Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 49
Raðauglýsingar 569 1100
Grafarholt
Hjálpræðisherinn heldur
lofgjörðarsamkomu
laugard. 14. okt. kl. 16.30
Kaffi og meðlæti í lok
samkomu
Staður: Þórðarsveigur 3
Allir velkomnir
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bakkastígur 5, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Árni Jóhannesson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 17. október 2006 kl. 13:30.
Kárastígur 13, 200-6467, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Björk Hauksdótt-
ir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 17. október
2006 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
12. október 2006.
Styrkir
Verkefnasjóður sjávarútvegsins,
deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði
auglýsir eftir umsóknum um styrki til
rannsókna- og þróunarverkefna
Sjóðurinn mun fyrst og fremst styrkja rann-
sóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða
sem mögulegt væri að nytja. Við mat umsókna
verður lögð áhersla á nýnæmi verkefnisins
m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna nýting-
armöguleika á lífríki sjávar. Allir geta sótt um
styrki; einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og
háskólastofnanir. Í stærri verkefnum er sérstak-
lega hvatt til samstarfs mismunandi aðila með
þátttöku vísindamanna víða af landinu.
Á árinu 2006 verða styrkt alls 3-5 verkefni að
hámarki 3-5 m.kr. hvert og um 10 minni verk-
efni, 0,5 til 1.0 m.kr hvert. Styrkur skal að há-
marki nema 50% af áætluðum heildarkostnaði
verkefnisins.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeining-
ar um frágang umsókna er að finna á heimasíðu
sjávarútvegsráðuneytisins,
www.sjavarutvegsraduneyti.is.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2006 og
skulu umsóknir sendar til sjávarútvegsráðu-
neytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík. Um-
sóknir sem berast eftir 10. nóvember verða ekki
teknar gildar nema póststimpill sýni að um-
sóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann
dag.
Kynningarfundur um deild Verkefnasjóðs
sjávarútvegsins um sjávarrannsóknir á sam-
keppnissviði verður haldinn mánudaginn 23.
október kl. 15.00 í húsakynnum Prokaria ehf.,
Gylfaflöt 5, Reykjavík.
Sjávarútvegsráðuneytið.
Félagslíf
Samkoma í dag kl. 20.00 í
bláa salnum í Grensáskirkju.
Hans Sundberg yfirpastor Vin-
eyard á Norðurlöndunum predik-
ar.
Komið og snertið af kærleik og
krafti guðs.
Öll samkoman fer fram bæði á
íslensku og ensku.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
www.vineyard.is
Í kvöld kl 20.30 heldur Jón E.
Benediktsson erindi: Madame
Blavatsky og guðspekihreyfingin
í húsi félagsins Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl 15- 17 er opið
hús. kl. 15.30. Jón E. Benediktsson
heldur erindi: Svipmynd af sam-
tímavitringi – Vimala Thakkar.
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra
bókmennta. Starfsemi félags-
ins er öllum opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 1 18710138 XX.
I.O.O.F. 12 18710138½
Fjallahringur Þingvalla
Sunnudagur 15. október kl. 11.
Ármannsfell með Valgarði Egils-
syni. Brottför frá Þjónustumið-
stöðinni Þingvöllum kl. 11. Einka-
bílar, ókeypis þátttaka, allir vel-
komnir, 4–6 klst. Takið með nesti
og góðan búnað.
Næsta myndakvöld FÍ.
Miðvikudagur 18. október kl. 20.
Langisjór og Torfajökulssvæðið.
Aðgangur 600.
Allir velkomnir.
2. október kl. 11.00.
Hellar á Þingvöllum. Fararstjóri
Björn Hróarsson. Brottför frá
Þjónustumiðst Þingvöllum kl. 11.
Einkabílar, ókeypis þátttaka, allir
velkomnir, 4–6 klst. Takið með
nesti og góðan búnað.
29. október kl. 11.00.
Skjaldbreiður.
Rúta frá Mörkinni 6 kl. 10. Verð
2.000/2.500 kr. Fararstjórar Páll
Guðmundsson og Pétur Þorleifs-
son. 4–6 klst. Takið með nesti og
góðan búnað.
Skálar FÍ - lyklar á skrifstofu.
Félagsmenn - munið eftir árbók-
inni.
Sjálfboðaliðar óskast til starfa
hjá Ferðafélaginu.
Nýir félagsmenn velkomnir.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
STELPUSKÁKMÓT Olís og Hellis
fer fram í höfuðstöðvum Olís,
Sundagörðum 2, á morgun, laug-
ardaginn 14. október, og hefst kl.
13. Þetta er í annað sinn sem þetta
mót fer fram en mótið var af-
skaplega vel sótt í fyrra og flestar
sterkustu ungu skákkonur landsins
meðal þátttakenda, segir í frétta-
tilkynningu.
Öllum stelpum á grunnskólaaldri
er boðið til leiks og er þátttaka
ókeypis. Fjölbreytt og aldursskipt
verðlaun eru í boði og fá allir kepp-
endur viðurkenningarskjal frá Olís
og Helli fyrir þátttökuna.
Samhliða mótinu verður keppt í
drottningarflokki þar sem allar
konur eru velkomnar til leiks en
meðal keppenda þar má nefna
landsliðskonurnar Lenku Ptácní-
kovú og Guðfríði Lilju Grét-
arsdóttur og má þar búast við
harði baráttu.
Skráning fer fram á heimasíðu
Hellis, www.hellir.com.
Á myndinni eru Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir og Jóhanna
Björg Jóhannsdóttir, sigurvegari
Stelpumóts Olís og Hellis í fyrra.
Stelpumót í skák
DAGUR hvíta stafsins, sem er alþjóðlegur baráttudagur
blindra og sjónskertra einstaklinga er á sunnudaginn,
15. október. Þann dag vekja þeir athygli á baráttumálum
sínum.
Í tilefni dagsins mun Blindrafélagið vera með kynn-
ingar í Smáralind kl. 13–15. Þar verður meðal annars
kynning á notkun hvíta stafsins, kynning á sjónhjálp-
artækjum, smáhjálpartækjum sem auðvelda blindum og
sjónskertum daglegt líf og ýmsum talandi hjálp-
artækjum,
tölvu- og tæknistöð þar sem sýndur verður jaðarbún-
aður við tölvur og notkun hans, Blindraletursstöð þar
sem fólki gefst kostur á að fá nafnið sitt á blindraletri.
Félagsmenn og starfsmenn verða á gangi og svara
spurningum gesta.
Þessi viðburður er í góðri samvinnu við starfsfólk
Sjónstöðvar Íslands og Blindrabókasafnsins, segir í
fréttatilkynningu. Bæklingar verða víða á borðum og
hugsanlegt er að blindur eða sjónskertur einstaklingur
bjóði börnunum að spila við sig ólsen ólsen.
Á sunnudaginn kemur út fréttablað Blindrafélagsins,
Blindrasýn, undir ritstjórn Arnþórs Helgasonar, og geta
gestir fengið sér eintak.
Í vikunni kemur út bók um fötlunarfræði á blindraletri
undir ritstjórn Rannveigar Traustadóttur doktors í fötl-
unarfræðum. Bókin heitir Fötlun, hugmyndir og aðferðir
á nýju fræðasviði.
Blindir kynna dag hvíta
stafsins í Smáralind
VALGERÐUR Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveð-
ið að veita framlag sem nemur einni milljón Bandaríkjadala,
tæplega 70 milljónum íslenskra króna, til sérstaks sjóðs á
vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðs-
hrjáðum löndum.
Sjóðurinn var settur á laggirnar af allsherjarþingi SÞ í
september sl. Tilkynnt var um framlag Íslands á framlaga-
fundi sem haldinn var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í
New York á miðvikudag.
Markmið sjóðsins er að hafa til reiðu fjármagn sem hægt
verði að grípa til með skömmum fyrirvara til verkefna sem
talin eru gegna lykilhlutverki í uppbyggingu friðar að lokn-
um átökum, segir í fréttatilkynningu.
Framlag til friðaruppbyggingar
Rangar tölur í grafi
ÞAU mistök urðu við birtingu á grafi yfir útvarpshlustun í
blaðinu í gær að rangar tölur birtust. Hér birtist grafið á ný
með réttum tölum.
) *
!
"
+
,
*
)
-
.
! !
"#
$%
&"#
'!()*
+*!!"#
"!!
&,*)
LEIÐRÉTT
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
HVASSALEITI – „VR BL0KKIN“
63 ÁRA OG ELDRI
Vorum að fá í sölu einstaklega vel skipulagða 114 fm íbúð á 3. hæð í suður-
enda í þessu húsi á besta stað í Leitunum. Húsið er nýstandsett að utan. Um
er að ræða 3ja-4ra herbergja íbúð, þ.e. stofa, borðstofa, sjónvarpsherbergi og
svefnherbergi. Gott eldhús með búri innaf. Suðursvalir. Sam. þvottahús á
gangi. Margskonar þjónusta í boði á jarðhæð hússins. Samkomusalir, matsal-
ur, hárgreiðsla, nudd, snyrtistofa o.fl.
FRÁBÆR EIGN Í EFTIRSÓTTU HÚSI.