Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur til sölu
Íslenskt Fornbréfasafn 1-16,
óbmk., Njála 1772 ib, Njála 1809
ib,. Njála 1875 1-2 ib, Árferði á
Íslandi í 1000 ár ÞTH, almanak
Ólafs Þorgeirssonar í öskjum.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Ferðalög
Vestmannaeyjum
Útsýnisferðir.
Skutl með íþróttahópa.
Gisting.
Sími 481 1045,
eyjamyndir@isholf.is
http://tourist.eyjar.is
Heilsa
GREEN COMFORT
framleiðir líka flotta tískuskó.
Mýkt og gæði sakar ekki!
Fótaaðgerðastofa Guðrúnar
Alfreðsdóttur, Listhúsinu
Engjateigi 17-19, sími 553 3503.
OPIÐ mán.-mið.-fös. kl. 13-17.
www.friskarifaetur.is.
Húsnæði óskast
Vantar íbúð! Bráðvantar íbúð til
leigu strax, 2-3 herb. á bilinu 60-
90 þús. Allir staðir koma til greina
nema Garðabær. Uppl. 847 1551.
Geymslur
Vetrargeymsla
Geymum fellihýsi, tjaldvagna o.fl.
í upphituðu rými. Nú fer hver að
verða síðastur að panta pláss fyr-
ir veturinn. Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 899 7012
Sólhús
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Listmunir
Skartgripanám fyrir alla.
Sjá heimasíðu www.listnám.is
Listnám.is, Súðarvogi 26,
104 Rvík, Kænuvogsmegin,
sími 699 1011.
Til sölu
Viltu kaupa eða selja fasteign?
Verðmat? Er ekkert að gerast
með þína eign? Vantar allar gerð-
ir eigna á skrá. Ég verðmet eign-
ina þína þér að kostnaðarlausu.
Ég veiti þér aðeins fyrsta flokks
þjónustu. Óli@remax.is eða upp-
lýsingar í síma 892 9804.
Útlitsgölluð iðnaðarkælitæki
Eigum til á lager ný útlitsgölluð
iðnaðarkælitæki í t.d. mötuneyti,
bari eða hesthús.
Allar frekari upplýsingar á
www.ishusid.is eða í síma
566 6000. Íshúsið ehf.
Tékknesk postulín matar-, kaffi-
, te- og moccasett.
Frábær gæði og mjög gott verð.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi,
s. 544 4331.
Kristalsljósakrónur. Handslípað-
ar. Mikið úrval.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b,
201 Kópavogur,
s. 544 4331.
Bókhald
Fjárhagsþjónustan ehf. Ráðgjöf,
bókhald, reikningsskil, skattþjón-
usta. Getum bætt við okkur verk-
efnum. www.fjarhagur.is fjarhag-
ur@fjarhagur.is, s. 587 7177.
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Ýmislegt Þjóðbúningasilfur. Til sölu þjóð-
búningasilfur, heil sett og stakir
hlutir t.d. hólkar, nælur, stokka-
belti. Einnig sjöl, slifsi, pils og
húfur. Þjóðbúningastofan, sími
551 8987.
Verslunin hættir. Úr og skart-
gripir. Frábært tilboð. Tilvaldar
jólagjafir.
Helgi Guðmundsson, úrsmiður,
Laugavegi 82,
s. 552 2750.
Saumlaus og mjög fallegt push-
up snið í ABCD skálum kr. 3.350.
Fallegt push-up snið og falleg
blúnda í ABC skálum kr. 3.350.
Þessi mega vinsæli bh fyrir
stærri brjóstin nýkominn í
D,DD,E,F,FF skálum kr. 5.490.
Rosalega sexí og flottur í
D,DD,E,F,FF,G skálum kr. 4.990.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
NÝ SENDING
Bómullarklútar kr. 1.290.
Bómullarleggings - síðar kr. 1.990.
Hárspangir frá kr. 290.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
HÚFUR, TREFLAR OG
VETTLINGAR
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Emilia. Einkar léttir og þægilegir
götuskór með vönduðu innleggi.
Tveir litir. Stærðir: 37-41. Verð
10.800.
Sheyla. Stærðir: 36-42.
Verð 6.300.
Arisona. Stærðir: 36-42.
Verð 5.685.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
VW TOUAREG V8 árg. 2004. Loft-
púðafjöðrun, leður, lúga, hiti í
stýri o.fl. o.fl. Ekinn aðeins 29
þús. km. Verð 5.390 þús. Tilboð:
Verð 4.580 þús. Skoða skipti á
ódýrari.
Til sýnis og sölu hjá Bílalífi, símar
562 1717 og 898 1742. Sjá fleiri
myndir á www.bilalif.is .
Hjólbarðar
Til sölu 4 álfelgur fyrir Land-
rover Discovery 1992-1998. Verð
25.000, stærri deilingin.
Til sölu 4 nagladekk á álfelgum
fyrir Ford Explorer eða Ford
Ranger. Verð 25.000. Uppl. í síma
824 8018.
Hjólhýsi
Hjólhýsi til sölu. Haustútsala
okkar á nokkrum hjólhýsum. 15%
afsláttur. Fortjald á hálfvirði.
Komið og gerið frábær kaup. Allt
að 100% lán. Sími 898 4500/
94 6000. www.vagnasmidjan.is
Smáauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
GLITNIR styður árveknisátak
Krabbameinsfélags Íslands sem nú
stendur yfir. Einkennislitur átaks-
ins er bleikur og hefur verið skipt
um lit á vefsíðu Glitnis af þessu til-
efni auk þess sem höfuðstöðvar
Glitnis við Kirkjusand eru lýstar
með bleiku ljósi.
Glitnir hefur verið sterkur
bandamaður Krabbameinsfélagsins
á þessu ári. Í ársbyrjun gaf bankinn
tæki að andvirði 40 milljónir króna
til leitar að brjóstakrabbameini. Í
ágúst söfnuðust 2,5 milljóna króna
áheit á Krabbameinsfélagið í
tengslum við Reykjavíkurmaraþon
Glitnis en flestir hlauparar hétu á
Krabbameinsfélagið.
Glitnir hvetur alla landsmenn til
að leggja hönd á plóg og styrkja
Krabbameinsfélagið.
Glitnir styður
Krabbameinsfélag
Íslands
Á VEGUM þjóðgarðsins á Þingvöll-
um verður gönguferð á laugardag-
inn en þar verður stórurriðinn í að-
alhlutverki. Jóhannes Sturlaugs-
son, líffræðingur hjá Laxfiskum
ehf., mun vera með kynningu á
rannsóknum sínum á stórurrið-
anum í Þingvallavatni.
Jóhannes mun skýra rannsóknir
sínar og verða m.a. lifandi risaurr-
iðar til sýnis. Jóhannes hefur stund-
að rannsóknir á urriðanum í Öxará
og Þingvallavatni undanfarin ár.
Safnast verður saman við Flosa-
gjá kl. 13 og þaðan gengið að Öxará
þar sem urriðinn verður skoðaður
og síðan gengið í fræðslumiðstöð
þar sem Jóhannes mun skýra nánar
rannsóknir sínar. Dagskráin verð-
ur endurtekin aftur kl.15.
Stórurriði og
gönguferð við
Þingvallavatn
DÓMNEFND á vegum Matvæla- og
næringarfræðafélags Íslands (MNÍ)
hefur tilnefnt fimm aðila til að
hljóta Fjöregg MNÍ en það eru
verðlaun sem veitt eru fyrir lofs-
vert framtak á árinu á mat-
vælasviði.
Félaginu barst fjöldi ábendinga
um verðuga verðlaunahafa en þau
sem dómnefnd valdi að tilnefna til
verðlaunanna að þessu sinni eru
fyrirtækin Gallerý fiskur, fyrir að
eiga þátt í að gera fisk að veislu-
mat, Mjólka,fyrir frumkvöðlastarf,
Móðir náttúra fyrir skólamáltíðir,
HR konfekt,fyrir útflutning á hand-
gerðu íslensku konfekti og Guðrún
Adolfsdóttir hjá Rannsóknaþjónust-
unni Sýni, fyrir nýstárleg námskeið
og ráðgjöf fyrir eldhús og mötu-
neyti.
Tilkynnt verður hver hlýtur
Fjöregg MNÍ 2006 við setningu
matvæladags Matvæla- og næring-
arfræðafélags Íslands á Hótel Loft-
leiðum 20. október næstkomandi og
mun Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra afhenda Fjör-
eggið. Yfirskrift matvæladagsins er
að þessu sinni „Öflugur mat-
vælaiðnaður í stöðugri framþróun“.
Í tilefni af matvæladeginum verð-
ur efnt til viðamikillar dagskrár á
Hótel Loftleiðum þar sem leitast
verður við að fjalla um málefni
dagsins frá sem flestum hliðum.
Fyrirlesarar hafa verið fengnir frá
ýmsum greinum matvælaiðnaðar-
ins, úr háskólasamfélaginu og frá
matvælastofnunum. Dagskrá mat-
væladagsins á Hótel Loftleiðum
stendur frá kl. 12:00 til 17:00 föstu-
daginn 20. október
Fimm tilnefnd til
Fjöreggs MNÍ
MIÐGARÐUR, félag um aukin sam-
skipti þroskahefts fólks á Norður-
öndum er að fara af stað með kynn-
ingarherferð á öllum
Norðurlöndunum. Markmið Mið-
garðs er að gefa þroskaheftu fólki
18 ára og eldra, kleift að fara til
náms eða vinnu á einhverju Norð-
urlandanna í 10 daga til 4 mánuði
með eða án aðstoðarmanns, segir í
fréttatilkynningu.
Það eru einstaklingar og stofn-
anir á Íslandi, í Noregi, Danmörku
og Svíþjóð sem standa að þessu
verkefni með styrkjum frá Norð-
urlandaráði og félagsmálaráðu-
neytinu á Íslandi. Fyrsti kynning-
arfundurinn verður í dag,
föstudaginn 13. október með Hlut-
verki sem eru samtök verndaðra
vinnustaða á Íslandi.
Síðan verður haldið til Noregs
hinn 15. október og verða kynn-
ingar í Þrándheimi og Bergen.
Þeir sem sjá um kynningu á Mið-
garði eru Steindór Jónsson, fatl-
aður starfsmaður í Ásgarði, og Þór
Ingi Daníelsson, verkefnisstjóri
Miðgarðs. Hægt er að skoða vef fé-
lagsins midgardur.com.
Aukin samskipti
þroskahefts fólks
á Norðurlöndum
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
lýsa vanþóknun sinni á svokallaðri
vináttuheimsókn bandaríska her-
skipsins USS Wasp. Íslenskt land,
íslenskar hafnir og allt það haf-
svæði sem tilheyrir Íslandi á að
vera í friði fyrir herskipum eða öðr-
um hernaðartólum.
„Einkum og sér í lagi frábiðjum
við okkur heimsóknir frá því her-
veldi sem nú er árásargjarnast,
stendur í blóðugum styrjöldum í
kjölfar innrása sinna í Írak og Afg-
anistan, brýtur mannréttinda-
sáttmála og alþjóðalög með fanga-
búðum og pyndingum fanga og
stendur í endurnýjun og þróun
kjarnorkuvopna þvert á alþjóða-
samninga og áratugalanga viðleitni
til kjarnorkuafvopnunar, segir í
ályktun miðnefndar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga.
„Samtök herstöðvaandstæðinga
átelja harðlega það samkomulag
sem gert hefur verið um framhald-
andi samstarf Íslands og Bandaríkj-
anna á sviði hernaðar og hvernig
borgaralegum stofnunum eins og
Landhelgisgæslunni og lögreglunni
skal þvælt í hernaðarlegt samstarf.
Sú svívirða kemur nú berlega í ljós
við heimsókn herskipsins USS
Wasp, en meðan á dvöl skipsins
stendur er ætlunin að áhöfnin
vinni með landhelgisgæslunni og
lögreglunni við að undirbúa þjálfun
og æfingar í framtíðinni, “ segir í
ályktuninni.
Þá vilja Samtök herstöðva-
andstæðinga minna borgar- og
hafnaryfirvöld á samþykkt borg-
arstjórnar frá 21. mars 2002:
„Borgarstjórn samþykkir að bönn-
uð verði í borgarlandinu umferð og
geymsla kjarnorku-, efna- og sýkla-
vopna.“ Í samræmi við þess sam-
þykkt ber hafnar- og borgaryf-
irvöldum að ganga úr skugga um
hvort kjarnorkuvopn séu um borð í
herskipinu USS Wasp. Ef ekki er
hægt að fá staðfest að svo sé ekki
ber yfirvöldum að koma í veg fyrir
að skipið komi inn á höfn í Reykja-
vík.
Lýsa vanþóknun á
vináttuheimsókn
Wasp