Morgunblaðið - 05.12.2006, Síða 44

Morgunblaðið - 05.12.2006, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ROSALEGA LÍTUR ÞÚ VEL ÚT Í DAG LÆKNIR FALLEGT AF ÞÉR AÐ SEGJA OG ÞESSI MYND HÉRNA ER MJÖG FALLEG. HÚN NÆR ALVEG AÐ FANGA MIG TAKK FYRIR ÞETTA ER MYND AF MELGTNGARVEGINUM Á KETTI OG HANN ER AÐ BIÐJA UM MAT HVER SÁ SEM SAGÐI ÞÉR AÐ ÞÚ VÆRIR GÓÐUR Í HAFNABOLTA ER HÁLFVITI! ÞÚ ERT ÖMURLEGUR! ÉG Á HEIMA HÉRNA JÁ, ÞAÐ ER RÉTT... ÉG ÞARF SAMT AÐ FARA AÐEINS LENGRA, ÞANNIG AÐ ÉG GET ALVEG TEKIÐ VIÐ... AF HVERJU HÉLSTU AÐ ÞÚ GÆTIR SPILAÐ HAFNABOLTA? ÞÚ ERT LÉLEGUR Í ÖLLU! ÞÚ ERT ÖMURLEGUR! ÞÚ ERT VERRI EN ÖMURLEGUR... HOBBES, ÞAÐ ER ÚT UM MIG! ÉG ÞARF HJÁLP! HVAÐ GERÐIST? PABBI TÓK EFTIR ÞVÍ AÐ ÉG FÉKK RAKVÉLINA HANS LÁNAÐA OG BAÐ MIG UM AÐ FARA SÉRSTAKLEGA VEL MEÐ HANA. EN ÉG ER BÚINN AÐ BRJÓTA HANA OG VEIT EKKI HVAÐ ÉG Á AÐ GERA ÉG ÞARF RÁÐ. ÆTTI ÉG AÐ LJÚGA EÐA SEGJA SATT? VERÐUR HANN REIÐUR? JÁ! PRÓFAÐUBÆÐI HEFUR ÞIG EINHVERN TÍMAN LANGAÐ TIL ÞESS AÐ LOSA ÞIG VIÐ ALLAR VERALDLEGAR EIGNIR OG LIFA BARA KYRRLÁTU OG EIGNALAUSU LÍFI UPPI Í FJALLI? GAMAN AÐ ÞÚ SKILDIR SPYRJA... KONAN HANS VAR AÐ SKILJA VIÐ HANN FINNST ÞÉR EKKI SKRÝTIÐ HVAÐ SKUGGINN AF MÉR ER ORÐINN STÓR? EIGUM VIÐ AÐ FARA ÚT? ÞAÐ HEFUR EKKERT RIGNT. ÚÐARINN HJÁ NÁGRÖNNUNUM HLÝTUR AÐ HAFA GERT ÞETTA ÞAÐ ER ENGIN BLEYTA! KOMDU BARA ÚT! MUNDU BARA AÐ EF ÞÚ FERÐ ILLA MEÐ M.J. ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA! EKKI HAFA ÁHYGGJUR ÞAÐ FER ENGINN ILLA MEÐ SJÖRNUR STJARNA! HANN KALLAÐI MIG STJÖRNU! ÉG HEF ÞAÐ Á TILFINNINGUNNI AÐ ÞETTA EIGI EFTIR AÐ HAFA STÓR ÁHRIF Á LÍF MITT Næstkomandi fimmtudag,7. desember, verðurhaldin ráðstefna um ör-yggismál á vinnustöðum á Hótel Nordica. Við sama tækifæri hefur formlega starfsemi sína Græni krossinn, samtök um öryggismál. Josef Zoghbi, framkvæmdastjóri heilbrigðis-, öryggis- og umhverf- ismála hjá Fjarðaáli, er einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar: „Græna krossinum er ætlað að verða fagleg og fagmannleg samtök með það markmið að stuðla að og styrkja öryggi á vinnustað og í samfélaginu öllu,“ segir Josef. „Nú þegar hefur allstór hópur fyrirtækja tekið sig saman um stofnun samtakanna sem verða opin einstaklingum, fyr- irtækjum og stofnunum.“ Alls munu 11 fyrirlesarar taka til máls á ráðstefnunni auk Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra sem ávarpar ráðstefnugesti í upp- hafi fundar: „Við höfum fengið til liðs við okkur fyrirlesara úr ýmsum áttum sem munu m.a. fjalla um ör- yggi á vinnustað, öryggi á heimili og öryggi á spítölum,“ segir Josef. Meðal fyrirlesara má nefna Kevin Berg, yfirmann öryggis- og heilsu- gæslu bandaríska fyrirtækisins Bechtel, sem flytur fyrirlesturinn „Að byggja slysalausa menningu í alþjóðasamfélaginu“ (e. „Buuilding a Zero Accident Culture in the Global Community“) og Joe Wahba sem fjalla mun um „Áskoranir í öryggis- málum í alþjóðlegu samhengi“ (e. „Facing Global Safety Challenges“). Josef segir seint hægt að leggja of mikla áherslu á öryggismál, og bæði felist í því fjárhagslegur ávinningur og félagslegur: „Margir halda að aukin áhersla á öryggismál kosti peninga en því er einmitt öfugt farið, til lengri tíma spara fyrirtæki og ein- staklingar peninga með því að stefna stöðugt að sem mestu öryggi,“ segir Josef. „Ef starfsmaður slasast miss- ir vinnuveitandinn ekki aðeins vinnuframlag hans á meðan bata er náð heldur þarf hann að finna og þjálfa nýjan starfskraft í hans stað. Er þá ótalinn skaðabóta- eða trygg- ingakostnaður sem fylgt getur slys- um og sá félagslegi ávinningur sem felst í því að koma í veg fyrir að fjöl- skyldur líði fyrir slys sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir. Að byggja upp vinnuumhverfi þar sem starfsmenn geta treyst öryggis- málum á vinnustað hefur líka aug- ljós áhrif á afköst: fólk verður ham- ingjusamara á vinnustað og fæst af meira öryggi og með betri samvinnu við erfið verkefni.“ Josef segir miklu skipta að fólk til- einki sér þann hugsunarhátt að ör- yggismál séu því alltaf ofarlega í huga: „Það er ekki nóg að sætta sig við ríkjandi ástand, jafnvel þótt slys séu ekki mjög tíð, heldur þarf stöð- ugt að stefna að slysalausu um- hverfi. Áríðandi er að ráðamenn fyr- irtækja og stofnana setji öryggismál á oddinn og sýni góða öryggis- stjórnun í verki – annars er hættan sú að öryggisstefnan skili sér ekki með virkum hætti til starfsmanna á vettvangi,“ segir Josef. „Um leið þurfa fyrirtæki og stofnanir að hafa öryggismál í huga þegar verk eru boðin út. Þess þarf að krefjast af verktökum að þeir sýni fram á góðan öryggisferil áður en þeir geta gert tilboð í verk en með þeim hætti má stuðla með virkum hætti að því að fyrirtæki taki ábyrgð á öryggis- málum.“ Öryggismál | Ráðstefna um öryggi á vinnu- stað og stofnfundur Græna krossins 7. des. Í öryggi felst ávinningur  Josef Zoghbi fæddist í Dakar í Senegal 1944. Hann lauk BS- gráðu í verk- fræði frá Háskól- anum í Alabama 1969 og er starf- andi verkfræð- ingur. Hann stjórnaði hreinsunarstörfum í Persaflóa og starfaði í um áratug við stjórnun hreinsunarstarfa á Hanford-svæðinu í Washington. Hann hefur verið framkvæmdastj. heilbrigðis-, öryggis- og umhverf- ismála við Fjarðaálsverkefnið frá 2005. Josef er kvæntur Kristie Zoghbi og eiga þau tvö börn. Sýningargestur virðir fyrir sér málverkið Hetja númer 12 eftir kínverska listamanninn Shen Jingdong í ónefndu listagalleríi í Peking í Kína í gær. Búist er við því að verð á kínverskri list muni hækka ört næstu tvö árin vegna að því er virðist óseðjandi eftirspurnar frá alþjóðlegum sem nýrík- um kínverskum kaupendum. REUTERS Kínversk list eftirsótt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.