Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Egill Egilsonfæddist í Reykjavík 22. ágúst 1944. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut aðfara- nótt miðvikudagsins 29. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Valborg Júlíusdóttir, f. í Kaupmannahöfn ár- ið 1918, og Egill Eg- ilson, f. í Reykjavík árið 1917. Þau eru bæði látin. Sambýliskona Egils var Helga Marinósdóttir frá Skáney í Reyk- holtsdal, f. 9. maí 1946. Hún lést í Reykjavík 21. október 1982. Þau voru barnlaus. Bróðir Egils er Júlíus, f. 6. jan- úar 1938, kvæntur Margréti Helgu Halldórsdóttur og eiga þau þrjú börn. Systir Egils er Arndís, f. 3. apríl 1942, d. 14. júní 2005. Hún var gift Kjartani Berg- steinssyni og áttu þau fjögur börn en áður hafði Arndís eignast tvö börn. Egill vann við verslunarstörf hjá 1jósmynda- og gler- augnaversluninni Týli og herrafata- versluninni P og Ó. um árabil. Síðan starfaði hann hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík og fluttist þaðan til Tollstjóraembættisins þar sem hann starfaði til ársins 2005 en þá varð hann að láta af störfum sök- um veikinda. Útför Egils verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Frændi minn, Egill Egilson, er nú látinn langt fyrir aldur fram. Systir hans, Arndís, tveimur árum eldri, lést í júní sl. og dóu bæði úr illkynja sjúk- dómum. Er nú bara Júlíus bróðir þeirra lifandi, elstur þeirra systkina. Egill ólst upp hjá foreldrum sínum en síðar með móður sinni og systur eftir að foreldrar hans skildu. Hann var grannur og lipur hrokkinkollur sem ungur drengur, einlægur, kátur og glaðvær. Hann var gjarnan kallaður Plummi í nánustu fjölskyldu en fjöl- skylda okkar var mjög hugmyndarík á gælunöfn, kynslóð eftir kynslóð, oft ekkert lík skírnarnafni viðkomandi. Plummi lauk gagnfræðaprófi frá Hagaskóla og fór svo að vinna, fyrst hjá Týli í Austurstræti í nokkur ár, sem seldi gleraugu og ljósmyndavör- ur og þar lærði hann ýmis handbrögð og tækni varðandi gleraugnagerð, enda nákvæmur og samviskusamur. Hann fór síðan að vinna hjá herra- fataverslun P&Ó við Austurvöll þar sem snyrtimennska hans og glaðlegt og kurteislegt viðmót nutu sín. Þar tileinkaði hann sér látlausan en vand- aðan smekk í fatavali. Eftir að sú verslun hætti fór hann að vinna á Gjaldheimtunni í Reykjavík í Tryggvagötu og síðar hjá Tollstjóra- skrifstofunni þar til hann hætti störf- um vegna veikinda á árinu 2005. Plummi var trygglyndur og frænd- rækinn. Hann liðsinnti fjölskyldu sinni og var traustur og raungóður. Hann var sómakær og lagði metnað sinn í að standa vel í skilum, skulda engum neitt og var áreiðanlegur. Hann hafði ungur drengur mikinn áhuga á skák og gekk í Taflfélag Reykjavíkur. Þar eignaðist hann trygga vini og félaga sem reyndust honum vel, eins og aðrir bernskuvin- ir, ekki síst í veikindum hans. Árið 1970 kynntist hann Helgu Marinós- dóttur sem var fóstra og bjuggu þau saman frá árinu 1976. Þau eignuðust ekki börn, en bróðursonur Helgu, Sigurður, dvaldi stundum hjá þeim og höfðu þau mikla ánægju af því að ann- ast hann. Helga veiktist og dó 1982 og varð Plumma mikill harmdauði. Bjó hann einn eftir það en hefur haldið tryggð við Jakob bróður Helgu og fjölskyldu hans síðan. Móðir Plumma og faðir minn fædd- ust í Kaupmannahöfn þar sem faðir þeirra vann um tíma og ólust þar upp fyrstu æviár sín en fluttu til Íslands börn að aldri. Síðar fluttu þrjár syst- ur þeirra til Danmerkur, giftust þar dönskum mönnum og bjuggu lengst- an hluta ævinnar. Plummi hafði yndi af því að ferðast og fór gjarnan í heimsókn til frændfólksins í Dan- mörku en þar búa sumir afkomendur þeirra systra. Hélt hann góðu sam- bandi við frændfólk sitt og tók vel á móti því þegar það heimsótti Ísland, var gestrisinn og gekk jafnvel úr íbúð sinni til að rýma fyrir gestum. Hann var matmaður og naut þess að borða góðan mat, bæði heima og heiman. Fótbolti var honum hugleikinn og varð heimsmeistarakeppnin honum mikil dægrastytting í veikindum á sl. sumri. Hann fór meira að segja til Englands á fótboltaleik með vinum sínum fyrri hluta nóvember sl. þótt hann væri orðinn mjög veikur en naut ferðarinnar mikið. Það er stórt skarð höggvið í fjölskyldu okkar við lát Plumma og þeirra systkina beggja. Það þykir ekki hár aldur nú á dögum að verða rúmlega sextugur og finnst manni margt ólifað þeim sem deyja þá. Plummi var vænn og velviljaður maður. Hans verður saknað. Blessuð sé minning hans.Við systkinin, Guðrún, Hans, Elín, Júlíus og fjölskyldur okkar sendum Júlíusi og fjölskyldu hans og Arndísar og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Guðrún Agnarsdóttir. Góður drengur er fallinn frá á besta aldri eftir erfið veikindi. Egill vinur okkar var einstakur öð- lingur sem gaf en var oft tregur til að þiggja. Hann var hrókur alls fagn- aðar og hló hátt og innilega. Í kringum hann var aldrei nein lognmolla enda hafði hann sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og fylgdist vel með því sem var að ger- ast í þjóðfélaginu. Var þá oft ekkert verið að skafa utan af hlutunum ef því var að skipta og lét hann þá gjarnan hátt í sér heyra. Hann var vinmargur og þekkti ótrúlegan fjölda fólks enda mikið á ferðinni í miðbænum en þar starfaði hann alla tíð við verslunar- og skrif- stofustörf allt fram til ársins 2005 er hann varð að hætta störfum vegna veikinda sinna. Við undirrituð sem erum í fjölskyldu Egils höfum séð í kringum hann vinahóp sem hnýttur er slíkum vináttuböndum að aðdáun sætir en vinirnir hafa haldið hópinn allt frá barnæsku og unglingsárum. Orð fá ekki lýst aðdáun okkar á þeim drengskap og kærleika sem þessir félagar hafa sýnt honum í hvívetna. Egill var mikill áhugamaður um knattspyrnu og var nýkominn frá London af stórleik ársins ásamt vin- um sínum er hann varð að leggjast á spítala í baráttuna við krabbameinið sem reyndist hans síðasta. Hann var ákveðinn í að vinna þessa orustu því hann ætlaði fyrst á jólahlaðborð með vinnufélögunum og síðan til Kaup- mannahafnar með æskuvinunum í stutta heimsókn fyrir jól eins og hann hafði svo oft gert á þessum tíma árs. Hann hafði alltaf fyrir sér ákveðin markmið að stefna að og hlakka til. Egill var í mjög ástríkri sambúð með Helgu Marinósdóttur sem lést langt um aldur fram árið 1982 sem varð honum mikill missir. En lífið hélt áfram og hann naut þess sér- staklega að umgangast ungviðið í fjölskyldunum sem dáði hann enda óspar á hrós og hvatningu þeim til handa í leik og starfi. Við erum einstaklega þakklát Agli fyrir þá hlýju og gleði sem hann gaf okkur, börnum okkar og barnabörn- um í gegnum tíðina og ljóst að hans verður mikið saknað og lengi. Nú kveðjum við og segjum Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Snorri og Þórunn. Hjartkær föðurbróðir okkar, Plummi, er látinn eftir erfið veikindi. Hann tók veikindum sínum af miklu æðruleysi, meira jafnaðargeði en hægt er að ímynda sér að altítt sé undir slíkum kringumstæðum. Að lík- indum hefur honum sjálfum fyrstum orðið fyllilega ljóst hvert stefndi eftir að hann greindist með illvígan sjúk- dóm, en aldrei var á honum að finna biturleika yfir orðnum hlut. Þrátt fyrir að hafa verið jarðbund- inn og raunveruleikatengdur ber ekki svo að skilja að Plummi hafi með öllu verið niðurnjörvaður í hugsun, síður en svo. Hann hafði til að bera ríka kímnigáfu og var hrókur alls fagnað- ar á fjölskyldusamkundum, enda fé- lagslyndur, þótt lengst af okkar til- veru hafi hann búið einn. Plummi var mikill matgæðingur, hafði unun af því að borða góðan mat og vel af honum. Okkur frændunum bauð hann stundum í svokölluð „ham- mapartí“ þar sem hamborgarar voru framreiddir og var þá ekki verið að skera þá við nögl. Hamborgari hjá honum var það vel útilátinn að yfir- leitt varð að borða sig lóðrétt niður úr honum heldur en lárétt í gegnum hann. Átti hann sér enda það orða- tiltæki við slík tækifæri, að „ét meðan ég þoli, segir boli“. Plummi átti vanda til og hafði yndi af að sækja heim hinar helstu vest- rænu heimsborgir, njóta þar lífsins, skoða sig um, já, bara einfaldlega vera til á sinn hátt. Harmur var að Plumma kveðinn þegar sambýliskona hans til nokk- urra ára, Helga Marinósdóttir, lést úr meini því sem átti eftir að reynast sjálfum honum um megn að sigrast á nú hartnær 25 árum síðar. Þótt ung hefðum við systkinin þá verið að ár- um, fundum við glöggt fyrir þeim missi sem Plummi varð þá fyrir, þótt borið hafi hann harm sinn í hljóði. Það er með miklum trega sem við kveðjum frænda okkar og vin, hann Plumma. Þó er það í þeirri fullvissu að hann hvíli nú í góðum höndum al- mættisins þar sem fundum okkar mun að endingu bera saman aftur. Guð blessi minningu þína. Halldór, Egill og Elín Guðríður. Hinn 29. nóvember síðastliðinn lést Egill Egilson sem búinn er að vera stór póstur í mínu lífi í rúm 30 ár. Okkar kynni hófust þegar Egill og systir mín, Helga Marinósdóttir, rugluðu saman reytum og hófu síðar sambúð á Kaplaskjólsvegi 39 árið 1976. Þeirra sambúð varði ekki nema í sex ár því árið 1982 lést Helga langt fyrir aldur fram úr krabbameini. Það voru Agli þung spor sem aldrei gleymdust. Egill hélt heimili á Kaplaskjólsveg- inum til dauðadags. Agli og Helgu varð ekki barna auð- ið en tóku þess í stað ástfóstri við elsta son okkar hjóna, Sigurð Val, sem var augasteinn þeirra og naut ómældrar athygli. Oft á tíðum var maður ekki viss hvor var pabbinn eða frændinn. Egill var vanafastur og eftir að Helga lést héldust áfram tryggða- bönd við fjölskylduna. Hann leit reglulega við og spjallaði yfir kaffi- bolla eða grautarskál svo ekki sé minnst á hátíðis- og merkisdaga þar sem hann var oftast fyrstur á svæðið og hrókur alls fagnaðar. Egill hafði ávallt ákveðnar skoðan- ir á hlutunum og lét það berlega í ljós og átti oft hnyttin tilsvör sem munu lifa í minningunni. Egill var borgabarn í húð og hár sem ólst upp í Vesturbænum og vann alla sína tíð við hin ýmsu störf í mið- borg Reykjavíkur. Týli, Austur- stræti, Herradeild P.Ó., Gjaldheimt- an og Tollurinn nutu hans starfskrafta þar sem mikil nákvæmni og heiðarleiki voru hans einkenni sem margir gætu lært af. Egill var mikill áhugamaður um skák, ásamt því að vera liðtækur briddsspilari en fótboltinn átti samt huga hans og hjarta og það því ekki úr vegi að hans lokautanlandsferð var einmitt á stórleik í London í október síðastliðnum. Í 23 ár hefur fjölskyldan notið sam- vista hans á aðfangadagskvöld, en í ár er hætt við tómleika. Enginn Egill með bingókúlur, rúsínur, lakkrís og stórgjafir. Ég kveð mág minn og vin til margra ára með söknuði og þakklæti og vona að þú hittir Helgu okkar hin- um megin. Jakob Marinósson. Elsku Egill. Það er alltaf erfitt að kveðja og einkum þá sem hverfa af braut á besta aldri, aðeins 62 ára og sérstaklega þar sem þú varst stór hluti af framtíðaráformum. Mann ór- aði ekki fyrir að þú hyrfir svo skyndi- lega. Þú hefur verið mér til taks allt frá því ég fæddist og þrátt fyrir að Helga heitin hafi kvatt okkur á sorg- legan hátt fyrir 24 árum einkenndu ávallt traust vinabönd samlíf okkar. Í æsku naut ég ávallt þess að vera sá litli sem dekrað var við og ég minn- ist heimsókna þinna á hverjum fimmtudegi þar sem oftar en ekki var eitthvert góðgæti eða annar glaðn- ingur með í för. Þetta var rútína sem stóð í fjölda ára og ég veit að við bið- um þess báðir í ofvæni að þú mættir á svæðið. Ef þú varst ekki mættur á réttum tíma var ég vís til þess að hringja og reka á eftir þér og síma- númerið þitt var það fyrsta sem ég kunni að hringja í. Jóla- og afmæl- isgjafir voru heldur aldrei af skornum skammti og eftir þessum merkisdög- um beið ég með óþreyju því stærstu og merkilegustu pakkarnir voru allt- af frá þér. Þú varst mér alltaf til taks og ég gat hringt í þig hvenær sem er og beðið um aðstoð af einhverju tagi. Það var líka þér að þakka eða kenna að ég fór að halda með Liver- pool í enska boltanum því einhverra hluta vegna tók ég það þannig að þú héldir með þeim og hvað átti ég að halda þegar maður fékk allan Liver- pool-skrúðann um hver jól, mörg ár í röð þegar þú komst úr þinni árlegu haustferð til Englands. En mörgum árum seinna sagðistu svo halda með Man. United. Nú seinni ár hefur Dagur Logi son- ur minn tekið við því hlutverki sem ég gegndi á hans aldri og hann á svo sannarlega eftir að sakna hláturs þíns og athyglinnar sem þú veittir honum. Það er margt sem lifir í minning- unni og þín verður sárt saknað þar sem margar breytingar verða á lífi okkar með þessari skyndilegu brott- för þinni. Til dæmis verða jólin ekki eins þar sem þú varst alltaf hjá okkur á aðfangadagskvöld og heimsókn okkar í kirkjugarðinn var ómissandi hluti af þeirri hátíð. Nú er það okkar viðhalda þeirri hefð. Elsku Egill, ég kveð þig með mikl- um söknuði og ég trúi því að þú sért á góðum stað og að þið Helga hafið sameinast á ný. Ég vil votta nánustu aðstandend- um alla mína samúð um leið og ég kveð yndislegan mann og vin. Hans verður sárt saknað. Kveðja. Sigurður Valur. Í dag kveð ég góðan vin, einn þann besta sem ég hef átt. Egill var mjög stór hluti af fjöl- skyldunni og var hann alltaf hjá okk- ur á aðfangadag. Það er erfitt að hugsa til þess, þar sem jólin eru fram- undan, að hann verði ekki hjá okkur. Jólin voru Agli mikill gleðitími en þá naut skipulagshæfni hans sem og ná- kvæmni einna mest við undirbúning. Það var mikill heiður að fá kynnast honum og njóta samvista hans. Sárt er að sjá á eftir svona góðum manni sem fór alltof fljótt. Minningarnar um hann eru marg- ar og mun ég geyma þær í hjarta mínu. Ég veit að Agli líður vel núna og eru hann og Helga frænka sam- einuð á ný. Ég votta öllum ættingjum og vin- um Egils samúð mína er ég kveð með þessari bæn: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Kveðja. Helga. Æskuvinur minn, Egill Egilson, er fallinn frá, langt um aldur fram. Egill var alinn upp á Melunum og þegar ég flutti á Grenimelinn, árið 1954, bjó á Reynimel, hinum megin við girð- inguna, hress og skemmtilegur strák- ur, á sama aldri. Þar var Egill kominn og tókst strax með okkur mikil vin- átta, sem haldist hefur síðan, án þess að nokkurn tímann bæri skugga á. Egill fór ungur að vinna fyrir sér, fyrst í Gleraugnaversluninni Týli, þar sem hann vann í fjöldamörg ár. Næsti vinnustaður var Herradeild P&Ó, þá Gjaldheimtan og loks Tollstjóraemb- ættið. Egill var vel liðinn á vinnustað þar sem heiðarleiki, nákvæmni og samviskusemi hans naut sín vel. Egill var mikið snyrtimenni sem ávallt passaði upp á að vera vel til fara. Hann var kátur og líflegur, með gamanyrði og smellnar athugasemdir á vörum. Egill var mikill vinur vinna sinna og bar umhyggju fyrir velferð þeirra. Hann hafði alltaf af þeim mikl- ar áhyggjur og var stöðugt að benda þeim á hvað betur mætti fara. Egill var mjög nákvæmur með alla hluti og skipulagði allt í smáatriðum með góð- um fyrirvara. Egill varð fyrir miklu áfalli þegar hann missti sambýliskonu sína, Helgu Marinósdóttur, úr krabba- meini fyrir tæpum aldarfjórungi. Hann jafnaði sig aldrei almennilega á því en gott samband hans við Jakob, bróður Helgu, og fjölskyldu hans, var Agli mikils virði. Börn Jakobs og Önnu voru sem hans eigin og hann var sömuleiðis alltaf góður við dætur undirritaðs. Eftir lát Helgu skipti Egill samverustundum á stórhátíðum með fjölskyldum Júlíusar, bróður síns, og Jakobs. Egill var alla tíð mikill KR-ingur þótt keppnisferillinn yrði ekki langur, veikur fótur olli því. Um tæpt 20 ára skeið spilaði vinahópurinn innanhús- fótbolta í KR-heimilinu á sunnudags- morgnum. Þar lét Egill ekki sitt eftir liggja og tók þátt í leiknum af lífi og sál. Samverustundirnar við sjónvarpið urðu margar þegar stórmót voru í gangi erlendis, heimsmeistara-, Evr- ópumót og meistaradeild Evrópu. Undirritaður og Egill fóru í tvær fótboltaferðir saman. Fyrri ferðin var til Englands 1966 til að horfa á heims- meistarakeppni. Síðari ferðin var til London fyrir sjö vikum til að horfa á stórleik Chelsea-Barcelona í Evrópu- keppni. Egill var þá orðinn fársjúkur en var alveg ótrúlega hress og dug- legur í ferðinni. Egill fór í hinsta sinn inn á spítala 20. nóvember sl. Örlögin höguðu því þannig að þann dag voru nákvæm- lega 30 ár liðin frá því að Egill og Helga fluttu inn í íbúðina við Kapla- skjólsveginn. Fyrir tæpum þremur árum bank- aði vágestur að dyrum hjá Agli, sá sami og lagði Helgu hans að velli. Baráttan var oft erfið og lauk henni aðfaranótt 29. nóvember sl. Það er stórt skarð höggvið í vina- hópinn og verður Egils sárt saknað. Ég votta Júlíusi, bróður Egils, og fjölskyldu hans, Jakobi og fjölskyldu, og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Ég þakka langa og trausta vináttu, fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar. Blessuð sé minning Egils og megi hann hvíla í friði. Bragi. Minn góði vinur Egill Egilson er látinn eftir rúmlega tveggja ára bar- áttu við erfiðan sjúkdóm. Vel man ég eftir því þegar ég hitti hann fyrst. Við bjuggum báðir á Reynimelnum en mörg hús voru samt á milli okkar. Einn daginn árið 1956 var ég ásamt öðrum í fimm aura harki sem þá var vinsæll leikur. Kom þá Egill aðvífandi og bauðst til að sýna okkur hvernig best væri að kasta peningunum. Síð- an liðu um það bil tvö til þrjú ár. Þá gekk ég í Taflfélag Reykjavíkur. Þar hitti ég Egil aftur, ásamt besta vini hans, sem var Bragi Kristjánsson. Upp úr þessu tókst með okkur öllum vinátta sem aldrei bar skugga á. Fljótlega bættust í hópinn Jörundur heitinn Hilmarsson og Karl Þor- steins. Nokkru síðar komu inn í þenn- an hóp Benedikt Þórðarson og Gunn- ar Antonsson. Oft var líka Harvey Georgsson með okkur í skákinni. Sameiginleg áhugamál voru skák, knattspyrna og brids. Mest var teflt Egill Egilson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.