Morgunblaðið - 06.12.2006, Page 22
|miðvikudagur|6. 12. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Fyrir liðlega tuttugu árum
ákvað hópur fólks sem dvaldi á
Reykjalundi að stofna göngu-
hópinn Flækjufætur. » 24
heilsa
Þegar fólk fer að huga að mat-
argerð fyrir jólin er ráð að velta
fyrir sér hvernig gera megi upp-
skriftir hollari. » 24
hollráð
Fimm listakonur reka Listaselið
á Skólavörðustígnum þar sem
þær selja hönnun sína og bjóða
upp á piparkökur og kaffi. » 23
hönnun
S
inn er siður í hverju landi
og reyndar heimili ef því
er að skipta. Þegar jóla-
stressið grípur landann
tekur fjölskylda ein í
Garðabæ sig til og fer í sumarbústað
ásamt vinafólki þar sem er föndrað,
bakaðar piparkökur og farið í göngu-
túra.
Hjónin Erna Ingólfsdóttir og Run-
ólfur Hilmar Júlíusson bjuggu í
Þýskalandi um árabil, nánar tiltekið í
Hamborg. Þau fluttu heim fyrir fjór-
um árum og búa nú í Garðabæ ásamt
syninum Tómasi Þórði Hilmarssyni.
„Við fluttum heim þegar ég var sex
ára,“ segir Tómas, kallaður Tommi.
„Ég man þess vegna ekki mikið eftir
því hvernig þetta var,“ bætir hann við
og mamma hans tekur við. „Við fór-
um alltaf út í skóg eða eitthvað annað
að rölta á aðfangadag,“ segir Erna.
„Eftir að við komum heim ákváðum
við að reyna að halda þessu þó að allt
annar gangur sé í öllu hérna heima. Á
meðan við bjuggum úti komum við
aldrei heim til Íslands um jól af því að
allir voru í einhverju stresskasti og
við hittum engan. Við komum þess
vegna frekar heim um páska. Þá var
miklu meiri tími til að hitta fólkið.“
Þetta segir Erna til komið vegna þess
að þó að þau söknuðu auðvitað fjöl-
skyldunnar hafi þeim í raun liðið bet-
ur úti í Þýskalandi þar sem þau hafi
einfaldlega verið í sinni rútínu.
Í sumarbústað í
byrjun desember
Í aðdraganda jólanna nú orðið hafa
þau lagt áherslu á að gera eitthvað
saman á aðfangadag. „Þó ekki sé ann-
að en að fara og labba í Heiðmörk,“
segir Erna „Við höfum farið í Bláa
lónið, við höfum farið í sund, í raun al-
veg haldið okkur við það að vera búin
að öllu og eiga ekki eftir einhverjar
rosalegar reddingar, heldur viljum
við gera eitthvað skemmtilegt.“ Eftir
hádegi á aðfangadag snýr Erna sér
að matargerð en feðgarnir keyra út
pakka.
Það eru fleiri siðir sem fjölskyldan
í Garðabæ hefur tamið sér, einn
þeirra er að fara í sumarbústað í byrj-
un desember. „Já, yfirleitt fyrstu eða
aðra helgina,“ segir Erna. „Við höf-
um notað bústaði fyrirtækjanna sem
við höfum verið að vinna hjá í það og
það sinnið,“ bætir hún við. „Þá tökum
við með okkur eina seríu sem við
klessum á einhvern glugga, jóla-
diskarnir eru hafðir með og tilbúið
piparkökudeig. Svo höfum við eitt-
hvað með okkur til að dunda okkur
við. Við erum dugleg að labba og
hlustum á jólatónlist,“ segir Erna
létt.
„Við förum líka í snjókast,“ læðir
nú Tommi að og bætir við að frændur
hans fari með í sumarbústaðinn. „Já,
þau bjuggu líka úti í Þýskalandi í
mörg ár,“ segir Erna og hlær. „Það
spilar líka inn í. Allir hafa upplifað
það að vera í einhverjum öðrum gír
og vilja halda því áfram.“
Dagatal úr bréfpokum
Einhverjir gætu álitið sem svo að
það að pakka öllu saman til að fara í
sumarbústað gæti einfaldlega aukið
stressið þegar svo stutt er til jóla, en
Erna hlær að þeirri hugmynd. „Þetta
er svo gott,“ segir hún. „Þarna er
maður bara sæll og glaður með sínar
piparkökur, það er bakað og föndrað
og lesnar bækur. Strákarnir leika sér
úti og þetta er algjör slökun,“ bætir
hún við með áherslu. „Okkur finnst
þetta ómissandi í jólaundirbún-
ingnum.“
Fjölskyldan er langt frá því hug-
myndasnauð þegar kemur að föndr-
inu og ekki eru lagðar stórar upp-
hæðir í hráefnið. Tommi er duglegur
að búa til nýstárlegar skreytingar og
má nefna sem dæmi að í fyrra fór
Erna í verslun ÁTVR og sníkti brúna
bréfpoka sem í meðförum Tomma
breyttust í dáindis fínt jóladagatal.
Sykurmolar hafa líka fengið sinn sess
og búnir voru til stjakar fyrir teljós
sem lýsa upp eldhúsglugga fjölskyld-
unnar í Garðabæ fyrir jólin og bjóða
þannig gesti og gangandi velkomna í
hús.
Föndrari Tommi segist hafa gaman af að fara í snjókast við frændur sína.Ódýrt Það er ekki hráefniskostnaðinum fyrir að fara við jóladagatalið sem búið er til úr bréfpokum.
Í Bláa lónið á aðfangadag
Ekki eru allir óskipulagð-
ir þegar kemur að und-
irbúningi jólanna þó að
slíkt vilji gjarnan loða við
stressaða Íslendinga.
Sigrún Ásmundar
heimsótti fjölskyldu sem
kann ráð til að koma í veg
fyrir jólastressið.
sia@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Góð hugmynd Stjakarnir eru búnir til úr sykurmolum. Þeim er raðað á réttan hátt og límdir saman jafnóðum.
„Þá tökum við með
okkur eina seríu sem
við klessum á einhvern
glugga, jóladiskarnir
eru hafðir með og tilbúið
piparkökudeig.“