Morgunblaðið - 06.12.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 25
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÍSLENZKIR karlar verða allra
karla elztir á Norðurlöndum, 79
ára, en konur á Álandseyjum ná
hæstum aldri, að meðaltali 84 ár-
um. Íslenzkar konur verða næst-
elztar, um 82 ára gamlar. Græn-
lendingar ná lægstum aldri
Norðurlandabúa.
Þetta kemur fram á vef Hag-
stovu Færeyja, en frétt þar byggir
á nýjustu útgáfu af Tölfræðiárbók
Norðurlanda.
75 til 80 ára
Athygli vekur hve lágum með-
alaldri Grænlendingar ná. Ný-
fæddur drengur á Grænlandi get-
ur aðeins reiknað með að ná 65
ára aldri en stúlkan stendur að-
eins betur. Þar er meðalaldurinn
70 ár. Jafnaldrar þeirra annars
staðar á Norðurlöndum geta búizt
við því að ná 75 ára og 80 ára
aldri. Skýringin á því er sú að lík-
ur á því að Grænlendingar deyi
ungir eru miklu meiri. Gert er ráð
fyrir að skýringin sé sjúkdómar og
slys en það kemur ekki fram í ár-
bókinni.
Ör hækkun meðalaldurs
Það sem einkennir þróun með-
alaldurs er nokkuð ör hækkun
hans bæði hjá konum og körlum.
En konurnar ná yfirleitt hærri
aldri en karlar, þó munurinn fari
minnkandi. Meðalaldur þeirra
hækkar hraðar en kvennanna. Þá
er athyglivert að sjá hve miklar
sveiflur eru á meðalaldri fólks á
Álandseyjum. Skýringin á því
kann að vera fámenni á eyjunum.
Danskar konur ekki langlífar
Þegar litið er á meðalaldur
karla og kvenna innan danska
ríkjasambandsins, kemur í ljós að
þar hafa Færeyingar vinninginn.
Þar er meðalaldur karla 77 ár og
kvenna 81 ár. Annars eru Fær-
eyingar í miðjunni á þessu skala,
þegar litið er á Norðurlöndin í
heild. Að Grænlandi undanskildu
lifa konur í Danmörku mun skem-
ur en konur annars staðar á Norð-
urlöndum, ná ekki 80 árum að
meðaltali.
Grænlendingar
verða ekki gamlir
) *
+,,
KKK(&#('&
M M M M M
M
M
M M M M M
M
M
!
"#$%
&
' ()*
&+
"
"
Íslenzkir karlmenn ná hæsta
meðalaldrinum á Norðurlöndum
Kvæðamannafélagið Iðunnheldur árlegan jólafund í
Gerðubergi föstudaginn 8.
desember kl. 20 að venju. Meðal
efnis á dagskrá fundarins er
umfjöllun Hilmars Arnar
Hilmarssonar allsherjargoða um jól
í heiðnum sið og kristnum og Smári
Ólason tónlistarfræðingur flytur
jólatengt efni. Þá mun Pétur
Björnsson flytja rímu og vitaskuld
gengur Skálda um salinn.
Vatnsnesingar skiluðu í Skáldu
tveimur sléttuböndum á síðasta
fundi. Agnar j. Levy, Hrísakoti, orti:
Gera náum Skáldu skil,
skreyta fáum línum,
bera þráum einhvern yl,
ykkar gáfum fínum.
Náðum hérna fínum fund,
færum þakkir blíðar,
kváðum núna stutta stund
stemmu tökum síðar.
Á síðasta fundi orti Jói í Stapa um
nýútkomna ljóðabók sína,
Axarsköft:
Undur gerast ýmis hér
ójá því er miður.
Ég er orðinn opinber
axarskaftasmiður.
Og Sigmundur Benediktsson flutti
ritdóm:
Jói fagurt mótar mál,
Myndrænt ljóðastefið.
Hlut af sínum hug og sál
hefur okkur gefið.
VÍSNAHORNIÐ
Jólafundur
Iðunnar
pebl@mbl.is
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum til landa utan Evrópu
er fimmtudagurinn
á jólakortum til Evrópu
er fimmtudagurinn
á jólakortum innanlands
er miðvikudagurinn
7.12.
14.12.
20.12.
www.postur.is
Komdu tímanlega
Finndu pósthúsið næst þér á
með jólakortin
Sjálflíman
di
og sjálflýs
andi
jólafrímer
ki
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
P
34
58
11
1/
06
STÓRVIRKI!
SAGA BISKUPS-
STÓLANNA
Fátt er jafngróið íslenskri sögu og
biskupsstólarnir báðir. Saga þeirra
er þjóðarsaga Íslendinga í nærfellt
þúsund ár. Þeir voru höfuðstaðir
trúarlífs landsmanna framan af
öldum en einnig menningar og
mennta og voru umsvifamiklir at-
vinnurekendur til sjávar og sveita.
Má segja að landinu hafi verið
stjórnað þaðan um margra alda
skeið og þar komu við sögu svip-
miklir biskupar og aðrir kirkjuhöfð-
ingjar.
SAGA BISKUPSSTÓLANNA - bók
sem allir Íslendingar verða að
lesa!