Morgunblaðið - 06.12.2006, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
FYRRI umræða um frumvarp að
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árið 2007 fór fram í borgarstjórn
í gær. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri mælti fyrir frumvarpinu
en í þeim umræðum sem á eftir fóru
gagnrýndi minnihlutinn í borg-
arstjórn ýmis atriði frumvarpsins.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, sagði að
með sölu Landsvirkjunar og end-
urreikningi lífeyrisskuldbindinga
væri ætlunin að breiða yfir bólgu í
rekstri og skort á aðhaldi. Þá sagði
hann rekstrarútgjöld borgarinnar
aukast umfram skatttekjur og benti á
að mest hækkaði reksturinn á skrif-
stofum í ráðhúsinu, eða um 16%.
„Laun og almennur rekstrarkostn-
aður eykst um 8% hjá borginni og það
er með ólíkindum að borgarstjóri
skuli leyfa sér að halda þeim upplýs-
ingum að blaðamönnum þessa lands
að vegna þess að menn hafi verið
látnir endurreikna lífaldur lífeyr-
isþega til næstu 35 ára og þar með
endurmeta tryggingafræðilega líf-
eyrisskuldbindingar borgarinnar, sé
rekstrarniðurstaðan í næstu fjár-
hagsáætlun eitthvað betri heldur en
rekstraráætlun ársins sem er að líða.
Með svona trixum reyna menn að
breiða yfir þessa bólgu í rekstrinum,
sem þó stendur í áætluninni svart á
hvítu, fremur en að takast á við það
viðfangsefni,“ sagði Dagur en hann
tók fram að hreinar skuldir A-hluta
borgarsjóðs hafi engar verið í árslok
2006. Þannig hafi skuldirnar lækkað
úr 15 milljörðum í valdatíð fyrri
meirihluta.
Að mati Dags felast helstu póli-
tísku tíðindi áætlunarinnar í órök-
studdum gjaldskrárhækkunum á öll-
um sviðum langt umfram verðlags-
hækkanir.
„Lítil framtíðarsýn“
„Nú verður ekki séð af útkomuspá
ársins 2006 að sérstök þörf hafi verið
á hækkun gjaldskránna umfram
verðbólgu. Þó er það þannig að gjald-
skránum er ætlað að hækka almennt
um 8,8% þrátt fyrir verðbólguspá í
áætlun upp á 4,5%.“
Dagur sagði jafnframt að eftir öll
stóru orðin í þágu aldraðra væri
„býsna magnað“ að aðgerðir í þeirra
þágu ættu sér hvergi stað í áætl-
uninni.
Svandís Svavarsdóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, gerði mál-
efnasamning meirihlutans að umtals-
efni og sagði hann þegar orðinn
vandræðalegan og benti á að áætlanir
hefðu ekki staðist. „Hefði þess verið
að vænta að leiðtoginn sjálfur, hæst-
virtur borgarstjóri, myndi í inngangi
að greinargerð [fjárhagsáætlunar-
innar] lýsa þessum áherslum. Hér er
hins vegar á ferðinni rislítill texti og
lítil framtíðarsýn […] Það veldur
áhyggjum að hér gætum við verið að
sjá fyrirheit um það hvernig sama
meirihluta kemur til með að ganga að
fylgja öðrum áætlunum eftir og núna
fjárhagsáætlun.“
Svandís sagði brýnt að minnihlut-
inn héldi meirihlutanum við efnið og
gengi úr skugga um að áætlanir
stæðust.
Bólga í rekstri og skortur á aðhaldi
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn gagnrýndu fjárhagsáætlunina á fundi borgarstjórnar í gær
Morgunblaðið/Ásdís
Málin rædd Svandís Svavarsdóttir
og Árni Þór Sigurðsson, borgar-
fulltrúar VG, stinga saman nefjum
á fundi borgarstjórnar.
ÁBYRGÐ og árangur er yfirskrift
frumvarps að fjárhagsætlun nýs
meirihluta í Reykjavík fyrir árið
2007 sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri mælti fyrir í gær. Á
blaðamannafundi þar sem borgar-
stjóri kynnti megináherslur fjár-
hagsáætlunarinnar sagði hann áætl-
unina endurspegla nýjar áherslur í
rekstri Reykjavíkurborgar.
„Þrátt fyrir þrönga stöðu sem
blasti hér við okkur þegar við tókum
við er ég mjög stoltur af því í dag að
við erum með þessu frumvarpi að
stíga mörg mikilvæg skref í því að
snúa við rekstrinum. Það hefur ver-
ið rosalegt tap á rekstri borgarinnar
og því var mikil nauðsyn á því að
taka á rekstrinum með miklu mark-
vissari og ábyrgari hætti en gert
hefur verið,“ sagði Vilhjálmur á
fundinum og tók fram að hann hefði
notað tímann síðan hann tók við
borgarstjórastarfinu til þess að fara
yfir alla rekstrarþætti borgarinnar
með fjármálastjóra og sviðsstjórum
borgarinnar í þeim tilgangi að ná
markvissari fjármálastjórn og hag-
ræða án þess að það skerði á neinn
hátt þjónustuna sem meirihlutinn
vilji halda uppi.
Framkvæmdir á vegum borg-
arsjóðs nema sjö milljörðum
Í frumvarpinu má sjá að gert er
ráð fyrir rúmlega 13,7 milljarða
króna rekstrarafgangi á A-hluta
starfsemi Reykjavíkurborgar á
næsta ári samanborið við rúmlega
eins milljarðs króna halla á þessu
ári. Fram kom í máli Vilhjálms að
þar munaði mest um hagnað af sölu
í eignarhlut Reykjavíkurborgar í
Landsvirkjun, en söluhagnaður af
honum er 10,1 milljarður. Eins og
fram hefur komið var andvirði söl-
unnar ráðstafað til Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Það þýðir að heildarskuldir A-hluta
borgarinnar nema rúmum 28,5
milljörðum kr. í lok árs 2007 sam-
anborið við tæplega 52,8 í útkomu-
spá ársins 2006. Heildartekjur A-
hluta eru áætlaðar rúmir 52 millj-
arðar samanborið við rúmlega 49
milljarða 2006, sem er 6,2% hækkun
milli ára. Rekstrargjöld fyrir fjár-
magnsliði eru áætluð tæplega 50,6
milljarðar samanborið við tæplega
52,8 milljarða 2006 eða 4,2% lækkun
milli ára. Þess má geta að undir
A-hluta starfsemi Reykjavíkurborg-
ar heyra aðalsjóður, eignasjóður og
skipulagssjóður.
Gert er ráð fyrir að handbært fé
frá rekstri verði tæpir 2,9 milljarðar
samanborið við tvo milljarða 2006,
sem er 40% hækkun milli ára. Ráð-
gert er að bókfærðar heildareignir
nemi 78,2 milljörðum samanborið
við tæpa 89 milljarða í útkomuspá
þessa árs sem er tæplega 10,6 millj-
arða lækkun milli ára eða sem nem-
ur 11,9%. Lækkunin skýrist af sölu
eignarhluta Reykjavíkurborgar í
Landsvirkjun. Fram kemur í frum-
varpinu að gert er ráð fyrir að eigið
fé nemi tæpum 49,7 milljörðum í
árslok 2007 samanborið við tæplega
36 milljarða í útkomuspá þessa árs
eða sem nemur 38,1% hækkun.
Áætlaðar framkvæmdir borgarsjóðs
nema samtals rétt rúmum sjö millj-
örðum á árinu 2007, þar af eru
byggingarframkvæmdir rúmir 3,7
milljarðar og gatnaframkvæmdir 3,4
milljarðar.
Í samstæðuársreikningi borgar-
innar, sem samanstendur af A- og
B-hluta, en til B-hluta teljast fjár-
hagslega sjálfstæð fyrirtæki og
rekstrareiningar sem að hálfu eða
meirihluta eru í eigu borgarinnar, er
gert ráð fyrir að heildartekjur verði
79,7 milljarðar króna samanborið
við 74,8 milljarða kr. í útkomuspá
2006 sem er 6,5% hækkun milli ára.
Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði
eru áætluð 72 milljarðar samanborið
við 74 milljarða í útkomuspá þessa
árs sem er 3% lækkun milli ára.
Rekstrarafgangur 2007 er áætlaður
tæplega 13,5 milljarðar samanborið
við tæplega 3,4 milljarða árið 2006.
Gert er ráð fyrir að bókfærðar
heildareignir nemi tæpum 248 millj-
örðum í árslok 2007 samanborið við
250 milljarða í útkomuspá þess árs
sem er rétt rúmlega tveggja millj-
arða lækkun á milli ára eða 0,9%.
Eftir því sem fram kemur í grein-
argerð með frumvarpinu skýrist
breytingin einkum af sölu á eign-
arhlut borgarinnar í Landsvirkjun.
Heildarskuldir samstæðu Reykja-
víkurborgar eru áætlaðar rúmlega
128 milljarðar samanborið við rúm-
lega 138 milljarða í áætlaðri útkomu
2006. Gert er ráð fyrir að eigið fé
nemi rúmum 112 milljörðum í árslok
2007 samanborið við tæpa 105 millj-
arða í útkomuspá þessa árs eða sem
nemur 7% hækkun milli ára.
Stefna að því að reka A-hluta
á núlli á kjörtímabilinu
Eftir því sem fram kemur í frum-
varpinu eru skatttekjur áætlaðar
um 42,3 milljarðar króna á næsta
ári. Kostnaður við rekstur mála-
flokka að frádregnum sértekjum
þeirra er áætlaður 46,3 milljarðar
en mismunurinn er brúaður með
arði af eignum og vaxtatekjum. Í
máli Vilhjálms kom fram að meiri-
hlutinn legði mikla áherslu á að
hagnaður yrði af rekstri A-hluta
Reykjavíkurborgar á kjörtíma-
bilinu. „Ég geri mér grein fyrir að
stöðunni verður ekki snúið við á
einni nóttu. Markmið okkar í meiri-
hlutanum á þessu kjörtímabili er að
koma því þannig fyrir að rekstrar-
tekjur A-hlutans dugi fyrir rekstr-
argjöldum. Þetta er ekki þannig í
dag og okkur tókst ekki á þessu ári
að láta þetta mætast og það mun
ekki takast á næsta ári, en við ætl-
um að reyna að ná þessu jafnvægi á
kjörtímabilinu, þannig að A-hlutinn
sé rekinn á núlli. Í dag er það svo að
af því að rekstrartekjurnar eða
skatttekjurnar duga ekki erum við
að nýta aðra fjármuni til að loka
þessu dæmi, t.d. arðsemisgreiðslur
frá Orkuveitunni og aðrar tekjur,“
sagði Vilhjálmur. Fram kom í máli
hans að útsvarshlutfallið helst
óbreytt á næsta ári, þ.e. verður
áfram 13,03%. Ráðgert er að álagn-
ingarhlutfall fasteignaskatta á íbúð-
arhúsnæði lækki um 10% og er það,
að sögn Vilhjálms, í samræmi við
kosningaloforð meirihlutans.
Spurður hvernig stefnt væri að
því að auka tekjur borgarinnar
sagði Vilhjálmur að fjölgun íbúa í
borginni væri tekjuaukandi aðgerð,
auk þess sem leggja ætti sérstaka
áherslu á aðhald í rekstri. Spurður
hvort vænta mætti gjaldskrárhækk-
ana á komandi ári svaraði Vilhjálm-
ur því játandi, en tekjuaukning
vegna hækkana á þjónustugjöldum
nemur 270 milljónum króna á næsta
ári. Benti hann á að hækkanirnar
væru almennt í samræmi við hækk-
un verðlags milli áranna 2005 og
2007.
14 milljarða rekstrarafgangur
Gert er ráð fyrir nærri
14 milljarða afgangi
af rekstri borgarsjóðs
í frumvarpi að fjár-
hagsáætlun nýs
meirihluta í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjárhagsáætlun Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra endurspeglar nýtt frumvarp meirihlutans að
fjárhagsáætlun fyrir árið 2007 það aðhald í rekstri og ábyrgð sem hann vill sýna á kjörtímabilinu.
!"#$
%&
' $ ( (
)
)
( )
(()
( *
() )
!"#
$
%&
' $ * + ,
-
!"
#$"
%&
Í HNOTSKURN
»Útsvarshlutfall helstóbreytt á næsta ári og
verður því áfram 13,03%.
»Álagningarhlutfall fast-eignaskatta á íbúðar-
húsnæði lækkar um 10%.
»Ráðgert er að þjón-ustugjöld borgarinnar
hækki samtals um 270 millj-
ónir króna á næsta ári og eru
þær hækkanir í samræmi við
þróun verðlags.
»Framkvæmdir hjá A-hlutanema rúmum 7,1 milljarði
króna árið 2007, þar af nema
byggingarframkvæmdir rúm-
um 3,7 milljörðum.