Morgunblaðið - 06.11.2006, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GUNNAR Svavarsson, forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, mun leiða
lista Samfylkingarinnar í Suðvestur-
kjördæmi í alþingiskosningunum á
vori komanda, en hann hlaut 1.376 í
fyrsta sæti listans í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi
sem fram fór á laugardaginn.
Katrín Júlíusdóttir hlaut örugga
kosningu í 2. sætið og Þórunn Svein-
bjarnardóttir hafnaði í 3. sæti, en báð-
ar eiga þær sæti á Alþingi. Katrín
hafði sóst eftir 2. sæti en Þórunn
stefndi á það fyrsta. Árni Páll Árna-
son lögfræðingur hafnaði í 4. sæti en
hann gaf kost á sér í forystusæti
listans, líkt og þau Þórunn og Gunnar.
Á eftir Árna komu Guðmundur Stein-
grímsson blaðamaður í 5. sæti,
Tryggvi Harðarson, fyrrverandi bæj-
arstjóri, í 6. sæti, Sonja B. Jónsdóttir
myndlistarkennari í 7. sæti og Jakob
Frímann Magnússon tónlistarmaður í
8. sæti. Alþingismaðurinn Valdimar
Leó Friðriksson var felldur í próf-
kjörinu, hann gaf kost á sér í 3. sæti
en hafnaði í 14. sæti.
Spennandi prófkjörsnótt
Mjótt var á mununum hjá Þórunni
og Gunnari allt kvöldið. Fyrstu tölur
voru birtar á níunda tímanum á laug-
ardagskvöldinu og var Gunnar efstur
samkvæmt þeim. Þegar um 40% at-
kvæða höfðu verið talin leiddi Þórunn
hins vegar listann með 40 atkvæða
mun. Þá er öll atkvæði nema utan-
kjörfundar- og vafaatkvæði höfðu
verið talin var Gunnar aftur kominn í
1. sætið, en aðeins munaði 19 atkvæð-
um á þeim Þórunni. Gríðarleg spenna
ríkti á Fjörukránni þegar Halldór S.
Magnússon, formaður kjörstjórnar,
steig í pontu og kynnti lokatölur.
Samkvæmt þeim hafði Gunnar Svav-
arsson unnið prófkjörið og aðeins 46
atkvæði skildu þau Þórunni að, eða
um 3% greiddra atkvæða. Allir fram-
bjóðendur sem Morgunblaðið ræddi
við eru samdóma um það að prófkjör-
snóttin hafi verið óvenju spennandi og
skemmtileg og fjölmargir hafi séð sér
fært að mæta á Fjörukrána og fylgj-
ast með framvindu mála langt fram
eftir nóttu.
Breytt fyrirkomulag
og aukin þátttaka
Þátttakan í prófkjörinu var að sögn
Halldórs S. Magnússonar, formanns
kjörstjórnar, mjög góð, en um 4.600
manns tóku þátt í því. Í síðasta próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Suðvestur-
kjördæmi voru aðeins 1.900 þátttak-
endur, en það prófkjör var einungis
opið flokksmönnum. Í ár var um svo-
kallað stuðningsmannaprófkjör að
ræða, en í því felst að skráðir flokks-
menn og stuðningsmenn flokksins
geta einir tekið þátt í því. Þeir sem
eru yfirlýstir stuðningsmenn skrá sig
ekki í flokkinn, en samþykkja hins
vegar að haft verði samband við þá í
tengslum við alþingiskosningarnar í
vor.
Kjörstaðir voru sjö talsins; auk
íbúa allra sex nágrannabæjarfélaga
Reykjavíkur var íbúum Kjósarhrepps
gert kleift að kjósa í sinni heimasveit.
Að sögn Halldórs er þetta í fyrsta
sinn sem íbúum í Kjósinni gefst kost-
ur á að kjósa í hreppnum, og mældist
nýbreytnin ákaflega vel fyrir hjá
stuðningsmönnum Samfylkingarinn-
ar á svæðinu.
Gunnar bar sigur úr býtum
Gunnar Svavarsson skipar fyrsta sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, en aðeins
munaði 46 atkvæðum á honum og Þórunni Sveinbjarnardóttur í 1. sætið. Þórunn hafnaði í 3. sæti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í HNOTSKURN
»Samfylkingin fékk fjóramenn úr Suðvestur-
kjördæmi kjörna í síðustu al-
þingiskosningum.
»Tveir þingmanna flokks-ins úr kjördæminu, þau
Rannveig Guðmundsdóttir og
Guðmundur Árni Stefánsson,
ákváðu að gefa ekki aftur
kost á sér.
»Um 4.600 manns tókuþátt í prófkjörinu en fyrir
fjórum árum voru þátttak-
endur í prófkjöri Samfylking-
arinnar aðeins um 1.900.
»Aukningin á að einhverjuleyti rætur að rekja til
þess að prófkjörið í ár var
ekki einungis opið flokks-
mönnum, heldur var óflokk-
bundnum stuðningsmönnum
flokksins einnig boðið að taka
þátt í því.
»Gunnar Svavarsson, for-seti bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar, hafnaði í 1. sæti,
Katrín Júlíusdóttir í 2. sæti
og Þórunn Sveinbjarnardóttir
í 3. sæti.
!"
#
$
%
&"
'"
("
)"
*"
+"
,"
-"
. /#. 0
&"(,+
'"'+-
'"(*(
&"1*2
'"2(-
&"*-+
'"2),
'"2+*
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Stemning Fjölmenni var á Fjörukránni og spennan mikil meðan beðið var eftir niðurstöðum prófkjörsins.
„ÞETTA var mjög spennandi prófkjörsnótt, tölurnar
komu á víxl og um tíma munaði innan við tveimur tugum
atkvæða á okkur Þórunni,“ segir Gunnar Svavarsson,
forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, sem vann próf-
kjörið á laugardaginn. „Ég hef alltaf sagt að það sé mik-
ilvægt að þingkonurnar okkar, þær Þórunn og Katrín,
séu í efstu sætum listans. Augljóslega vorum við Þórunn
að takast á um fyrsta sætið og í þetta skiptið hafnaði ég
þar.“ Að mati hans er einnig mikill fengur í þeim Árna
Páli Árnasyni og Guðmundi Steingrímssyni, sem höfn-
uðu í fjórða og fimmta sæti. „Árni Páll hefur unnið bak-
sviðs fyrir flokkinn í áratugi og Guðmundur er þekktur maður úr þjóð-
málaumræðunni sem höfðar til nýrra hópa,“ segir Gunnar.
Að mati Gunnars er listinn mjög breiður og sterkur og Samfylkingin í
raun hinn eini sanni sigurvegari prófkjörsins, þátttakan hafi verið mjög
góð og 19 einstaklingar hafi séð sér hag í því að bjóða sig fram fyrir flokk-
inn. „Ég er fyrst og fremst þakklátur þeim sem tóku þátt í prófkjörinu,
ekki síst meðframbjóðendum mínum, sem hafa staðið jafnvel að þessu og
raun ber vitni,“ segir Gunnar. „Það má líka geta þess að þótt tekist hafi
verið á um toppsætin á listanum erum við öflug liðsheild sem stefnir á sig-
ur saman hinn 12. maí næstkomandi.“
Sigurinn Samfylkingarinnar
Gunnar Svavarsson
KATRÍN Júlíusdóttir þingkona hlaut örugga kosningu í
2. sætið í prófkjörinu. Katrín segist vera mjög þakklát
þeim fjölmörgu sem veittu henni stuðning og er bjartsýn
á að sá listi sem valinn var á laugardaginn eigi eftir að
ná mjög góðum árangri í vor. „Þátttakan í prófkjörinu
og allur andinn í kringum það færði mér heim sannninn
um það,“ segir Katrín.
Katrín kveður kosningakvöldið hafa verið mjög
skemmtilegt, fjölmargir hafi séð sér fært að mæta á
Fjörukrána og mikil spenna verið í loftinu.
Aðspurð um úrslitin í baráttunni um 1. sætið segir
Katrín að allt hafi getað gerst, enda Gunnar og Þórunn mjög öflugir fram-
bjóðendur. Hún telur að Samfylkingin eigi eftir að ná langt með Gunnar
sem forystumann. „Gunnar er mjög öflugur maður og hefur sýnt það að
hann er mikill forystumaður í þeim störfum sem hann hefur tekið að sér
fyrir Samfylkinguna,“ segir Katrín.
Hvað listann sjálfan varðar kveður Katrín hann tiltölulega ungan og
sprækan. „Listinn er mjög sterkur og ég efast ekki um að hann muni vinna
jafnaðarstefnunni mikið gagn, en það hefur aldrei verið mikilvægara að
veita jafnaðarstefnunni brautargengi en akkúrat núna,“ segir Katrín að
lokum.
„Listinn er mjög sterkur“
Katrín Júlíusdóttir
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir alþingiskona segist vel
geta unað við þriðja sætið, en hún gaf kost á sér í það
fyrsta. „Ég er mjög ánægð með árangur minn í þessu
prófkjöri enda gat vart tæpar staðið á milli okkar Gunn-
ars; það munaði aðeins 46 atkvæðum,“ segir Þórunn.
Hún kveður það hafa legið fyrir þegar fyrstu tölur hafi
farið að berast að sá sem yrði undir í baráttunni um
fyrsta sætið ætti á hættu að hafna í því þriðja. „Kvöldið
var náttúrlega spennuþrungið en ég get ekki verið ann-
að en þakklát þeim breiða stuðningi sem ég hafði í odd-
vitasæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Bar-
áttan hefur styrkt mig sem stjórnmálamann.“
Þórunn segir listann mjög sterkan og breiðan, ólíkir einstaklingar með
ólíka reynslu og þekkingarsvið leiði þar saman hesta sína. „Mikil endurnýj-
un hefur átt sér stað og við Katrín höfum fengið til liðs við okkur ferska
karla,“ segir Þórunn og skellir upp úr. „Við erum með fjóra menn í Suð-
vesturkjördæmi og stefnum ótrauð á að ná fimm mönnum inn í vor,“ segir
Þórunn og segir það stóran persónulegan sigur fyrir Guðmund Stein-
grímsson að hafa náð fimmta sæti listans, sem verður baráttusætið í vor,
enda fjölgi þingmönnum kjördæmisins um einn fyrir næstu alþingiskosn-
ingar.
„Baráttan hefur styrkt mig“
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
„ÉG stefndi að því í upphafi að ná sæti í forystusveitinni
og það hefur tekist,“ segir Árni Páll Árnason lögmaður,
sem lenti í 4. sæti í prófkjörinu. Árni bauð sig fram í 1.
sætið en segist þó mjög þakklátur fyrir þann meðbyr
sem hann hafi fengið í prófkjörinu. „Ég er að koma nýr
inn og sá mikli og þétti stuðningur sem ég fékk í próf-
kjörinu er mér mjög mikilvægur,“ segir Árni.
Árni segist horfa fram á veginn fullur bjartsýni enda
sé listinn skipaður einstaklingum með mikla pólitíska
vigt; tveimur efnilegum þingkonum og forseta bæj-
arstjórnar Hafnarfjarðar. „Ég þekki Gunnar að góðu
einu og treysti honum vel til að vera í forystu. Við höfum verið félagar frá
því að við vorum saman í menntaskóla, þannig að það er ekki eins og ég sé
að sjá hann í fyrsta skiptið,“ segir Árni. Hann fagnar því jafnframt að Guð-
mundur Steingrímsson skyldi hafna í 5. sæti listans. „Það er spennandi til-
hugsun að Guðmundur sé í fimmta sætinu, sem óneitanlega verður bar-
áttusætið í vor. Hann hefur vakið mikla athygli sem pistlahöfundur og
maður með frjóa pólitíska hugsun.“ Árni segir að það sem mestu máli
skipti sé þó að baráttan hafi farið mjög vel fram og engin eftirmál orðið af
henni. „Framundan er kosningabaráttan og ég held að þetta sé sterkur listi
sem getur náð miklu fylgi í kjördæminu,“ segir hann að lokum.
„Sterkur listi“
Árni Páll Árnason