Morgunblaðið - 24.10.2006, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
EFTIR ítarlega tveggja daga rann-
sókn komu í ljós fjögur atvik þar sem
rafrænar nýskráningar í Samfylk-
inguna í Norðausturkjördæmi,
vegna prófkjörs þar, skiluðu sér ekki
inn á kjörskrá. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu kjörstjórnar flokksins í
kjördæminu.
Benedikt Sigurðarson, dósent við
Háskólann á Akureyri, sem býður
sig fram í 1. sæti listans eins og
Kristján Möller alþingismaður,
sagði á heimasíðu sinni fyrir helgi að
í ljós hefði komið alvarlegur vandi
við skráningu í flokkinn, um vanstill-
ingu hefði verið að ræða á skráning-
arsíðu flokksins, og vildi hann því
opna kjörskrá aftur.
Í yfirlýsingu kjörstjórnar segir
um tilvikin fjögur: „Ástæða þess að
skráningar misfórust eru samverk-
andi þættir af misskráningum send-
enda á netföngum og stillingum ör-
yggiskerfa hýsingarfyrirtækja
vefsíðu Samfylkingarinnar. Mikil-
vægt er að fram komi að ekkert er
athugavert við vefsíðu flokksins og
ekkert bendir heldur til að verulegur
fjöldi skráninga hafi misfarist. Í ljósi
þessa er almennt ekki ástæða til
þess fyrir fólk að óttast að skráning
þess hafi ekki skilað sér. Í ljósi að-
stæðna gaf kjörstjórn frambjóðend-
um kost á að koma með athugasemd-
ir eftir að kjörskrá hafði verið lokað
og tók kjörstjórn jákvætt í þær at-
hugasemdir sem bárust. Kjörskrá
hefur nú verið lokað samkvæmt
ákvörðun kjörstjórnar. Kjörseðlar
voru póstlagðir fyrir helgi og munu
kjörgögn berast flokksmönnum eftir
helgina.“
Kjörstjórn biður þá frambjóðend-
ur, sem fjallað hafa um málið á
heimasíðu sinni, vinsamlegast um að
birta þessa yfirlýsingu þar. Benedikt
gerir það en segir einnig: „Þau
vandamál sem frambjóðendur hafa
gert athugasemdir við – varðandi
skráningarsíðu Samfylkingarinnar –
hafa leitt til þess að 199 nöfnum hef-
ur verið bætt við kjörskrána. Ástæða
er til að undirstrika að það er að
sjálfsögðu aðalskrifstofa Samfylk-
ingarinnar og framkvæmdastjóri
sem ber fulla ábyrgð á vefsíðu
flokksins og prófkjörsnefndir í ein-
stökum kjördæmum reikna að sjálf-
sögðu með því að þar sé allt í lagi.“
Tóku jákvætt í
athugasemdir
Morgunblaðið/Golli
Flestir Stærsta Samfylkingarfé-
lagið í kjördæminu er á Akureyri.
Í HNOTSKURN
»Kjörstjórn segir að í ítarlegrirannsókn hafi komið í ljós
fjögur atvik þar sem rafrænar
nýskráningar skiluðu sér ekki.
»Benedikt Sigurðarson segirað vegna athugasemda hafi
199 nöfnum verið bætt við kjör-
skrána.
KRAKKARNIR á Naustatjörn velta því líklega aldrei
fyrir sér hvar kennararnir eru menntaðir en í þessari
viku er því fagnað í Háskólanum á Akureyri að tíu ár
eru frá því að leikskólabraut var sett á stofn. Af því til-
efni verða m.a. haldnir tveir fyrirlestrar á fimmtudag-
inn. Guðmundur Heiðar Frímannsson forseti kenn-
aradeildar fjallar um skóla, menntun og lýðræði og
Alison Clark við University of London heldur hátíð-
arfyrirlestur. Á föstudag verður svo opið hús í nokkr-
um leikskólum bæjarins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Haldið upp á tíu ára afmælið
Neskaupstaður | Blús-, rokk- og
djassklúbburinn á Nesi er þekktur
fyrir að trylla lýðinn í byrjun vetrar
og í ár er engin undantekning þar
á. Síðastliðna helgi var Queen-
sýning Brjáns, „Brján will rock
you“ frumsýnd í Egilsbúð.
Mikil spenna myndast gjarnan
áður en gefið er upp hvert þema
ársins er, en í ár eru það snilling-
arnir í Queen sem fá óskipta at-
hyglina. Einungis hinir íslensku
Stuðmenn hafa orðið þess heiðurs
aðnjótandi að fá heila sýningu til-
einkaða sér hjá Brján. Að sögn
Ágústs Ármanns Þorlákssonar sem
er þreyttur og rámur eftir átök
helgarinnar, var ákveðið að hafa
Queen sýningu til heiðurs Freddie
Mercury, sem hefði orðið sextugur
á árinu.
Mesti hetjutenór rokksins
Áður en sýningin sjálf hefst gæða
gestir sér á glæsilegri þrírétta mál-
tíð: reyksoðnum lax, unaðslegum
andabringum og Irish coffee frauði
sem er borið fram undir fyrstu tón-
um sýningarinnar, One Vision, sem
Bjarni Freyr Ágústsson syngur. Á
efnisskrá eru öll vinsælustu lög
Queen í gegnum tíðna, m.a. Tie
your mother down, You’re my best
friend, A kind of magic, Another
one bites the dust, Bohemian Rhap-
sody og We are the champions svo
einhver séu nefnd. Það eru söngv-
ararnir Bjarni Freyr Ágústsson,
Jón Jósep Snæbjörnsson og Hreim-
ur Örn Heimisson í fjarveru Jónsa,
sem bera hitann og þungann af
söngnum með glæsilegum árangri.
Að sögn Ágústs Ármanns er þetta
er mjög erfið og krefjandi tónlist að
syngja. „Það er ekki á hvers manns
færi að syngja Freddie, enda var
hann mesti hetjutenór rokksins“.
Aðrir söngvarar í sýningunni eru
Kolbrún Gísladóttir, Helgi Bjarka-
son, Hanna Valdís Jóhannsdóttir og
Steinar Gunnarsson. Hljóðfæraleik-
arar eru Viðar Guðmundsson, Þor-
lákur Ægir Ágústsson, Ágúst Ár-
mann Þorláksson, Jón Hilmar
Kárason, Marías B. Kristjánsson og
Helgi Georgsson.
„Skemmtilegasta sýningin sem
við höfum sett upp til þessa“
Frumsýningargestir virtust mjög
ánægðir með sýninguna og voru
fljótir upp úr sætum sínum til að
taka þátt í fjörinu. Jón Hilmar
Kárason, formaður Brjáns og gít-
arleikari í sýningunni, segir að ekki
hafi verið ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur: „Fyrir okkur tón-
listarmennina er þetta skemmtileg-
asta sýningin sem við höfum sett
upp. Þetta er mjög krefjandi sýning
fyrir söngvara og hljóðfæraleikara
en við höfum haft svaka gaman af
þessu og erum búnir að leggja
mikla vinnu í þetta.“ Eftir því sem
leið á sýninguna færðist meira fjör í
leikinn og þegar Jónsi söng lokalag
sýningarinnar, „We are the cham-
pions“ tóku sýningargestir vel und-
ir með í söngnum.
Að þessu sinni eru einungis tvær
sýningarhelgar þar sem sýnt er
bæði föstudags- og laugardags-
kvöld og er uppselt á sýninguna
n.k. laugardagskvöld, en örfá sæti
laus á föstudag. Þá eru „ýmis önnur
plön í gangi“ að sögn Ágústs Ár-
manns, „en ekkert hægt að gefa
neitt upp á þessi stigi málsins annað
en að það er hefð fyrir því að sýna í
Reykjavík.“
Sýningin verður að halda áfram Bjarni Mercury, heit-
asti Queen-aðdáandinn norðan Kálfafellsfjalla.
Skikkjuflaks Jón Jósep Snæbjörnsson með til-
komumikla sviðsframkomu að vanda.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Við erum sigurvegararnir! Jónsi og frumsýningargestir í miklum ham í lok æsilegrar Queen-rokksýningar Brjáns.
Drottningartaktar hjá BRJÁN
AUSTURLAND
AÐ undanförnu hefur hlutleysi í
trúarbragðakennslu verið deiluefni
víða um lönd. Á og getur trúar-
bragðafræðsla verið hlutlaus? kall-
ast fyrirlestur sem Ingvill T.
Plesner flytur við Háskólann á Ak-
ureyri í dag kl. 12 í stofu L201
Sólborg. Plesner skrifaði meist-
araritgerð í félagsfræði við Ósló-
arháskóla um trúarbragðakennslu í
grunnskólum en hún vinnur nú að
doktorsritgerð um trúfrelsi og af-
stöðu ríkisins til trúarbragða í völd-
um löndum með sérstakri áherslu á
Noreg og Frakkland.
Hlutlaus fræðsla?
SEX sóttu um
starf þróun-
arstjóra Fjalla-
byggðar; Halldór
Kr. Jónsson, inn-
kaupa- og vöru-
stjóri, Jón Hall-
dór Guðmunds-
son, skrifstofu-
stjóri, Jón Hrói
Finnsson, ráð-
gjafi, Kári
Sturluson, frkv.stjóri, Magnús Jón-
asson, deildarstjóri og Sveinbjörg
Sveinsdóttir, frkvstjóri.
Sex sóttu um
Miðbik Mynd úr
Héðinsfirðinum.
FEMÍNISTAFÉLAG Akureyrar
heldur fund í kvöld í tilefni þess að
31 ár er í dag frá því Kvennafrídag-
urinn var fyrst haldinn. Fundurinn
verður á Café Amor kl. 20.30 og yf-
irskriftin er Þarf að efast um kjark
kvenna? Í tilkynningu frá félaginu
segir að sorglegt sé að skv. könnun
sem félagsmálaráðuneytið lét gera
nýlega hafi kynbundinn launamun-
ur hérlendis lítið sem ekkert breyst
síðan 1994. Óútskýrður munur sé
enn 15,7% og spurt er: Er þetta eitt-
hvað sem við erum tilbúin að sætta
okkur við árið 2006?
Þarf að efast?