Morgunblaðið - 13.10.2006, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTLIÐIÐ miðvikudagskvöld
brá ég mér á íslenska rokktónleika í
Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir
voru haldnir til heiðurs því að fimm-
tíu ár eru liðin frá innrás rokktónlist-
arinnar hér á landi. Margt af fólkinu
sem tók þátt í tónlistarlífinu á þessum
árum kom fram og var ekki laust við
að andi liðinna tíma svifi yfir vötnum.
Uppselt var bæði kvöldin og komust
því færri að en vildu.
Saga rokktónlistar er æði mikil og
flókin og var því stiklað á stóru á tón-
leikunum. Hljómsveit hússins var
stórkostleg. Hljómur hennar var af-
skaplega þýður og góður. Hæfileikar,
tækni og sál tónlistarmannanna rann
saman í fullkomna blöndu af gleði
góðra tóna. Þorgeir Ástvaldsson,
kynnir kvöldsins, sá til þess að stemn-
ingin væri létt og skemmtileg. Hann
lék á als oddi og sagði brandara á
milli atriða eins og honum einum er
lagið.
Fyrir hlé komu fram þau Rúnar
Guðjónsson, Bertha Biering, Þor-
steinn Eggertsson, Fjóla Ólafsdóttir,
Stefán Jónsson og Anna Vilhjálms.
Hljómsveitin byrjaði á því að leika
Night Train eftir Erskine Hawklins
áður en söngvararnir stigu á svið
hver á fætur öðrum. Mér þótti svo
gaman að sjá loksins og heyra í öllu
þessu góða fólki sem ég hef bara lesið
um í bókum og blaðagreinum. Það
sem mér þótti best af öllu var að sjá
að það vantar ekki stuðið sem gerði
þau að stjörnum á sínum tíma. Það
var mikið dansað og þeir Rúnar Guð-
jónsson og Þorsteinn Eggertsson
fóru á kostum þar sem þeir tvistuðu
og létu eins og þeir væru ennþá ung-
lingar. Að öðrum ólöstuðum þótti mér
Fjóla Ólafsdóttir hafa sérlega
skemmtilega framkomu, hún hefur
söngstíl sem heyrist ekki oft nú á
dögum auk þess sem hún bar sig
glæsilega.
Eftir hlé hóf hljómsveitin leik sinn
á Topsy eftir Cozy Cole og gladdi það
tónleikagesti mikið. Þegar hér var
komið við sögu hafði stemningin
magnast allverulega og ekki hefur
það spillt fyrir að hægt var að fá sér
neðan í því í hléinu. Guðmundur
Steingrímsson tók sig vel út á tromm-
unum, sýndi töffaratakta og tilþrif –
skemmtilegur náungi. Garðar Guð-
mundsson hóf svo leikinn og sungu
margir með þegar hann tók lagið
„Lucky Lips“ sem Cliff Richards
gerði frægt um árið. Helenu Eyjólfs-
dóttur var fagnað vel enda er hún
orðin goðsögn í tónlistarbransanum
og alltaf gaman að sjá hana koma
fram. Mjöll Hólm var í miklu stuði.
Frá þeirri konu skín svo mikil gleði
og innlifun að það er hrein nautn að
fylgjast með henni á sviði. Hún ber
sig svo vel og er ein af þessum konum
sem verða alltaf ungar stúlkur. Ég
gæti horft á hana syngja í marga
klukkutíma. Sigurður Johnnie hefur
engu gleymt og söng „Be-bop-a-
Lula“ og „Buona Sera“ við mikinn
fögnuð. Síðastur á svið var enginn
annar er Raggi Bjarna. Hann fékk
áhorfendur til að reisa sig úr sætum
og lauk kvöldinu með glæsibrag.
Hann stjórnaði söngnum í salnum en
þá komu söngvarar kvöldsins allir
upp á svið og sungu saman „Vertu
ekki að horfa svona alltaf á mig“ og
síðast en ekki síst lagið „Rock Aro-
und the Clock“ sem markaði upphaf
þessara gullnu ára rokktónlistar.
Tónleikarnir voru vel heppnaðir í
alla staði. Skipulagið gekk vel fyrir
sig og voru tónleikarnir alls ekki of
langir þrátt fyrir marga flytjendur.
Þorgeir Ástvaldsson stóð sig með
prýði og heiðraði hann Ólaf Laufdal
sem var gestur tónleikanna þetta
kvöld en Ólafur hefur svo sannarlega
átt sinn þátt í að gæða menningarlíf
Íslands fjölbreytni.
Vel heppnaðir tónleikar
TÓNLIST
Salurinn
Tónleikarnir Rokk og ról í 50 ár – 50 ára
afmæli rokksins á Íslandi í Salnum í
Kópavogi. Fram komu: Rúnar Guð-
jónsson, Bertha Biering, Þorsteinn Egg-
ertsson, Fjóla Ólafsdóttir, Stefán Jóns-
son, Anna Vilhjálms, Garðar
Guðmundsson, Helena Eyjólfsdóttir,
Mjöll Hólm, Sigurður Johnnie og Ragnar
Bjarnason. Hljómsveit Þorleifs Gísla-
sonar lék undir en hana skipa Elvar Berg
á píanó, Arthur Moon á bassa, Guð-
mundur St. Steingrímsson á trommur,
Þórður Árnason á gítar, Vilhjálmur Guð-
jónsson á saxófón og Þorleifur Gíslason á
saxófón. Þorleifur Gíslason annaðist all-
ar útsetningar. Kynnir: Þorgeir Ástvalds-
son.
50 ára afmæli rokksins á Íslandi
Helga Þórey Jónsdóttir
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Álit gagnrýnanda „Í heildina voru þetta frábærir tónleikar.“
THE Devil Wears Prada
segir frá hinni ungu og
óhörðnuðu Andy Sachs
(Anne Hathaway) sem fær
vinnu sem annar aðstoð-
armaður Miröndu Priest-
ley (Meryl Streep), sem er
harðskeyttur ritstjóri
tískutímaritsins Runway.
Sachs sækir í verkið
vegna áhuga á blaða-
mennsku en finnur fljótt
að Priestley þykir ekki
mikið til hennar koma.
Með hjálp kollega síns
(Stanley Tucci) tekst
henni að verða samkeppn-
ishæfari í tískubransanum
en lendir fljótlega í þeirri
stöðu að þurfa að velja á milli fyrra
lífs síns og þess nýja.
The Devil Wears Prada er frum-
sýnd í Smárabíói, Regnboganum,
Laugarásbíói og Borgarbíói á Ak-
ureyri í dag.
Frumsýning | The Devil Wears Prada
Fjandinn í hátískufatnaði
Erlendir dómar
Metacritic: 62/100
New York Times: 70/100
Hollywood Reporter: 70/100
Roger Ebert: 50/100
Djöfullinn í Prada Meryl Streep og Anne
Hathaway í hlutverkum sínum.
Rokksveit
Rúnars Júlíussonar
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELAWW G.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Kortasala enn í fullum gangi!
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau 14. okt kl. 14 UPPSELT
Lau 14. okt kl. 15 UPPSELT
Lau 14. okt kl. 16 Aukasýning - í sölu núna!
Sun 15. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 15. okt kl. 15 UPPSELT
Sun 15. okt kl. 16 UPPSELT
Lau 21. okt kl. 14 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 13 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 15 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 16 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 14
Næstu sýn: 5/11, 12/11
Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu
Fös 13. okt kl. 20 UPPSELT - 6. kortasýn
Lau 14. okt kl. 20 7. kortasýn
Fös 20. okt kl. 20 Síðasta sýning!
Herra Kolbert – sala hafin!
Lau 28. okt kl. 20 Frumsýning UPPSELT
Næstu sýn.: 29/10, 2/11, 3/11, 4/11, 5/11, 9/11,
10/11, 12/11, 16/11
Sun 15/10 kl. 14 Sun 22/10 kl. 14
Lau 28/10 kl. 14 Sun 29/10 kl. 14
Í kvöld kl. 20 Sun 15/10 kl. 20
Lau 14/10 kl. 20 Sun 22/10 kl. 20
Fös 27/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 20
Í kvöld kl. 20 Lau 14/10 kl. 20
Síðustu sýningar
SNIGLABANDIÐ
Útgáfutónleikar Sniglabandsins
Mið 18/10 kl. 20:30 Miðaverð 2.200
TÓNLISTARSKÓLI AKRANESS
Þjóðlagasveit tónlistarskólans á
Akranesi
Mið 25/10 kl. 20:30 Miðaverð 1.500
Í kvöld kl. 20 Sun 15/10 kl. 20
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga
í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með
greiðslu viku fyrir sýningardag
Upppantað á allar sýningar í október
Óstaðfestir miðar seldir viku fyrir sýningu.
Eftir Benedikt Erlingsson
Sýningar í september og október
Sala hafin á sýningar í apríl 2007
Föstudagur 13. apríl kl. 20
Laugardagur 14. apríl kl. 20
Sunnudagur 15. apríl kl. 16
Fimmtudagur 19. apríl kl. 20
(sumardagurinn fyrsti)
Föstudagur 20. apríl kl. 20
Laugardagur 21. apríl kl. 20
Sunnudagur 22. apríl kl. 16
Fimmtudagur 26. apríl kl. 20
Föstudagur 27. apríl kl. 20
Laugardagur 28. apríl kl. 20
Sunnudagur 29. apríl kl. 16
Systur
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
í Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 20
Síðustu sýningar!
sun. 15. okt.
fös. 20. okt. örfá sæti laus
Sýning ársins, leikskáld
ársins, leikkonur ársins
Tréhausinn á leiklist.is.
Systratilboð: systrahópar borga
aðeins einn miða!
Miðapantanir:
551 2525 og hugleikur.is