Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 19

Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 19 SUÐURNES Við eigum næsta leik Reykvíkingar – munið prófkjör Samfylkingarinnar. Veljum vel á S-listann! Mörður Árnason 4.–6. sæti www.mordur.is Opið öllum stuðningsmönnum – kosið 11. nóvember í Þróttarheimilinu, Laugardal, kl. 10–18 AKUREYRI GEIR Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Ís- lands, verður á súpufundi Íþrótta- félagsins Þórs í Hamri kl. 12-13 á morgun, fimmtudag. Þar verður rætt um kærumál Þórs/KA gegn ÍR í kvennaknattspyrnunni og fyrirhug- aða lengingu á Íslandsmótinu. Geir á súpufundi Þórsara HRÍSEYINGAR fögnuðu því á sunnudaginn var að 100 ár eru nú liðin frá því skólahald hófst í eyjunni. Af þessu tilefni héldu nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Hrísey afmælishátíð þar sem boðið var upp á sýningu á gömlum munum sem tengjast sögu skólans, söngskemmt- un og kaffiveislu. Einnig unnu nem- endur að útgáfu skólablaðs og sér- stakri afmælisvefsíðu. Hátíðin þótti takast vel, þrátt fyr- ir mikið hvassviðri, en á annað hundruð manns heimsóttu skólann þennan eftirmiðdag auk þess sem skólanum voru færðar veglegar gjaf- ir. Afmælisvefsíðuna og myndir frá hátíðinni er hægt að sjá á heimasíðu skólans og sýningin mun standa út vikuna. Í stórskemmtilegu afmælisblaði er m.a. að finna þessa frásögn: „Ég heiti Guðlaug Elsa Jónsdóttir og er fædd 8.desember 1927. Ég hóf mína skólagöngu 6 ára gömul í gamla krakkaskólanum sem þá var nýr. Ég á margar góðar minningar þaðan. Það voru 2 kennarar sem kenndu en mér líkaði við annan en ekki hinn af því hann gerði mun á okkur krökkunum. Frímínúturnar á þessuma tíma voru mjög skemmti- legar og fjörugar. Mér og Valdísi systur minni var stundum strítt í skólanum útaf kápum úr glansefni sem mamma saumaði á okkur og við vorum í utan yfir fötin okkar í skól- anum. Uppáhalds námsgreinin mín var reikningur sem Aðalheiður Al- bertsdóttir skólastjóri kenndi. Við vorum oftast mjög prúð og hlustuð- um í tímum, ef við gerðum það ekki vorum við sett í skammarkrókinn, þá snérum við baki í bekkinn og máttum ekki líta við. Á skólaárum mínum var uppáhalds tónlistin mín þjóðlög, en núna er það flest öll tón- list, Við vorum látin læra ósköpin öll af kvæðum og þulum í skóla. Ég hætti 13 ára í skólanum.“ 100 ára afmæli skóla- halds fagnað í Hrísey Merkisdagur Hópur fólks kom í heimsókn í grunnskólann í Hrísey í tilefni 100 ára afmælis skólahalds í eyjunni.  www.gshrisey.akureyri.is/ afmaeli Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það er ákveðinn hluti bæjarbúa sem vill hafa félag eins og tónlistarfélagið í bænum og er tilbúið til að styrkja það bæði með árlegu félagsgjaldi og að mæta á tónleika. Hins vegar þurf- um við að fjölga félagsmönnum og upphugsa leiðir við að ná til yngra fólks,“ sagði Árni Hinrik Hjartar- son, nýkjörinn formaður Tónlistar- félags Reykjanesbæjar, í samtali við blaðamann yfir kaffibolla í Kaffitári. Tónlistarfélag Reykjanesbæjar var endurvakið fyrir þremur árum og við stjórnvölinn sat Una Steins- dóttir þar til síðasta haust. Með Unu úr stjórn fóru Dagný Gísla- dóttir og Ellert Eiríksson en í þeirra stað komu Árni Hinrik Hjartarson, sem settist í for- mannsstólinn, Baldur Guðmunds- son og Dröfn Rafnsdóttir. Árni Hinrik sagði að ekki yrðu gerðar neinar teljandi breytingar á starfsemi félagsins. Áfram yrði haldið með átak í að fjölga fé- lagsmönnum og leitað yrði leiða til að ná til yngri áheyrenda. Almenn aðsókn að tónleikum væri hins veg- ar góð, 50 til 100 manns að jafnaði, sem Árni Hinrik telur afrek miðað við allt það sem er í boði í bæj- arfélaginu. „Ég myndi samt vilja sjá muna meira af yngra fólki og þá sérstaklega nemendur í Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. Mér finnst þetta svo kjörinn vettvangur fyrir þá til að fá meiri innsýn í klassíska tónlist. Hins vegar vil ég taka fram að við erum í góðum tengslum við skólann, það vantar ekkert þar upp á.“ Árni nefnir í framhaldi að vissu- lega sjái stjórnin möguleika á nýj- ungum. „Við erum farin að ræða um að prófa eitthvað nýtt, jafnvel annað en hefðbundna klassíska tónleika og ná þar með til breiðari hóps. Við byrjuðum nú á tónleikum með Íslenska saxófónkvartettinum í lok október og verðum með jóla- djass í einu hádeginu í desember. Næstu tónleikar verða hins vegar með Gunnari Guðbjörnssyni óp- erusöngvara og Jónasi Ingimund- arsyni píanóleikara.“ Tónleikar Gunnars og Jónasar verða í nýupp- gerðum bíósal í Duushúsum annað kvöld. Ásamt því að útvega hús- næði hefur Reykjanesbær stutt við bakið á tónlistarfélaginu með menningarsamningi. Nú í vikunni mun Árni Hinrik undirrita nýjan samning fyrir hönd félagsins sem felur í sér hækkun um 100 þúsund krónur. „Þessi hækkun gefur okk- ur meira svigrúm þar sem stund- um er lítið inni á heftinu. Annars fáum við góðan stuðning frá fyr- irtækjum í bænum og vitum um ný sem hafa áhuga á að styrkja okk- ur.“ Blaðamaður nefndi að það ætti að vera hægðarleikur fyrir tvo fjár- málaspekúlanta að ná nýjum styrktaraðilum, en Árni Hinrik er fjármálastjóri Reykjanesbæjar og Baldur markaðsstjóri hjá Spari- sjóðnum í Keflavík sem alla tíð hef- ur stutt dyggilega við bakið á menningarlífinu í Reykjanesbæ. „Það var nú ákveðið að Baldur myndi sjá um þessi mál vegna aug- ljósra hagsmunatengsla minna.“ Trompetinn eða … Sjálfur hefur Árni Hinrik komið að menningarlífi Reykjanesbæjar á margan hátt, sem menningar- neytandi, nefndarmaður í Ljós- anæturnefnd og tónlistarnemandi. Hann lærði á trompet hjá Herberti H. Ágústssyni í Tónlistarskólanum í Keflavík í rúmlega 11 ár og fór þaðan í Tónlistarskólann í Reykja- vík í tvö ár. Eftir það urðu hins vegar straumhvörf. „Þarna hef ég verið um tvítugt og valið stóð um að halda áfram í tónlistarskólanum og gera trompetinn að ævistarfi eða snúa sér að einhverju öðru. Ég ákvað að snúa mér að öðru, aðal- lega vegna þess að áhugasvið mitt hafði breyst. Það tók nú svo sem ekkert merkilegt við þá, ég var bara að vinna.“ Nokkrum árum síðan dreif Árni Hinrik sig í viðskiptafræðinám, fyrst til Akureyrar en síðan Dan- merkur. Þaðan sneri hann heim ár- ið 2002 með M.Sc.-gráðu í fjármál- um og alþjóðaviðskiptum. Hann tók við stöðu fjármálastjóra Reykjanesbæjar árið 2005. Þrátt fyrir að hafa ekki fetað tónlistarbrautina segist Árni Hin- rik ekki sjá eftir tónlistarnáminu. „Ég hef aldrei litið á trompetnámið sem tímaeyðslu. Ég var ekki í íþróttum á þessum árum og gaf mig því allan í þetta. Ég var m.a. í lúðrasveitinni við skólann og fékk minn skammt af trompetblætri á þrettándagleði í öllum veðrum,“ sagði Árni Hinrik og glotti við. „Námið gerði ekkert annað en að ýta undir menningarlega virkni. Maður var hvattur til að hlusta á klassíska tónlist og hafði bara gott af því. Þess vegna vil ég endilega sjá fleiri nemendur úr tónlistar- skólanum á tónleikum hjá tónlist- arfélaginu.“ Ný stjórn Tónlistarfélags Reykjanesbæjar er með nýjungar á prjónunum Þarf að ná til yngra fólks Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Tónlist Árni Hinrik Hjartarson tók við formennskunni í haust. Í HNOTSKURN »Tónlistarfélag Reykja-nesbæjar var endurvakið fyrir þremur árum og starf- semin hefur verið öflug. »Félagið stendur fyrirreglulegum tónleikum og ný stjórn hefur áhuga á að reyna ýmsar nýjungar, á milli hefðbundinna tónleika. »Formaður félagsinsstundaði tónlistarnám á sínum yngri árum og hvetur nemendur tónlistarskólans til að sækja betur tónleika hjá Tónlistarfélaginu. Keflavík | „Þetta er mun fjölmennara um- dæmi og fleira starfsfólk,“ segir Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður á Siglufirði, sem dóms- og kirkju- málaráðherra hefur skipað sýslumann í Keflavík frá áramótum. Guðgeir er fimmtíu og eins árs gamall og hefur verið sýslumaður á Siglufirði í þrettán ár. Hann gerði smá hlé með því að taka að sér að vera forstjóri Fangels- ismálastofnunar í tæp tvö ár. „Maður vill stundum breyta til. Það getur gerið gott að reyna sig við eitthvað nýtt,“ segir hann. Guðgeir segir að mesta breytingin við það að taka við embættinu í Keflavík felist í því að Suðurnesin séu miklu fjölmennara svæði, með liðlega 18 þúsund manns. Guð- geir gegnir stöðu sýslumanns í Ólafsfirði, samhliða embætti sínu, enda stendur til að sameina embættin, og á því svæði eru um 2300 íbúar. Hann segist hafa verið eini lögfræðingurinn hjá embættinu á Siglu- firði, þar til nýlega, og hafi því þurft að fást sjálfur við öll störf á því sviði. Í Kefla- vík séu löglærðir fulltrúar og því fleiri tækifæri til að sérhæfa sig. Hann tekur við embættinu í Keflavík á miklum breytingatímum því þá verður öll lögreglan á Suðurnesjum sameinuð undir stjórn sýslumannsins á Keflavíkurflug- velli. Það sama er raunar að gerast á Siglufirði. Guðgeir segist styðja þessar breytingar og hefði raunar vilja ganga lengra á Norðurlandi með því að sameina alla lögregluna. Það hafi tekist á höf- uðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og tel- ur hann að það muni leiða af sér betri embætti og betri stjórnun lögreglunnar. Gott að tak- ast á við eitthvað nýtt Guðgeir Eyjólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.