Morgunblaðið - 06.12.2006, Side 23

Morgunblaðið - 06.12.2006, Side 23
hönnun MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 23 Listakonurnar fimm, sem nú rekaListaselið, eiga húsnæðið og rekaþað í sameiningu og skiptast á umað vera á búðarvaktinni á milli þess sem þær búa til fagra listmuni heima hjá sér. Nokkrar mannabreytingar hafa átt sér stað í hópnum síðan stofnað var til þessarar ágætu listasamvinnu árið 2000. Listakonurnar fimm, sem nú bera hita og þunga af Listaselinu, þær Helena, Þóra, Harpa, Ólöf og Guðbjörg, hafa nú tekið búð- ina í gegn til að skapa réttu stemninguna og ætla að vera með kaffi og piparkökur á borðum út aðventuna. Þóra Einarsdóttir var í fjögur ár í Myndlistarskólanum í Reykjavík og lærði auk þess hjá myndlistarmanninum Þorra Hringssyni. Nú er Þóra aðallega að mála ol- íu- og vatnslitamyndir auk þess sem hún málar á silki. Verkin sín selur hún einnig í Listfléttunni og Gallerý Thors í Hafnarfirði. Guðbjörg Magnúsdóttir var í síðasta árganginum sem útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1999 sem nú er orðinn Listaháskólinn. Hún er nú á kafi í keramikinu og selur verkin sín einnig í Gall- ery Fold. Helena Sólbrá Kristinsdóttir er textíl- listakona fram í fingurgóma. Hún fór á listabraut Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og er nú að búa til nytjahluti á borð við peysur, trefla, púða og síðast en ekki síst töskur úr fiskroði, leðri og skinni. Harpa María Gunnlaugsdóttir smíðar skartgripi eftir eigin hönnun úr messing og silfri og notar perlur og steina í bland. Hún segist hafa lært iðnina með því að sækja nokkur námskeið, en síðan hafi þetta skemmtilega áhugamál bólgnað út í bíl- skúrnum heima. Skartgripirnir hennar Hörpu eru líka til í Norska húsinu í Stykk- ishólmi og svo fer hún á hverju sumri hlaðin skartgripum á handverkssýninguna að Hrafnagili í Eyjafirði. Ólöf Sæmundsdóttir vinnur í gler. Tólf ár eru liðin síðan hún fór að prófa sig áfram, en er nú að útskrifast af listabraut FB auk þess sem hún hefur sótt glerlistanámskeið til Danmerkur og hefur auk þess sjálf haldið slík námskeið hér heima. Líf og fjör í miðborginni Listakonurnar fimm sjá ekkert nema já- kvætt við það að sameinast í versl- unarrekstrinum en skilyrði sé að þær komi hver úr sinni áttinni svo að vöruúrvalið sé sem fjölbreyttast. „Það er líka fínt að vera í miðbænum. Hérna er hringiðan og hérna eru túristarnir þó segja megi að Íslendingar séu okkar stærsti viðskiptamannahópur. Það er mikil stemning hér í kringum alls konar viðburði, t.d. á menningarnótt, fyrsta vetrardag, kjöt- súpudaginn og á aðventunni. Skólavörðu- stígurinn er að verða svo skemmtilega menningarlegur. Hér eru gallerí, hönnuðir og handverksfólk allt í kring. Miðbærinn er svo sannarlega ekki dauður úr öllum æðum því hér er oft mikið líf og fjör,“ segja þær stöllur og bæta við að verslunarsamvinnan sé með ágætum. Þær setji bara pening í krús fyrir sameiginlegum rekstri. join@mbl.is Ólíkar listakonur saman í rekstri Morgunblaðið/Ásdís Listakonur og verslunareigendur Harpa María Gunnlaugsdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Helena Sólbrá Kristinsdóttir, Ólöf Sæmundsdóttir og Þóra Einarsdóttir. Leir Keramikverk eftir Guðbjörgu. Í litlu vinalegu rauðu húsi á miðjum Skólavörðustígnum er lítil og krúttleg búð í aðeins fjöru- tíu fermetra rými þar sem allt úir og grúir í list. Jóhanna Ingv- arsdóttir brá sér í heimsókn. Gagnsætt Glerlist eftir Ólöfu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.