Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning SEQUENCES er alþjóðleg hátíð þar sem sjónum er beint að líðandi list – myndlist sem líður í tíma, eins og vídeólist og hljóðlist. Á há- tíðinni verður myndlist sett í samhengi við aðra miðla, einkum hljóð og gjörningalist. Há- tíðin fer fram víða um miðborg Reykjavíkur, ekki einungis í söfnum og galleríum heldur verða viðburðir hátíðarinnar einnig utandyra og á óhefðbundnum sýningarstöðum. Hópur alþjóðlegra og íslenskra listamanna tekur þátt í hátíðinni. Nína Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Se- quence-hátíðarinnar, segir að opnun hátíð- arinnar verði í dag í Nýlistasafninu kl. 18. Þar verður dagskrá í fjóra tíma í safninu og í kringum það þar sem verða gjörningar og víd- eóvarpanir. Á morgun verða opnaðar sýningar hjá öðr- um en Nína segir að allar myndlistarstofnanir á Íslandi komi að hátíðinni, hver með sínum hætti. Hún segir dagskrá hátíðarinnar mjög vandaða sem komi einungis til af einskærum áhuga listamannanna sjálfra. „Myndlist- armenn eru að kveikja líf í borginni þessar tvær vikur sem hátíðin verður. Fjöldi verkefna gerast einungis einu sinni, þ.e.a.s. gjörningar og varpanir. Í Tjarnarbíó verður boðið upp á fimm mismunandi atburði fimm kvöld hátíð- arinnar. Þar verða sýnd tónlistarmyndbönd erlendis frá, vídeóverk, experimental- tónleikar og fleira,“ segir Nína. Í tengslum við Sequences opnar Eirún Sig- urðardóttir einkasýningu í Listasafni ASÍ á morgun sem kallast Blóðhola. Við opnun sýn- ingarinnar flytur Ásmundur Ásmundsson gjörning/ræðu. Eirún lætur á hinn bóginn skúlptúra, ljósmyndir, teikningar og videó tala sínu máli. Una Þorleifsdóttir leiklistafræð- ingur hefur samið hugleiðingu í tengslum við verkin sem heitir: Stelpa/móðir-ég. Gunnhildur Hauksdóttir, myndlistarmaður, tók saman umræður um verkin á meðan á vinnslu þeirra stóð undir yfirskriftinni: Lauk- ar og kartöflur, brjóstamjólk og sæði. Gefa þessar fyrirsagnir góða hugmynd um innihald verkanna. „Ég er einn þriðji af Gjörningaklúbbnum en sýninguna vinn ég út frá móðurhlutverkinu. Ég er móðir og vinn því út frá eigin reynslu en samt í víðara samhengi. Það að eignast barn er að taka þátt í hversdagslegasta kraftaverki í heiminum. Ég er líka að reyna að átta mig á samhengi hlutanna og það gerist líka við þenn- an atburð. Sýningin gengur út á það að skoða heiminn sem ég er í, hvaðan ég kem en samt í víðara samhengi,“ segir Eirún. „Ég tók ljósmyndir af fólki í ákveðnum bún- ingi sem kallast Tengill. Tengillinn er með langan hala úr höfðinu sem er skilningssnúra sem tengir fólk við fortíðina og það skilur hlut- ina fyrir tilverknað halans. Ég tók myndir af fólki í þessum búningi á ýmsum stöðum þar sem það er í tengslum við náttúruna, borgina og jafnvel drauga,“ segir Eirún. Ennfremur sýnir Eirún sjálfsmyndir, hann- yrðir og stóran skúlptúr þar sem amma henn- ar og aðrir niðjar leika stórt hlutverk. Myndlist og gjörning- ar um alla borg Sequence Nína Magnúsdóttir fram- kvæmdastjóri Sequence hátíðarinnar. Tengill „Ég tók ljósmyndir af fólki í ákveðnum búningi sem kallast Tengill,“ segir Eyrún Sigurðar dóttir sem opnar einkasýningu í Listasafni ASÍ á morgun sem kallast Blóðhola. Morgunblaðið/ÞÖK HLJÓMSVEITIN Dikta náði fyrst almennri athygli fyrir síðustu jól þegar önnur plata sveitarinnar, Hunting for Happiness, kom út. Sú plata vakti athygli fyrir stórgóðar lagasmíðar en þá var heildar- hljómur plötunnar ekki síst lofsunginn enda upp- tökustjórn í höndum gít- arleikarans Ace sem glamraði hér á árum áður með Skunk Anansie. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og samfara mikilli spilamennsku hér heima hefur Dikta haldið í tónleikaferðir bæði til Evrópu og Bandaríkjanna. „Við fórum fyrst í eins kon- ar Evróputúr í sumar. Spil- uðum þá meðal annars í Fær- eyjum, Danmörku og Englandi,“ segir Jón Þór Sig- urðsson, trommuleikari sveit- arinnar, af sumum nefndur Nonni kjuði. Í sveittri kjallaraholu „Í Danmörku spiluðum við á Spot-hátíðinni í Árósum og svo spiluðum við líka í nýju 12 Tóna-búðinni sem þar var opnuð í sumar. Í London tók- um við upp myndband og lék- um svo meðal annars í sveitt- ustu kjallaraholu Lundúna, sem kallast 333 og er við Hox- ton Square, að ég held.“ Aðspurður út í viðtökur tónleikagesta á þessum stöð- um segir Jón Þór að þær hafi verið mjög fínar. „Þetta gekk framar öllum okkar vonum og yfirleitt mætti fullt af fólki þannig að við skemmtum okkur mjög vel.“ Jón Þór vill þó lítið gefa út á áhuga plötubransans í þess- um löndum: „Ég veit það ekki, það voru held ég ein- hverjir bransakallar þarna en ég tók lítið eftir þeim og það hefur allavega ekkert komið út úr því ennþá.“ Bjargað af fyrirsætu í New York Dikta hélt svo á dögunum tvenna tónleika í New York en fyrri tónleikarnir sem fóru fram á staðnum Pianos á Manhattan voru útvegaðir í gegnum karaókí-hópinn Ka- raoke Killed the Cat sem kom hingað til lands á árinu. Fremst meðal jafningja í þeim góða klúbbi er ljóskan Shandi Sullivan úr America’s Next Top Model sem Jón Þór segir að hafi bjargað sér inn í leigubíl þar sem hann stóð áfengisdauður í miðri Man- hattan. „Ég er henni æv- inlega þakklátur fyrir það.“ Tónleikarnir í New York gengu ekki síður en í Evrópu, en þeir sem hafa vit á halda því fram að tónlist Diktu höfði meira til Bandaríkjamanna en Evrópubúa. Hvað Airwaves varðar seg- ir Jón Þór að þeir muni að öll- um líkindum kynna nýtt efni, þó ekki væri nema tvö lög, en sveitin hafi verið að vinna að nýjum lögum undanfarið. „Við hlökkum mikið til að sjá innlend og útlend bönd og Airwaves er frábær hátíð að því leyti að hún setur þrýsting á hljómsveitir eins og okkur um að koma fram með nýtt efni og sýna að maður sé að gera eitthvað.“ Dikta leikur á Gauknum miðvikudaginn 18. október. Tónlist | Dikta kemur fram á Iceland Airvawes-hátíðinni Kærkominn þrýstingur Photo/Árni Torfason Airwaves Dikta er nýkomin frá New York þar sem hún hélt tvenna tónleika. Hún leikur nýtt efni á tónleikunum 18. okt. STJÓRN Félags leikskálda og handritshöfunda hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna nýs samnings milli menntamálaráðuneytis og Ríkisútvarpsins: „Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samningi milli Rík- isútvarpsins og mennta- málaráðuneytisins, þar sem m.a. er kveðið á um verulega aukinn hlut íslensks dag- skrárefnis í RÚV – Sjónvarpi á næstu fimm árum. Stjórnin harmar hins vegar að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlut- fall eyrnamerkt leiknu ís- lensku sjónvarpsefni. Félagið hefur á und- anförnum árum ítrekað bent á nauðsyn slíkrar eyrnamerk- ingar, til að fyrirbyggja að innlent leikið sjónvarpsefni, sem er vinsælasta dagskrár- efni í öllum sjónvarpsstöðvum heimsins, en jafnframt eitt hið dýrasta í framleiðslu, þurfi sífellt að keppa við ódýrara efni um fjármagn, með þeim afleiðingum sem við blasa. Augljóst er að sé aðeins miðað við útsendingarm- ínútur af íslensku efni, hlýtur ávallt að vera hætta á því að tiltölulega ódýrt spjall- þáttaefni verði yfirgnæfandi í þeim flokki. Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar þeim ákvæðum í samningnum þar sem segir að RÚV skuli verja tilteknum fjárhæðum til að kaupa eða gerast meðfram- leiðandi að efni frá sjálf- stæðum framleiðendum. Þar segir (3.gr, 11 mgr.): „RÚV skal gerast kaupandi eða meðframleiðandi að leiknu sjónvarpsefni, kvik- myndum, heimildamyndum eða öðru sjónvarpsefni og verja til þess að lágmarki 150 millj. kr. á ári frá og með árinu 2008. Árið 2009 hækkar upphæðin í 200 millj. kr. og verður við lok samnings- tímabilsins 250 millj.kr.“ Stjórn FLH væntir þess að röð þeirra efnisflokka sem hér er notuð verði tekin bók- staflega varðandi mikilvægi þeirra í framkvæmd samn- ingsins. Hingað til hefur efn- isflokkurinn „annað sjón- varpsefni“ ætíð verið í fyrirrúmi í sjónvarpsdagskrá RÚV. Væntanlega er hér gert ráð fyrir öðru. Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda: Hávar Sigurjónsson formaður Sveinbjörn I. Baldvinsson rit- ari Bjarni Jónsson gjaldkeri Margrét Örnólfsdóttir meðstjórnandi Karl Ágúst Úlfsson meðstjórnandi“ Saknar sértækra ákvæða um leikið efni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.