Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 49
undirleikari kvöldsins var Hörður
Bragason sem lék við hvern sinn
fingur.
Kynnir tónleikanna var Logi
Bergmann Eiðsson sem stjórnaði
kvöldinu eins og honum einum er
lagið. Undir hans stjórn rann dag-
skráin ljúft áfram og alltaf var jafn
spennandi að heyra hverjir væru
næstir á dagskránni. Tónleikarnir
voru sannkölluð tónlistarveisla. All-
ur ágóði af tónleikunum rennur til
Barna- og unglingageðdeildar LSH
(BUGL) og gáfu allir flytjendur sitt
framlag til tónleikanna. Margir
þeirra hafa verið með okkur áður og
þó nokkuð margir hafa verið með frá
upphafi. Eiga þeir allir miklar þakk-
ir skildar. Fyrir hönd Lionsklúbbs-
ins Fjörgyn viljum við þakka fyrir
stuðninginn, öllum sem lögðu hönd á
plóginn með okkur, tónleikagestum,
tónlistarflytjendum og öðrum sem
tóku þátt í tónleikunum. Þeir svo
sannarlega hjálpuðu okkur að leggja
öðrum lið.
ÞÓR STEINARSSON,
formaður tónleikanefndar.
EINAR ÞÓRÐARSON,
formaður Lionsklúbbsins
Fjörgyn.
Magni Ásgeirsson og Karlakórinn Stefnir syngja í Grafarvogskirkju.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 49
ÞAÐ FER að líða að kosningum.
Á næstu mánuðum er mikilvægt sem
aldrei fyrr að nátt-
úruunnendur á Íslandi
líti til baka, horfi á að-
gerðir stjórnvalda
undanfarin ár og kjósi
með hagsmuni náttúr-
unnar í huga.
Viljum við önnur
fjögur ár með hægri
stjórn við völd á Ís-
landi? Stjórnvöld sem
leggja mat á gæði og
virði með hugtökum á
borð við samkeppni,
hagvöxt og gróða?
Mitt svar er nei! Nátt-
úran má sín lítils gagn-
vart slíkum mæli-
kvörðum. Ég vil ekki
þurfa að eyða næstu
fjórum árum í að horfa
á náttúruna verða enn
og aftur undir í sam-
keppninni við skamm-
vinnan gróða og auk-
inn hagvöxt.
Sofandi að feigð-
arósi
Stærsta vandamálið
í náttúruvernd í dag er
hugarfar almennings,
stjórnenda hins op-
inbera og eigenda fyr-
irtækja. Það er kom-
inn tími til að fólk
vakni til meðvitundar
um það hvernig dag-
legt líf þess, athafnir
og neysla hefur áhrif á náttúruna.
Við getum ekki haldið áfram á sömu
braut.
Til að almenningur verði meðvit-
aðri er nauðsynlegt að stórauka
fræðslu um náttúru- og umhverf-
ismál. Fræðslan þarf að hefjast þeg-
ar í leikskólum og grunnskólum.
Börn læra ekki að bera virðingu fyr-
ir umhverfi sínu og náttúrunni nema
þeim sé kennt það.
Næsta skref er að hvetja fólk til
að taka afstöðu. Það er nefnilega
ekki nóg að vilja vel ef samsvarandi
hegðun fylgir ekki í kjölfarið. Það er
ekki hægt að segjast hafa áhyggjur
af loftslagsbreytingum og mengun
en halda svo áfram rúntinum á
nagladekkjunum á stóra flotta kagg-
anum. Það er ekki nóg að tala um
endurvinnslu eða minni neyslu en
gera ekkert til að vinna að lausn
vandans á heimilinu.
Það er þó engan veginn nóg að al-
menningur axli ábyrgð
á náttúrunni. Stjórn-
málamenn, stjórnvöld
og stjórnendur fyr-
irtækja þurfa að axla
sinn skerf af ábyrgðinni
líka. Það er á ábyrgð
stjórnvalda að gera al-
menningi það kleift að
endurvinna og jafnvel
um leið að hvetja til
þess. Hvernig má það
til dæmis vera að op-
inberar stofnanir séu
ekki allar með umhverf-
isstefnu og endurvinni í
það minnsta pappírinn
sem notaður er innan-
húss? Það er svo margt
sem hið opinbera getur
gert til að sýna gott for-
dæmi og stuðla að betra
ástandi en í dag virðist
viljinn einfaldlega ekki
vera til staðar.
Í stað þess að styðja
við fjölbreytt atvinnulíf
víðs vegar um landið
hafa stjórnvöld glatað
yfirsýninni og sjá ein-
göngu færar allsherj-
arlausnir stór-
iðjustefnu. Í stað þess
að stjórnvöld leggi
metnað sinn í að koma á
vitrænum umhverf-
isstöðlum og tryggi að
eftir þeim sé farið eru
þau í dag að hjálpa fyr-
irtækjum að smeygja sér fram hjá
slíkum kröfum. Fyrrverandi for-
sætisráðherra þjóðarinnar hug-
hreysti hana til að mynda með því að
segja að við þyrftum engar áhyggjur
að hafa af loftslagsbreytingum og al-
þjóðlegri samvinnu því við ættum
beinlínis inni mengunarkvóta. Þessi
stefna er náttúrlega glórulaus hvort
sem við horfum til dagsins í dag eða
afleiðinganna sem þetta mun hafa á
börn okkar og barnabörn. Ég vil
breytingar núna!
Náttúruleysi
stjórnvalda
Auður Lilja Erlingsdóttir
fjallar um náttúruvernd og um-
hverfismál
Auður Lilja Erlings-
dóttir
» Í stað þessað stjórn-
völd leggi metn-
að sinn í að
koma á vitræn-
um umhverf-
isstöðlum og
tryggi að eftir
þeim sé farið
eru þau í dag að
hjálpa fyr-
irtækjum að
smeygja sér
fram hjá slíkum
kröfum.
Höfundur er formaður Ungra vinstri
grænna og frambjóðandi í forvali VG
á höfuðborgarsvæðinu.