Morgunblaðið - 06.12.2006, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,9% og var
6327 stig við lokun markaða. Gengi
bréfa 365 hækkaði um 6,06%, bréf
FL Group um 1,7% og bréf Bakkavar-
ar um 1,3%. Bréf Össurar lækkuðu
um 0,44% og bréf Flögu um 0,4%.
Krónan veiktist um 0,2% í við-
skiptum í gær, samkvæmt upplýs-
ingum frá Glitni. Gengi dollarans er
68,13 krónur, pundsins 134,33 og
evrunnar 90,70.
Úrvalsvísitala hækkar
● DÖNSK birtingarhús mæla ekki
lengur með því við auglýsendur að
þeir auglýsi í fríblöðunum þremur,
sem borin eru í hús í Danmörku, að
sögn viðskiptavefjar Berlingske Tid-
ende. Segir blaðið ástæðuna þá að
hvorki lestrartölur né dreifing hafi
verið í samræmi við loforð útgefanda
fríblaðanna. Stór hluti upplagsins sé
skilinn eftir úti á götum eða á um-
ferðarmiðstöðvum og því séu blöðin
orðin eins og önnur götufríblöð.
Mæla ekki lengur með
fríblöðum í Danmörku
ERLENDIR fagfjárfestar eiga nú
um 4,7% hlut í Icelandair Group
Holding hf. en erlendir aðilar keyptu
um 43% af þeim hlutum sem upp-
haflega voru í boði til fagfjárfesta í
hlutafjárútboði Icelandair, sem lauk
á mánudag. Meðal þessara erlendu
aðila eru stórir breskir bankar og
stórir sænskir lífeyrissjóðir, sam-
kvæmt upplýsingum frá Glitni.
Í boði voru 185 milljónir hluta á 27
krónur á hlut, alls 18,5% af hlutafé
félagsins og var verðmætið tæpir 5
milljarðar. Alls óskuðu fjárfestar eft-
ir að kaupa 380 milljónir hluta og var
umframeftirspurn því 105%.
Allt hlutafé selt
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
talsmanns Icelandair, eru þeir er-
lendu fagfjárfestar, sem keyptu í út-
boðinu, 15–20 talsins, aðallega á
Norðurlöndunum og í Bretlandi. Um
er að ræða lífeyrissjóði, banka, eign-
astýringarsjóði og tryggingafélög.
Guðjón sagði að þetta væri senni-
lega í fyrsta skipti sem erlendir að-
ilar tækju með þessum hætti þátt í
hlutafjárútboði í aðdraganda skrán-
ingar í Kauphöll Íslands og forsvars-
menn Icelandair væru mjög ánægðir
með þessar viðtökur og það traust
sem þær sýndu á íslenskum flug-
rekstri.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fram kemur í tilkynningu Iceland-
air til Kauphallar Íslands að í að-
draganda útboðsins voru seldir 180
milljónir hluta, eða 18% í félaginu.
Áður höfðu fjórir hópar fjárfesta
keypt um 63,5% í félaginu. Að loknu
útboðinu nú, þar sem 18,5% hlutafjár
voru seld, er því 100% hlutafjár Ice-
landair Group Holding seld og hlut-
hafar í félaginu alls um 1.300 talsins.
„Ég er fullur tilhlökkunar að tak-
ast á við að efla fyrirtækið og styrkja
með nýjum eigendum, ekki síst
vegna þess að meðal nýju eig-
endanna eru fjölmargir samstarfs-
menn sem keyptu hlutabréf í fyrir-
tækinu,“ segir Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair.
Jón Karl Ólafsson
Stórir breskir bankar
hluthafar í Icelandair
GRÍÐARLEGA hraður vöxtur kín-
verska hagkerfisins gefur íslenska
bankanum Glitni, sem nú hefur opn-
að skrifstofu í Sjanghæ, fyrstur ís-
lenskra banka, fjölmörg tækifæri til
vaxtar í Asíu. Glitnir, sem horfir nú
fyrst og fremst á fjármálaþjónustu
við verkefni í sjávarútvegi, jarð-
varmanýtingu og í skipaiðnaði á al-
þjóðamarkaði, lítur því svo á að með
því að hasla sér völl í Kína, og vera í
návígi við m.a. íslenska og norska
viðskiptavini sína sem þar eru með
starfsemi, hafi verið rétt og tíma-
bært skref í útrás bankans.
„Hér í Kína sjáum við mikil tæki-
færi til vaxtar í þessum verkefnum,“
segir Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, í samtali við Morgunblaðið á
nýju skrifstofunni í Sjanghæ sem er
vel staðsett í fjármálahverfi borgar-
innar, í skýjakjúfi sem telur fleiri
tugi hæða. Stjórnun skrifstofunnar
verður í höndum Jiang Zhu.
„Okkar viðskiptamódel byggir á
því að skilja og hafa þekkingu á við-
komandi atvinnugrein og geta fylgt
okkar viðskiptavinum eftir í ákvörð-
unartöku þar sem samskiptaboðleið-
ir eru stuttar og málin ganga hratt
fyrir sig,“ segir Bjarni um ástæður
útrásar bankans til Kína. „Til að
geta nýtt þessar aðferðir okkar til
fulls þurfum við að vera á staðnum.“
Jarðvarminn nýttur
Síðasta sunnudag var formlega
tekin í notkun hitaveita í kínversku
borginni Xian Yang sem Glitnir fjár-
magnar en hitaveitan er samstarfs-
verkefni kínverskra og íslenskra
orkufyrirtækja.
Bjarni segir að í jarðvarmanýt-
ingu sjá Glitnir mjög mikil vaxtar-
tækifæri á næstunni, sérstaklega til
húshitunar. „Við teljum að á næstu
áratugum muni Kínverjar hverfa frá
kolanýtingu sem meginorkugjafa til
húshitunar að verulegu marki og
nýting jarðvarmans er mjög öflugur
orkugjafi til að koma í staðinn. Hér
er geysileg mengun og það blasir við
að þegar hægt er að skipta slíkum
orkugjafa út hjá sveitarfélögum þá
velja þau það. Okkar ögrun verður
að finna réttu samstarfsaðilana
heima á Íslandi og hér í Kína til þess
að ýta þessum verkefnum úr vör.“
Ekkert er enn í hendi varðandi
fleiri verkefni í jarðvarmanýtingu,
en Bjarni og Magnús Bjarnason, hjá
fjárfestinga- og alþjóðasviði Glitnis,
segjast binda vonir við að þegar kín-
versk stjórnvöld sjái árangurinn í
Xian Yang, þar sem hitaveitan mun
innan fárra ára verða sú stærsta í
heimi, muni fleiri verkefni fylgja í
kjölfarið. Þá eru tækifærin í sjávar-
útvegi ekki minni. Kínverjar neyta
fisks allra þjóða mest. Þar er öflugt
og vaxandi fiskeldi sem og fram-
leiðsla á sjávarafurðum.
Glitnir með forskot
Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra var viðstödd opnun skrif-
stofu Glitnis. Hún segir útrás ís-
lenskra banka einstaka og eftir
henni sé tekið víða. „Það er mál
manna að hér í Kína verði mikil
framþróun og mikil uppbygging á
næstu árum. Þetta þýðir gríðarleg
tækifæri. Með því að vera snemma í
þessu ferli eins og Glitnir er, er
bankinn að skapa sér ákveðið for-
skot,“ segir hún.
Í nálægð við hrað-
vaxandi hagkerfi
Glitnir fyrstur íslenskra banka til að opna skrifstofu í Kína
Ljósadýrð Sérstakur bátur sigldi um fljótið í Sjanghæ með stóru ljósa-
skilti, í tilefni opnunar skrifstofu Glitnis í fjármálahverfi borgarinnar.
Í HNOTSKURN
»Mikill vöxtur er í Kína ogt.d. talið að neysla sjávar-
afurða eigi eftir að aukast um
40% til ársins 2020.
»Nálægð við íslenska ognorska viðskiptavini bank-
ans er m.a. ástæða þess að
Glitnir opnar skrifstofu í Kína.
»Bankinn hyggst aðstoðakínverska viðskiptavini við
að komast á markaði á Norð-
urlöndum og víðar í Evrópu.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur í Sjanghæ
sunna@mbl.is
KÍNA er áttunda landið í þriðju
heimsálfunni þar sem Glitnir hefur
drepið niður fæti með opnun skrif-
stofu. Skrifstofan í Sjanghæ telur
nú fjóra starfsmenn.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, segir erfitt að átta sig á því
núna með hvaða hraða hún muni
þróast í nánustu framtíð.
„Við erum bjartsýn en með báða
fætur á jörðinni. Það eru mörg
tækifæri hérna og ef við lendum í
samstarfi við rétta aðila með réttu
verkefnin þá er hægt að vaxa hér
mjög hratt. Þetta getur orðið mjög
mikilvægur þáttur fyrir okkur og
undið upp á sig en þetta getur líka
tekið langan tíma. Það er langtíma
verkefni að koma sér hér fyrir en
ég hef séð það hér í Kína að yfirleitt
verða breytingarnar hraðari en
haldið er í fyrstu,“ segir hann.
Áfram á sömu braut
Spurður um hvað taki næst við hjá
Glitni eftir opnun skrifstofu í Kína
segir Bjarni:
„Okkar markmið hefur verið að
styrkja okkar stöðu á Norðurlönd-
unum og í Bretlandi. Síðan að geta
þjónustað þessar greinar sem við
höfum alþjóðlegan áhuga á. Fyrir
okkur var opnun bæði í Norður-
Ameríku og Asíu mjög mikilvæg og
það höfum við nú gert á þessu ári.
Markmiðið verður að halda áfram á
þessari sömu braut. Það er engin
ein ný staðsetning annarri fremur
sem við þurfum á að halda. Við
þurfum að styrkja okkur frekar í
Norður-Ameríku og á Norðurlönd-
unum og á það munum við leggja
áherslu á næsta ári. Stefnan er
skýr, hún hefur verið að skila verð-
mætaaukningu ár frá ári og við telj-
um að haldi áfram sem horfir náum
við fram þeim vexti og arðsemi sem
við þörfnumst,“ segir Bjarni Ár-
mannsson.
Áttunda landið
– þriðja heims-
álfan hjá Glitni
Kína Bjarni Ármannsson með
kynningu í Sjanghæ í gær.
$;<
$;<#1#=9
'(
)*# +&, '(
)'
* '(
)* -
&
-.
)&" +&, '(
/""#0 +&, '(
1 +&, '(
+ %" '(
'( 2",'3 4
5,6 %" '(
1 %" 4 '(
7
'(
7&* & '(
89/: '(%( '(
; '(
2< '(
+&, '(
=*
* +&, '(
>?
'(
@7A )/
B
! '(
B!:0: '(
C0: '(
! "#
8'3 8: #'(
$%&' !
/ + '(
,: '
( !
9
#:",
B%&: $ &"
5, 8
(( ((
((
((
(
( (
(
( (
(( (( ((
((
(
( ((
(( (
( ( (
(( 9
9
9
((
9
9
9
((
9
9
9
C:", $ "D
)B( E ) 0
#:",
9
9
9
9
9
9
8$:
#:"(#
:
> F
8G-
H
H
B82
I)A
H
H
J)J
@7A 8&""(
H
H
@7A 50'
>""
H
H
=J2A I&K L&
H
H