Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 51 menning Sheer Driving Pleasure BMW X5 www.bmw.is Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is ÞAÐ er jafnan einn af hápunktunum á næstum hverri djasshátíð hér- lendis þegar Útlendingahersveitin kemur saman og fremur list sína. Tónleikar með sveitinni á Nasa nk. laugardagskvöld eru lokahnykk- urinn á Jazzhátíð Reykjavíkur og um leið verður kynntur nýr diskur þeirra félaga, Time after time, sem tekinn var upp á tónleikum þegar sveitin kom síðast saman í apríl sl. Diskurinn er tekinn upp á tónleikum víða um landið í apríl og eru því upp- tökurnar allar „live“. Útlendingahersveitin var stofnuð árið 1992 fyrir atbeina stjórnar Rú- rek-djasshátíðarinnar, sem var sam- starf Ríkisútvarpsins og Reykjavík- urborgar og undanfari Jazzhátíðar Reykjavíkur. Sveitin hefur verið eins skipuð frá upphafi og koma fé- lagarnir hver úr sinni áttinni og dregur hún nafn sitt af því. Árni Scheving er víbrafónleikari Útlend- ingahersveitarinnar, Þórarinn Ólafs- son er píanóleikari, Jón Páll Bjarna- son gítarleikari, Árni Egilsson bassaleikari og Pétur Östlund trommuleikari. Tónleikarnir að mestu leyti helgaðir tónlist af nýjasta disknum Árni Egilsson og Jón Páll komu jafnan alla leið frá Kaliforníu til þess að leika með sveitinni en nú hefur sá síðarnefndi flust til Íslands á ný. Pétur kemur frá Stokkhólmi í Sví- þjóð og Þórarinn frá Englandi. Árni Scheving hefur á hinn bóginn að mestu haldið sig á Íslandi. Tónleikarnir nk. laugardagskvöld verða að mestu leyti helgaðir tónlist af nýja disknum sem hefur að geyma 12 lög, þar af 8 frumsamin, en það hefur ávallt verið vörumerki sveit- arinnar að flytja frumsamda tónlist. Meginhluti laganna á disknum eru eftir Árna Egilsson, sem býr og starfar í Los Angeles. Lögin eru Me- mory of Andrés, Song of the Garde- ners, NHÖP og We Try to go on. Árni kveðst vera að mestu hættur í stúdíóvinnu, sem hefur verið hans lifibrauð áratugum saman í Banda- ríkjunum. Nú vilji hann rækta garð- inn heima fyrir og njóta lífsins uppi í kalifornískri sveitinni. Ótrúleg gerjun í menning- arlífinu hér á Íslandi „Það er ótrúleg gerjun hérna. Það voru 255.000 manns sem fóru á leik- sýningar á síðasta ári í Reykjavík. Þetta jafngildir því ef 255 milljónir manns sæktu leiksýningar í Banda- ríkjunum. Þetta er hreint ótrúlegt og þekkist hvergi annars staðar á byggðu bóli,“ segir Árni Egilsson. Hann segir líka að það komi sér alltaf jafnmikið á óvart þegar hann kemur í heimsókn til föðurlandsins hve hár gæðastaðall sé á íslenskum djasstónlistarmönnum. Hér sé fjöldi af mjög frambærilegum bassaleik- urum og saxófónleikarar og gít- arleikarar í hrönnum. Hann þakkar þetta ekki síst starfi FÍH-skólans og þeirri víðsýni sem ríkir til tónlistar- menntunar þar. Það sé ómetanlegt fyrir upprennandi tónlistarmenn að fá innsýn inn í sem flestar tónlist- arstefnur og tækifæri til þess að spreyta sig á ólíkum vettvangi. Þeir félagar segja að það sé alltaf jafngaman að koma saman í Útlend- ingahersveitinni. „Við erum að spila saman tónlist sem við myndum ann- ars aldrei spila. Þetta er bara það sem kemur frá okkur öllum, hvort sem það er í formi tónsmíða eða út- setninga. Tónlistin er ekki öll eftir okkur og hluti af þessu eru stand- ardar.“ Árni Scheving á tvö lög á Time af- ter Time og útsetur eitt lag ásamt Þórarni, og Árni Egilsson á fimm lög, Pétur útsetur tvö lög og Jón Páll Bjarnason á eitt lag. Þrátt fyrir að heilu höfin aðskilji þá félaga hafa leiðir þeirra þó einatt legið saman í gegnum tónlistina. Þess má t.d. til gamans geta að Þór- arinn og Scheving voru samtíða í Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem sá fyrrnefndi lék á flautu. „Þegar við vorum ungir og vörpu- legir vorum við að stelast í það að spila svona músík. Scheving var náttúrulega stórstjarna á þessum árum og lék með KK-sextettinum, sem er líklega besta hljómsveit sem við höfum átt á Íslandi og með bestu hljóðfæraleikurunum,“ segir Árni Egilsson. „Við vorum fullir aðdáunar allir hinir og alltaf tilbúnir að hlaupa í skarðið ef einhver forfallaðist.“ „Þetta er aðeins í fjórða skipti sem við komum allir saman, og það síðasta,“ segir Árni Scheving. Þegar blaðamaður innir hann eftir þessum tíðindum upplýsir hann að menn hafi komist að þeirri niðurstöðu að láta staðar numið. Þetta verða sem sagt síðustu tónleikarnir sem haldnir verða með Útlendingahersveitinni og þeir verða að hausti til. Það er spurning hvort Autumn Leaves verði á efnisskránni. „Það er ómögulegt að segja. Við erum ekki farnir að velja lögin ennþá,“ segir Árni Egilsson og Árni Scheving bætir við að líklegast verði uppistaðan lög af nýja diskinum. Hann segir að þeir renni blint í sjó- inn með aðsókn enda hafi sjaldan verið jafnmikið um að vera í Reykja- vík og einmitt um þessar mundir. Vopnin kvödd Útlendingahersveitin heldur loka- tónleika á Nasa á laugardagskvöld Morgunblaðið/Sverrir Málaliðar Nafnarnir Árni Egilsson og Árni Scheving spila annað kvöld frumsamin lög og standarda á Nasa ásamt félögum í Útlendingahersveitinni. Tónleikarnir eru lokahnykkurinn á Jazzhátíð Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.