Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 330. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is www.postur.is 4.12. er síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til landa utan Evrópu! ÍS L E N S K A /S IA .I S /I S P 3 45 81 1 2/ 06 REQUIEM MOZARTS SÍÐASTA VERK SNILLINGSINS FLUTT AF MIKILLI AUÐMÝKT 215 ÁRUM EFTIR DAUÐA HANS >> 32 20 dagar til jóla London, Washington. AP, AFP. | Vænt- anlegur formaður utanríkismála- nefndar öldungadeildar Bandaríkja- þings, demókratinn Joseph Biden, vill að Bandaríkjamenn gagnrýni þá stefnu einræðis og ríkisafskipta sem nú sé að komast á í Kreml. Hann sagðist í gær ekki vita hvort Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefði haft hönd í bagga með eiturmorðinu á Al- exander Lítvínenko, hörðum and- stæðingi forsetans og leyniþjónustunnar rússnesku, en taka þyrfti á samskiptunum við Rússland. Pútín og menn hans eru sakaðir um að hafa komið bæði Lítvínenko og nokkrum öðrum andstæðingum fyrir kattarnef með aðstoð leyniþjónustunnar en þeir vísa slíkum ásökunum eindregið á bug. Sumir heimildarmenn telja að Lítvínenko hafi komist yfir mikilvægar upplýs- ingar um Yukos-olíufélagið sem áður var undir stjórn auðkýfingsins Mikhaíls Khodorkovskís. Hann er nú í fangelsi í Síberíu eftir að hafa snúist gegn Pútín. „Rússland er að færast æ nær því að verða land þar sem auðkýfingarnir ráða öllu, Pútín er að tryggja völd sín,“ sagði Biden og sagði að Bandaríkjamenn hefðu í nokkur ár látið hjá líða að gagnrýna hann. „Ég tel að Rússland sé að fjarlægjast raunverulegt lýðræði og markaðshagkerfi og nálgast miðstýrt kerfi þar sem orð eins manns eru lög.“ Biden ræðst á Pútín Segist þó ekki vita hvort hann láti myrða andstæðinga sína Joseph Biden Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FORSETI Venesúela, Hugo Chavez, sagð- ist í gær vilja sterk og góð tengsl við Banda- ríkin en hann hefur lengi verið einn harðasti andstæðingur George W. Bush forseta og meðal annars kallað hann „djöful“ í ræðu- stól hjá Sameinuðu þjóðunum. Forseta- kosningar fóru fram í Venesúela í gær og var kjörsókn sögð góð. Útgönguspár í gær- kvöldi bentu til þess að Chavez myndi sigra og fá allt að 19% meira fylgi en aðalkeppi- nauturinn, Manuel Rosales. „Við viljum hafa sem allra best samskipti við [allar þjóðir], einnig Bandaríkjamenn,“ sagði Chavez. Forsetinn fagnaði einnig þeirri yfirlýsingu aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Thomas Shannon, að stjórnmálabaráttan í Venesúela færi nú fram á vettvangi lýðræðisstofnana. Féllu ummæli Shannons í viðtali við spænska blaðið El País. Shannon sagði einnig að Bandaríkjastjórn vildi góð samskipti við vinstrisinnana Daniel Ortega í Níkaragva og Rafael Correa í Ekvador sem báðir sigr- uðu nýverið í forsetakosningum. „Það er fagnaðarefni að fulltrúi Banda- ríkjastjórnar eins og hann er … skuli þó að a.m.k. viðurkenna að lýðræðiríki í Vene- súela og lýðræðisstofnanir virki. Mér finnst þetta góðs viti,“ sagði Chavez. Reuters Sigurviss Hugo Chavez, forseti Venesúela, ekur á brott í Volkswagen-bjöllu sinni eftir að hafa greitt atkvæði í Caracas. Friðmælist við Banda- ríkjamenn Útgönguspár gefa til kynna að Chavez sigri Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FIMM ára stúlka og maður á þrí- tugsaldri létust í árekstri á Suður- landsvegi á laugardag þegar tveir bílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, rákust saman. Á meðan umferðin verður ekki aðskilin eftir akstursstefnum verða áfram svona slys, segir forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðar- slysa. „Þarna verður að bæta úr, og vinna sem hraðast í því að um- ferðin verði aðgreind á þessum vegum. Það hefur sýnt sig að eftir breikkun Reykjanesbrautar hefur ekki orðið banaslys vegna fram- anákeyrslu þar,“ segir Ágúst Mo- gensen, forstöðumaður rannsókn- arnefndarinnar. „Á meðan þetta er svona verða áfram svona slys.“ Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra segir að stefnt sé að því að tvöfalda stofnleiðir út úr Reykjavík, bæði Suðurlandsveg og Vesturlandsveg. Talsvert hefur verið rætt um mögulega einka- framkvæmd á tvíbreikkun Suður- landsvegar. Sturla segir að í samgönguáætl- un, sem lögð verði fram í janúar, verði tekin bein afstaða til einka- framkvæmdar. „Þar verður vænt- anlega gefið upp með þann mögu- leika að við förum í farveg einkaframkvæmdar, sem við höf- um ágæta reynslu af úr Hvalfirð- inum.“ Einnig sé þó mögulegt að ríkið taki lán til að hraða fram- kvæmdunum. „Ég er mjög áhugasamur um einkaframkvæmd vegna þess að hún getur hraðað framkvæmdun- um, það er mikilvægasti kosturinn við hana. Þó að hún geti verið að- eins dýrari til lengri tíma, ef litið er á beinan kostnað, getur minni kostnaður, sem fylgir betri veg- um, svo sem í minnkandi tjónum og bættu umferðaröryggi, forsvar- að einkaframkvæmdina,“ segir Sturla.  Bílar úr gagnstæðum | 4 Verður að bæta úr og aðgreina umferðina Einkaframkvæmd við breikkun vega forsvaranleg, segir samgönguráðherra JÓLASÝNING Árbæjarsafnsins var opnuð í gær en þar er hægt að rölta milli húsa og skoða undirbúning jólanna eins og hann var forðum daga. Þar sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð og á baðstofulofti verður spunnið, prjónað og saumaðir roðskór. Jólin eru greinilega að nálgast því í gær voru ljósin tendruð á jólatrjám víða í borg og bæ. | 6 Morgunblaðið/ÞÖK Jólin forðum daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.