Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 55
menning
Á DJASSHÁTÍÐUM eru oft kall-
aðar saman stórstjörnur sem alla
jafnan leika ekki
saman og í þrígang
hafa gömlu fé-
lagarnir úr Jazz-
klúbbi Reykjavíkur
í Tjarnarcafé leikið
undir nafninu Útlendingahersveitin
á djasshátíðum í Reykjavík. Af-
raksturinn er fjöldi tónleika, út-
varps- og sjónvarpsupptökur og
tveir geisladiskar og nú á laug-
ardagskvöld verður lokaorrustan –
í það minnsta hafa þeir félagar gef-
ið til kynna að þeir muni varla leika
saman aftur. Er þetta einnig enda-
hnykkur Jazzhátíðar Reykjavíkur
2006 og verður spilað í NASA.
Nýi diskur Útlendingahersveit-
arinnar nefnist Time After Time
eftir söngdansi Jule Styne, en
Scheving og Þórarinn útsettu hann
fyrir Útlendingahersveitina. Eru
sólóar Schevings og Jóns Páls þar
gullsins virði. Árni skellti ball-
öðunni í svíngtempó og Jón sló gít-
arsóló er hitti í hjartastað. Pétur
Östlund átti heiðurinn af útsetn-
ingum á Soon eftir Gershwin og
Out of Town eftir Cole Porter, frá-
bæra útsetningu, og þar er hann í
aðalhlutverki og vitnaði glæsilega í
stílsögu djasstrommunnar, enda
býr hann yfir þeirri þekkingu er
þarf. Eftir Jón Pál var fínn bopó-
pus, JP-Q, en þar er hann best
heima. Leika þeir Árni Egils laglín-
una samstíga af mikilli list og lyfti
hrynleikur Árna og Péturs sóló
Jóns í hæðir. Eftir Árna Scheving
lék sveitin fimmundarhljómablús,
sem bannaður hefði verið í pápísku.
Sérlega velheppnuð íslensk/afrísk
tónsmíð og sóló Árna gullisleginn
eins og hjá Milt Jackson á góðum
degi. Árni á einnig vals á skífunni,
með norrænu yfirbragði, Brúð-
arvalsinn.
Fimm verk eru eftir Árna Eg-
ilsson, auk þess sem hann útsetur
Íslenskt vögguljóð á hörpu, hið
undurfagra lag Jóns Þórarinssonar
við ljóð Laxness, en það flutti Árni
með Niels-Henning er hann lék í
síðasta skipti á Íslandi árið 2004.
Árni leikur hér glæsilega með boga
minningaróð sinn um Niels, We
Try To Go On, og pikkar lag sitt
NHØP – bæði nílsk í anda. Song of
The Gartners er grípandi melódía,
sömbuskotin með dramatískum
undirtón og Senerity ljúf ballaða.
Svo leika þeir félagar minning-
arljóð um Andrés Ingólfsson, saxó-
fónmeistara, sem lést árið 1979 að-
eins 43ja ára gamall og sólóar
Scheving, Jóns Páls og Þórarins
tær snilli svo og hrynleikur Árna
og Péturs sem galdrar með burst-
unum.
Hljóðritun Gunnars Smára er
vönduð, annað en sagt verður um
umslagið, en þetta er glæsileg skífa
glæsilegs kvintetts.
Lokaorrustan
DJASSTÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Árni Scheving víbrafón, Þórarinn Ólafs-
son píanó, Jón Páll Bjarnason gítar, Árni
Egilsson bassa og Pétur Östlund tromm-
ur. Hljóðritað á ferð um Ísland í apríl
2006. Rivers 02.
Útlendingahersveitin
Vernharður Linnet
Hvað segirðu gott?
Ég segi bara allt frábært! Við vorum
að frumsýna Patrek 1,5 á þriðjudag-
inn á Selfossi og það gekk svona
rosalega vel, og erum að leggja af
stað í hringferð um landið að heim-
sækja alla menntaskólana á Íslandi.
Sástu stuttmyndina „Góðir gestir“ í
Iðnó 6. október? (spurt af síðasta
aðalsmanni Ísold Uggadóttur)
Nei, því miður.
Kanntu þjóðsönginn?
Sem mikill knattspyrnugúru … að
sjálfsögðu!
Áttu þér gælunafn?
Já, nokkur, og öll eiga þau það sam-
eiginlegt að hafa eitthvað með stærð
mína að gera.
Hvað talarðu mörg tungumál?
Rúmlega þrjú.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Fór til Englands núna í sumar til að
ganga frá eftir að hafa verið þar í
þrjú ár í námi.
Robert deNiro eða Jack Nicolson?
Robert deNiro.
Uppáhaldsmaturinn?
Kjúklinga Fajitas.
Bragðbesti skyndibitinn?
Stællinn.
Hvaða bók lastu síðast?
Bókina um Guðna Bergs held ég.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Fagnaður
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Nýju plötuna með Gunna og Felix,
Lögin hans Jóns míns.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Hlusta jafnt á allar held ég en ef ég
hlusta meira á einhverja eina en hin-
ar er það sennilega FM.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Entourage.
Þú ferð á grímuball sem?
Hobbiti.
Helstu kostir þínir?
Metnaðarfullur.
En gallar?
Á það til að vera aðeins of þrjóskur.
Fyrsta ástin?
Var frábær!
Besta líkamsræktin?
World Class og fótbolti.
Algengasti ruslpósturinn?
Visa reikningar.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Black Code.
Hvar myndirðu vilja búa annars
staðar en á Íslandi?
London.
Ertu með bloggsíðu?
Já, sem fylgir sýningunni Patrekur
1,5 á síðu Þjóðleikhússins.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hvað vilt þú sjá í leikhúsi á Íslandi?
Metnaðarfullur
knattspyrnugúrú
Sigurður Hrannar
Hjaltason er nýútskrif-
aður leikari. Hann fer
þessa dagana með hlut-
verk vandræðaung-
lings í leikritinu Pat-
rekur 1,5 sem sýnt
verður í Þjóðleikhúsinu
í vetur sem og öllum
framhaldsskólum á Ís-
landi.
Morgunblaðið/RAX
Leikarinn Sigurður Hrannar myndi mæta sem hobbiti á grímuball.
Íslenskur aðall | Sigurður Hrannar Hjaltason
ÞEGAR þeir félagar Hris Pontius,
Johnny Knoxville, Steve-O, Bam
Margera og allir hinir kenndir við
félagskapinn Jackass hófu að sjón-
varpa uppátækjum sínum má segja
að brotið hafi verið blað í sögu sjón-
varps.
Allt í einu settist fólk, að mestu
leyti ungt fólk, niður og horfði á
hálf fullorðna menn ganga í skrokk
á hverjum öðrum, fara í stólpípuað-
gerð, hefta sig í bringuna, fá raflost
í geirvörturnar og annað sem ekki
verður nefnt hér, og hafa mjög
gaman að.
Í kjölfar vinsælda þáttanna kom
svo fyrsta kvikmyndin, Jackass:
The Move, árið 2002 og nú, fjórum
árum síðar, framhaldsmynd.
Það má búast við því að Knoxville
og félagar séu við sama heygarðs-
hornið og þó það megi hafa gaman
að uppátækjum þeirra eru áhorf-
endur eindregið hvattir til að reyna
þau ekki heima hjá sér!
Jackass Number Two er frum-
sýnd í dag í Sambíóunum og Laug-
arásbíói.
Jackass Kjánaprikunum er fátt heilagt.
Frumsýning | Jackass Number Two
Ekki reyna
þetta heima!
Erlendir dómar
Metacritic: 66/100
Hollywood Reporter: 90/100
New York Times: 90/100
Variety: 40/100
Allt skv. Metacritic.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn