Morgunblaðið - 06.11.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 45
/ ÁLFABAKKA
THE DEPARTED kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10:10 B.i. 16
THE DEPARTED VIP kl. 5:30 - 8:30
THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 12
THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
BARNYARD m/ensku tali kl. 6 - 10:10 LEYFÐ
JACKASS NUMBER 2 kl. 4 - 8 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
BESTA MYND
MARTINS
SCORSESE TIL
ÞESSA
Vel gerð og rómantísk með
þeim Zach Braff („Scrubs“,
„Garden State“), Rachel
Bilson („The O.C.“
þættirnir) ofl.
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS.
BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI
SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI
„THE DEPARTED ER EÐAL GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR GERAST
BESTAR OG ER ENN EIN RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
„...groddalegur og
beinskeyttur húmor...
þannig að maður ælir
nánast af hlátri“
Þ.Þ. - FRÉTTABLAÐIÐ
Sýnd í Sambíóunum í Kringlunni og Keflavík
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
UPPRUNALEGU PARTÝ-DÝRIN ERU MÆTTÞú átt eftir
að skemmta
þér sjúklega
vel.
eeee
H.Ó. MBL
eee
LIB Topp5.is
KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER
Þegar hættan steðjar að ...
fórna þeir öllu
the last kiss
eee
EMPIRE
Mogga Bíó í bíófyrir2 1
T.V. - Kvikmyndir.com
eeeee
THE MIRROR
eeeee
EMPIRE
eeeee
V.J.V. - Topp5.is
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd
allra tíma?
sjá miða framan á
morgunblaðinu í dag
gildir ekki á Borat
né mýrina
*
/ KRINGLUNNI
BORAT mogga tilb. gildir ekki kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ kl. 6 LEYFÐ m/ísl. tali
MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
/ KEFLAVÍK
BORAT mogga tilb. gildir ekki kl. 8 - 10 B.I. 12
MÝRIN mogga tilb. gildir ekki kl. 8 B.I. 12
THE DEPARTED kl. 10:10 B.I. 12
/ AKUREYRI
THE DEPARTED kl. 8 b.i. 16
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ
THE GUARDIAN kl. 8 b.i. 12
eeee
EMPIRE MAGAZINE
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn getur átt von á ýmsu í dag;
láttu berast með straumnum, viðhorfið
skiptir öllu máli. Ef þú neyðir þig til þess
að vera glaður í bragði, finnur þú eitt-
hvað til þess að gleðjast yfir. Ef nei-
kvæðnin nær tökum á þér finnur þú leið-
ir til þess að halda henni við líka.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ástvinir átta sig ekki á því hvað þú ert að
fara eða misskilja þig alfarið. Ekki láta
rugling koma í veg fyrir að þú þorir að
tjá þig í framtíðinni. Ef fyrirætlanir þín-
ar eru heiðarlegar, verður engin viðleitni
til einskis.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Annríki þitt kallar á tíma fyrir slökun.
Reyndu að fara eitthvað upp í fjöll ef þú
mögulega getur. Farðu þangað sem út-
sýnið er. Það er fátt sem ekki er hægt að
leysa á meðan maður virðir fyrir sér fal-
lega náttúru.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn á erfitt með að ná sambandi
við ástvini sína vegna ólíkra áherslna og
tímaskorts. Ekki reyna að neyða ráð-
gerðum þínum upp á aðra, leyfðu hlut-
unum að ráðast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið gerir dagsdaglega tilveru að
nokkurs konar listformi, hvort sem það
raðar púðum á sófa eða tekur þátt í líf-
legum samræðum við vin. Haltu sköp-
unargáfunni við með því að umgangast
þá sem kunna að meta hana.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vertu djarfari svona almennt séð. Settu
markið nógu hátt til þess að þú getir
gortað af mistökunum síðar. Það er
betra að hafa næstum því náð háleitu
markmiði en að monta sig af einhverju
lítilræði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Félagslífið getur tekið sinn toll, ef maður
sinnir því með tilþrifum. Þú þarft hugs-
anlega á uppörvun að halda síðar í dag.
Farðu eitthvað þangað sem þú verður
örugglega huggulegasta manneskjan á
staðnum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert ekki beint sléttur og felldur. En
hey, ef maður teygar lífið í botn, má allt
eins búast við því að maður sulli niður á
sig. Gerðu þig ánægðan með stöku bletti,
þeir eru merki þess að þú hafir verið til.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn hefur yfirleitt mikið sjálfs-
traust. En óöryggi þitt tekur skyndilega
völdin stutta stund í kvöld og skýtur þér
skelk í bringu. Þú jafnar þig um leið og
þú áttar þig á því hvað þú átt að segja við
manneskjuna sem sló þig út af laginu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú kemur svo sannarlega miklu í verk
þessa dagana. Til allrar óhamingju hefur
þú lítinn eða nánast engan tíma til þess
að laga það sem betur mætti fara,
tryggðu þér því svigrúm til þess að gera
vel í fyrstu atrennu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Yfirlýsingar sem gefnar eru snemma
dags móta það sem eftir er vikunnar. Ef
þær eru sagðar upphátt hafa þær svo
gott sem ræst. Þú færð tækifæri til þess
að minna einhvern á að þjáningu má
stundum forðast en eymdin er val.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Viðkvæmnin ræður ríkjum. Fortíð og
nútíð renna saman í eitt. Færðu frá það
sem þér er unnt. Það kann ekki góðri
lukku að stýra að taka ákvarðanir á al-
mennum forsendum. Láttu hreinskilnina
ráða för, annars festistu í fari.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Venus og Neptúnus eru
ekki á eitt sátt. Venus segir
að ástin sigri allt og Nep-
túnus segir að það sem
maður heldur að sé ást, sé
oft ekki ekta og gæti því
ekki einu sinni yfirbugað flugu. Bæði
hafa rétt fyrir sér. Nýtum okkur þessa af-
stöðu til þess að viðurkenna að óskilyrta
ást þar sem hana er að finna og skilja að
sum ást er heldur ekki ekta.
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó, Laug-
arásbíó, Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Borat (Borat: Cultural Learnings of Am-
erica for Make Benefit Glorious Nation of
Kazakhstan) Leikstjóri: Larry Charles. Aðalleikendur:
Sacha Baron Cohen, Ken Davitian, Lue-
nell, Pamela Anderson (sem hún sjálf).
90 mín. Bandaríkin 2006.
MAÐUR er nefndur Sacha Baron
Cohen (Borat), breskur gam-
anleikari og háðfugl, kunnastur
fyrir sjónvarpsþættina Da Ali G
Show, sem hafa m.a. verið sýndir
hérlendis. Í þeim hefur hann
skapað þrjá afar furðulega og
óforskammaða rugludalla; tit-
ilpersónuna (sem var einnig um-
fjöllunarefni gamanmyndarinnar
Ali G Indahouse), sem er hvítur
Lundúnabúi sem gefur sig út fyrir
að vera rappari frá Jamaíku; sjón-
varpsfréttamanninn Borat frá Ka-
sakstan og austurríska viðundrið
og tískusérfræðinginn Bruno (sem
verður aðalpersóna næstu myndar
Cohens).
Trúðurinn fór á kostum sem Ali
G, en var þó ekki nema svipur hjá
sjón hjá Borat, sem er enn yf-
irgengilegri og jafnan í seiling-
arfjarlægð frá mörkum þess að
ganga gjörsamlega fram af áhorf-
endum. Cohen sýnir einstaka snilli
í ólýsanlegum línudansi á mörkum
þess að hneyksla og hrella bíó-
gesti, en tekst jafnan að láta háðið
og spottið, og sinn mjög svo per-
sónulega húmor, verða yfirsterk-
ari. Hann er lengst af að spauga
með bannhelgar samfélagsins;
kynþáttafordóma, sifjaspell, klám-
kjafta, íbúa vanþróaðra ríkja og
afbrigðilega kynhneigð, svo eitt-
hvað sé nefnt, auk þess sem sjálf-
umglaðir „fréttaskýrendur“ fá það
óþvegið ásamt trúarbrögðum, ekki
síst gyðingdómurinn (en höfund-
urinn er vitaskuld gyðingur og
þykir einstaklega notalegur og
fágaður í hversdagslífinu). Á sinn
dæmalausa hátt kemst hann upp
með klúrheitin, því hann fær bíó-
gesti oftar en ekki til að gráta af
hlátri undir atburðarás sem fengi
minni spámenn til að gera allt
bandbrjálað og áhorfendur til að
ganga í hópum út af sýningunni.
Vafalaust hneykslar hann ein-
hverjar sálir því Borat lúrir á at-
riðum sem engan hefði grunað að
hann ætti eftir að sjá á almennri
kvikmyndasýningu. Maður á bágt
með að trúa sínum eigin augum
þegar Cohen fer fullum seglum á
tjaldinu. Í einu atriðinu eru þeir
að berjast, allsberir, Borat og
hinn sílspikaði ferðafélagi hans frá
Kasakstan, framleiðandinn Aza-
mat (Davitian). Þeir enda í hinum
klúrustu fangbrögðum í rúmum
sínum og berst leikurinn vítt um
hótelið. En sjón er sögu ríkari og
það má segja um Borat frá upp-
hafi til enda.
Söguþráðurinn fjallar um sjón-
varpsmanninn sem heldur til U S
og A (eins og hann nefnir jafnan
Bandaríkin) til að fræðast um gós-
enríkið og koma til baka með
reynslu sem getur nýst hans nið-
urnídda heimalandi á hjara ver-
aldar. Borat er e.k. vegamynd,
þeir félagarnir velkjast stranda á
milli, frá New York til Los Angel-
es. Meginástæðan fyrir Kaliforn-
íureisunni er Strandvarða-gellan
Pamela Anderson, sem Borat sér
á skjánum og verður það ást við
fyrstu sýn.
Galdur Cohens að láta bíógesti
skemmta sér stórkostlega í stað
þess að hrista höfuðið er vits-
munalegi þátturinn í ósvífninni og
subbuskapnum. Í smekklausum fá-
ránleikanum tekst honum að gera
okkur ljóst að þrátt fyrir allt er
aðeins örmjó lína milli hinna rík-
ustu og snauðustu, klúrustu og
siðfáguðustu. Borat verður örugg-
legasta yfirgengilegasti gleðigjafi
ársins og ein af bestu myndum
þess.
Sæbjörn Valdimarsson
Borubrattur,
geðbætandi Borat
Skemmtilegur „Vafalaust hneykslar hann einhverjar sálir því Borat lúrir
á atriðum sem engann hefur grunað að eiga eftir að sjá á almennri kvik-
myndasýningu, “ segir Sæbjörn m.a í dómnum.