Morgunblaðið - 13.10.2006, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ELLEN, MIG
LANGAR AÐ SEGJA
ÞÉR SVOLÍTIÐ
ÉG Á BARA VIKU
EFTIR ÓLIFAÐ
VÚHÚÚ!! ÞAÐ GEKK EKKI AÐ
REYNA AÐ FÁ SAMÚÐ
ÞÚ HEFUR
ALLA MÍNA
SAMÚÐ
SNOOPY,
HVAÐ
FINNST ÞÉR
UM NÝJA
MATAR-
DISKINN
ÞINN
HMMPF!
ÉG GÆTI
ALVEG
LÁTIÐ
SETJA
NAFNIÐ
ÞITT Á
HANN
ÉG
ER
SVANGUR
ÞÚ GETUR
EKKI VEITT
NEITT Á MÍNU
SVÆÐI. ÞAÐ
STENDUR Í
BÓKINNI
HVAÐ
ÉTA
TÍGRISDÝR
EIGINLEGA
?
VIÐ BORÐUM
ÓGEÐSLEGAR
LIRFUR EINS
OG ÞESSA
Í ALVÖRU?
JÁ EN HÚN
ER MEÐ
HÁR OG
BRODDA
OG ALLT!
VIÐ
BORÐUM
HEILU
HAUGANA
AF ÞEIM
MÁ
ÉG SJÁ
BÓKINA
?
ÆTLARÐU AÐ
TRÚA EINHVERJUM
RITHÖFUNDI
EÐA ALVÖRU
TÍGRISDÝRI?
HELGA, ÉG
VEIDDI HANDA
ÞÉR HVAL
Í ALVÖRU?!?
HVAÐ NOTAÐIR
ÞÚ SEM
BEITU?
HEPPNA
EDDA
ÉG VEF BARA LÍMBANDI
UTAN UM ÞIG ALLAN, ÞANNIG
AÐ ÞAÐ LÍTI ÚT FYRIR AÐ
ÞÚ HAFIR LENT Í SLYSI...
ÞÁ TEKUR
ENGINN EFTIR
EYRUNUM Á ÞÉR
MMMFF!! EKKERT AÐ
ÞAKKA
ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ
EINU FYRIRMYNDIRNAR SEM KIDDA
HEFUR ERU KONUR EINS OG
BRITNEY SPEARS
SJÁÐU BARA HVERNIG
HÚN HAGAR SÉR OG HVERNIG
HÚN ER KLÆDD! HVAÐA
SKILABOÐ SENDIR ÞETTA TIL
UNGRA STELPNA?
AÐ MEÐ SMÁ HÆFILEIKUM OG
FLOTTUM LÍKAMA ÞÁ GETA ÞÆR
ORÐIÐ MILLJÓNAMÆRINGAR
ÞÚ ERT
ÓGEÐ!
GOTT AÐ ÞÚ
ERT KOMINN, VIÐ
ÞURFUM AÐ FARA
YFIR HANDRITIÐ
FÁÐU
ÞÉR
SÆTI
ÉG
ÞAKKA
BOÐIÐ
ÞETTA ER HAND-
RITSHÖFUNDURINN
OKKAR, HANN JOE
EKKI ÞESSI
HÁLFVITI
AFTUR
Rannsóknastofa Háskóla Ís-lands og Landspítala –háskólasjúkrahúss í öldr-unarfræðum og öldr-
unarsvið Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss standa fyrir fræðsludegi
í dag, 13. október.
Helga Hansdóttir öldrunarlæknir
er einn af skipuleggjendum fræðslu-
dagsins: „Rannsóknastofan hefur
haldið fræðsludag árlega um nokk-
urt skeið. Að þessu sinni helgum við
dagskrána byltum aldraðra og munu
fjórir fyrirlesarar taka þátt í
fræðsludagskrá í Öskju, Nátt-
úrufræðahúsi Háskóla Íslands,“ seg-
ir Helga sem sjálf mun halda fyr-
irlestur þar sem hún kynnir byltu-
og beinverndarmóttöku sem starf-
rækt hefur verið við Landakotsspít-
ala í nokkur ár:
„Við höfum fengið hingað til lands
erlendan fyrirlesara, James O.
Judge öldrunarlækni. Hann mun
flytja erindið „Hvernig þjálfun
fækkar byltum, hvar og hversu lengi
– niðurstöður rannsókna,“ og veita
gott yfirlit yfir helstu þekkingu og
þróun í dag á byltum og byltuvörn-
um. Þá mun Ella Kolbrún Krist-
insdóttir, dósent í sjúkraþjálfun,
flytja erindið „Jafnvægistruflanir í
innra eyra“ þar sem hún kynnir
rannsóknir sínar á truflun jafnvæg-
iskerfisins. Loks mun Bergþóra
Baldursdóttir sjúkraþjálfari kynna
rannsóknarverkefni sitt til meist-
aranáms með erindinu: „Rannsókn á
áhrifum skynþjálfunar á jafnvægi
hjá öldruðum“.“
Að loknum fyrirlestrum verða
pallborðsumræður um byltur og for-
varnargildi þjálfunar.
Byltur eru eitt af stærstu heilsu-
farsvandamálum aldraðra. Geta
byltur valdið áverkum og bein-
brotum sem iðulega leiða til að-
hlynningar á sjúkrahúsi og/eða vist-
unar á hjúkrunarheimili. Byltur geta
valdið miklum sársauka og skerð-
ingu lífsgæða og geta í verstu til-
vikum verið banvænar.
Árlega mjaðmarbrotna tæplega
250 manns á Íslandi en talið er að 1%
af byltum aldraðra valdi mjaðm-
arbroti: „Orsakir bylta geta m.a.
verið jafnvægistruflanir og skortur á
styrk sökum öldrunar en einnig hafa
ýmsir sjúkdómar og lyf áhrif. Rann-
sóknir hafa sýnt að rétt sjúkraþjálf-
un þar sem áhersla er lögð á jafn-
vægis- og styrktaræfingar hefur
mikið forvarnagildi, en til mikils er
að vinna ef hægt er að fækka byltum
og þeim meiðslum sem af þeim hljót-
ast,“ segir Helga. „Til dæmis þarf
fólk sem mjaðmarbrotnar að liggja á
sjúkrahúsi um alllangt skeið, margir
missa færni og þurfa endurhæfingu
ýmist til lengri eða skemmri tíma og
þurfa eftirleiðis að nota gönguhjálp-
artæki. Af byltum hlýst bæði mikill
kostnaður fyrir heilbrigðiskerfið en
ekki síður þjáning fyrir þá sem slas-
ast. Væri til mikils að vinna þó að
ekki mætti fækka byltum um nema
10%.“
Fræðsludagur Rannsóknastofu
HÍ og LSH í öldrunarfræðum,
RHLÖ, verður sem fyrr segir í
Öskju. Hefst dagskráin kl. 13 og er
áætlað að henni ljúki kl. 16.
Dagskráin er öllum opin en er þó
einkum ætluð starfsmönnum heil-
brigðisstofnana og hjúkrunarheim-
ila.
Heilsa | Fræðsludagur Rannsóknastofu HÍ
og LSH í öldrunarfræðum (RHLÖ) í dag
Forvarnir gegn
byltum aldraðra
Helga Hans-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1959.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
í Reykjavík 1979,
lauk læknaprófi
frá læknadeild
Háskóla Íslands
1987 og sérfræðiþjálfun í lyflækn-
ingum og öldrunarlækningum við
University of Connecticut 1996.
Helga er nú yfirlæknir almennrar
öldrunarlækningadeildar Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss. Hún er
gift Kristni Guðbrandi Harðarsyni
myndlistarmanni og eiga þau tvo
syni.
Tölvuborð
Lítil borð
Eikarb
Skrifstofubo
SKRIFBORÐ Í ÚRVALI
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
Kirsube
Barnabo
Stór borð
Í barnaherbergið
Í unglingaherbergið
Borðstofustólar
Skrifborð
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
Fáðu úrslitin
send í símann þinn