Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 50
|föstudagur|13. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Sigurður Hrannar Hjaltason situr fyrir svörum og spyr á móti hvað næsti aðall vilji sjá í íslensku leikhúsi. » 55 aðallinn myndlist Tónlistarhátíðin Airwaves hefst í komandi viku með þátttöku fjölda erlendra og íslenskra banda, Diktu þar á meðal. » 52 tónlist Í bígerð eru stórtónleikar í Laug- ardalshöll þar sem Magni, Toby, Storm og Dilana syngja með Rock Star-húsbandinu. » 53 fólk Bergþóra Jónsdóttir skrifar um óvenjumargar menningarhá- tíðir á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir. » 53 af listum þar, mér finnst þetta frábær leið fyrir tónlistarmenn til að koma sér á framfæri.“ Hann sagðist ekki óttast að Kaiser Chiefs liði fyrir niðurhal á tónlist. „Ef fólk ætlar að ná sér í tónlist á netinu tekst það. Ég held að þetta sé raunveru- leiki sem útgáfufyrirtæki og tón- listarmenn verða að sætta sig við. Mig grunar að margar hljómsveitir hafi náð til fleiri hlustenda þökk sé netinu og það hlýtur að skila sér í H ljómsveitin Kai- ser Chiefs hefur notið mikilla vin- sælda undanfarið í Evrópu en sveitin spilar rokk í anda Bloc Party og Franz Ferdinand. Meðlimir sveit- arinnar eru frá Leeds í Englandi en nafn sveitarinnar er sótt til suður-afrísks fótboltafélags sem fyrrverandi fyrirliði Leeds Utd lék lengi vel með. Nick Hodgson, trommuleikari sveitarinnar, er geðþekkur ungur maður, hress og kátur. Hann hringdi í mig aðeins fyrr en hafði verið ákveðið og hóf sam- talið á að margbiðja mig af- sökunar á framferði sínu. Lét ég mér það í léttu rúmi liggja og tók að spyrja hann út í tónlist og annað slíkt. Talið barst að vel- gengni Kaiser Chiefs undanfarin tvö ár, Nick sagði að sér fyndist miklu lengri tími hafa liðið. „Við erum búnir að spila saman svo lengi að þegar platan okkar kom út og hjólin fóru að snúast litum við eiginlega bara á það sem bón- us.“ Mikið af efnilegum sveitum á MySpace Um þessar mundir er Kaiser Chiefs í hljóðveri að taka upp aðra plötu sína. Nick sagði upptökur ganga vel og að áhorfendur mættu búast við þróun frá síðustu plötu. „Við erum búnir að vera lengi á Kaiser Chiefs er meðal gesta á Iceland Air- waves. Helga Þórey Jónsdóttir ræddi við Nick Hodgson, trommuleikara sveitarinnar. ég Nick hvernig það legðist í hann að koma hingað heim. „Ég hef aldrei komið til Íslands en ég hlakka mikið til, ég hef heyrt svo margt gott um landið.“ Hann sagði hljómsveitina ætla að stoppa í nokkra daga og litast aðeins um. Hann sagðist líka ætla að reyna að kíkja svolítið á tónleika og bætti því við að honum þætti fátt skemmtilegra en að kynnast nýrri tónlist. tónleikaferðalagi og þegar maður þarf að spila sömu lögin aftur og aftur verður ekki hjá því komist að lögin þróist og breytist og þá auð- vitað öll hljómsveitin með.“ Hann sagði þá hafa leikið nokkur lög af nýju plötunni á hljómleikum og fengið góðar undirtektir. Nick sagðist hafa mikið skoðað vefsamfélagið MySpace und- anfarið. „Það er alveg ótrúlega mikið af efnilegum hljómsveitum betri tónleikaaðsókn.“ Nick lét ekki þar við sitja og bætti við að hann vorkenndi stærri nöfnum í tónlistarbransanum ekki mikið. Hlakkar til að skoða landið „Við höfum það fínt, við fáum ótrúlega vel borgað fyrir vinnuna okkar og ég sé ekki eftir pening- unum þó að sumt fólk sæki tónlist- ina mína á netið.“ Áður en við kvöddumst spurði Fátt skemmtilegra en ný tónlist Hressir Kaiser Chiefs treður upp í Listasafni Reykjavíkur laugardaginn 21. október á miðnætti. NORRÆNIR músíkdagar standa nú sem hæst og er dagskráin fjöl- breytt. Í dag verður frumflutt nýtt verk eftir Snorra Sigfús Birgisson í Saln- um í Kópavogi. Verkið, Píanókons- ert nr. 2, verður flutt af píanóleik- aranum Víkingi Heiðari Ólafssyni og Caput-hópnum. „Hér er á ferðinni nýr og glæsi- legur píanókonsert og það er alltaf frétt þegar ný íslensk verk af þessu tagi eru frumflutt,“ sagði Víkingur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Forsaga málsins er sú að Snorri kom að máli við mig og spurði hvort hann mætti semja fyrir mig verk. Mér fannst það fremur fyndið því svarið var að sjálfsögðu já og heið- urinn allur minn.“ Í kjölfarið lagðist Snorri í tón- smíðar en Víkingur segir hann gjarnan hafa þennan háttinn á, að semja fyrir fyrirfram ákveðna lista- menn. „Verkið er samið fyrir píanóleik- ara og kammerhóp sem er Caput- hópurinn. Það einkennist af fal- legum tónblæ og glæsilegum og krefjandi einleiksparti,“ segir Vík- ingur. Strangar æfingar að baki „Mér finnst mjög gaman að leika verkið því mér finnst ég eiga svolít- ið í því. Snorri hefur verið með á öll- um æfingunum og það er mjög gott að leita til hans við æfingar. Ég vildi stundum að maður gæti ráðfært sig við Bach og aðra höfunda sem mað- ur er að leika tónlist eftir en það er að sjálfsögðu ekki hægt,“ segir Vík- ingur. Hann segir mikla vinnu og strangar æfingar vera að baki verk- inu. „Maður þarf að leggja mjög hart að sér við verk sem aldrei hafa ver- ið flutt áður. Maður er eins og land- könnuður og er að upplifa og kanna mikið í fyrsta sinn. Það er mjög spennandi að hafa verkefni á borð við þetta til að hlúa að,“ segir hann. Verkið var samið sérstaklega fyr- ir þetta tilefni enda segir Víkingur Norræna músíkdaga einn af stærstu viðburðum í tónlistarlífinu ár hvert. Tónleikarnir fara sem fyrr segir fram í kvöld og hefjast þeir klukkan 18 í Salnum í Kópavogi. Eins og landkönnuður Morgunblaðið/Árni Sæberg Kátir Snorri Sigfús Birgisson tónskáld og Víkingur Heiðar Ólafsson píanó- leikari í Salnum í Kópavogi þar sem Víkingur frumflytur verk Snorra. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Það kennir margra ólíkra grasa á myndlistarhátíðinni Sequences, sem hefur göngu sína í Reykjavík í dag. » 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.