Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 12
Ljósmynd/Sogndal Klatreklubb Á uppleið Kristján Þór Björnsson á leið upp 18 metra háan klifurvegginn. Eftir harða keppni deildi hann gullverðlaunum með dönskum keppinaut. TVEIR félagar í Klifurfélagi Reykjavíkur náðu frábærum ár- angri á Norðurlandamóti unglinga 13–19 ára í leiðsluklifri sem haldið var í Sogndal í Noregi um helgina. Kristján Þór Björnsson, 15 ára, deildi gullverðlaunum í sínum flokki með Dananum Emil Jesper- sen og Hjalti Andrés Sigurbjörns- son, 18 ára, hlaut brons í sínum flokki. Það kallast leiðsluklifur þegar klifrarar eru bundnir í línu þegar þeir klifra upp háa klifurveggi. Keppnin var afar jöfn og spenn- andi og var jafnt á með íslensku piltunum og keppinautum þeirra allt frá undanúrslitum til úr- slitakeppni, að sögn Hjalta Rafns Guðmundssonar hjá Klifurfélagi Reykjavíkur. Að sögn Hjalta Rafns fór keppnin þannig fram að keppendur fengu eina tilraun til að fara 18 metra klifurleiðir. Leiðirnar voru erfiðar, hluti þeirra slútti yfir keppendur og stundum urðu þeir að stökkva til að ná handfestu. Fjöldi stiga fór eft- ir því hversu hátt keppendur kom- ust. Hjalti Rafn segir að aðstaða til innanhússklifurs hafi verið að byggjast upp en hæstu veggirnir í leiðsluklifri séu aðeins um sex metra háir. Þeir Kristján Þór og Hjalti Andrés hafi því ákveðið að hleypa heimdraganum í haust og hafa síðan stundað æfingar við bestu aðstæður í Noregi, Spáni og Frakklandi. Hjalti Rafn segir ár- angur piltanna frábæran. „Ég er þvílíkt stoltur af strákunum,“ segir hann. Frábær árangur klifrara á Norðurlandameistaramóti 12 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TIL stóð að ljúka heilborun aðrennsl- isganga Kárahnjúkavirkjunar í gær, en ekki tókst betur til en svo að mótor í vökvatjakk risaborsins TBM 3 gaf sig og var unnið að viðgerðum í nótt. Athygli vekur mikill hiti á kafla í göngunum og gæti þar verið mögu- leiki á nýtingu jarðvarma fyrir að- liggjandi sveitarfélög. TBM 3 brýst gegnum síðasta haft ganganna nú í morgunsárið en það er 1,75 m þykkt. Vitað er að borinn kem- ur nánast rétt á göngin sem TBM 2 boraði frá aðgöngum 2 við Axará, að- eins munar 5 cm að ofan og 3 cm til hliðanna og þykir það vel af sér vikið eftir 40 km borun. Haftið er um 2 km fyrir vestan Þrælaháls og nánast beint undir Hölkná, 180 metra undir yfirborði jarðar. Fara þarf rúmlega 12 km vegalengd eftir göngunum inn að haftinu með lest, sem tekur um 40 mínútur og vekur athygli að á kafla er mjög hlýtt í göngunum. Það er suð- vestan undir Þrælahálsi þar sem 54 gráða heitt vatn spýtist út úr berginu. Þar er eina verulega hitasvæðið sem TBM-borarnir hafa farið í gegnum í borun aðrennslisganganna. Jón Þor- steinsson öryggisfulltrúi og Brynhild- ur Magnúsdóttir jarðfræðingur, bæði hjá VIJV-framkvæmdaeftirliti, segja að þetta heita vatn gæti skipt veru- legu máli fyrir nágrannasveitar- félögin yrði þarna farið í jarð- hitaborun í framtíðinni. Jón segir tvö önnur svæði vestan við hlý en hitastig vatnsins mun lægra eða um 16 gráð- ur. Gífurlegur mismunur hefur verið á hitastigi í göngunum. Göngin frá að- göngum 3 í Hrafnkelsdal eru t.d. sögð hafa verið langnöturlegust og þar kemur mun kaldara vatn niður í þau. Þar var þó farið í gegnum 16 gráða heitar sprungur og talin skilyrði fyrir jarðhita því stutt sé í uppsprettu í Glúmsstaðadal. Aðrennslisgöngin verða heilfóðruð þar sem þörf er talin á. Mikill vatns- agi er víða og þarf að varna því að nokkur mótstaða sé fyrir vatnsflaum- inn sem mun renna um göngin úr Hálslóni og eins að grunnvatn sígi niður í göngin. Hitinn í göngunum yfir 30°C Jarðhiti suðvestan við Þrælaháls gefur góð fyrirheit Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hlýtt Jón Þorsteinsson öryggisfulltrúi, Brynhildur Magnúsdóttir jarðfræð- ingur og Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður biðu eftir bornum í gær. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is KAUPMENN við Laugaveg í Reykjavík keppast nú við að gera varning sinn sem mest aðlaðandi í augum neytenda enda eru nú innan við þrjár vikur til jóla. Veður hefur verið milt á landinu undanfarna daga og haldist það má búast við góðri verslun við Laugaveg. Rannsóknasetur verslunarinnar og Samtök verslunar og þjónustu spá um 9% aukningu í jólaverslun á þessu ári. Morgunblaðið/G. Rúnar Jólavarningurinn kominn í búðir SJÚKIR fangar af erlendu bergi brotnir fá heilbrigðisþjónustu þótt þeir geti ekki greitt fyrir hana sjálf- ir. Heilbrigðisráðuneytið hefur breytt reglugerð sem tekur til fanga sem eru ekki sjúkratryggðir eða njóta ekki tryggingaverndar í sér- stökum milliríkjasamningum og ættu því að greiða heilbrigðisþjón- ustu að fullu. Reglugerðarbreytingin felur í sér að kostnaður vegna þjónustu við ósjúkratryggðan fanga af erlendu bergi brotinn fellur á stofnunina sem veitir þjónustuna geti fangi ekki greitt fyrir sig. Er í reglugerðinni vísað til þess að þessi hópur fanga eigi rétt á neyðaraðstoð sem skil- greind er svo í lögum um heilbrigð- isþjónustu. Vafi hefur leikið á um hver greiða á fyrir heilbrigðisþjónustu sem þess- ir fangar fá þegar þeir geta ekki greitt fyrir hana sjálfir. Nú hefur með reglugerðarbreytingunni verið ákveðið að stofnunin sem veitir þjón- ustuna taki á sig kostnaðinn. Greiða fyr- ir þjónustu við fanga Hjálparstarf kirkjunnar hef- ur fengið 8 milljóna króna styrk frá utan- ríkisráðuneytinu til að afla vatns í sjö héruðum Afganistans; Wardak, Bamiyan, Herat, Badghis, Faryab, Ghor og Farah. Þar líða 2,5 milljónir manna af matar- og vatnsskorti og áhrif hans eru gríðarleg á afkomu og líðan íbú- anna. Neyðarástand ríkir nú í stórum hluta Afganistans. Auk stríðs- átaka og hörmunga sem af þeim hafa leitt glímir Afganistan við verstu þurrka í sögu landsins og uppskerubrest. Allt að 85% af uppskeru landsins hafa spillst. Er það til viðbótar þeim 6,5 millj- ónum sem búa við viðvarandi matarskort. Vatnsból hafa þornað upp, skepnur drepist og verð á skepnum lækkað niður úr öllu valdi þar sem allir vilja selja til að eiga fyrir nauðþurftum. Fjöl- skyldur flosna upp og flýja til annarra svæða í leit að mat og vinnu. Konur og börn þjást sér- staklega enda farið að gifta sí- fellt yngri dætur í von um endur- gjald við brúðarkaup. Átta milljónir til að afla vatns í Afganistan STARFSMANNAFÉLAG Akraness hefur samþykkt að sameinast Starfsmannafélagi Reykjavík- urborgar. Í allsherjaratkvæða- greiðslu um sameininguna, sem 40% félagsmanna tóku þátt í, sögðu tæp 90% já við sameiningunni. Boð- að hefur verið til aukaaðalfundar hjá Starfsmannafélagi Reykjavík- urborgar þar sem lagðar verða til lagabreytingar svo sameiningin geti átt sér stað. Að öllu óbreyttu sameinast því STAK Starfsmanna- félagi Reykjavíkurborgar um ára- mótin. Atkvæðagreiðslan fór fram dag- ana 30. nóvember og 1. desember. Á kjörskrá voru 319 félagsmenn. Niðurstaða kosninga var að 130 kusu eða 40% félagsmanna. Já sögðu 116 eða 89%, nei sögðu 12 eða 10,8%, tveir seðlar voru auðir. Starfsmanna- félög sameinast MARKAÐURINN fyrir listmuni virðist kominn í jafnvægi eftir föls- unarmál og fékkst ágætt verð fyrir um 130 listmuni sem boðnir voru upp á vegum Gallerís Foldar á sunnudagskvöld. Listaverkin voru eftir m.a. Pablo Picasso, Jóhannes S. Kjarval, Mugg og Nínu Tryggva- dóttur. Hæst verð fékkst fyrir olíumál- verk Nínu Tryggvadóttur, sem heit- ir Íslensk náttúra, en það var slegið á 3,6 milljónir króna. Í því tilviki eins og mörgum öðrum á þessu upp- boði var verðið undir matsverði upp- boðshaldara, sem mat verkið á 4–5 milljónir króna. Picasso-myndin sem seld var á uppboðinu var þrykkmynd sem heitir Sitjandi kona, og var verkið slegið á 620 þús- und krónur. Áhugi á Guðmundi frá Miðdal „Sumt fór langt yfir matið, annað fór undir og sumt á matinu, það er eins og gengur í þessu,“ segir Tryggvi Páll Friðriksson, listmuna- sali hjá Galleríi Fold. Hann segist í heild ánægður með uppboðið, sem var fimmta uppboð Gallerís Foldar á árinu. Greinilegt sé að markaður fyrir listaverk á Íslandi fari batn- andi eftir „fölsunarfárið“ og sé að komast í þokkalegt jafnvægi. Athygli vekur að af um 130 lista- verkum voru 13 eftir Guðmund Ein- arsson frá Miðdal. Tryggvi segir greinilegt að styttur eftir Guðmund þyki nú spennandi á nýjan leik og fóru flestar stytturnar yfir mats- verði. Sú dýrasta, stytta af fálka, var slegin á 410 þúsund krónur. Það virðist því af sem áður var þegar styttum eftir Guðmund var hent í stórum stíl, segir Tryggvi. Hann segir þó að það sem mest hafi komið á óvart sé verðið sem fékkst fyrir litla mynd eftir Guð- mund Thorsteinsson, sem er betur þekktur sem Muggur. Myndin var metin á 6–800 þúsund, en var slegin á 1,5 milljónir króna. Tryggvi segir að það sé einfaldlega ekki svo mikið til af myndum eftir Mugg og því fá- ist svo gott verð. Einnig fékkst afar gott verð fyrir mynd eftir Gunnlaug Blöndal, sem kallast Frá Þingvöllum. Myndin var metin á 1,6–1,8 milljónir króna en var slegin á 3,1 milljón króna. Picasso sleginn á íslensku uppboði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.