Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 41 menning ALLS bárust 188 lög í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Tilkynnt var í gær í Útvarps- húsinu hvaða 24 lög komast áfram í keppninni. Lögin verða frumflutt á Rás 2 í vikunni áður en þau keppa í beinni útsendingu í Sjónvarpinu laugardagskvöldin 20. og 27. janúar og 3. febrúar. Þrjú lög komast áfram hvert kvöld í úrslitakeppnina 17. febrúar. Lagahöfundar eru: Bergsteinn Björgúlfsson, Bergþór Smári, Bryn- dís Sunna Valdimarsdóttir, Sigurjón Brink, Elvar Gottskálksson, Grétar Örvarsson, Kristján Grétarsson, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Ragn- heiður Eiríksdóttir, Hafsteinn Þór- ólfsson, Hljómsveitin Von, Ingi Gunnar Jóhannsson, Magnús Guð- mann Jónsson, Magnús Þór Sig- mundsson, Ómar Þ. Ragnarsson, Óskar Guðnason, Roland Hartwell, Sveinn Rúnar Sigurðsson, Torfi Ólafsson, Trausti Bjarnason og Þor- mar Ingimarsson. Textahöfundar eru: Bergsteinn Björgúlfsson, Bergþór Smári, Bryn- dís Sunna Valdimarsdóttir, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Hafsteinn Þór- ólfsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ingólfur Steinsson, Kristján Hreins- son, Magnús Guðmann Jónsson, Magnús Þór Sigmundsson, Ómar Þ. Ragnarsson, Ragnheiður Bjarna- dóttir, Ragnheiður Eiríksdóttir, Roland Hartwell og Þorkell Olgeirs- son. 188 lög bárust í forkeppnina Ljósmynd/RÚV Höfundarnir Höfundar þeirra laga og texta sem komast áfram í forkeppnina samankomnir í Útvarpshúsinu í gær. VERÐLAUNAHAFI Íslensku bjart- sýnisverðlaunanna 2006 er Hörður Áskelsson, orgelleikari og kór- stjóri. Verðlaunin, sem áður hétu Bjart- sýnisverðlaun Brøstes, voru afhent Herði í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, í gær af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís- lands, sem er verndari þeirra. Hörður fékk afhentan verðlauna- grip úr íslensku áli, en Alcan á Ís- landi er bakhjarl bjartsýnisverð- launanna, og eina milljón króna í verðlaunafé. Hörður Áskelsson fæddist á Ak- ureyri árið 1953 þar sem hann hóf tónlistarnám sjö ára að aldri. Hann nam orgelleik og tónmennta- kennslu við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan tón- menntakennaraprófi og burtfar- arprófi í orgelleik. Frá 1976 til 1981 stundaði Hörður framhalds- nám við Robert Schumann tónlist- arháskólann í Düsseldorf og lauk þaðan A-prófi í kirkjutónlist með besta vitnisburði árið 1981. Með kórum sínum hefur Hörður tekið þátt í mörgum tónlist- arhátíðum og unnið til verðlauna í alþjóðlegum samkeppnum. Hann hefur verið atkvæðamikill við kynningar á íslenskri kirkjutónlist og komið fram á tónlistarhátíðum heima og erlendis bæði sem org- elleikari og kórstjóri. Hann setti m.a. á laggirnar Kirkjulistahátíð og árið 1996 stofnaði hann kamm- erkórinn Schola cantorum. Hörður hefur kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla þjóðkirkj- unnar og á árunum 1985–1995 var hann lektor í litúrgískum söng- fræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands. Frá 1982 hefur Hörður verið org- anisti Hallgrímskirkju í Reykjavík og forgöngumaður í uppbyggingu listalífs þar. Hann stofnaði List- vinafélag og Mótettukór Hallgríms- kirkju árið 1982. Íslensku bjart- sýnisverðlaunin Morgunblaðið/ÞÖK Bjartsýnn Ólafur Ragnar Grímsson, forseta Íslands, afhenti Herði Áskelssyni Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Í þetta sinn er það kassi frá Vestmannaeyjum og Hafnarfirði, áður útkominn kassi frá Vopnafirði og Fljótsdalshéraði. Það er sama spilaborð fyrir allt landið en sérhannaður kassi með tilheyrandi spjöld. Spurningar og atburðir varða daglegt líf og nánasta umhverfi heima- fólks, öll helstu fyrirtæki og vinnustaði á svæðinu. Auk þess er að finna í spilinu um 200 ljósmyndir er tengjast viðfangsefni þess. Fáið ykkur eintak því það er marga tíma skemmtun. Átthagaspilið hentar fyrir stráka, stelpur, gellur, gæja, mömmur, pabba, ömmur, afa, frænkur, frændur, nágranna, vini... sem sagt fyrir alla ÁTTHAGASPILIÐ ER KOMIÐ MEÐ NÝJAN SPILAKASSA! Sölustaðir: Beint frá framleiðanda: Astrid á Vopnafirði, sími 473 1371, gsm 868 0696. Vestmannaeyjar: Krakkakot, Gallery Heimalist og Vöruval. Hafnarfjörður: Bókabúð Böðvars og Mambó. Reykjavík: Spilaverslun Magna. KYNNINGAR: Í HAFNARFIRÐI: Bókabúð Böðvars 5. des. kl. 12-16 og 15. des. kl. 12-17 Verslunarmiðstöðin Fjörður 6. des. 13-16 og 16. des. kl. 10-17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.