Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 43 menning BARNABÓKAVEISLA! Búkolla Glæsilegar myndir Kristins G. Jóhannssonar prýða Búkollu og gera hana að sannkallaðri listaverkabókfyrir börnin. Ævintýri Nonna Æsispennandi Nonnaævintýri prýtt fallegum myndum Kristins G. Jóhannssonar. Bestu barnabrandararnir Bestu barnabrandararnir - að sjálfsögðu bók fyrir börn á öllum aldri, enda hafa allir gott af því að skellihlæja. Spurningabókin 2006 Er hægt að hnerra með opin augu? Ómissandi bók við öll tækifæri. ÉG VIL byrja á því að biðjast afsök- unar. Annarsvegar fyrir að koma ör- lítið of seint á tónleika Steingríms Þórhallssonar organista, en þeir voru haldnir í Neskirkju á sunnu- daginn var. Hinsvegar fyrir villu sem læddist inn í grein sem ég skrif- aði um síðustu tónleika Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, en greinin hófst á þessum orðum: „Wagner á sín góðu augnablik, en slæmu stund- arfjórðunga.“ Ég hafði þessi orð eft- ir Oscar Wilde, sem er rangt; það mun hafa verið sjálfur Rossini er mælti þessa fleygu setningu. Hafi þeir verið margir slæmu stundarfjórðungarnir á tónleikum Sinfóníunnar, voru góðu augnablikin mun fleiri á tónleikum Steingríms. Í rauninni var þar enginn slæmur stundarfjórðungur! Þvert á móti var leikur organistans í hvívetna glæsi- legur. Í fyrra kvartaði ég undan nokkuð dauflegri barokktúlkun hans og er ljúft að segja frá því að nú var allt annað uppi á teningnum. Passa- caglia eftir hinn sikileyska Bernardo Storace var einstaklega lífleg og skemmtileg; samnefnt verk eftir Bach var sömuleiðis sérlega vel byggt upp og með mögnuðum há- punktum, auk þess sem raddval var sannfærandi og litríkt. Tilbrigði og fúga yfir Stabat Ma- ter eftir Alexander Guilmant, sem er undarlega glaðleg hugleiðing um það þegar María mey horfði á son sinn krossfestan, var jafnframt glæsilega leikin; túlkunin var mark- viss og áhrifamikil, enda gætti Stein- grímur sín á að missa sig ekki út í of mikla glaðværð. Lokaverkið á dagskránni var svo Finale eftir Cesar Franc, en það var fullkominn endir á tónleikunum. Dulúðin sem einkennir tónlist Francs var að öllu leyti til staðar í mjúkum og áferðarfallegum leik Steingríms, og heitu tilfinningarnar líka, auk þess sem tæknilegar hliðar flutningsins voru eins og best verður á kosið. Óneitanlega var þetta skemmtileg byrjun á aðventunni! Skemmtilegir stundarfjórðungar TÓNLIST Orgeltónleikar Steingrímur Þórhallsson organisti flutti verk eftir Frescobaldi, Storace, Bach, Guilmant og Franc. Sunnudagur 26. nóv- ember. Neskirkja Jónas Sen SÝNINGAR á sjötugu er titill tveggja sýninga Kristins G. Jó- hannssonar sem lauk nýlega á Ak- ureyri. Í Jónas Viðar galleríi mátti sjá svarthvít dúkristu-klippiverk sem voru fyrst sýnd í Rauða hús- inu árið 1982. Kristinn leitar fanga í gömlum útskurðar- og útsaums- mynstrum þar sem átta blaða rós- ir og spírallaga form eru end- urtekin í mismunandi útfærslu á litlar pappírsarkir sem síðan er raðað og klipptar saman í mynd- rænar heildir. Dúkristan er vissu- lega ein tegund af útskurði og verkin bera sterkan keim af hug- myndafræðilegum áherslum ní- unda áratugarins um leið og þau byggjast á gömlu skreyti sem vísa mun lengra aftur í tíma menning- arinnar. Myndunum var á sínum tíma raðað þétt saman í Rauða húsinu svo að úr varð eins konar veggfóður en eru hér fallega hengdar upp í römmum og undir gleri. Það virðist rökrétt ferli sem gefur tilfinningu fyrir bæði við- kvæmni pappírsverkanna og aldri þeirra en innrömmun verka snýst fyrst og fremst um varðveislu þeirra. Í Ketilhúsi sýndi Kristinn ný málverk þar sem litur, form og áferð eru í aðalhlutverki. Flest verkin leita í sama mótívið sem á sér rætur í Búðargili og brekk- unum. Brekkumyndirnar eru allar þrískiptar þar sem efst í myndinni má sjá rönd af himni, í miðjunni er stór flötur sem er skipt upp í (oftast) lóðréttar ræmur brekkn- anna og neðst í myndinni er rönd sem sýnir speglun á Pollinum. Á skilunum milli himins og lands er oft sólarslæðingur í ýmsum tónum sem gefa tilfinningu fyrir ann- aðhvort dögun eða dagslokum. Litir Kristins í brekkunum bera einnig vitni ljósaskipta þegar litir á yfirborðinu verða dýpri og and- stæðir litir spretta upp og spegla hver annan eins og að hausti. Grænt verður appelsínugult og brúni liturinn sem aldrei er langt undan ber í sér þunga jarðar og ljósbrot af öllum hinum litunum. Kristinn málar með þunnum olíu- litum og í mörgum lögum ásamt því að fara með sandpappír yfir yfirborð myndarinnar að lokum. Þetta dregur fram textíláferð strigans og gerir myndirnar mýkri og loðnari en um leið lífrænni. Það virðist sem Kristinn sé í mismun- andi ham eftir því hvaða hluta myndarinnar hann er að vinna. Útfærslan á brekkunum gefur til- finningu fyrir gegnheilli andlegri og upphafinni skynjun á landinu sem er allt að því líkamleg á með- an speglunin í Pollinum neðst í myndunum virðist hafa allt aðra eiginleika. Þar speglast fjörugir litir á glansandi yfirborðinu, hug- mynd sem gæti vísað til ímynd- unaraflsins og hins fljótandi huga gegnt hugmyndinni um upplifun líkamans. Þessi samsláttur ólíkra efnislegra yfirborða í myndunum er kannski áhugaverðari í hug- myndinni en í útfærslunni. Hins vegar eru þetta sterk persónuleg einkenni listamannsins og aðal verkanna er einmitt sú persónu- lega nálgun sem í þeim býr, sú sálræna dýpt sem birtist í síend- urteknu samtali listamannsins við átthagabrekkur sem voru og eru. En ekki síst fyrir þær persónu- legu tiktúrur listamannsins neðst í myndunum þar sem hann speglar sjálfsmynd sína bókstaflega í Poll- inum með því að láta undirskrift sína leika afgerandi þátt innan um óhlutbundnar fantasíur ímynd- unaraflsins. Höfundurinn er því meðvitað merkingarbær hluti verkanna sem í þessu tilfelli skap- ar tilfinningu fyrir persónulegri samræðu við áhorfandann sem gerir ekki neinar kröfur um hlut- laust algildi fagurfræðilegrar sjón- rænnar upplifunar. Litgrös og svartlist MYNDLIST Ketilshús og Jónas Viðar gallerí Akureyri Sýningum er lokið Málverk og dúkristur/ Kristinn G. Jóhannsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Persónulegur Í Ketilhúsi sýndi Kristinn G. Jóhannsson ný málverk þar sem litur, form og áferð eru í aðalhlutverki. Þóra Þórisdóttir TÓNLIST Neskirkja Kórtónleikar Háskólakórinn flutti tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, de Victoria og Vivaldi. Stjórnandi: Hákon Leifsson. Einsöngvarar: Gunnhildur Halla Baldursdóttir alt og Lilja Eggertsdóttir sópran. Hljómsveit: Jón Leifs Camerata. Organisti: Steingrímur Þórhallsson. Laugardaginn 25. nóvember HÁSKÓLAKÓRINN hélt sína ár- lega vetrartónleika í Neskirkju á laugardaginn var, en stjórnandi kórsins er Hákon Leifsson. Dag- skráin var býsna metnaðarfull, því þótt kórinn byði upp á „standarda“ á borð við Maríukvæði Atla Heimis Sveinssonar og Heyr Himnasmiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, var einnig flutt Gloría í D-dúr eftir Vi- valdi, sem er ekkert smáræði. Auðheyrt var að Glorían var sú tónsmíð sem mest vinna hafði verið lögð í. Sennilega á kostnað fyrstu verkanna á efnisskránni, eftir þá Atla Heimi og Þorkel, auk T.L. de Victoria (O Magnum Mysterium), en þau voru ekki alltaf nægilega vel sungin til að skapa teljandi áhrif. Vissulega var flutningurinn litaður einlægri innlifun, sem alltaf er sjarmerandi, en vandamálið var að tenórarnir voru svo sterkir að það bjagaði verulega heildarhljóminn. Þótt söngurinn væri í sjálfu sér hreinn voru bjartari karlaraddirnar svo öflugar að útkoman virkaði gróf, en það fór tónlistinni ekki vel. Svipaða sögu er að segja um Mag- nificat Anima Mea eftir Buxtehude, nema þar var ónákvæmni í raddhæð talsvert áberandi, og því var heild- armyndin ekki sérlega sannfærandi. Langbest var tónsmíð Vivaldis, sem fyrr var nefnd. Bæði lék hljóm- sveitin, Jón Leifs Camerata, firnavel og meira að segja þótt hraðinn væri stundum í glannalegri kantinum, virtust hljóðfæraleikararnir ekkert hafa fyrir honum. Kórinn söng líka mun betur og var gaman að hlýða á hann. Áferðin var yfirleitt þétt og styrkleikajafnvægið oftast gott. Tveir einsöngvarar komu fram með kórnum, þær Gunnhildur Halla Baldursdóttir alt og Lilja Eggerts- dóttir sópran. Þær stóðu sig prýði- lega og eru auðheyrilega efnilegir söngvarar. Talsvert ónæði skapaðist á tón- leikunum vegna órólegs barns, sem auðvitað hafði enga getu til að njóta tónlistar af því tagi sem hér var flutt. Einnig var mikið tekið af myndum, en það var sömuleiðis nokkuð trufl- andi. Á undan tónleikum er algengt að tónleikagestir séu minntir að að slökkva á GSM-símum; væri ekki hægt í leiðinni að biðja fólk um að stilla myndatökum í hóf? Jónas Sen Vivaldi var bestur Antonio Vivaldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.