neinum þegar
þau voru á staðnum. Húmorinn og
stríðnin voru alltaf stór hluti af nær-
veru þeirra og allir okkar fundir ein-
kenndust af því.
Þau hjónin voru samhent og störf-
uðu lengst af saman og í okkar huga
voru þau eitt. Það var því erfitt fyrir
Danna þegar Solla féll frá. Hann barð-
ist við erfiðan sjúkdóm síðustu mán-
uðina og lá á Landspítalanum allan
þann tíma.
Við sendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur til drengjanna þeirra
beggja og fjölskyldna þeirra. Þeir hafa
nú misst báða foreldra sína með fárra
mánaða millibili. Einnig sendum við
samúðarkveðjur til systkina Danna og
Sollu og fjölskyldna þeirra.
Pálína og Sigmar.
Fyrir um þrjátíu árum kynntist ég
Kristjáni J. Jóhannessyni vestur á
Flateyri. Starfsvettvangur okkar var
sá að vinna saman að ýmsum verk-
efnum fyrir sveitarfélagið. Kristján
var verkstjóri hreppsins og allt í öllum
verkefnum hans. Með honum unnu
mest feðgarnir Guðni Guðnason og
Bergur sonur hans. Þessi ár voru tími
verulegra umsvifa í verklegum efnum
hjá sveitarfélaginu, svo sem gerð var-
anlegra gatna, skolpveitu, brimvarn-
argarðs, bygging tveggja fjölbýlis-
húsa og þriggja einbýlishúsa auk þess
breytt og bætt hafnaraðstaða. Jafn-
framt þessu var unnið að því að
hreinsa til í plássinu, rifnir niðurníddir
kofar og allt rusl fjarlægt. Svo vel
gengu þessir menn fram ásamt fleir-
um og ungmennum á staðnum að eftir
að ég hafði fylgst með starfi þessu í
þrjú ár komu þrír skoðunarmenn að
sunnan og gáfu Flateyri þá einkunn að
hún væri nú snyrtilegasta plássið á
Vestfjörðum. Það sem einkenndi störf
Kristjáns og félaga var einlægur vilji
til að vinna þorpinu sínu vel og gleði
þeirra hverju sinni að vel loknu verki.
Samstarf okkar Kristjáns var með
slíkum ágætum að ég hefi ekki oft
starfað með þægilegri og ósérhlífnari
manni. Þær minningar sem ég á frá
þessum tíma með Kristjáni eru mér
mikils virði og hans minnist ég ávallt
með virðingu og þakklæti. Hann varð
fyrir þeirri sorglegu reynslu að vera
sveitarstjóri á Flateyri þegar hið gíf-
urlega snjóflóð féll á þorpið með þeim
afleiðingum að fjöldi íbúa lést. Sá at-
burður varð honum áreiðanlega þung
raun, en enn átti eftir að syrta í álinn.
Eiginkona hans Sólveig D. Kjartans-
dóttir veiktist og háði erfiða baráttu
við illvígan sjúkdóm sem lauk 15. júlí
2005 er hún lést. Á sama tíma og hún
háði sitt dauðastríð veiktist Kristján
og lést hann aðeins rúmu ári eftir lát
Sólveigar.
Um leið og ég þakka fyrir að hafa
átt þess kost að kynnast og starfa með
Kristjáni í þrjú góð og ánægjuleg ár,
bið ég þess að Guð styrki börn þeirra
og ættingja í sorginni.
Kristinn Snæland.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 45
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
DÚFA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Eskivöllum 3,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
6. október.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hörður Hallbergsson,
Bjarney Elísabet Harðardóttir, Jens Erik Skår,
Sigurjón Harðarson, Kristín Elínborg Þórarinsdóttir,
Jóhanna Elínborg Harðardóttir, Axel Antonio Penalver
og barnabörn.
Elskulegur bróðir okkar, frændi og mágur,
AGNAR MAGNÚSSON
verkfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laug-
ardaginn 30. september.
Útförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir sendum við öllum Karitis-systr-
unum svo og hinu frábæra starfsfólki líknardeild-
arinnar sem hlúði að honum í erfiðum veikindum hans.
Ulla Magnússon, Guðjón Guðjónsson,
Kristín Magnússon, Halldór S. Kristjánsson,
Kristján Halldórsson, Sigrún Óttarsdóttir,
Jón Már Halldórsson, Margrét Ólafsdóttir,
Jón Glúmur Magnússon, Stefanie Gerza.
Okkar ástkæri,
ÓLAFUR ROY VINER SMITH JÓNSSON,
(Óli Smith),
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju mánudaginn
16. október kl. 15.00.
Margaret Smith Jónsson
og börn hins látna.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir
og amma,
KATRÍN JÓNA RÓBERTSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu-
daginn 2. október síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Andrea Gréta Axelsdóttir,
Róbert Axel Axelsson, Aníta Pálsdóttir,
Magnea Rós Axelsdóttir, Björgvin Jónsson,
Róbert Lárusson,
Jónína Róbertsdóttir,
Lárus Róbertsson,
Dórótea Róbertsdóttir
og öll ömmubörnin.