Morgunblaðið - 05.12.2006, Side 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 23
Sandgerðingar eru að komast í
jólaljósastuð. Búið er að skreyta
margar götur bæjarins og fjöldi
húseigenda langt komnir með sín-
ar skreytingar. Það færist í vöxt
að húseigendur skreyti með list-
rænu yfirbragði, sumir eru ein-
göngu með hvít ljós á meðan aðrir
láta litadýrð ljósanna njóta sín.
Ekki er laust við að stundum komi
upp smá samkeppni milli manna
um glæsilegustu ljósaskreytinguna
og á þetta sjálfsagt við í flestum
bæjarfélögum.
Á mögum vinnustöðum eru um
þessar mundir haldin litlu jólin
eða efnt til jólahlaðborðs þar sem
menn belgja sig út af góðum mat
og drykk. Rafverktakar á Suð-
urnesjum hafa í yfir fimmtíu ár
haldið jólafund þar sem öllum
starfsmönnum í rafiðnaði er boðið
til veislu eina kvöldstund með til-
heyrandi söng og fleiru. Hafa
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Jólaljós Skreytingakapphlaupið er byrjað á Suðurnesjum. Sjálfsagt verða
margar götur eins og þessi gata í Sandgerði.
þessar samkomur verið vel sóttar.
Nýsveinar í rafiðnaði eru kynntir
á jólafundinum. Þetta er skemmti-
leg hefð.
Umferðaslys hafa tekið mikinn
toll á þessu ári. Tveir ungir menn
úr Sandgerði hafa látið lífið og
tveir aðrir slasast mikið. Annað
kvöld, þriðjudag, verða haldnir
styrktartónleikar í Safnaðarheim-
ilinu í Sandgerði þar sem fram
koma listamenn víða að. Nú hafa
verið kynntar nýjar reglur um
sektir við umferðalagabrotum. Það
er vonandi að þessar breytingar
verði til þess að draga úr slysum.
Nýr vegur sem opnaður verður á
næstunni mun opna nýja og
áhugaverða ferðamannaleið um
Reykjanesskagann. Vegurinn
tengir saman Stafneshverfið og
Hafnir. Frá því að herinn kom á
Keflavíkurflugvöll hefur ekki verið
leyft að leggja þarna veg og fyrr á
árum voru menn handteknir ef
þeir voguðu sér að ganga þessa
leið. En nú er herinn farinn og
langt komið með að leggja veginn
sem kemur til með að opna róm-
antískan kvöldsólarrúnt um skag-
ann.
Ásrún Davíðsdóttir sendivísnaþættinum línu í
framhaldi af flatkökuvísum
undanfarna daga með orðunum:
„Ekkert lengir eins líf og heilsu og
ekta góðar flatkökur. Hún segir að
laufabrauðið komist ekki í
hálfkvisti við það, þótt gott sé, og
yrkir:
Viljirðu lengja líf og þrótt
og línum halda alla tíð
af Ömmu-flatkökum et þú gnótt
þá ellin mun þér reynast blíð.
Tímaritið Són er komið út, 4.
hefti ársins 2006, og fjallar þar
Aðalheiður Guðmundsdóttir um
ljóðagerð ársins 2005. Hún teflir
fram limru Kristjáns Karlssonar úr
ljóðabókinni Limrur um sprundið
Ljóneiði:
„Víst er ég létt í lund,
mælti Ljóneiður. Hún er sprund.
Hennar unnusti er maður.
Og ennfremur glaður.
En aldrei í sama mund.
Og einnig Hagmælisgrey um
ljóðið úr ljóðabók Þórarins
Eldjárns, Hættir og mörk, þar sem
Þórarinn vitnar í orð Þorsteins frá
Hamri: „Ljóðið ratar til sinna:
Víst er það löngu ljóst og bert
að ljóðið ratar til sinna.
Samt finnst mér ekki einskisvert
að ýta því líka til hinna.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Flatkökur lengja lífið
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
18
9
4
2
af flví besta!
Brot
jólapakkinn!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/D
A
S
3
51
38
1
1/
06
Aðrir möguleikar á aðalvinningum í desember:
14. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
21. des. er 3 millj. eða 6 millj. á tvöfaldan
29. des. er 2 millj. eða 4 millj. á tvöfaldan
Það er því til mikils að vinna
fyrir aðeins þúsund krónur.
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
Kauptu miða í DAS, á þúsund kall, fyrir 7. des.
Þú gætir þú unnið harðasta jólapakkann í ár.
Hummer H3
+ 5 milljónir
í skottinu
ef þú átt
tvöfaldan
miða!
Harðasti
NÚ hefur það verið staðfest að rauðvín frá
ítölsku eyjunni Sardiníu annars vegar og Suð-
vestur-Frakklandi hins vegar er það vín sem
hollast er fyrir mannskepnuna. Svo segir á vef-
miðli BBC en þar er vitnað í vísindamenn og
rannsakendur sem hafa uppgötvað að efnið
procyanidins gerir rauðvín svo vænt fyrir
hjartað sem raun ber vitni. Og þegar rauðvín
heimsins var efnagreint reyndist langmest af
þessu góða efni í víni frá Nuoro á Sardiníu og
Gers-héruðunum í Suðvestur-Frakklandi, en
þessi svæði eru fræg fyrir langlífi íbúanna.
Vínið þaðan á það sameiginlegt að vera gert samkvæmt gamalli hefð sem
tekur mun lengri tíma en nútímavíngerð. Einmitt þessi gamla aðferð og
þessi langi vinnslutími eru talin ástæða þess hversu mikið af hjartavæna
efninu finnst í víninu.
Hjúkrunarkona nokkur brást við þessum tíðindum með því að segja að
enginn ætti að fara að drekka rauðvín í miklu magni til að draga úr hættu
á hjartasjúkdómum, vænlegra væri að hætta að reykja, borða hollan mat
og hreyfa sig í að minnsta kosti 30 mínútur fimm daga vikunnar.
Sumt rauðvín betra
en annað fyrir hjartað
Fréttir á SMS