Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 40
|þriðjudagur|5. 12. 2006| mbl.is Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Ég hafði oft heyrt um hann,vissi hver hann var ogfannst hann spennanditónskáld. Svo var ég eitt sinn á tónlistarkvöldi honum til heið- urs í Nýlistasafninu og heyrði verkið Samstirni, þar sem hann notaði óp- erurödd Þuríðar Pálsdóttur og elektróník saman. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort hann hefði ekki samið fleiri sönglög,“ segir Ásgerður Júníusdóttir mezzósópransöngkona, en tónskáldið sem hún nefnir er Magnús Blöndal Jóhannsson, eitt merkasta tónskáld okkar á tutt- ugustu öld. Ásgerður hefur nú í sam- starfi við Smekkleysu gefið út disk með sönglögum Magnúsar. Það þekkja allir lag Magnúsar, Sveitina milli sanda, sem Ellý Vil- hjálms söng svo ógleymanlega á sín- um tíma. Magnús var hámenntað tónskáld og þessi perla hans það sem mestan hróður hans hefur bor- ið. En hann var fjölhæfur. Hann samdi fyrstu elektrónísku verkin á Íslandi og hljóðtækni nútímans var honum eilíf uppspretta rannsókna og skapandi verka. Sönglögin hans hafa hins vegar afar sjaldan heyrst og legið í láginni þar til nú. Lögin vöktu undrun og forvitni „Ég fór til Mummu ömmusystur minnar, Guðmundu Elíasdóttur söngkonu, og á daginn kom að þau Magnús hefðu verið góðir vinir. Hún átti nokkrar af sönglaganótum hans, handskrifaðar af honum sjálfum og gaf mér. Hún sagði mér líka frá hon- um. Ég varð mjög undrandi þegar ég fór að skoða lögin, þau voru falleg og fjölbreytt. Mér fannst Magnús stórlega vanmetinn.“ Þarna var Ásgerður komin með átján sönglög í hendurnar, lög sem höfðu nánast aldrei heyrst. Lögin voru stutt, alveg frá fjörtíu sek- úndum upp í fjórar mínútur; Ásgerði fannst þetta ekki alveg nóg til að fylla heila plötu. Hún lagði höfuðið í bleyti og ákvað að skemmtilegast væri að skírskota til raftónlistar Magnúsar og fá nokkur tónskáld af yngri kynslóðinni til þess að útsetja vókalísur Magnúsar fyrir rafhljóð. Þær eru því í tveimur útgáfum á diskinum, sungnar í þeirri upp- runalegu, en svo í nýjum rafútsetn- ingum. Tónskáldin sem útsettu eru: Áki Ásgeirsson, Þuríður Jónsdóttir, Þóra Marteinsdóttir, Davíð Brynjar Franzson, Birgir Örn Thoroddsen og Einar Örn Benediktsson. Lagið Aría er svolítið sér á parti. „Það má flokka það undir skólaverkefni, því Magnús var ennþá í Juilliard skól- anum í New York þegar hann samdi það. Ég ákvað að fá líka vídeó við það.“ Það var Ari Alexander Ergis Magnússon sem gerði myndbandið við Aríu, en útsetning þess var í höndum dúettsins Ghostigital, Birg- is Arnar Thoroddsen og Einars Arn- ar Benediktssonar. Ásgerður segir, að vegna þess hve sárlega hún hafi fundið til þess hve Magnús hafi verið vanmetinn sem söngvaskáld, hafi hún viljað vanda til disksins sem best hún gæti og heiðra minningu hans eins vel og kostur væri á. „Mig langaði að standa með Magnúsi og reyna að skapa heildstæðan heim með skír- skotunum til raftónlistarinnar og ár- anna milli 1950 og 60, en þá samdi Magnús flest sönglaganna. Hann var áhugasamur um kvikmyndagerð og dellukall á öll tæki. Ari og Hans Ulrich Obrist eru að gera heim- ildamynd um hann og þess vegna fékk ég Ara til að gera videóið við Aríu. Þetta er klassískur diskur með fimm „remixum“ og vídeói.“ Bjarki var sem Indiana Jones Magnús Blöndal lést í ársbyrjun 2005 og var mikill sjúklingur síðustu æviárin. Hann var þó fastagestur á tónleikum Ásgerðar og það þykir henni vænt um. „Eftir á skiptir það mig miklu máli.“ Bjarki Sveinbjörnsson tónvís- indamaður skrifaði á sínum tíma doktorsritgerð sína um rafverk Magnúsar Blöndal og segir Ásgerð- ur að Bjarki hafi nánast verið sem Indiana Jones við að bjarga nótum hans frá glötun. „Það er Bjarka að þakka að þetta er ekki allt meira og minna glatað, bæði nótur og papp- írar. Sumt var búið að liggja í tugi ára í niðurníddum geymslum úti í bæ, alveg frá því Magnús kom heim úr námi og Bjarki varð jafnvel að brjóta sér leið að þessum fjársjóði og tína upp úr svörtum ruslapokum hér og þar um bæinn. Hann kom þessu öllu á landsbókasafnið, þar sem hægt var að skoða nóturnar og þar fann ég nokkur sem aldrei höfðu verið skráð.“ Ásgerður segir þetta eina ástæðu þess að sönglögum Magnúsar hafi verið sýnd fálæti, þau voru einfaldlega ekki aðgengileg, þótt nokkur þeirra hafi verið varð- veitt í Íslenskri tónverkamiðstöð. Það skipti Ásgerði máli að reyna að draga upp í huga sér góða mynd af manninum Magnúsi Blöndal Jó- hannssyni og í þeim tilgangi ræddi hún við fólk sem hafði þekkt hann, vini, samstarfsmenn og önnur tón- skáld. „Smátt og smátt fór mér að þykja óskaplega vænt um hann og það skapaði sterkar tilfinningar að vinna þennan disk.“ En hvaða mynd hefur Ásgerður af Magnúsi þegar upp er staðið, þrem- ur árum eftir að verkefnið hófst? „Hann var algjör frumherji, samdi meðal annars fyrsta elektróníska verkið á Íslandi, tefldi fyrstur saman elektróník og hefðbundnum hljóð- færum, samdi að öllum líkindum fyrsta tólf tóna sönglagið, Hendur, sem er á diskinum og svo var hann mjög sjarmerandi maður. Hann var breyskur og oft var mikil dramatík í kringum hann en hann var líka margslunginn og hæfileikaríkur. Hann vann við kvikmyndir, samdi leikhústónlist, var tónlistarstjóri í Þjóðleikhúsinu, vann í Útvarpinu og var dinner-píanisti. Hann stofnaði Musica nova upp úr 1960 með Atla Heimi [Sveinssyni] og Þorkeli [Sig- urbjörnssyni] og fleirum og það var mikið frumherjastarf en hann var líka oft einmana og einn í sinni vinnu við tónsmíðarnar.“ Hæfileikaríkur sönglagasjarmör Morgunblaðið/ÞÖK Um Magnús: „Hann var breyskur og dramatík í kringum hann en hann var líka margslunginn og hæfileikaríkur.“ Ásgerður Júníusdóttir syngur sönglög eftir Magnús Blöndal Jóhannsson STÓRTÓNLEIKAR verða haldnir í Laugardalshöllinni í kvöld þegar hin- ar svokölluðu evrópsku dívur koma fram, en þær eru Eivör Pálsdóttir frá Færeyjum, Eleftheria Arvanitaki frá Grikklandi, Sissel Kyrkjebo frá Nor- egi, hin írska Patricia Bardon að ógleymdri Ragnhildi Gísladóttur. Á blaðamannafundi sem haldinn var í gær kom fram að söngkonurnar hafa aldrei unnið saman áður, og að þær hafi raunar lítið vitað hver um aðra. „Við hittumst fyrst við píanóið í fyrra- kvöld,“ sagði Kyrkjebo, og bætti því við að lítill tími hefði gefist til æfinga. Þær lofuðu þó góðri skemmtun á tón- leikunum og að áheyrendur kæmust í sannkallað jólaskap. Þá útilokuðu þær ekki frekara samstarf í framtíð- inni. Sérstakur heiðursgestur verður hin þekkta breska söngkona Petula Clark og gestasöngvari Jóhann Frið- geir Valdimarsson, en þeim til halds og trausts verða Karlakórinn Fóst- bræður, Drengjakór Reykjavíkur, sérstök slagverkssveit og 50 manna stórhljómsveit skipuð félögum úr Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Uppselt er á tónleikana klukkan 21 en eitthvað er til af miðum á aukatónleika klukkan 18. Dívur í jólaskapi Morgunblaðið/Ásdís Dívur Eivör Pálsdóttir, Eleftheria Arvanitaki, Sissel Kyrkjebo, Ragnhildur Gísladóttir og Patrica Bardon. www.midi.is staðurstund Jón B.K. Ransu fjallar um tvo núlifandi abstraktmálara, Sean Scully og Brice Marden, sem sýna nú í New York. » 41 af listum Tvær sýningar Kristins G. Jó- hannssonar sem voru í Ketils- húsinu og Jónasar Viðars gall- eríi á Akureyri fá dóm. » 43 dómur James Bond heldur toppnum á Íslenska bíólistanum þriðju vik- una í röð. 39.000 manns hafa séð myndina í heildina. » 42 kvikmyndir Ólafur Kjartan Sigurðarson barítónsöngvari nýtur mikillar velgengni á Englandi um þessar mundir. » 42 tónlist Hin nýfráskilda Britney Spears sást með Brandon Davis sem er óvinur Parisar Hilton og Lindsay Lohan. » 51 fólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.