Morgunblaðið - 13.10.2006, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
NICOLAS CAGE SÝNIR
STÓRLEIK Í MYNDINNI.
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
eeee
TOPP5.IS
ÞEGAR FRÉTTIR AF DAUÐA DÍÖNU PRINSESSU SKÓKU HEIMS-
BYGGÐINA, DRÓ HENNAR HÁTIGN ELÍSABET II DROTTNING
SIG TIL HLÉS INNAN VEGGJA BALMORE KASTALA.
EINN ÓVÆNTASTI GLEÐIGJAFI ÁRSINS
eeee
SV, MBL
„LEIKURINN EINSTAKUR OG
UMFJÖLLUNAREFNIÐ ÁHUGAVERT.“
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
THE QUEEN ER ÞRISTUR
eee
EGB, TOPP5.IS
LOKASÝNINGARTILBOÐ 400 KR.
BJÓLFSKVIÐA
eee
H.J. - MBL
eeee
blaðið
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE QUEEN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12.ára.
ZIDANE kl. 6 - 8
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 LEYFÐ
THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 10:10 Án texta B.i. 16.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BJÓLFSKVIÐA kl. 6 B.i.16 .ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:15 Tilboð 400kr. B.i. 12.ára.
SIGURVEGARI
kvikmyndahátíðin í Berlín
BESTI LEIKSTJÓRINN
ÖRFÁAR SÝNINGAR!
EINN AF BESTU
KNATTSPYRNUMÖNNUM
SÖGUNNAR
Munið afsláttinn
/ KRINGLAN
BEERFEST kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 12.ára.
THE THIEF LORD kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 - 10:10 B.i.12.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
OVER THE HEDGE m/Ísl. tali DIGITAL kl. 4 LEYFÐ
eee
E.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ
ANNAÐ TÆKIFÆRI
ÞARFTU AÐ TAKA
FYRSTA SPORIÐ.
kvikmy
FRÁ HÖF
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG
eee
BBC
eeee
EMPIRE
eee
ROLLING STONE
eee
LIB, TOPP5.IS
NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
HEIMURINN HEFUR
FENGIÐ AÐVÖRUN.
eeeee
H.J. MBL
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
ur slá í gegn í eldhús-
inu.
Skrifari er ekki alveg
eins kátur með vöru,
sem hann keypti í
BYKO. Þar voru aug-
lýstir ódýrir eldivið-
arkubbar og Víkverji
keypti sér poka á rúm-
lega 500 krónur. Þetta
var unnið timbur með
merkingum á einhverju
slavnesku máli, líklega
pólsku. Víkverji þóttist
hafa gert góð kaup;
staflaði eldiviðnum upp
undir arninum og hugs-
aði sér svo gott til glóð-
arinnar í þess orðs
fyllstu merkingu um kvöldið. Kveikti
fyrst í sprittkubbi, sem skíðlogaði
auðvitað eins og sprittkubbar eiga
að gera, og bætti svo ódýra BYKO-
eldiviðnum á logana. Þá kom í ljós að
spýturnar reyndust gæddar eig-
inleika, sem eldiviður á alls ekki að
hafa; þær brenna ekki. Það var sama
hvað Víkverji reyndi; spýturnar
sviðnuðu svolítið, en að koma í þær
almennilegum loga var bara ekki
hægt. Vinur Víkverja, sem keypti
sér sams konar poka, segir sömu
sögu. Spurningin er hvort BYKO á
ekki miklu frekar að markaðssetja
timbrið sem eldhelt byggingarefni?
Víkverji er eins ogsvo margir alltaf
að leita að einhverju
fljótlegu til að elda
sjálfur heima, í staðinn
fyrir að kaupa skyndi-
bita. Honum finnst
mikilvægt að börnin
hans fái heimaeldaðan
mat, en hefur ekki allt-
af þann tíma, sem hann
gjarnan vildi hafa til að
elda hann. Heimabök-
uð pizza er eftirsótt á
heimili Víkverja, en
hann treystir sér ekki
til að baka pizzur nema
um helgar; á virkum
dögum hefur hann
bara ekki tíma til að bíða eftir að
deigið hefist og tilbúnir pizza-botnar
hafa Víkverja til þessa þótt vondir.
Nú er hann hins vegar dottinn ofan á
vöru, sem svínvirkar. Það er pizza-
deig frá fyrirtækinu Wewalka, út-
flatt og rúllað upp með bök-
unarpappír.
Allt og sumt, sem Víkverji þarf að
gera, er að rúlla út deiginu og bök-
unarpappírnum, demba fyllingunni
ofan á og stinga svo inn í ofn. Hann
þarf ekki einu sinni að smyrja ofn-
plötuna. Deigið fann hann í Nóatúni
og mælir með því fyrir upptekna
heimilisfeður, sem vilja engu að síð-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér
og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann
og hafið séð hann.“ (Jóh. 14, 7.)
Í dag er föstudagur
13. október, 286. dagur
ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Grafarþögn Vinstri grænna
ÞAÐ virðist hafa farið framhjá
mörgum að ein meginástæðan fyrir
mengun og gróðurhúsaloftteg-
undum er jarðvegseyðing, hér á
landi sem annars staðar. Þegar
gróðurinn hverfur hættir hann að
binda koltvísýring og þá tekur rotn-
un lífrænna leifa við. Úr jarðveg-
inum streymir því koltvísýringur og
metan úr uppþurrkuðum mýrum.
Öll viljum við draga úr mengun en
hefur fólk áttað sig á því að mengun
frá bílum hér á landi, skipum og
verksmiðjum er lítil miðað þá meng-
un, sem jarðvegseyðingin, þessi nið-
urgreidda niðurlæging, gefur frá
sér? Nú er talað um vakningu í um-
hverfismálum og því ber að fagna en
hvernig má það vera að um þetta er
ekkert talað, þessar manngerðu
auðnir og eyðimerkur? Það er beitin,
lausagangan, sem kemur í veg fyrir
að unnt sé að snúa dæminu við,
klæða landið nýjum gróðri og loka
þannig mestu mengunaruppsprett-
unni.
Í vakningunni sem um er talað
vekur mesta athygli afstaða Vinstri
grænna. Þeir gefa sig út fyrir að
vera umhverfisverndarfólk og þess
umkomnir að lesa öðrum pistilinn en
eru síðan sammála bændasamtök-
unum um að beita skuli auðnirnar og
ekki komi til mála að friða þær.
Hvaða orð á að velja því fólki,
„umhverfisverndarfólki“, sem lætur
sem því komi ekki við ömurlegt
ástand hinnar lifandi náttúru, und-
irstöðu alls lífs á jörðinni? Hræsn-
arar er eina orðið sem á við Vinstri
græna eða Vinstri svarta eins og
margir eru farnir að kalla þá.
Að lokum vil ég hvetja alla til að
lesa greinina „Að grafa sér gröf“,
sem birtist í Lesbók Morgunblaðs-
ins um síðustu helgi. Hún er holl
hugvekja. Ef við tökum okkur ekki á
er viðbúið að ósannindin um „óspillt“
land og „sjálfbæran búskap“ verði
rekin öfug ofan í okkur. Það gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
orðstír lands og þjóðar og hugs-
anlega spillt fyrir okkur á erlendum
markaði.
Pétur Sigurðsson.
Ellilífeyrisþegar
og öryrkjar fái að vinna
ÉG undirrituð er sammála öllum
þeim stjórnmálamönnum sem vilja
leyfa öryrkjum og ellilífeyrisþegum
að vinna ef þeir treysta sér til en
ekki að hegna þeim fyrir það.
Þegar maður er orðinn öryrki er
maður sagður ónýtur. Þetta er ekki
rétt. Ég fékk enga hjálp þegar mað-
urinn minn veiktist. Fyrst þú getur
unnið getur þú hjálpað þér sjálf.
Þökk sé guði að ég hef reynt að
vinna, bæði í garði og ég tíni mínar
jurtir. Ég er grasalæknir og það sem
ég fæ fyrir krukkuna er um 600 kr.
Ég elska að hjálpa fólki, börnum
með exem hef ég getað hjálpað með
góðum árangri, þökk sé drottni.
Stjórnmálamenn á þingi þurfa að
fara að hugsa. Ég segi enn og aftur,
hættið með alla þessa flokka. Þjóðin
er eins og ein lítil gata í Bandaríkj-
unum. Ég kýs að kjósa menn en ekki
flokka. Ef við þurfum að kjósa
flokka eiga þeir að vera tveir, vinstri
og hægri. Það þarf að fella niður alla
tolla, vörugjöld og virðisaukaskatt af
matvælum.
Kannski væri best að stofna sér-
stakan flokk fyrir öryrkja og ellilíf-
eyrisþega sem gætu barist fyrir okk-
ur sérstaklega.
Gerður Benediktsdóttir.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
60 ára afmæli. Ídag, 13. októ-
ber, er sextugur
Bárður Gísli Her-
mannsson bifvéla-
virki. Í tilefni dags-
ins tekur hann á
móti ættingjum og
vinum í rafveitu-
heimilinu í Elliðaárdal kl. 19 á afmæl-
isdaginn.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Tanja Rut Bjarnþórsdóttir og Glódís
Helgadóttir, söfnuðu 19.369 kr. til
styrktar Rauða krossi Íslands, söfnun
fyrir börn í Afríku.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.