Morgunblaðið - 24.10.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 35
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Halli bróðir, Hulda, Raggi,
Imba og fjölskyldur, innilegar sam-
úðarkveðjur.
Sólrún.
Nú hefur hún kvatt okkur hún
Svava frænka mín. Eftir löng og
ströng veikindi er hún komin til henn-
ar „Systur“ sinnar. Eftir að Hulda tví-
burasystir hennar lést í júní þetta ár
fannst mér hún segja „hún Systir
mín“ á alveg sérstakan hátt, með svo
mikilli áherslu á systir. Hún fann
hana í kringum sig og gleymdi því
stundum að hún væri farin á undan
henni. Ég held að ég hafi aldrei
kynnst fallegri væntumþykju en
þeirri sem var á milli tvíburanna okk-
ar. Enda þær eins og tveir dropar
sem amma þekkti ekki í sundur er
þær sváfu hlið við hlið. Skapgerð
þeirra hefði sæmt sér vel í einni per-
sónu, rólegheitin hennar Huldu og
krafturinn og fyndin tilsvör Svövu.
En sem betur fer voru þær tvær og
þar með áttum við þær og fjölskyldur
þeirra beggja. Ég trúi því eins og
Svava að amma og Hulda kæmu að
sækja hana og það hjálpar í sorginni
og saknaðarferlinu. Það er erfitt að
hugsa um aðra þeirra án þess að þær
séu þar báðar og sérstaklega núna
þegar þær eru báðar farnar. Þetta er
stórt skarð í okkar fjölskyldu en við
verðum að halda áfram og reyna að
finna hlátur og gleði á ný. Það hefði
Svava viljað sem alltaf gat fundið
broslegu hliðina á lífinu. Jafnvel í sín-
um alvarlegu veikinum var hún
ánægðust ef hún gat komið læknum
og hjúkrunarfólki til að hlæja.
Það fer margt í gegnum hugann
núna þegar við kveðjum Svövu. Þær
Hulda og Svava voru 6 árum eldri en
ég og við aldar upp í sama húsinu.
Húsinu hennar ömmu á Bergþóru-
götu 6B. Eðlilega voru þær mínar fyr-
irmyndir og ég fetaði í fótspor Svövu
og náði mér í Vestmannaeying eins og
hún. Konur halda stundum að það
séum bara við sem getum hugsað um
maka í veikindum en Halli hennar
Svövu afsannaði það. Svava þjáðist
meðal annars af mjög alvarlegri
hjartabilun og þegar hún var heima
svona veik, eins og hún var þá orðin,
vék Halli helst ekki frá henni nema
einhver annar væri hjá henni. Það má
segja að hann hafi gætt hennar dag
og nótt. Vil ég enda þessi fátæklegu
orð með því að biðja guð að styrkja
hann og afkomendur hans og Svövu.
Sólveig Guðlaugsdóttir.
✝ Ferdinand Söe-bech Guðmunds-
son fæddist í Byrg-
isvík á Ströndum 14.
febrúar 1922. Hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 11.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Jónsson
bóndi í Byrgisvík, f.
14.5. 1864, d. 28.10.
1952, og Sigríður
Ingimundardóttir
frá Veiðileysu,
næsta bæ frá Byrg-
isvík, f. 14.8. 1874, d. 10.9. 1952.
Foreldrar Ferdinands eignuðust
16 börn og komust 14 til fullorðins
ára. Systkini Ferdinands voru:
Ingibjörg Sína Vilhelmína, f. 28.9.
1893; Ingimundur Jón, f. 13.10.
1895; Sveinn, f. 17.1. 1897; Guð-
rún, f. 10.6. 1898; Sæmundur Ingi-
mundur, f. 5.10. 1899; Guð-
mundur, f. 6.1. 1901; Kristín, f.
11.5. 1902; Guðbjörg, f. 20.12.
1904; Jóhanna Steinunn, f. 10.8.
1906; Sigríður, f. 10.12. 1907; Jón
Jósteinn, f. 3.1. 1911; Jón Rós-
mundur, f. 4.3. 1912; Lárus Jó-
hann, f. 11.9. 1913; stúlka, f. 1916;
og Steinunn Jakobína, f. 25.7.
1917. Öll eru þau nú látin nema
Kristín sem er 104 ára og býr á
Sólvangi í Hafnarfirði.
Ferdinand kvæntist 24. júní
1950 Ernu Helgu Matthíasdóttur
frá Patreksfirði, f.
27. júní 1930, d. 22.
febrúar 2002. For-
eldrar hennar voru
Steinunn G. Guð-
mundsdóttir, f. 5.8.
1894, d. 27.6. 1967,
og Matthías Pétur
Guðmundsson, f.
22.2. 1888, d. 8.7.
1964. Erna Helga
og Ferdinand eign-
uðust átta börn og
eru sex þeirra á lífi,
22 barnabörn og
fimm barna-
barnabörn. Börn þeirra eru:
Smári, f. 28.6. 1951, d. 5.4. 1986;
Sigríður Guðmunda, f. 4.11. 1952,
á þrjú börn og fjögur barnabörn;
óskírð stúlka, f. 21.3. 1955, lést
sex vikna gömul; Steinunn, f. 21.3.
1956, á fjögur börn, Erla, f. 13.1.
1958, á fjögur börn og eitt barna-
barn; Sæmundur Birgir, f. 16.5.
1960, á þrjú börn; Freyr, f. 9.7.
1961, á þrjú börn; Ríkey, f. 23.8.
1970, á tvö börn. Fyrir átti Ferd-
inand Kristmund, f. 6.9. 1946, d.
4.12. 1986, á eina dóttur; og Sig-
urð, f. 1.2. 1947, á tvö börn.
Ferdinand byrjaði til sjós 17
ára gamall og vann við smíðar og
múrverk og lauk síðustu 14 árum
starfsævinnar í Straumsvík.
Útför Ferdinands verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Okkur er það bæði ljúft og skylt
að minnast vinar okkar sem er
kvaddur í dag. Soebech eins og
hann var jafnan kallaður var ætt-
aður frá Byrgisvík á Ströndum;
einn af þessum hraustu, duglegu
Strandamönnum sem voru annál-
aðir dugnaðarforkar. Hann var
yngstur í stórum systkinahópi,
mjög samrýndum og skemmtileg-
um, söngelskum og glöðum hópi.
Soebech var góður maður og fjöl-
hæfur til margra verka, hvort
heldur til sjós eða lands við smíðar
eða múrverk. Það var sama hvað
var. Þessi rólegi og prúði maður
var líka skemmtilegur og gaman
var að hlæja með honum. Hann var
iðinn og alltaf að dunda sér við til-
tektir. Já, hún var heppin með
manninn sinn mín elskulega vin-
kona Erna Matthíasdóttir frá Pat-
reksfirði, sem lést árið 2002. Þau
voru mjög hamingjusöm eins og
tvær öðuskeljar úr fjörunni sem
smullu saman, samanber ljóðið
hans Jenna Jóns sem við sungum
oft „við lékum heima saman að
legg og skel, blítt var vor og bjart
um fjöll og dal“. Já, þetta yljaði
okkur. Þau eignuðust níu mann-
vænleg börn sem öll eru yndisleg
og dugleg. Við sendum þeim inni-
legar samúðarkveðjur, sem og öllu
skyldfólki og vinum Soebechs. Við
þökkum allar góðar minningar sem
ylja okkur um ókomna tíð. Guð
blessi minningu þína.
Elsa og Guðbrandur.
Ferdinand Söebech
Guðmundsson
Sárindin við skrifum í sand
og hamingjuna við ristum í stein.
Þú litla hvönn sem hvarfst á brott,
við bros þitt geymum, það er gott.
En eftir stöndum hrygg og sár
og lítið stöðvar okkar tár.
Hún Arna er geymd í okkar sál
við stöndum saman traust sem stál.
Elsku Björgvin, Svafa, Fróði og
Sindri. Hugur okkar er öllum stund-
um hjá ykkur.
Jóhanna, Ottó, Aldís
Dagmar, Franz og Egill.
Arna
Ploder
✝ Arna Ploder fæddist 17. maí2006. Hún andaðist 14. októ-
ber síðastliðinn og var útför henn-
ar hennar gerð 23. október.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
yndislegu
AÐALHEIÐAR LILJU SVANBERGSDÓTTUR,
Einigrund 8,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A-deildar
Sjúkrahúss Akraness fyrir hlýja og góða umönnun.
Kristín Minney Pétursdóttir,
Svanberg Júlíus Eyþórsson,
Minney Ragna Eyþórsdóttir,
Hreiðar Þór Eyþórsson,
Eva Rakel Eyþórsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GÍSLI GÍSLASON,
Hvassaleiti 56,
lést að morgni mánudagsins 23. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Níelsdóttir,
Kristinn Gíslason, Auður Björg Sigurjónsdóttir,
Halldóra Gísladóttir, Reynir Ragnarsson,
Kjartan Gíslason, Ólöf S. Jónsdóttir,
Óskar Gíslason, Heiða Waage,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Hjörleifur Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL GUÐMUNDSSON
stýrimaður,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási laugardaginn
21. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Karlsdóttir, Jón Snædal,
Guðmundur Karlsson, Lynn Karlsson,
Sigurður Karlsson, Gunnhildur Gísladóttir,
Jóhannes Karlsson,
Anna María Karlsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ALDA JÓNATANSDÓTTIR,
Ásabraut 4,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðviku-
daginn 25. október kl. 14.00.
Gunnar Hjörtur Baldvinsson,
Baldvin Gunnarsson, Bergþóra Vilhelmsdóttir,
Jón Þór Gunnarsson, Ragnheiður Hólm Sævarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson, Angela Færseth,
Þ. Magnús Gunnarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUNNLAUGUR JÓN ÓLAFUR AXELSSON
framkvæmdastjóri,
Kirkjuvegi 67,
Vestmannaeyjum,
lést af slysförum mánudaginn 16. október.
Jarðarförin fer fram frá Landakirkju, Vestmanna-
eyjum, laugardaginn 28. október kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á safnreikning unglingastarfs Golfklúbbs Vestmannaeyja,
kt. 580169-7759, 582-14-101191.
Þökkum sýndan hlýhug.
Fríða Dóra Jóhannsdóttir,
Axel Valdemar Gunnlaugsson, Fríða Sigurðardóttir,
Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, Guðjón Örn Guðjónsson,
Halldór Gunnlaugsson, Lovísa G. Ásgeirsdóttir,
afabörn og systkini hins látna.