Morgunblaðið - 24.10.2006, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Lau 28/10 kl. 14
Sun 29/10 kl. 14
Sun 5/11 kl. 14
Sun 12/11 kl. 14
Sun 29/10 kl. 20 Fös 3/11 kl. 20
Fim 9/11 kl. 20 Fös 10/11 kl. 20
Fös 27/10 kl. 20 UPPS. Lau 28/10 kl. 20
Sun 5/11 kl. 20 Lau 11/11 kl. 20
BRILLJANT SKILNAÐUR
MANNTAFL
Fös 27/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 20
Sun 5/11 kl. 20
TÓNLISTARSKÓLI AKRANESS
Þjóðlagasveit tónlistarskólans á
Akranesi
Mið 25/10 kl. 20:30 UPPS.
Miðaverð 1.500
12 ÁRA OG YNGRI FRÍTT
Börn 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í
fylgd með fullorðnum*
Gildir ekki á barnasýningar og söngleiki
www.leikfelag.is
4 600 200
Síðasta vika kortasölunnar!
Herra Kolbert – forsala í fullum gangi!
Lau 28. okt kl. 20:30 UPPSELT – Frumsýning
Sun 29. okt kl. 20 UPPSELT – 2. kortasýn
Fim 2. nóv kl. 20 UPPSELT – 3 .kortasýn
Fös 3. nóv kl. 19 örfá sæti laus – 4. kortasýn
Lau 4. nóv kl. 19 UPPSELT – 5. kortasýn
Fim 9. nóv kl. 20 – 6. kortasýn
Næstu sýn: 10/11, 11/11, 16/11, 17/11, 18/11
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 29. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 15 UPPSELT
Næstu sýn: 4/11, 5/11, 12/11, 19/11, 26/11
! "
# $%
$ &'() *+, -./ $#
$ &'() *+, -./
.--'. 01/+/ 2 , 3.'
444
5
!"##
$% & '(
$6
7
8 69 :7
7
;
<0= # 6
(()
' &)
*+
,'( - *
" +! 8 : ! > ! ? @" A !
B 0 !
"C MÝRIN trónir á toppi bíólistans eft-
ir þriðju helgina í október, það verð-
ur að teljast gott þar sem myndin
var frumsýnd á föstudaginn. Tekjur
helgarinnar af miðaverði námu hátt í
16 milljónum og hafa nálægt 16.000
manns séð Mýrina nú þegar, en
stærsti aðsóknardagurinn var á
sunnudaginn. Með þessari glæsilegu
opnun sló myndin met og er sú kvik-
mynd sem hefur fengið mesta að-
sókn frá upphafi og tvöfalt meiri en
sú sem átti gamla metið.
Mýrin var langstærsta opnun árs-
ins á kvikmynd hér á landi og sú
næststærsta frá upphafi mælinga.
Eins og flestir vita er Mýrin gerð
eftir samnefndri skáldsögu Arnaldar
Indriðasonar og fjallar um rann-
sóknarlögreglumanninn Erlend,
sem leikinn er af Ingvari E. Sigurðs-
syni, lausn hans á glæpamálum og
persónulegt líf.
Mýrin hrinti vitleysingunum í Jac-
kass number two úr fyrsta sætinu
þar sem þeir fengu að tróna í eina
viku. Önnur mynd sem var frumsýnd
um helgina, The Guardian, náði að
komast upp í þriðja sæti en Monster
House, sem var í fyrsta sæti bíólist-
ans fyrir tveimur vikum, þarf að
gera sér fjórða sætið að góðu.
Hin nýfrumsýnda Material Girls
fær svo að verma fimmta sætið, en í
henni leika systurnar Hilary og Hay-
lie Duff systurnar Tanzie og Ava
Marchetta sem eru erfingjar að risa-
stóru snyrtivörufyrirtæki. Þegar
það fer nærri því á hausinn vegna
hneykslismáls þurfa þær að taka á
honum stóra sínum til að bjarga því
frá glötun. Önnur svokölluð stelpu-
mynd, Devil Wears Prada, er svo í
sjötta sæti.
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar á Íslandi
Mesta aðsókn sem íslensk
kvikmynd hefur fengið
"#
#
$#
%#
&#
'#
(#
)#
*#
Mýrin Ingvar E. Sigurðsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir í hlutverkum sín-
um sem Erlendur og Eva Lind í Mýrinni.
FRÁ leikstjóranum Christopher
Nolan kemur myndin sem er í
fyrsta sætinu í bíóhúsum vest-
anhafs eftir helgina 20. til 22. októ-
ber. The Prestige, sem halaði inn
14,8 milljónir Bandaríkjadala frum-
sýningarhelgina, segir frá tveimur
töframönnum (Hugh Jackman og
Christian Bale) sem eru eldheitir
keppinautar. Frá því þeir hittust
fyrst sem ungir töframenn á upp-
leið hafa þeir háð baráttu um yf-
irráð sem er full af svikum, öfund
og þráhyggju og leiðir til hættu og
jafnvel dauða fyrir alla í kringum
þá. Fyrir utan Jackman og Bale má
sjá í myndinni leikarana Michael
Caine, Scarlett Johansson og David
Bowie.
The Prestige hrinti Martin Scor-
sese-kvikmyndinni The Departed,
sem var frumsýnd fyrir hálfum
mánuði, úr fyrsta sætinu sem hún
var búin að halda frá frumsýning-
arhelginni. The Departed segir frá
glæpaforingja í Boston sem kemur
sínum manni inn í raðir lögregl-
unnar á sama tíma og utanaðkom-
andi maður valsar um í hans eigin
samtökum.
Íslandsvinurinn Clint Eastwood
er svo í þriðja sæti vestanhafs með
mynd sína Flags of Our Fathers
sem var tekin upp að hluta hér á
landi. Myndin var frumsýnd um
helgina og halaði inn 10,2 milljónir
Bandaríkadala sem var aðeins
minna en væntingar voru gerðar
til. En alkunnt er vestanhafs að
Eastwood-myndir taki sinn tíma í
að komast á toppinn svo engar ör-
væntingarraddir hafa heyrst ennþá
frá framleiðendunum sem halda í
vonina um aukna aðsókn.
Tveir töframenn
á toppnum
1. The Prestige
2. The Departed
3. Flags of Our Father
4. Open Season
5. Flicka
6. The Grudge 2
7. Man of the Year
8. Marie Antoinette
9. Texas Chainsaw Massacre
10. The Marine
Reuters
Bíó Kvikmynd Clint Eastwood
Flags of Our Fathers vermir þriðja
sætið yfir mest sóttu kvikmyndir
vestanhafs um helgina.
Kvikmyndir | Vinsælastar vestanhafs
Konur voru stærsti hluti áhorf-
enda á myndina Flicka sem er í
fimmta sæti en hún fjallar um upp-
reisnargjarna stúlku sem reynir að
temja villihest.
Sofia Coppola vermir svo áttunda
sætið með mynd sína Marie Antoi-
nette þar sem Kirsten Dunst fer
með aðalhlutverkið.
Leikarinn Pierce Brosnan aukfleiri þekktra stjarna komu
saman í Bandaríkjunum í gær til
þess að mótmæla fyrirhugaðri
byggingu á að-
stöðu fyrir jarð-
gasvinnslu í um
22 km fjarlægð
frá Kaliforn-
íuströnd.
„Við verðum
að beita okkar
röddum og koma
saman og stöðva
þetta,“ sagði leik-
konan Halle
Berry.
Auk Brosnans
og Berrys voru
saman komin þau
Cindy Crawford,
Jane Seymour,
Dick Van Dyke
og Tea Leoni í
Malibu.
Tilgangurinn
með mótmæl-
unum var að
vekja athygli á
því hvernig orkuiðnaðurinn hefur
fjárfest milljónir dala í því að
breyta jarðgasi í vökva og flytja
hann þvert yfir höf.
Búið er að leggja til að byggja
fimm vinnslustöðvar í Kaliforníu, en
þrjár þeirra eiga liggja við strand-
lengju ríkisins. Eitt stærsta orku-
fyrirtæki heims, BHP Billiton, sem
er staðsett í Ástralíu, hefur óskað
eftir að fá að byggja stöð skammt
undan strönd Malibu og Oxnard.
Búist er við svari á næsta ári.
Brosnan, sem var í forsvari fyrir
mótmælendum, sagði að andstaða
sín gagnvart vinnslustöðunum tæki
til stærra svæðis en þess hluta
strandarinnar sem er í hans eigin
nágrenni.
Hann sagðist einnig ætla að mót-
mæla öðrum fyrirhugðum vinnslu-
stöðvum, þ. á m. einni á Long
Beach og annarri í Port Hueneme.
Fólk folk@mbl.is