Morgunblaðið - 24.10.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 17
ERLENT
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
BARACK Obama hefur ekki átt sæti
í öldungadeild Bandaríkjaþings
nema tvö ár.
Hann er hins veg-
ar nú þegar orð-
inn ein skærasta
stjarnan í banda-
rískum stjórnmál-
um og æ fleiri
demókratar líta
nú á hann sem
helstu vonar-
stjörnu flokksins.
Það kom þó mörg-
um í opna skjöldu þegar Obama lýsti
því yfir á sunnudag að hann væri að
íhuga að sækjast eftir útnefningu
Demókrataflokksins vegna forseta-
kosninganna 2008 – menn hafa talið
líklegra að hann biði til 2012 eða 2016
með að blanda sér í þá baráttu.
Eflaust hefur það haft áhrif á
þankagang Obamas að demókratar
halda vart vatni yfir honum. Fullyrt
er að skrifstofu Obamas berist í
hverri viku 300 fyrirspurnir frá sam-
tökum eða stofnunum sem vilja fá
hann til að flytja ávarp eða sitja fyrir
svörum og það er ávallt mikil aðsókn
að uppákomum þar sem þess er
vænst að Obama komi fram.
Á hinn bóginn segir Michael T.
Corgan, prófessor við Boston-há-
skóla og gestakennari við Háskóla
Íslands, að margir demókratar hafi
efasemdir um Hillary Clinton, öld-
ungadeildarþingmann og fyrrver-
andi forsetafrú, en hún hefur lengi
verið álitin sigurstranglegust í hópi
þeirra sem nefndir hafa verið sem
hugsanlegir forsetaframbjóðendur
flokksins 2008.
„Hillary er auðvitað reyndari
stjórnmálamaður en demókratar
vita sem er að repúblikanar myndu
ekki mála bjarta mynd af henni í að-
draganda forsetakosninga, White-
water-hneykslismálið yrði rifjað upp
og annað af þeim toga. Demókratar
munu þess vegna hugsa með sér, að
sama hversu fær hún sé sé útilokað
að hún geti náð kjöri sem forseti,“
segir Corgan.
Corgan tekur undir að fari bæði
Clinton og Obama fram muni bar-
áttan um útnefninguna standa á milli
þeirra, þ.e. að menn eins og John
Kerry, Evan Bayh og John Edwards
myndu algerlega falla í skuggann.
„Ég sé alveg fyrir mér að Obama
geti unnið útnefningu Demókrata-
flokksins en frambjóðandi Repúblik-
anaflokksins, hver svo sem það verð-
ur, mun nota reynsluleysi hans gegn
honum,“ segir Corgan síðan en sem
fyrr segir hefur Obama aðeins setið í
öldungadeild þingsins sl. tvö ár.
Þá bendir Corgan á að enginn öld-
ungadeildarþingmaður hafi náð kjöri
sem forseti síðan John F. Kennedy
var kosinn forseti 1960.
Obama hafi hins vegar mikið að-
dráttarafl sem stjórnmálamaður og
það kunni að fleyta honum langt.
Corgan er spurður að því hvort úr-
slit þing- og ríkisstjórakosninga,
sem fram fara í Bandaríkjunum eftir
tvær vikur, muni skipta máli í að-
draganda forsetakosninganna 2008.
Hann segir að þau kunni vel að gera
það. Fari svo fram sem horfir að
demókratar nái völdum í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings, sem virðist á
þessum tímapunkti næsta öruggt, og
hugsanlega einnig í öldungadeild-
inni, muni það verða túlkað sem
áfellisdómur kjósenda yfir fram-
göngu ríkisstjórnar George W.
Bush. „Slíkur dómur myndi gefa
frambjóðanda demókrata í forseta-
kosningum 2008 sterk vopn í barátt-
unni við frambjóðanda Repúblikana-
flokksins,“ sagði Michael T. Corgan.
Obama og Clinton líkleg til
að bítast um útnefninguna
Flestir töldu að Bar-
ack Obama myndi bíða
með forsetaframboð
Forsetaefni demókrata 2008? Barack Obama þykir hafa öðlast ótrúleg-
ar vinsældir á þeim skamma tíma sem liðinn er síðan hann kom fram á
sjónarsviðið í landsmálapólitíkinni í Bandaríkjunum.
Í HNOTSKURN
»Barack Obama skaut upp ástjörnuhimin bandarískra
stjórnmála er hann flutti ávarp á
flokksþingi demókrata fyrir for-
setakosningarnar 2004. Um
haustið var hann svo kosinn öld-
ungadeildarþingmaður fyrir Ill-
inois-ríki.
»Obama er 45 ára, sonurblökkumanns frá Kenía og
hvítrar konu frá Kansas.
»Obama hefur nýverið gefið útbók, The Audacity of Hope.
Önnur bók eftir hann, sem kom
út 2004, hefur selst í bílförmum.
Michael T. Corgan
Sydney. AFP, AP. |
John Howard, for-
sætisráðherra
Ástralíu, tilkynnti
í gær að stjórn
landsins hygðist
verja 500 milljón-
um ástralskra
dollara, sem sam-
svarar 26 milljörð-
um króna, í barátt-
una gegn loftslagsbreytingum í
heiminum.
Ástralar undirrituðu ekki Kyoto-
bókunina um aðgerðir til að minnka
losun gróðurhúsalofttegunda sem eru
taldar valda loftslagsbreytingum.
Ástralía er helsti kolaútflytjandi
heims og Howard hefur sagt að bók-
unin sé ósanngjörn, of mörg störf
myndu tapast og iðnaður landsins
verða fyrir miklu tjóni.
Howard sagði í gær að fénu yrði
varið í nýja tækni, sem drægi úr
mengun af völdum jarðefnaeldsneyt-
is, og í endurnýjanlega orkugjafa.
Ástralar standa nú frammi fyrir
mestu þurrkum í rúma öld og fast
hefur verið lagt að stjórn Howards að
leggja meira af mörkum til barátt-
unnar gegn loftslagsbreytingum.
Ástralskir vísindamenn birtu í gær
niðurstöður rannsóknar sem bendir
til þess að loftslagsbreytingar verði til
þess að vínframleiðslan í Ástralíu
minnki um rúm 40% fyrir árið 2050.
Vísindamennirnir sögðu að vín-
framleiðendurnir þyrftu að búa sig
undir að rækta nýjar tegundir vín-
berja, færa vínekrur eða jafnvel
hætta alveg vínframleiðslu.
Fjárfest í
nýrri tækni
Ástralar leggja fé í
baráttuna gegn
loftslagsbreytingum
John Howard