Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 61

Morgunblaðið - 13.10.2006, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 61 / KEFLAVÍK JACKASS 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 12 BEERFEST kl. 5:50 - 8 B.i. 12 HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16 Munið afsláttinn ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. FRAMLEIDD AF TOM HANKS. „the ant bully“ BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eeee HEIÐA MBL eee Ó.H.T. RÁS2yndir.is FUNDI „TRAINING DAY“ OG „THE FAST AND THE FURIOUS“ ATH! ENGIR ÞJÓÐVERJAR VORU SKAÐAÐIR EÐA MEIDDIR Á MEÐAN TÖKUM MYNDARINNAR STÓÐ. eee EMPIRE ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ JÓÐLA AF HL ÁT RI / ÁLFABAKKI JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 6 - 8 - 9 - 10:10 - 11:15 B.i. 12.ára. JACKASS NUMBER TWO VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 THE THIEF LORD kl. 4 - 6:15 LEYFÐ WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára. BEERFEST kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12.ára. NACHO LIBRE kl. 10:10 B.i. 7.ára. BÖRN kl. 8 B.i.12.ára. STEP UP kl. 5:50 B.i. 7.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 LEYFÐ MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ / AKUREYRI JACKASS 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 THE THIEF LORD kl. 6 - 8 WORLD TRADE... kl. 10 B.i. 12 Biluð skemmtun! NELGDI FYRSTA SÆTIÐ ÞEGAR HÚN VAR SÝND Í USA FYRIR NOKKRU. Jackass gaurarnir JOHNNY KNOXVILLE og STEVE-O eru KOMNIR aftur, bilaðri en nokkru sinni fyrr! Þú átt eftir að skemmta þér sjúklega vel. Frábær ævintýra- mynd fyrir alla fjölskylduna Bókin sem myndin er byggð á hefur þegar komið út í íslenskri þýðingu. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Spurningin sem hvílir á hrútnum er eftirfarandi: hvert stefnir þetta sam- band? Svarið er, þangað sem þú vilt að það stefni. Þú ert við stjórnvölinn og gleymdu því ekki. Naut (20. apríl - 20. maí)  Svo virðist kannski sem vaninn ráði yf- ir þér, en ef þú áttar þig á þessu end- urheimtir þú eitthvað af yfirráðum þín- um. Í kvöld kemstu að raun um að þú vilt eitthvað annað en þú hélst að þú vildir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn hefur kannski ágæta hug- mynd um hvernig atburðarás dagsins muni verða, en á samt að vera klár með áætlun b í farteskinu. Himintunglin lofa því að útkoman verði jafnóviss og veðrið, sama hverju sérfræðingarnir spá. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Umræðuefnið sem þú bryddar upp á á eftir að hafa mikil áhrif á það sem ger- ist. Hafðu það létt og leikandi, jafnvel eilítið augljóst. Það er þín óvenjulega framsetning sem ávinnur þér hylli. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Hagsældin sem þú upplifir núna er ánægjuleg. Kannski er það vegna þess að þú hefur fengið þinn skerf af mót- læti og hefur lifað nógu lengi til þess að njóta þess þegar eitthvað kemur upp í hendurnar á þér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Taktu það rólega. Allt hefur sinn tíma og það þýðir ekkert að reyna að ýta á eftir hlutunum. Augnabliksþögn sundrar mætti hvaða ógeðfellda verk- efnis sem þú þarft að taka að þér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gerðu það sem flestum líkar ekki að gera. Sennilega á þér ekki eftir að líka það heldur, en staðfesta þín í að reyna að ná yfirburðum yfirvinnur tímabund- in óþægindi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn er á leiðinni í úrvals- deildina. Þú hefur það sem þarf og ert undir það búinn að láta allt ganga upp. Andaðu og vertu þú sjálfur. Tilgerð- arlaus nálgun þín ljær því sem þú gerir frískandi og raunverulegan blæ. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Í dansi lífsins þurfa hreyfingarnar ekki að vera mjúkar til þess að gera sitt gagn. Þó að dansinn þinn sé óskólaður, óstöðugur og hreinlega skrýtinn á köfl- um gæti það hreinlega komið sér vel í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Himintunglin eru í samstöðu og gefa steingeitinni aukinn kraft einmitt þeg- ar hún þarf á því að halda. Tæklaðu stóru verkefnin. Allt sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið og þá skilurðu að leiðin framundan er ekki upp í móti, heldur niður á við. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vitlausar og óþægilegar reglur koma til skjalanna. Best er að hlíta þeim í bili, en himintunglin hvetja þig til dáða þegar þú áttar þig á óþægindunum. Í framtíðinni áttu eftir að finna leið til þess að komast hjá þeim. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hæfileikar fisksins eru af sérstakri gerð og skipa sinn sérstaka sess fyrir vikið. Því betur sem þú trúir því, því líklegra er að þú finnir þinn rétta stað. Skyldi föstudagurinn 13. vera bölvaður í alvörunni? Andleg lög setja bölvun undir sama hatt og van- mátt, enginn getur látið mann finna til vanmáttar nema maður leyfi honum það. Afstaða himintunglanna tryggir að tilfinningin fyrir bölvun sé valkostur. Eftir daginn í dag gæti föstudagurinn 13. farið á spjöld sög- unnar sem einn sá heppnasti í lífi okkar. stjörnuspá Holiday Mathis ÞAÐ ER nokkuð síðan austfirska hljómsveitin Miri gaf út geislaplöt- una Fallegt þorp, og enn lengra síð- an hún var hljóðrituð eftir L.ung.A hátíðina á síðasta ári. Það var tón- og myndlistamaðurinn Curver Thoroddsen sem hljóðvann plötuna og átti frumkvæði að upptökunum, ef marka má miða sem fylgir diskn- um. Lögin eru ekki nema fjögur og telst Fallegt þorp því líklega smá- skífa, platan var hljóðrituð að mestu á sviði félagsheimilisins Herðubreiðar á Seyðisfirði, og ber þess glögglega merki. Félagsheim- ilishljómurinn er opinn og allt- umlykjandi, eins og heyrist best á trommum og fer tónlistinni mjög vel, hún sveimar um í rýminu. Það er vart hægt að tala um lög sem slík, lögin eru öll frekar róleg- ar en rísandi stemningar sem byggjast oftar en ekki á gítarstefi og endurtekinni bassalykkju. Það er lítil fjölbreytni en kraftinn er að finna í andrúmsloftinu og uppbygg- ingu laganna. Þetta heyrist hvað best í öðru lagi plötunnar, sem samnefnt er henni. Það hefst á einföldum bassa- hljóm og svæfir næstum framan af, eða þar til hartnær fjórar mínútur eru liðnar af laginu, þá gerast hlut- ir, trommuleikur Ívars Péturs og kassettutækjaleikur Guðmundar Jónssonar auk annarra hljóða skapa óhljóðahaug, þarna tekst Mira best upp. Kasettutækið er raunar frá- bær viðbót við hljóðfærin og gefur tónlistinni vídd. Fyrsta lagið Bánk bánk bánk er einnig gott, en það síðasta, Dáng dáng dáng kannski síst, þrátt fyrir ágætan saxófónleik Bjartar Sig- finnsdóttur. Það eru engin hjól fundin upp í Fallegu þorpi þótt platan sé að mörgu leyti skemmtileg og hljóm- urinn frábær. Tónlistin ber ein- hvern veginn með sér að meðlimir hafi enn ekki lokið við að þróa sinn eigin stíl, það þarf líka mikla æfingu og samspilun til að magna upp og bera uppi endurtekningasveim á borð við það sem Miri leikur, radd- laust í þokkabót. Það tekst næstum í Fallegu þorpi. Rísandi endurtekningar TÓNLIST Geisladiskur Fallegt þorp, geislaplata hljómsveit- arinnar Miri. Sveitina skipa Árni Geir, Guðmundur Jóns, Hjalti Jón, Ívar Pétur og Óttar Brjánn, Björt Sigfinnsdóttir leikur auk þess á saxófón í einu lagi. Lög eru eftir Miri. Curver stjórnaði upptökum, en hljóðvinnsla fór fram í Tíma. Miri gefur út. Miri – Fallegt þorp  Gísli Árnason Sænska söngkonan Jenny Wilsonmun ekki koma fram á Airwa- ves-hátíðinni í næstu viku eins og til stóð, vegna veikinda. Í tilkynningu frá Hr. Örlygi, fram- kvæmdaraðila Iceland Airwaves, segir að starfsmenn harmi fréttirnar og hafi lagst á eitt til að finna bita- stætt atriði til að fylla í skarðið. Það hefur nú verið gert og er það samlandi Wilsons, Jens Lekman, sem heldur tónleika á Airwaves. Jens Lekman kemur frá Angered- úthverfinu í Gautaborg, leikur gít- arpopp og hefur vakið mikla athygli fyrir kaldhæðna, rómantíska og á köflum drungalega textagerð. Jens lét fyrst á sér kræla undir nafninu Rocky Dennis en hann kvaddi þann persónuleika formlega með plötunni Rocky Dennis in Heaven árið 2004. Sama ár gaf hann út When I Said I Wanted to be Your Dog undir eigin nafni og hlaut mikið lof fyrir í heima- landi sínu. Í kjölfarið fylgdi samn- ingur við plötuútgáfuna Secretly Ca- nadian, sem hefur á sínum snærum listamenn á borð við Antony and the Johnsons, og breiðskífan Oh Your Silent Jens (2005). Jens vinnur þessa dagana í Gautaborg að upp- tökum á nýjustu plötu sinni en hann tók sér frí frá upptökum til að koma hingað til lands, að því er segir í fréttatilkynningu frá Hr. Örlygi. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.