Morgunblaðið - 05.12.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 11
FRÉTTIR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 15 511-5656
FIOLSTRÆDE 7 3336 5656
WWW.12TONAR.IS
HITTIR BEINT Í HJARTASTAÐ.
FRÁBÆR TÚLKUN RAGNHEIÐAR
Á ÍSLENSKUM ÞJÓÐLÖGUM
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgis@mbl.is
FORMAÐUR Mæðrastyrksnefnd-
ar, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir,
segir sífellt fleiri fjölskyldur sækja
um aðstoð nefndarinnar. „Í haust
hefur aðsóknin vaxið mjög og við
finnum fyrir því að fólk kemur
seinnipartinn í mánuðinum þegar
þannig er komið fyrir því að það hef-
ur ekki peninga sem duga munu því
út mánuðinn. Við vitum um fólk sem
ekki treystir sér til að koma, ein-
hverra hluta vegna,“ segir Ragn-
hildur.
Ragnhildur telur að það fólk geti
verið illa farið af veikindum eða hafi
orðið fyrir einhverju sem valdi því
að það treystir sér ekki til að koma.
„Það eru alltof margir sem þurfa á
aðstoð að halda. Það er sorglegt til
þess að vita að hópurinn yngist og
eldist. Það eru fleiri ungir sem koma
núna og fleiri eldri borgarar en ver-
ið hefur. Því miður eru eiturlyfin
inni í þeirri mynd og fleiri öryrkjar
sem leita til okkar en nokkurn tíma
áður.“
1.400 heimili fengu
aðstoð fyrir síðustu jól
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
og Hjálparstarf kirkjunnar munu
veita sameiginlega jólaaðstoð í des-
ember um allt land. 1.400 heimili
leituðu til hjálparstarfsins fyrir síð-
ustu jól, en starfsmenn þess verða í
Sætúni 8 í Reykjavík fyrir þessi jól.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi
hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir
starfið fara fram um allt land. Mat-
arkassar séu sendir fólki úti á landi
og þá sérstaklega um jólin. „Um-
sóknir berast í gegnum presta eða
félagsþjónustu úti á landi í desem-
ber en við erum líka með útibú á Ak-
ureyri,“ segir Vilborg.
Fólk á höfuðborgarsvæðinu eða
Akureyri sæki um hjá skrifstofum
Hjálparstarfs kirkjunnar eða
Mæðrastyrksnefnd og sæki svo
gjafabréfin.
Verslanakeðjan Bónus veitti í gær
21 milljón króna til hjálparstarfsins.
Þeim peningum verður varið í að að-
stoða þá sem við bágust kjör búa.
Gefin verða 4.200 gjafabréf frá
verslunum Bónuss að upphæð 5.000
kr. hvert. Fyrir tveimur árum gaf
Bónus sömu félögum 20 milljónir
króna og 25 milljónir fyrir fjórum
árum.
Jóhannes Jónsson, kenndur við
fyrirtæki sitt Bónus, sagði á blaða-
mannafundi vegna peningagjafar-
innar að fyrir hvert gjafabréf ætti
að vera hægt að kaupa eina góða
jólamáltíð í Bónus. Heildarverðmæti
gjafarinnar, 21 milljón króna, væri
ekki tilviljun þar sem það væri sama
upphæð og veitt var dómsmálaráðu-
neytinu með aukafjárveitingu í
haust til að „gera út sérstakan sak-
sóknara“ í Baugsmálinu, eins og Jó-
hannes orðaði það. „Okkur fannst
ágætt að sýna fram á hvað þessi
upphæð gæti mettað marga munna
ef hún væri notuð á viturlegri hátt
en að hafa fólk að leiksoppi og kvelja
það ef hægt er.“
Gott að gefa
Jóhannes sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann væri kominn
í jólaskap. „Þetta hefur virkileg
áhrif á mann, hvernig samtökin taka
manni þegar maður kemur færandi
hendi. Manni líður alltaf vel þegar
maður gefur og við höfum haft það
að leiðarljósi frá fyrsta degi að ef
maður gefur ekkert þá fær maður
ekkert,“ segir Jóhannes.
Morgunblaðið/ÞÖK
Peningagjöf Jóhannes Jónsson í Bónus færir Mæðrastyrksnefnd gjöf til að styrkja þá sem búa við bágust kjör.
Vakandi þörf fyrir hjálp
Mæðrastyrksnefndar
Bónus veitti í gær 21 milljón króna til hjálparstarfsins
Í HNOTSKURN
» Verslanakeðjan Bónushefur á undanförnum ár-
um gefið samtals 66 milljónir
til Mæðrastyrksnefndar, en
nefndin og Hjálparstarf kirkj-
unnar vinna sameiginlega að
úthlutun.
»Fólk á höfuðborgarsvæð-inu eða Akureyri getur
sótt um aðstoð fyrir jólin á
skrifstofum Hjálparstarfs
kirkjunnar eða Mæðrastyrks-
nefndar.
NÍUTÍU ár verða
liðin frá fæðingu
dr. Kristjáns Eld-
járns, fyrrver-
andi þjóðminja-
varðar og forseta
Íslands, miðviku-
daginn 6. desem-
ber. Í tilefni af því
er efnt til hátíðar-
dagskrár í Þjóð-
minjasafni Íslands sem hefst klukk-
an 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminja-
safnsins.
Við þetta tilefni verða m.a. kynnt-
ar rannsóknaniðurstöður ársins 2006
og mun dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir
mannfræðingur flytja fyrirlestur um
verkefnið sem hún vann að í stöð-
unni. Hvernig skyldi hafa verið að
búa í torfbæ um miðja 20. öld? Þetta
er meðal þess sem Anna Lísa velti
fyrir sér en hún rannsakaði lífið í
torfbæjunum á tímabilinu 1850 til
búsetuloka fram yfir 1950. Í
tengslum við rannsókn sína tók Anna
Lísa meðal annars viðtöl við fjölda
fólks sem man eftir að hafa átt heima
í torfbæ, segir í fréttatilkynningu.
Í framhaldi af erindi Önnu Lísu
verður í Forsalnum opnuð sýning
sem byggist á rannsóknum hennar:
Á tímum torfbæja: híbýlahættir og
efnismenning í íslenska torfbænum
frá 1850. Myndir og textar ásamt úr-
vali gripa varpa ljósi á þær miklu
breytingar sem urðu á þessu síðasta
tímabili torfbæjanna.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður flytur ávarp og fulltrúi
afkomenda dr. Kristjáns Eldjárns
afhendir gjöf bóka- og skjalasafns
hans. Greint verður frá ráðningu í
rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eld-
járns árið 2007 og milli klukkan 13 og
16 verður opið hús í Setbergi, nýju
húsi Þjóðminjasafnsins, í Suðurgötu
43.
Í Setbergi eru nýjar aðalskrifstof-
ur og bóka- og heimildasafn Þjóð-
minjasafnsins. Starfsmenn verða á
staðnum og kynna starfsemina og
gefst gestum og gangandi tækifæri
til að hitta þá að máli og kynnast
innri starfsemi Þjóðminjasafnsins
ekki síður en sýningum.
Hátíðardagskrá
á afmæli Krist-
jáns Eldjárns
Nýjar rannsóknir á torfbæjum kynntar
á opnu húsi í Þjóðminjasafni Íslands
Kristján Eldjárn
Í HNOTSKURN
» Hátíðardagskrá verður íÞjóðminjasafninu í tilefni af
því að níutíu ár eru liðin frá fæð-
ingu dr. Kristjáns Eldjárns.
» Kristján var þriðji forseti Ís-lands, 1968–1980. Áður var
hann þjóðminjavörður og sá um
vinsæla sjónvarpsþætti um forn-
ar minjar og muni í vörslu Þjóð-
minjasafnsins.
» Afkomendur Kristjáns munuafhenda safninu gjöf bóka-
og skjalasafns hans.
Á NÆSTU nítján mánuðum mun
Baugur Group hf. styrkja Hið ís-
lenska bókmenntafélag um alls
nítján milljónir króna. Upphæðin
er táknræn að því leyti að félag-
ið, sem er 190 ára um þessar
mundir, fær greidda eina milljón
kr. fyrir hvern áratug í sögu
sinni.
Hið íslenska bókmenntafélag
var stofnað í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn árið 1816 og hefur
starfað óslitið frá stofnun. Ekkert
íslenskt félag, svo vitað sé, á jafn
langa og óslitna sögu að baki og
hefur frá upphafi lagt rækt við
undirstöður íslenskrar menningar
og sögu.
„Á tímum hraða og hávaða er
hætt við að starfsemi af þessum
toga verði undir í samkeppni um
athygli þeirra sem veita styrki til
mikilvægra mála. Okkur fannst
einfaldlega kominn tími til að
styðja félagið með myndarlegum
hætti, á stórum tímamótum í
sögu þess,“ er haft eftir Hreini
Loftssyni, stjórnarformanni
Baugs Group, í fréttatilkynningu.
„Stuðningur Baugs er okkur
kærkominn, segir Sigurður Lín-
dal, forseti Hins íslenska bók-
menntafélags. „Ég tel að hér hafi
verið brotið blað í styrkveitingum
íslenskra fyrirtækja til velferð-
armála, því almennt eru styrkir
tengdir kynningu sem nær til
fjöldans. Með slíku er hætta á, að
útundan verði verkefni sem lúta
að undirstöðum menningar nú-
tímans og vandi er að kynna
þannig að almenna athygli veki,“
segir Sigurður.
Stuðningur við Hið íslenska
bókmenntafélag er, að sögn
Hreins Loftssonar, í anda þeirrar
stefnu sem Baugur hefur markað
og fylgt á undanförnum árum, að
styrkja margvíslega menningar-
starfsemi. Þar megi nefna útgáfu
einstakra bóka, tónlistar- og leik-
listarstarfsemi jafnframt því sem
félagið hafi verið bakhjarl
Listahátíðar í Reykjavík og Grím-
unnar – íslensku leiklistarverð-
launanna.
Ljósmynd/Róbert Reynisson
Stuðningur Sigurður Líndal, forseti Hins íslenska bókmenntafélags, og
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, skrifuðu undir samninginn.
Baugur styrkir
bókmenntafélagið
TÓLF ökumenn, allt karlmenn, voru
teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi
lögreglunnar í Reykjavík um helgina
og einn var stöðvaður fyrir að aka
undir áhrifum lyfja. Flestir öku-
mannanna voru á þrítugs- og fer-
tugsaldri en sá yngsti var 17 ára
gamall og sá elsti á tíræðisaldri.
Fimm fíkniefnamál komu til kasta
lögreglunnar í Reykjavík um síðustu
helgi. Á föstudagskvöld voru tveir
karlmenn handteknir í miðbænum
með ætluð fíkniefni í fórum sínum og
aðfaranótt laugardags var maður
stöðvaður í miðbænum af sömu
ástæðu. Tvær konur voru svo hand-
teknar á gististað í austurbænum um
hádegisbil á laugardag. Aðfaranótt
sunnudags voru tveir karlmenn
færðir á lögreglustöð eftir að fíkni-
efni fundust í bíl þeirra og tveir karl-
menn voru handteknir í heimahúsi
þar sem ætluð fíkniefni fundust.
Karlmenn
óku ölvaðir