Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 49 eeee Kvikmyndir.is BARÁTTAN UM JÓLIN ER HAFIN NÚNA ÞARF JÓLASVEINNINN (T. ALLEN) AÐ TAKA Á STÓRA SÍNUM ENDA HYGGST JACK FROST (M. SHORT) EIGNA SÉR JÓLIN OG VERÐA NÝR OG BETRI JÓLASVEINN! JÓLASVEININN 3 Martin ShortTim Allen eee Þ.D.B.KVIKMYNDIR.IS STÓRAR HUGMYNDIR EINGÖNGU SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI eee S.V. MBL THE GRUDGE 2 ÚR SMIÐJU SAM RAIMI (Spider-Man myndirnar) BÖLVUNIN 2 NÚ ER KOMIÐ AÐ FRAMHALDI BÖLVUNARINNAR… ÞORIR ÞÚ AFTUR? FLUSHED AWAY Frá framleiðendum og SÝND BÆÐI MEÐ ÍSKLENSKU OG ENSKU TALI Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna flugstrákar eee V.J.V. Topp5.is FRÁFÖLLNUHINIR eeeee V.J.V. TOPP5.IS / ÁLFABAKKA SAW 3 kl. 5:50 - 8 - 10:30 B.i.16 ára SAW 3 VIP kl. 8 - 10:30 SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ THE GRUDGE 2 kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.16 ára FLY BOYS kl. 8 - 10:30 B.I. 12 ára SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ JÓNAS: SAGA UM GRÆ... m/ísl. tali kl. 3.40 LEYFÐ THE DEPARTED VIP kl. 5 B.i. 16 ára BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ / KRINGLUNNI SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 6 - 8:10 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL SANTA CLAUSE 3 kl. 6 - 8:10 LEYFÐ THE GRUDGE 2 kl. 10:20 B.i. 16 THE DEPARTED kl. 8:10 B.I. 16 DIGITAL 02.12.2006 17 22 33 34 37 7 8 9 9 3 2 9 5 8 2 4 29.11.2006 2 30 31 38 43 45 4318 42 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn hefur tilfinningu fyrir tölum og fær snilldarlega hugdettu sem bætir nokkrum aukastöfum við tekjurnar. Ef hann á að velja á milli vinsælda og hrein- skilni, væri millivegurinn kannski sá að forðast missætti. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið heldur áfram uppteknum hætti við að einbeita sér að því sem það nýtur. Frábært. Haltu þínu striki - áður en þú veist af gætir þú komist í ástand sem er eins og að vera frá sér numinn af ham- ingju. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn einbeitir sér að því að ná stjórn á smávægilegum hlutum í lífi sínu og nær frábærum árangri. Sannur meistari hefur ekki bara tök á kunnáttu, tækni eða tungumáli. Sannur meistari hefur tök á sjálfum sér. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn er uppreisnargjarn og hættir til þess að framkvæma þvert á það sem hann er beðinn um bara til þess að koma þeim sem er að reyna að stjórna honum í upppnám. Þetta illviðri er ómótstæðilegt í augum þeirra sem eru of hræddir til þess að segja eitthvað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið hefur vanið sig á að dreyma og það kemur að góðum notum núna. Ef það tæki aðstæður of bókstaflega væri það hreinlega niðurdrepandi. En ef mað- ur fyllist ímyndunarafli felur dagurinn í sér vonarneista. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er til í að elta einhvern eftir spennandi hlykkjum og bugðum ef von er á einhverju óvæntu. Ófyrirséð enda- lok og faldir fjársjóðir og verðlaun lokka hana og laða. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin verður að viðurkenna, þótt ekki væri nema fyrir sjálfri sér, að það er eitt- hvað heillandi við núverandi vandamál hennar, ef ekki hreinlega aðlaðandi. Þessi viðurkenning færir hana skrefi nær lausninni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Að þurfa að útskýra eitthvað aftur og aftur er kannski merki um að maður sé ekki að tala við rétta manneskju eða hreinlega á röngum stað. Skiptu um um- hverfi þar til þú finnur flǽðið sem þú ert vanur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Að hafa ráð á einhverju er túlkunar- atriði. Það er alltaf hægt að komast í kringum takmörkuð fjárráð. Haltu þig við það sem þú vilt og ekki hlusta á neinn sem segir að þú getir ekki fengið það. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Fjárhagsaðstæður sem hafa dregið þig niður lagast umtalsvert. Kannski færðu loksins ávísunina sem þú hefur beðið eft- ir. Eða brjálað peningastreymi ratar loks til þín, alveg upp úr þurri. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn er afslappaður og öruggur og þetta er því hinn fullkomni dagur til þess að koma sjálfum sér á framfæri. Skýrðu frá þínum bestu eiginleikum á beinskeyttan hátt og leyfðu þínum með- fædda þokka að heilla hjörtu viðstaddra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Allir hafa sitt yfirborð. Áttaðu þig á því að sterkar og stjórnsamar týpur eru brothættar og viðkvæmar undir niðri. Það hjálpar þér við að sýna samúð. Við- kvæmni þín gerir þig að eftirlæti ann- arra. stjörnuspá Holiday Mathis Skapandi viðfangsefni eru í brennidepli um þessar mundir? Hvað hefur geng- ið vel og af hverju getum við lært? Hugmynd sem einhver hefur haldið út af fyrir sig blómstrar með athygli heildar- innar. Tungl í tvíbura tryggir að samræð- urnar eru á léttum nótum, sem er mik- ilvægt, því neikvæðar athugasemdir geta stöðvað framkvæmdir áður en þær byrja. en Bandaríkjamenn. Leikkonan, sem er gift breska Coldplay- söngvaranum Chris Martin, sagðist frekar kjósa að búa á Englandi þar sem það væri ekki eins kapítalískt og Bandaríkin. „Fólk talar um eitt- hvað áhugavert við matarborðið, ekki um vinnu og peninga.“ Hún sagði það einnig kost að búa í London þar sem hún byggi við hlið- ina á Madonnu. „Madonna er eins og eldri systir. Allt sem ég hef gengið í gegnum hefur hún upplifað tíu sinn- um verra og tíu sinnum lengur,“ sagði Paltrow sem sagði Madonnu hafa gefið sér mörg góð ráð um hvernig á að segja nei og fara vel með sjálfan sig. „Það hljómar eins og hún telji sig vera betri en okkur hin,“ kvartaði ónefndur Bandaríkjamaður í þar- lendu útvarpi. „Ef henni finnst þetta erum við mun betur sett án hennar,“ fullyrti annar.    Ofurfyrirsætan Kate Moss hefurverið gagnrýnd af dýrarétt- indasamtökum fyrir að klæðast að því er virðist alvöru loðfeldi. Hin 32 ára gamla Moss hefur áður látið mynda sig nakta fyrir auglýsinga- herferð gegn notkun loðfelda og því skýtur skökku við að hún láti sjá sig í slíkum klæðnaði. Moss hef- ur einnig verið gagnrýnd fyrir að koma fram í auglýsingum fyrir tískufyrirtækið Burberry sem framleiðir föt úr alvöru loðfeldi á sama tíma og hún hefur skrifað undir hönnunarsamning við tísku- verslunarkeðjuna TopShop sem hefur talað gegn notkun loðfelds. Talsmaður dýraverndunarsam- takanna PETA sagði: „Þetta sýnir að hún hefur engin siðferðileg gildi í hávegum. Öllu heldur afhjúpar þetta að hún gerir hvað sem er fyr- ir peninga.“ Eftir öðrum talsmanni samtakanna er haft: „Við trúum því að ef Moss vissi hvers konar að- ferðum er beitt við framleiðslu loð- felds myndi hún aldrei klæðast honum.“ STEVE (Matthew Broderick) er hefðbundinn bandarískur jólakarl, týpa sem sést eiginlega hvergi nema í bandarískum bíómyndum en dúkk- ar ansi oft upp þar. Hann er sem sagt upptekinn af hinum árlega við- burði, sumir myndu segja of upptek- inn, en ákefð hans bliknar í sam- anburði við nýja nágrannann, Buddy (Danny DeVito), sem er ákveðinn í því að setja eins konar heimsmet í jólaskreytingum utandyra. Í hönd fer samkeppni milli þeirra um hvor geti heiðrað jólasveininn á stórtæk- ari hátt, en þar sem hér er um gam- anmynd að ræða, verða ýmiss konar skakkaföll til þess að hrista upp í framvindunni. Söguþráðurinn er langsóttur en það þyrfti svo sem ekki að koma að sök ef myndinni tækist að halda sér á floti með kímn- inni en brandararnir snúast flestir um það að magna upp nokkurs kon- ar skrípaleik með áherslu á almenn- an aulahúmor. Ef ljósan flöt er að sjá í myndinni (fyrir utan öll jólaljósin) þá er það frammistaða Danny DeVito í hlut- verki Buddy. Mikilmennskubrjálæði hins frekar ólukkulega meðalmanns brýst fram á svo sérkennilegan hátt að stundum lyftir maður annarri augnbrúninni og brosir kannski í kampinn. Broderick stefnir hins vegar óðfluga í að festast í hlutverki hins samankreppta smáborgara og reynist dragbítur á hverri myndinni á fætur annarri. Eitt af því sem myndin kemur ágætlega á framfæri er hið stórkost- lega úrval jólaskrauts sem nú virðist framleitt í Bandaríkjunum, en ann- ars hefur hún lítið til málanna að leggja varðandi almennt jólahald. Bandarískir kvikmyndagerðarmenn sem ráðast í gerð jólamynda myndu gera sjálfum sér og öðrum greiða ef þeir stöldruðu við í smástund, litu um öxl, og gerðu sér grein fyrir því að bestu jólamyndir þeirra eigin kvikmyndahefðar, allt frá It’s a Wonderful Life til Bad Santa, eiga það sameiginlegt að blanda ákveðnu myrkri og depurð saman við jóla- ljósin. Hér er hins vegar á ferðinni bitlaus upphafning á markaðs- væðingu hátíðarinnar. Jólin koma KVIKMYNDIR Hátíð í bæ (Deck the Halls) Leikstjórn: John Whitesell. Aðalhlutverk: Danny DeVito, Matthew Broderick, Krist- in Davis, Kristin Chenowith, Alia Shaw- kat. Bandaríkin, 95 mín. Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó  Heiða Jóhannsdóttir Samkeppni „Eitt af því sem myndin kemur ágætlega á framfæri er hið stórkostlega úrval jólaskrauts sem nú virðist framleitt í Bandaríkjunum.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.