Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 19
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Hann er þekktur sem bestaeftirherman meðal páfa-gauka. Rannsóknir hafasýnt fram á að þeir geti raunverulega skilið mannamál. Hann getur verið mjög skapstór og kulda- legur. Hann á það til að plokka sig ef honum leiðist og einnig tengist hann oft aðeins einni manneskju. Sagt er að hann hafi gáfur á við fimm ára barn og tilfinningaþroska á við tveggja ára barn. Bræðurnir Sindri Snær og Krist- ján Ingi eiga einn svona páfagauk, sem skemmtir heimilisfólkinu í tíma og ótíma enda er hann mikil fé- lagsvera og meira að segja farinn að læra mannamál. „Við erum búnir að vera að kenna honum að segja nokk- ur orð. Hann kann til dæmis nú orðið að segja mjá, voff, mamma og svo segir hann halló í hvert skipti sem síminn hringir. Við þurfum hinsvegar að tyggja orðin nokkuð oft í hann áð- ur en hann lærir þau til fulls, en það er voða gaman að eiga talandi páfa- gauk,“ segir Sindri, sem er 12 ára nemandi í Snælandsskóla og stundar auk þess fimleika og tennis. Bróðir hans Kristján bætir við að hann Bósi sé voðalega forvitinn um hvað sé í matinn og eigi það til að fá sér að smakka af diskunum. Lífslíkurnar eru allt að 75 árum Bósi heyrir til tegund að nafni Congo African Grey sem á uppruna sinn í Mið-Afríku. Kongó-grápáfinn er aðallega grár að lit. Hann er hvítur í kringum augun og á lærum og er með rautt stél. Goggurinn er svartur og fæturnir gráir. Lífslíkurnar geta orðið allt að 75 árum. Bræðurnir segja að hann borði nánast allt sem að kjafti komi, svo sem kornfóður, ávexti, grænmeti, kjöt og fisk, en uppáhaldið er grillaðir barbeque-kjúklingavængir og ostur. Foreldrar Kristjáns og Sindra, þau Ásta Rósa Magnúsdóttir og Svan- berg Hreinsson, keyptu fuglinn fyrir rúmum tveimur árum óséðan í egg- inu sínu í versluninni Furðufuglum og fylgifiskum, en Bósi fæddist fið- urlaus þann 27. september árið 2004 og komst þá fljótlega í hendur ætt- leiðingarfjölskyldunnar sinnar þar sem hann unir hag sínum einkar vel. „Við eigum líklega öll upp á pall- borðið hjá honum,“ segir Ásta og bætir við að hann sé einkar fé- lagslyndur. „Hann þarf helst að fá að sitja á öxlunum eða á hausnum á okk- ur og hann fylgir mér fast eftir í heimilisstörfunum.“ Kúkar í klósettið á morgnana Fjölskyldan hefur í gegnum tíðina alið venjulega páfagauka, síðast par, sem sinnaðist með þeim afleiðingum að kerlingin drap karlinn einn góðan veðurdag þegar hann var að skoða eggin. Bósi á sitt eigið búr, sem hann sef- ur í á næturnar og heldur til í þegar enginn er heima. Svo fær hann frelsi til að hreyfa sig um leið og einhver úr fjölskyldunni kemur heim. „Það þarf að vængstýfa hann reglulega með því að klippa flugfjaðrirnar, því glingrið okkar er í stórhættu fái hann að flögra um með óklippta vængi,“ segir Svanberg. Bósi kann líka mannasiði því hann kúkar alltaf í klósettið á morgnana, en svo gerast slys af og til, enda er Bósi bara tveggja ára. „Klósettið hans er nefnilega vaskurinn á baðinu. Og svo fer hann alltaf með mér í sturtu á morgnana, stendur á hand- klæði fyrir utan sturtuklefann og syngur fyrir mig. Sjálfum finnst hon- um líka svolítið gaman að busla í vatni, en þá stendur hann gjarnan í dalli og eys yfir sig vatni,“ segir Svanberg að lokum. Bósi segir „halló“ þegar síminn hringir Morgunblaðið/Sverrir Bræður Kristján Ingi og Sindri Snær ættleiddu Bósa ófæddan. Heimilisfaðirinn Svanberg Hreinsson kjáir framan í Bósa. Heimilisstörfin Bósi fylgir húsmóðurinni, Ástu Rósu Magnúsdóttur, hvert fótmál á meðan hún sinnir húsverkunum. gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2006 19 með flutningabílum búnum sérhönnuðum kæli- og frystitækjum og geymast í þar til gerðum vörumóttökum, vottuðum af gæðaeftirlitskerfi GÁMES. Vel skipulagt flutningakerfi og reynsla í faglegum matvæla- flutningum um allt land tryggja að neytand- inn fær vöru sína ferska innan 24–48 tíma og alla leið ... upp í munn og ofan í maga! Frekari upplýsingar um afgreiðslustaði er að finna á landflutningar.is Allur matur á að fara ... Skútuvogur Kjalarvogur Sæbraut B rú arvo g u r K lep p sm ýrarveg u r H o ltaveg u r Við erum hér Barkarvogur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.