Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Örn D. Jónsson prófessor heldurfyrirlesturinn Er Ísland ban- analýðveldi? í Odda, Félagsvísinda- húsi Háskóla Íslands, í dag, mið- vikudaginn 8. nóvember kl. 12.20 í stofu 101. Í fyrirlestrinum er fjallað um um- skipti íslensks atvinnulífs með hlið- sjón af kenningum um nýsköpunar- kerfi. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Hjónin Guðrún Jóhanna Ólafs-dóttir mezzosópran og Franc- isco Javier Jáuregui gítarleikari frá Spáni halda tónleika ásamt Marteini H. Friðrikssyni í kvöld kl. 20.30 í Dómkirkjunni. Guðrún mun syngja trúarlega tónlist sem samin var til flutnings í kirkju, m.a. eftir Mozart, Wolf, Dvorák og Fauré. Sýning á verkum hafn-firska listamannsins Eiríks Smith er í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi og stendur til 19. nóvember. Þar sýnir Eiríkur yfir 30 verk, bæði olíu- og vatnslitamynd- ir. Eiríkur Smith nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1946-1950, Rost- rup Boysen í Kaupmanna- höfn 1948-1950 og Academi de la Grande Chaumier í Par- ís árið 1951. Fyrsta einkasýn- ing hans var í Sjálfstæðishús- inu í Hafnarfirði árið 1948 en síðan hefur hann haldið um 30 einkasýningar. Tónlist Dómkirkjan | Einsöngstónleikar. Flytj- endur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Franc- isco Javier Járegui og Marteinn H. Frið- riksson. Aðgangur: 1.500 kr. Norræna húsið | Í dag kl. 12.30 eru Há- skólatónleikar í Norræna húsinu. Áskell Másson, slagverk, og Borgar Magnason, kontrabassi, frumflytja verk Áskels, Inn- hverfar sýnir. Aðgangseyrir kr. 1.000. Aldr- aðir og öryrkjar kr. 500. Salurinn | III Píanókeppni Íslandeildar EPTA, forkeppni kl. 9. Seltjarnarneskirkja | Tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar áhugamanna kl. 17. Frumflutt verða verk fyrir strengjasveit eftir Oliver Kentish. Einnig verður fluttur konsert Salieris fyrir flautu og óbó, og Serenade fyrir blásara eftir Dvorák. Einleikarar Hall- fríður Ólafsdóttir og Daði Kolbeinsson, stjórnendur Oliver Kentish og Ármann Helgason. Myndlist Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið með blandaðri tækni. Opið mán.–þri. kl. 10–18 og lau. kl. 11–16. Til 17. nóv. Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir með sýninguna „Puntustykki“. Verkið sem Hanna Hlíf sýnir er um stöðu og sögu kvenna fyrr og nú. Til 1. des. Gallerí Fold | Einar Hákonarson sýnir í Baksal til 12. nóvember. Gallerí Stigur | „Vinátta“, myndlistarsýn- ing Elsu Nielsen, stendur nú yfir til 17. nóvember og er opin kl. 13–18 virka daga og kl. 11–16 laugardaga. Gallerí Sævars Karls | Þráinn málar í bernskustíl. Börn, tákn og tilfinningar. Sýningin stendur fram til 22. nóvember. Gallery Turpentine | Georg Guðni sýnir ný málverk og kolateikningar til 21. nóv. Gerðuberg | Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni 220 ára afmælis Reykjavíkur- borgar. Ljósmyndirnar sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í dag- legu amstri. Lítil augnablik í lífi fólks á götum og opinberum stöðum borgarinnar. Opin virka daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16. www.gerduberg.is. Sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur safnað saman. Skemmtileg blanda af gömlum munum og nýstárlegum en sam- an mynda þeir heild sem gefur góða mynd af minjagripaúrvali í Afríku. Opið virka daga frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13– 16. www.gerduberg.is. Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson) með sýningu á olíumálverkum og teikn- ingum í neðri sölum Hafnarborgar. Baski sýnir olíumálverk og teikningar sem tengj- ast Kili og sögu Reynistaðarmanna sem þar urðu úti 1780. Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll, ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar, stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðar- kirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 13– 19 og á sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með myndlistarsýningu til 24. nóv. Unnur Ýrr er með BA-gráðu í grafískri hönnun og hefur einnig stundað myndlistarnám í mörg ár. Í dag starfar hún sem grafískur hönnuður. Karólína Restaurant | Snorri Ásmunds- son sýnir óvenjuleg málverk á veitinga- staðnum Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmundur bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu. Sýning Snorra stendur til 12. jan- úar 2007. Kirkjuhvoll Akranesi | Eiríkur Smith sýnir um 30 verk, bæði olíu- og vatnslitamyndir, í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís- lensku listalífi og haslaði hún sér völl í ein- um erfiðasta geira grafíklistarinnar, tré- ristunni. Opið alla virka daga nema mánudaga 12–17. Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eftir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur þróunina í málverkinu frá upphafi ní- unda áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins í dag. Á annað hundrað verk eftir 56 listamenn eru á sýningunni. Sjá nánar á www.listasafn.is. Til 26. nóv. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan- adísk menningarhátíð í Kópavogi – þrjár sýningar á nútímalist frumbyggja í Kan- ada. Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desem- ber. Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista- safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist Sog. Viðfangsefni listamannsins er straumvatn og sýnir hann þarna ný mál- verk unnin með olíu á striga og rýmisverk. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ás- mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti listamaðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Marg- ir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýningunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega mynd- listarvettvangs. Sýningin hefur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasalur Mosfellsbæjar | Grasakonan Gréta Berg fjallar um tengsl hjúkrunar, geðræktar og lista og stendur sýningin til 11. nóv. Heilbrigði og dramatík sálarlífsins leika um myndirnar. Boðið er upp á slökun á laugard. Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, er opinn virka daga kl. 12–19 og laugard. 12–15 og er í Bókasafni Mosfellsbæjar. Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu- hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn tíma. Árni sýnir olímálverk 70x100. Opið kl. 9–17 alla daga nema laugardaga er op- ið kl. 12–16. www.arnibjorn.com. Næsti bar | Bjarni Helgason hefur opnað sýninguna Undir meðvitund og þar sýnir hann tíu akrýlmálverk ásamt skissum og útprenti tengdu þema sýningarinnar. Til 11. nóv. Skaftfell | Sýning vegna listmunauppboðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is. VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda af málverki og pólitísku innleggi í anda hefðbundins veggjakrots. Sem mál- verk takmarkast verkið af eðli gallerísins VeggVerk. Þannig á þetta verk, og þau sem á eftir munu koma, styttri líftíma en hefðbundin málverk, því listamennirnir munu allir nota sama rýmið. Til 25. nóv. Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á ljósmyndum sem varðveittar eru í myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hefur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru myndir af óþekktum stöðum, húsum og fólki og gestir beðnir um að reyna að þekkja myndefnið og gefa upplýsingar um það. Söfn Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tekið á móti hópum eftir samkomulagi. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í Borgar- skjalasafni stendur nú yfir sýning á skjöl- um úr einkaskjalasafni Hjörleifs Hjörleifs- sonar. Skjölin, sem tengjast öll fjölskyldu Hjörleifs, eru flest frá um 1900 og eru mörg þeirra glæsileg að útliti. Sýningin er opin öllum frá 10–16, alla virka daga. Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgríms- kirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur sett saman með sóknarnefnd og Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Til. 30. nóv. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú- inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk- aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í Gamla prestshúsinu. Opið eftir sam- komulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja- vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands, Háskólabóka- safn | Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræði- maður, eins og verk hans Íslenskir þjóð- hættir ber vott um. Sýningin spannar ævi- feril Jónasar í máli og myndum. Sjá nánar á heimasíðu safnsins www.landsboka- safn.is. Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist – sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð- kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung- barnaumönnun og þróun klæðnaðar og ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Unnið í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember frá 14–16. Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá öndverðu og Akureyri – bærinn við Poll- inn. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns | Í húsnæði Seðlabankans við Kalkofnsveg hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís- lenskri mynt og seðlum í eigu safnsins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðl- unarformi um hlutverk og starfsemi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leikmyndir sem segja söguna frá landnámi til 1550. www.sagamuseum.is. Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp- haf símasambands við útlönd. Símritari sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit- símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka daga kl. 13–16 www.tekmus.is. Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – Íslensk og erlend skotvopn ásamt upp- stoppuðum veiðidýrum og veiðitengdum munum. Sjá nánar á www.hunting.is. Opið um helgar í nóvember kl. 11–18. Sími 483 1558 fyrir bókanir utan sýningartíma. Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum Berlínarforlagsins Mariannenpresse stendur yfir. Hver bók er listaverk unnið í samvinnu rithöfundar og myndlistar- manns. Aðrar sýningar eru Handritin, Ís- lensk tískuhönnun og Fyrirheitna landið. Veitingastofa með hádegisverðar- og kaffimatseðli er í húsinu, einnig safnbúð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til sýnis útsaumuð handaverk listfengra kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin bygg- ist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni út- saumsins er m.a. sótt í Biblíuna og kynja- dýraveröld fyrri alda; þarna er stílfært jurta- og dýraskraut o.fl. Leiklist KFUM og KFUK | Í kvöld kl. 20 sýnir Platitude, leikfélag KSS, leikritið ,,Erfingjar eilífðarinnar“ í leikstjórn Rakelar Brynj- ólfsdóttur. Leikritið fjallar á skemmtilegan og hrífandi hátt um baráttu góðs og ills. Leikritið verður sýnt í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Aðgöngumiðinn kostar 1.000 kr. Pöntunarsími 694 4009. Kringlusafn | Fimmtudaginn 9. nóv. kl. 20 verður fjallað um leikverkið Amadeus eftir Peter Shaffer í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Hilmir Snær Guðnason leikari sýningarinnar, leikstjórinn Stefán Baldurs- son og Þórunn Þorgrímsdóttir leikmynda- höfundur ræða um vinnu leikhópsins. Allir velkomnir. Reiðhöll Gusts | Hvað er Þjóðarsálin? Er hún hjartnæm fjölskyldusápa? Er hún staðurstund Tónlist Trúarleg tónlist Fyrirlestur Fyrirlestur í Odda Myndlist Sýning Eiríks Smith í Listasetrinu á Akranesi Borat kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Fearless kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára The Devil Wears Prada kl. 8 og 10.20 Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 og 6 B.i. 7 ára Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50 Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára eeeee V.J.V. - Topp5.is Eruð þið tilbúin fyrir eina fyndnustu mynd allra tíma? eeeee „Eitt orð: Frábær“ -Heat eeee Empire Frá framleiðendum Crouching Tiger, Hidden Dragon kemur síðasta bardagamynd súperstjörnunnar Jet Li. „...epískt meistaraverk!“ - Salon.com „Tveir þumlar upp!“ - Ebert & Roeper T.V. - Kvikmyndir.com ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR! HÚSIÐ ER Á LÍFI OG ÞAU ÞURFA AÐ BJARGA HVERFINU Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri Sími - 564 0000Sími - 462 3500 eeeee EMPIRE eeeee THE MIRROR eeee S.V. Mbl. eee LIB, Topp5.is eee S.V. Mbl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.