Morgunblaðið - 06.12.2006, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
GERT er ráð fyrir því að á morg-
un samþykki allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna fiskveiðiályktun
sem meðal annars tekur til stjórn-
unar fiskveiða á úthöfunum. Samn-
ingaviðræður um ályktunina hafa
staðið lengi yfir og um hana staðið
nokkur styr, einkum um það hvort
setja skuli alþjóðlegt bann við
veiðum í botnvörpu á úthöfunum
eða þeim hlutum þeirra þar sem
svæðisbundnar fiskveiðistjórnun-
arstofnanir eru ekki til staðar.
Bandaríkin drógu sig í hlé
Samkomulag um bannið náðist
ekki, þrátt fyrir ákafa sókn Ástr-
ala, sem voru studdir af hópi landa
eins og Nýja-Sjálandi, Palá, Nor-
egi, Suður-Afríku og Indlandi.
Bandaríkjamenn hafa lengst af
staðið gegn slíku banni en fyrir
síðustu lotu viðræðnanna sneru
þeir blaðinu við. Hins vegar höfðu
þeir sig lítt í frammi og drógu sig
að mestu í hlé.
Ísland hefur verið og er í hópi
þeirra ríkja sem ekki vilja slíkt
bann, heldur beita öðrum leiðum
til að koma í veg fyrir skaðleg
áhrif fiskveiða á viðkvæm vistkerfi
hafsins. Í þeim hópi eru meðal
annarra ríki eins og Kanada,
Rússland, Kína, Japan,
Suður-Kórea, Namibía og Nígería,
auk Evrópusambandsins. Ljóst er
því að ekki er rétt, sem haldið hef-
ur verið fram, að Ísland hafi eitt,
eða með stuðningi örfárra ríkja,
komið í veg fyrir að botnvörpu-
bann næði fram að ganga.
Ekki ágreiningur um nauðsyn
verndunar viðkvæmra svæða
Ekki ríkir ágreiningur um nauð-
syn þess að vernda viðkvæm vist-
kerfi hafsins, svo sem kaldsjáv-
arkóralla, neðansjávartinda og
hverastrýtur, gegn skaðlegum
áhrifum fiskveiða. Á hinn bóginn
hefur ríki greint á um leiðir til að
ná þessu markmiði, m.a. á úthöf-
unum þar sem fiskveiðistjórnun er
ábótavant.
Krafan um alþjóðlegt bann við
botnvörpuveiðum á úthöfunum er
runnin undan rifjum náttúru-
verndarsamtaka eins og Grænfrið-
unga og þjóða, sem þeim fylgja að
miklu leyti, eins og Ástrala og
Nýsjálendinga. Þessar þjóðir
stunda reyndar umfangsmiklar
veiðar í botnvörpu, bæði innan og
utan eigin lögsögu. Rök þessara
þjóða fyrir alþjóðlegu banni eru
einkum þau að það sé eina leiðin
til að koma í veg fyrir hin nei-
kvæðu áhrif botnvörpuveiðanna.
Rök hinna þjóðanna gegn bann-
inu byggjast ekki eða þá aðeins að
litlu leyti á hagsmunum þeirra
sjálfra vegna slíkra veiða á úthaf-
inu. Íslendingar stunda til dæmis
engar veiðar með botnvörpu á al-
þjóðlegum hafsvæðum. Af Íslands
hálfu hefur verið lögð áherzla á að
halda þeirri nálgun sem samþykkt
var fyrir tveimur árum og hafna
hvers konar hnattrænu banni við
botnvörpuveiðum á úthafinu.
Íslenzk stjórnvöld hafa staðið
gegn vaxandi tilhneigingu ýmissa
ríkja og félagasamtaka til að koma
á yfirþjóðlegri stjórnun fiskveiða í
heiminum. Litið er á málið sem
prinsippmál af Íslands hálfu. Vert
sé að hafa í huga í þessu sambandi
að ýmis félagasamtök hafa kynnt
skýrar áætlanir um að ná fyrst
fram banni við botnvörpuveiðum á
úthafinu en í framhaldi af því í
efnahagslögsögu strandríkja. Af
hálfu Íslands hefur því verið lýst
yfir að að svo miklu leyti sem frek-
ari hnattrænna aðgerða væri talin
þörf, bæri að fela viðkomandi sér-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, Mat-
væla- og landbúnaðarstofnuninni,
FAO, það hlutverk, enda um afar
tæknilegt og flókið mál að ræða.
Ekki væri hægt að alhæfa um
skaðsemi einstakra veiðarfæra, til
dæmis botnvörpu, sem væri bæði
afar mismunandi að gerð og notuð
með ólíkum hætti og við ólíkar að-
stæður. Stórir hlutar hafsbotnsins,
einkum mjúkir sandbotnar, þörfn-
uðust ekki sérstakrar verndar. Ís-
land benti á að allsherjarþingið
gæti m.a. beint því til FAO að
semja tæknilegar leiðbeiningar-
reglur um botnveiðar á úthafinu
og kalla jafnframt til fundar þeirra
ríkja sem stunda slíkar veiðar.
Gild rök gegn
alþjóðlegu banni
Ljóst er að afstaða þeirra ríkja,
sem eru andvígar alþjóðlegu banni
Mismunandi leiðir
að sama markinu
Fiskveiðar Samkomulag er um nauðsyn þess að vernda viðkvæm svæði á
úthöfunum eins og hverastrýtur. Ágreiningur er um leiðir til þess.
Gert er ráð fyrir að allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykki á morgun fiskveiðiályktun sem tekur
meðal annars til stjórnunar veiða á úthöfunum.
Hjörtur Gíslason kynnti sér innihald ályktunarinnar
en þar eru ákvæði til að sporna við veiðum með botn-
vörpu sem kunna að skaða lífríki hafsins en alþjóðlegu
banni við slíkum veiðum hafnað.
Í HNOTSKURN
»Ríki eins og Ísland, Kan-ada, Rússland, Kína, Jap-
an, Suður-Kórea, Namibía og
Nígería, auk Evrópusam-
bandsins, voru andvíg al-
þjóðlegu banni.
»Bandaríkjamenn hafalengst af staðið gegn banni
en fyrir síðustu lotu viðræðn-
anna sneru þeir blaðinu við, en
höfðu sig lítt í frammi og
drógu sig að mestu í hlé.
» Íslendingar stunda engarveiðar í botnvörpu á al-
þjóðlegum svæðum, en í fyrra
voru 365.000 tonn af botnlæg-
um fiski og skelfiski tekin í
togveiðarfæri innan lögsögu.
»Kveðið er á um hertar að-gerðir til að vernda við-
kvæm vistkerfi hafsins fyrir
skaðlegum fiskveiðum.
Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi
Vökvadælur
Vökvamótorar
Stjórnbúnaður
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf