Morgunblaðið - 05.12.2006, Qupperneq 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sjáðu eina
ógnvænlegustu
mynd ársins
óklippta
í bíó
...ef þú þorir!
Þeir eru að fylgjast með
þér Þeir eru að elta þig
Horfðu í augun á þeim
Og þú ert orðinn sýktur
HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI
Sýnd með íslensku og ensku tali
DÝRIN
TAKA
VÖLDIN!
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Casino Royale kl. 10 B.i. 14 ára
Deck the Halls kl. 6 og 8
Saw 3 kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Mýrin kl. 6 B.i. 12 ára
Casino Royale kl. 5, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Casino Royale LÚXUS kl. 5 og 8
Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50, 8
Pulse kl. 10.20 B.i. 16 ára
Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 5.40 og 8 B.i. 12 ára
Open Season m.ensku.tali kl. 3.50
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 4
Frábær
fjölskyldu- og
gamanmynd
sem kemur
öllum í gott
jólaskap
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
V.J.V. Topp5.is
eeee
Blaðið
eeee
Þ.Þ. Fbl.
eeee
S.V. Mbl.
Jólamyndin 2006
3 VIKUR Á TOPPNUM!
40.000 MANNS!
38.000
MANNS!
Listaháskólinn, Skipholti 1 - Kan-adíski ljósmyndarinn David
McMillan heldur fyrirlestur um ljós-
myndir sínar frá Chernobyl en hann
hefur frá árinu 1994 heimsótt svæð-
ið og eru myndir hans einstök heim-
ildavinna um hnignun staðarins.
Fyrirlesturinn er í LHÍ, Skipholti 1 í
dag, 5. des. kl. 17, og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Þjóðminjasafn Íslands - Skoð-unarferð um grunnsýningu
Þjóðminjasafnsins er ævintýralegt
ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst
í skipi landnámsmanna og lýkur í
flughöfn nútímans. Fjölbreyttar
sýningar, fræðsla og leikir fyrir
alla fjölskylduna. Skemmtileg safn-
búð og notalegt kaffihús. Opið alla
daga nema mánudaga kl. 11–17.
Ítalska kvikmyndin La cittádelle donne (1980) eftir Fe-
derico Fellini, eða Kvennabær-
inn eins og hún hefur verið köll-
uð á íslensku, verður sýnd í
Bæjarbíói kl. 20. Snáporaz (Mar-
cello Mastroianni) eltir konu sem
hann hrífst af í lest, inn á hótel
þar sem hann lendir á yf-
irgengilega femíniseraðri
kvennaráðstefnu. Þarna koma
fyrir margvíslegar týpur allt frá einlægum karlhöturum, hórum og tán-
ingsstúlkum upp í mjúkar og móðurlegar eldri konur. Konurnar hafa völd-
in alla myndina í gegn og ef til vill er Fellini að fjalla hér um martröð flag-
arans, sem í þessari stöðu ræður ekki neitt við neitt. Leikarar: Marcello
Mastroianni, Anna Prucnal, Bernice Stegers, Jole Silvani, Ettore Manni.
Myndin er með íslenskum texta. Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, þriðjudaga kl. 20 og laugardaga kl. 16.
Miðasala opnar ca. hálftíma fyrir sýningu og miðaverð er kr. 500. Sjá:
www.kvikmyndasafn.is
Tónlist
Hafnarborg | Ég man þau jól – jólatónleikar
7. og 13. desember kl. 20. Flutt verða
gömlu góðu amerísku jólalögin sem þekkt
eru með Frank Sinatra, Bing Crosby, Tony
Bennet, Mahailiu Jackson o.fl. í djass- og
swing-útsetningum. Lög eins og White
Cristmas, Christmas Song, Have yourself a
merry little Christmas og mörg fleiri.
Jólaveðurspá, hádegistónleikar í Hafn-
arborg 7. desember kl. 12. Kurt Kopechy og
Antonia Hevesi leika fjórhent á píanó.
Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar frá sept-
ember til maí eru haldnir tónleikar í hádeg-
istónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og
listastofnunar Hafnarfjarðar.
Hallgrímskirkja | Jólatónlistarhátíð Hall-
grímskirkju heldur áfram þegar Sigurður
Flosason og Gunnar Gunnarsson flytja
spuna um þekkt jólalög og jólasálma á
saxófón og orgel fimmtudag 7. des. kl. 20.
Tónleikarnir marka upphaf sálmadagskrár
á 8 tónleikum á 25. starfsári Listvinafélags
Hallgrímskirkju. Miðar: 1.500 kr.
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju heldur
áfram sunnudaginn 10. desember kl. 17
með tónleikum kammerkórsins Schola
cantorum og Björns Steinars Sólbergs-
sonar orgelleikara sem flytja aðventu- og
jólasálma og sálmaforleiki eftir Johann
Sebastian Bach. Stjórnandi: Hörður Ás-
kelsson. Miðaverð er 1.500 kr.
Myndlist
Art-Iceland.com | Gunnar S. Magnússon
og Álfheiður Ólafsdóttir sýna verk sín af
hjartans lyst. Opið er frá 12–18 virka daga
og 12–16 á laugardögum.
Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd-
listarmaður sýnir teikningar og myndband
á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni
Tryggvagötu 15. Til áramóta.
Aurum | Soffía sýnir teikningar sem eru til-
raun höfundar til að vinna úr sjónrænum
upplýsingum frá umhverfi og náttúru.
Café 17 (verslunin 17) | Mæja sýnir 20 ný
málverk, flest eru lítil en hver mynd er æv-
intýri út af fyrir sig. Allir velkomnir.
DaLí gallerí | Magdalena Margrét Kjart-
ansdóttir með sýningu á grafíkverkum sín-
um til 17. des. Opið föst.–laug. kl. 14–18.
Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl.
8.30–16.
Gallerí Lind | Sigurrós Stefánsdóttir er
listamaður desembermánaðar í Galleríi
Lind, Bæjarlind 2, Kópavogi. Til 8. des.
Gallerí Stígur | Myndlistarsýning Auðar
Ingu Ingvarsd. til 10. des. Opið þriðjud.–
föstud. frá kl. 13–18 og laug. kl. 11–16.
Gallerí Sævars Karls | Myndlistarmað-
urinn Gunnar S. Magnússon sýnir ljós-
myndir sem hann hefur tekið af fólki á ferð
um miðborgina undanfarin ár til 7. des.
Gallery Turpentine | Jólasýning Gallery
Turpentine „ … eitthvað fallegt.“ er sam-
sýning með listamönnum gallerísins auk
gesta. Opið: þri.–fös. kl. 12–18, laug. kl. 12–
16.
Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um
1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í
listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf-
ræktar voru sumrin 1988–2004.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum
barnabókum 2006 til 21. jan. Tekið er á
móti 8 ára skólabörnum í samstarfi við
Borgarbókasafnið
Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir
útsaum og tússteikningar. Ein allsherjars-
infónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og
íslensk brekka þakin berjum að hausti eða
brúðarklæði frá Austurlöndum. Til 21. jan.
Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30.
desember. Verkin eru úr væntanlegri bók
sem mun bera titilinn „Locations“.
Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, með sýningu í
Sverrissal og Apóteki. Á sýningunni verða
steinleirsmyndir og verk unnin á pappír
með akrýl, olíukrít, pastel og bleki.
Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til
23. desember.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Jónas Viðar gallerí | Kristinn G. Jóhanns-
son sýnir grafík. Opið föst.–laug. 13–18.
Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des-
ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við
Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Sýningarlok 17. desember. Opið alla
daga nema mánudaga 12–17.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni.
Listasalur Mosfellsbæjar | Nú stendur yfir
sýning á verkum Ólafar Oddgeirsdóttur í
Listasal Mosfellsbæjar til 9. des.
Ófeigur listhús | Skólavörðustíg 5. Mál-
verkasýning Ómars Stefánssonar. Til ára-
móta. Opið á verslunartíma.
Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir í Skaft-
felli, menningarmiðstöð á Seyðisfirði.
Bjargey Ólafsdóttir sýnir vinnuteikningar;
„ég missti næstum vitið“ á Vest-
urveggnum. Til 23. des. www.skaftfell.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir jólasýning með
myndum tvíburabræðranna Ingimundar og
Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga
anda jólanna á sjöunda áratugnum.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðu handverki listfengra
kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á
rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og
búningafræðings.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend-
ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð, sýningin „ … hér er hlið
himinsins“ sem Borgarskjalasafn Reykja-
víkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli
Hallgrímskirkju. Aðgangur er ókeypis. Til 7.
jan.
Landsbókasafn Íslands – háskóla-
bókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í
forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá
ferðasögum til Íslands í gegnum aldirnar.
Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til
heiðurs Jónas Jónassyni frá Hrafnagili –
150 ára minning.
Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson
var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar.
Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og
Skugga-Svein en skáldpresturinn sá eftir
sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns
| Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1
hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís-
lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu
safnsins. Þar er einnig kynningarefni á
margmiðlunarformi um hlutverk og starf-
semi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um
aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur
er ókeypis. Opið mán.–föst. kl. 13.30–15.30.
Norska húsið í Stykkishólmi | Í Norska
húsinu er jólastemningin allsráðandi og
húsið er skreytt hátt og lágt. Heimsókn í
Norska húsið á aðventunni er sannkallað
ævintýri fyrir börn á öllum aldri og ógleym-
anleg upplifun á aðventunni. Í krambúð
hússins er jólakrambúðarstemning og boð-
ið er upp á heitan epladrykk og piparkökur.
Til 23. des.
Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv-
intýralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem
hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í
flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar,
fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Op-
ið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Bækur
Borgarbókasafn Reykjavíkur – Kringlu-
safn | Brot af því besta. Fimmtudags-
kvöldið 7. des. kl. 20 í anddyri Borgarleik-
hússins. Upplestur og léttur jóladjass.
Rithöfundarnir Árni Björnsson, Ingunn
Snædal, Óskar Árni Óskarsson, Stefán
Máni, Steinar Bragi og Þórunn Erla Valdi-
marsdóttir lesa úr nýjum verkum sínum.
Skemmtanir
Reykholtskirkja | Freyjukórinn, ásamt
ungu fólki úr Borgarfirði, verður með jóla-
tónleika í Reykholtskirkju 8. des. kl. 20.
Frumfluttur verður nýr jólatexti „Eitt lítið
jólatré“ eftir Ásdísi Ingimarsdóttur í út-
setningu Gunnars Ringsted og „Vísa á jóla-
kvöldi“, texti þýddur af Bjarna Guðmunds-
syni á Hvanneyri.
Uppákomur
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands |
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur upp
á daginn og býður öllum sjálfboðaliðum
deildarinnar til hátíðar 5. des. í Hamraborg
11 frá kl. 19.30–21. Dagskráin er fjölbreytt.
Einar Már Guðmundsson rithöfundur les
upp úr bókum sínum, flutt verða tónlistar-
atriði og Eldhugar sýna leikrit. Veitingar.
Mannfagnaður
Aflagrandi 40 | Jólafagnaður föstudaginn
8. des. Húsið opnað kl. 18. Glæsilegt jóla-
hlaðborð, söngur og fleira. Skráning í Afla-
granda 40, sími 411 2700. Allir velkomnir.
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir | Á jóla-
fundinum verða flutt skemmtileg erindi
m.a. um Matthías Jochumsson, Ólafíu Jó-
hannsdóttur, Hannes Hafstein og Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur og hvernig leiðir þeirra
lágu saman í kvenréttindabaráttu á sínum
tíma. Tónlistaratriði, kaffi og piparkökur.
Fyrirlestrar og fundir
Kvenfélag Seljakirkju | Okkar árlegi jóla-
fundur verður í kvöld í Seljakirkju kl. 19.30.
Munið jólapakkana og jólaskapið. Stjórnin.
Listaháskólinn, Skipholti 1 | Kanadíski
ljósmyndarinn David McMillan heldur fyr-
irlestur um ljósmyndir sínar frá Chernobyl
en hann hefur frá árinu 1994 heimsótt
svæðið og eru myndir hans einstök heim-
ildavinna um hnignun staðarins. Fyrirlest-
urinn er í LHÍ, Skipholti 1 í dag, 5. des. kl. 17.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Orkugarður | Miðvikudagserindi Orku-
stofnunar – Vetni á vagninn kl. 13. María
Maack fjallar um vetnisverkefnið Ectos og
framtíðarmúsík um hámörkun á nýtni og
fjöldaframleiðslu vetnisfarartækja. Að-
gangur ókeypis. Sjá: www.os.is.
Seðlabanki Íslands | Málstofa verður hald-
in í dag kl. 15 í fundarsal Seðlabanka Ís-
lands, Sölvhóli. Málshefjandi er Ásgeir
Jónsson hagfræðingur og ber erindi hans
heitið: Hlutverk peningamagns, M, í stjórn
peningamála.
Þjóðminjasafn Íslands | Þorsteinn Helga-
son, dósent í sagnfræði við Kennarahá-
skóla Íslands: Er til rétt saga? Um kanón í
sagnfræði og sögukennslu. Hádegisfundur
Sagnfræðingafélags Íslands kl. 12. Í er-
indinu verður sagt frá viðleitni manna til að
festa slík atriði í sessi með valdboði eða
gylliboðum, og kynntur slíkur „kanón“ um
rétta íslenska sögu.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | Jólaljósaferð
um Reykjanesbæ 15. des. Eldri borgarar
velkomnir. Nokkur sæti laus. Skráning í s.:
892 3011.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat-
vælum, fatnaði, leikföngum, borðbúnaði
o.fl. alla miðvikudaga kl. 13–17 í Eskihlíð 2–4
í fjósinu við Miklatorg. Úthlutun á mat-
vælum alla miðvikudaga kl. 15–17. Sími
892 9603. Úthlutun til fólks óháð búsetu
og kyni.
Fjölskylduhjálp Íslands | Bráðum koma
blessuð jólin. Fjölskylduhjálpin hvetur
landsmenn að gefa fatnað, leikföng og
borðbúnað vegna opnunar flóamarkaðar í
lok nóvember í Eskihlíð 2–4 Rvík í þágu
efnalítilla fjölskyldna. Tökum á móti mið-
vikudaga eða eftir samkomulagi kl. 13–17.
Svarað í s. 892 9603.
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
5. desember er: 22269.
Líknarsamtökin höndin – sjálfstyrkt-
arhópur | Félagið Höndin stendur fyrir mál-
þingi í Áskirkju í kvöld kl. 20.30. Að-
alræðumaður er Jóhannes Jónsson í
Bónus. Fundarstjóri er Kári Eyþórsson fjöl-
skylduráðgjafi. Þema kvöldsins er jólakvíði.
Eru jólin hátíð barnanna eða helsi hinna
fullorðnu? Kaffiveitingar.
staðurstund
Söfn
Grunnsýning -
skoðunarferð
Fyrirlestur
Ljósmyndir
frá Chernobyl
Kvikmyndir
La cittá delle donne (1980) eftir
Federico Fellini í Bæjarbíói