Morgunblaðið - 13.10.2006, Qupperneq 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðaustan 5–10
m/sek. Rigning
m/köflum sunn-
anlands, skúrir
vestanlands, skýjað m/
köflum NA-lands. » 8
Heitast Kaldast
14°C 8°C
Fá›u
viðurkenningu
við sjónvarpið!
„ÞETTA var eins og að fá hnakka-
skot,“ segir Ingólfur Guðmundsson,
en hundurinn hans, Ben, greindist
með arfgenga vaxandi sjónurýrnun,
PRA, í vor. Ingólfur var með þeim
fyrstu sem nýttu sér DNA-tæknina
til að greina sjúkdóminn, sem leiðir
til þess að hundurinn verður blindur.
Sýni var sent til fyrirtækisins Opti-
gen í Bandaríkjunum, sem er þekkt
meðal hundaræktenda fyrir að leita
uppi erfðagalla í hundum.
Dagur Jónsson, í stjórn retriever-
deildar Hundaræktarfélags Íslands
(HRFÍ), segir að PRA sé ekki vanda-
mál á Íslandi heldur verkefni sem
einfalt verði að leysa.
Samkvæmt reglugerð HRFÍ eru
allir afkomendur hunda sem greinst
hafa með arfgenga vaxandi sjónu-
rýrnun settir í ræktunarbann. | 26
Ekki vandamál
heldur verkefni
AMES EINN er
heitið á nýjum
stól, hönnuðum
af Erlu Sólveigu
Óskarsdóttur
iðnhönnuði.
Stóllinn verður
frumsýndur á
Orgatec
2006-húsgagna-
sýningunni í
Köln í Þýska-
landi 24.–28. október næstkomandi.
Frumeintak af stólnum kom til
landsins í gær og verður hann til
sýnis í húsgagnaversluninni Epal
næstu daga. Erla sagði að á Orga-
tec-sýningunni væru einkum sýnd
húsgögn sem seld eru í stórum
pöntunum, fremur húsgögn fyrir t.d.
skrifstofur og veitingahús en heim-
ili.
„Stóllinn minn er hugsaður fyrir
kaffihús, fundarsali og þess háttar,
en ekki beint hannaður með heimili í
huga þótt vel sé hægt að nota hann
þar,“ sagði Erla. Seta og bak stóls-
ins verða steypt úr plasti í Þýska-
landi, en grindin smíðuð úr stáli í
Kólumbíu og víðar.
„Það var einmitt á Orgatec fyrir
tveimur árum að ég handsalaði sam-
komulag um að ég hannaði stólinn
fyrir fyrirtæki kólumbískrar konu
sem búsett er í Þýskalandi. Hún hef-
ur selt stólinn minn Dreka með mjög
góðum árangri í Kólumbíu síðast-
liðin 6–7 ár. Henni fannst markaður-
inn farinn að mettast af Drekanum
og vildi fá nýjan stól í anda hans.
Þar er mikið af útiveitingahúsum og
þannig varð hugmyndin að plaststól
til,“ sagði Erla. Auk fyrirtækis kon-
unnar, sem er í samvinnu við þýskt
húsgagnafyrirtæki, mun danska fyr-
irtækið Hansen & Sørensen fá sér-
leyfi til að framleiða stólinn fyrir
Norðurlandamarkað. Nýi stóllinn
fékk nafnið AMES EINN.
„Konan sem á framleiðslufyrir-
tækið heitir Anna María og ég heiti
Erla Sólveig svo við tókum upphafs-
stafina úr nöfnunum okkar. Hún var
búin að stofna fyrirtæki um þennan
nýja stól og frekara samstarf okkar
og var svo ánægð með nafnið að hún
óskaði eftir að fá að nota það á fyr-
irtækið. Hún vildi bæta íslensku í
heiti stólsins svo hann fékk nafnið
AMES EINN og hún er strax farin
að tala um AMES TVEIR,“ sagði
Erla.
Erla Sólveig hefur átt fjölmörg
verk á húsgagnasýningum hér
heima og erlendis á undanförnum
árum og fengið fjölda verðlauna fyr-
ir. Meðal verðlaunaðra stóla hennar
má nefna Jaka, Dreka og Bessa
(Lido).
Morgunblaðið/ÞÖK
Frumeintak AMES EINN-stóllinn
eftir Erlu Sólveigu Óskarsdóttur.
AMES EINN –
nýr stóll Erlu Sól-
veigar frumsýndur
Erla Sólveig
Óskarsdóttir
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GUÐMUNDUR Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir
að þótt fyrsta vélasamstæða Hellis-
heiðarvirkjunar sé rekin með fullum
afköstum og framleiði 45 MW af raf-
magni sem notuð eru við álfram-
leiðslu á Grundartanga sé enn um til-
raunarekstur að ræða. Ekkert sé
óeðlilegt við að virkjunin framleiði
rafmagn þó að starfsleyfi hafi ekki
verið gefið út.
Fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í borgarráði óskaði
á fundi borgarráðs fyrir nokkru eftir
upplýsingum um það á hvaða for-
sendum virkjunin hefði verið gang-
sett 1. október þar sem starfsleyfi
hefði ekki verið gefið út og umsagn-
arfrestur almennings hefði verið
auglýstur til 16. október.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Guðmundur að þótt fyrsta vélasam-
stæðan væri komin í gang og væri í
fullum rekstri væri enn um tilrauna-
rekstur að ræða. Verið væri að prófa
stýrikerfi og fleira og OR fengi vél-
ina raunar ekki afhenta til rekstrar
frá framleiðendum fyrr en í lok mán-
aðarins, gengi allt að óskum. Að-
spurður sagði Guðmundur að fyrri
vélasamstæðunni hefði einu sinni
verið slegið út frá 1. október. Spurð-
ur hvort það væri bitamunur en ekki
fjár á tilraunarekstri og fullum
rekstri fyrri vélarinnar sagði hann
að kannski mætti líta svo á að þetta
væri skilgreiningaratriði en á hinn
bóginn yrði að líta til þess að fyrri og
seinni vélasamstæðan væru ein heild
og tækju t.a.m. við skipunum frá
sama kerfi. Þá væri virkjunin aðeins
rekin með hálfum afköstum.
Guðmundur sagði að OR hefði
unnið að útgáfu starfsleyfisins í sam-
vinnu og sátt við Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands og útgáfa starfsleyfisins
væri í lögbundnu ferli. Þá minnti
hann á að Nesjavallavirkjun hefði
verið rekin í mörg ár án starfsleyfis
og enn væru margar smærri virkj-
anir úti á landi sem hefðu verið rekn-
ar án starfsleyfis í mörg ár. Það væri
í raun spaugilegt að hanka ætti OR á
því að hafa ekki starfsleyfi, því fyr-
irtækið hefði verið í fararbroddi við
að koma starfsleyfum í lag.
Eðlilegt að OR prufukeyri
nýjan búnað
Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, sagði að veiting starfs-
leyfis til Hellisheiðarvirkjunar væri í
lögbundnum farvegi og það væri
eðlilegt að OR, rétt eins og öll önnur
fyrirtæki, gæti prufukeyrt nýjan
búnað áður en starfsleyfi fyrir virkj-
unina væri gefið út. Þetta ætti sér-
staklega við þegar um væri að ræða
jafn umfangsmiklar framkvæmdir
og við Hellisheiðarvirkjun. Tilrauna-
reksturinn væri auk þess í fullu sam-
ráði við Heilbrigðiseftirlitið.
Rekin með fullum afköstum
en er enn í tilraunarekstri
Í HNOTSKURN
»Hellisheiðarvirkjun fram-leiðir í dag 45 MW sem not-
uð eru við álframleiðslu á
Grundartanga.
»Virkjunin er ekki kominmeð starfsleyfi, en tilrauna-
reksturinn er í samráði við
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
»Umsagnarfrestur almenn-ings rennur út 16. október.
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands
stóð í gær fyrir meðmælagöngu
undir yfirskriftinni „Vér meðmæl-
um öll“ og tóku um 3–500 manns
þátt í göngu frá Háskólanum niður á
Austurvöll þar sem ávörp voru flutt.
Var framtakinu ætlað að mæla með
menntun og fluttu ávörp Sigurður
Örn Hilmarsson, formaður stúd-
entaráðs HÍ, Jón Torfi Jónasson,
prófessor við HÍ, og Kristín Tómas-
dóttir stúdentaráðsliði. Að loknum
ávörpum reistu stúdentar mennta-
vörðu á Austurvelli, en henni er
ætlað að vísa þingmönnum veginn í
átt að þekkingarþjóðfélaginu sem
Íslendingar vilja byggja.
Sigurður sagði góða stemningu
hafa verið í gær og í ávarpi benti
hann m.a. á að menntamál væru
líka atvinnumál með því að rann-
sóknastarf innan háskólans hefði
eflt atvinnulífið gríðarlega mikið.
Tók hann dæmi af starfsemi Marel
sem hefði byrjað með vinnu tveggja
verkfræðinema fyrir 30 árum. „Nú
er Marel orðið 850 manna fyrirtæki
og starfar í fimm heimsálfum. Þetta
er gott dæmi um hvernig þessi fjár-
festing skilar sér margfalt til þjóð-
arbúsins,“ sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Sverrir
Meðmæli Stúdentar söfnuðust saman á Austurvelli í gær í þeim tilgangi að vekja stjórnmálamenn til umhugsunar
um gildi menntunar og hvetja þá til að setja menntamál í fyrsta sæti í komandi alþingiskosningum.
Stúdentar í meðmælagöngu