Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
RAGNHEIÐUR Gröndal hefur
sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar á
undanförnum árum, hún er marg-
verðlaunuð stúlkan og er sérlega
hæfileikarík. Hér er hún á ferðinni
með nýjustu plötu sína sem hún kall-
ar réttilega Þjóðlög. Á henni er að
mestu leyti að finna gömul íslensk
þjóðlög, í bland við önnur, við ljóð eft-
ir ekki ómerkari menn en t.d. Jónas
Hallgrímsson, Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi, Halldór Laxness og
Hallgrím Pétursson til þess að nefna
nokkra. Ragnheiður á sjálf lög og
texta á plötunni.
Ég held að Ragnheiður hafi farið
fram úr sjálfri sér við gerð þessarar
plötu. Hún hefur
aldrei sungið jafn-
vel og hún gerir
hér. Rödd hennar
er bæði full af
þjóðlegum styrk
eins og finna má í
rímnasöng en líka hefur hún sig á loft
með fíngerðum sálmasöng eins og
hún hafi með sér boðskap frá himn-
um. Kannski er þjóðerniskenndin að
tala en það er vegna þess að ís-
lenskari plötu hef ég ekki heyrt í
mörg ár. Jafnvel ekki síðan Björk gaf
út Homogenic. Útsetningarnar eru
kannski ekki frumlegar á sama hátt
og á Homogenic en það er þessi ein-
staka taug þjóðlegrar stemningar og
ekki síst virðingar, sem þær eiga
sameiginlega. Ætli það sé ekki þjóð-
ernisrómantíkin.
Það er fallegur hljómur blást-
urshljóðfæra sem fylgir söng Ragn-
heiðar í gegnum sum laganna. Þessi
sérkennilega blöndun tveggja hljóða
ómar eins og gömul saga í gegnum
þungan og tregafullan píanóleik
Ragnheiðar. Gott dæmi um þetta er
upphafslag plötunnar, „Gefðu mér
móðurmálið mitt“, við ljóð Hallgríms
Péturssonar. Strengjaútsetningarnar
eru ekki síðri. Þær iða undir yfirborð-
inu og bíða þess að fá að spretta upp
með sínum hægláta krafti. „Fram á
regnfjallaslóð“ er lýsandi fyrir þenn-
an sérstaka norræna stíl. Lagið er
líka sérlega vel raddað.
Tapan-tromma Mitko Popov fellur
vel að þessari þjóðlegu stemmningu
sem hér ræður ríkjum og það sama
má segja um allan hljóðfæraleik plöt-
unnar. Hann er kannski frekar dauð-
hreinsaður á köflum en það er sérlega
viðeigandi vegna þess hve langt
Ragnheiður gengur í því að nýta
röddina sína. Eins og áður sagði þá
hef ég aldrei áður heyrt hana syngja
eins og hún gerir á Þjóðlögum.
Stundum minnti hún mig örlítið á Ei-
vöru Pálsdóttur en sú hugmynd hvarf
jafnfljótt úr huga mér og hún birtist
vegna þess hve sér-íslenskur hljómur
tónlistarinnar er. Í því felast töfrar
þessarar plötu. Hún virðir sérstöðu
íslenskrar tónlistarhefðar án þess þó
að vera föst í viðjum hennar. Útsetn-
ingarnar leyfa lögunum að lifna við á
áður ókannaðan hátt á sama tíma og
þau halda sígildum eiginleikum sín-
um. Þjóðlög er án efa ein af bestu
plötum ársins.
Framúrskarandi
TÓNLIST
Geisladiskur
Geisladiskur Ragnheiðar Gröndal nefndur
Þjóðlög. Á honum eru ýmis íslensk þjóð-
lög, þrjú lög eftir Ragnheiði sjálfa auk
eins sænsks þjóðlags. Ljóðin eru bæði
þjóðvísur og eftir nokkur af helstu skáld-
um þjóðarinnar. Fram koma: Ragnheiður
Gröndal, söngur, raddir, píanó og útsetn-
ingar, Haukur Gröndal, klarinett, basset-
horn og útsetningar, Hugi Guðmundsson,
elektróník og útsetningar og fleiri. 12
Tónar gefa út.
Ragnheiður Gröndal – Þjóðlög Helga Þórey Jónsdóttir
Morgunblaðið/Eyþór
Þjóðlög Plata Ragnheiðar er ein af þeim bestu á árinu, að mati gagnrýnanda.
ÓFAGRA VERÖLD
Fös 29/12 kl. 20 Frumsýning UPPS
Fim 4/1 kl. 20 2. sýning Gul kort
Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort
Fim 18/1 kl. 20 4.sýning Græn kort
Fös 8/12 kl. 20 Lau 30/12 kl. 20
Fös 5/1 kl. 20 Lau 13/1 kl. 20
Lau 9/12 kl. 20 Lau 6/1 kl. 20
Fim 11/1 kl. 20 Sun 21/1 kl. 20
Fös 8/12 kl. 20 Fös 29/12 kl. 20
Lau 30/12 kl. 20 Lau 6/1 kl. 20
BLÓÐBRÚÐKAUP
Nemendaleikhúsið sýnir Blóðbrúðkaup
Í kvöld kl. 20 Fim 7/12 kl. 20
Fös 8/12 kl. 20 Miðaverð 1.500
SÖNGLIST NEMENDASÝNINGAR
Í dag kl. 17 Í kvöld kl. 20
BROT AF ÞVÍ BESTA
Fim 7/12 kl. 20
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum.
Jóladjass og upplestur í forsal Borgar-
leikhússins. Ókeypis aðgangur
Lau 9/12 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar
Sun 10/12 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20
Síðustu sýningar
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 10/12 kl. 14 Lau 30/12 kl.14
Sun 7/1 kl. 14 Sun 14/1 kl. 20
JÓLALEIKRITIÐ RÉTTA LEIÐIN
Barna og unglingaleikhúsið Borgarbörn
Í dag kl. 9:30 Fim 7/12 kl. 9:30
Fös 8/12 kl. 9:30 Lau 9/12 kl.. 13:00 UPPS
Lau 9/12 9/12 kl. 15:00
Sun 10/12 kl. 13:00 Sun 10/12 kl. 15:00
Mán 11/12 kl. 9:30 Þri 12/12 kl. 9:30
Mið 13/12 kl. 9:30 Fim 14/12 kl. 9:30
Fös 15/12 kl. 9:30 Lau 16/12 kl. 13:0
Lau 16/12 kl. 15:00 Sun 17/12 kl. 13:00
Sun 17/12 kl. 15:00
Miðaverð 500 virka daga og 1400 um helgar
SAN FRANCISCO BALLETTINN
Samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavíkur
og Borgarleikhússins.
Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20
Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14
Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14
Sun 20/5 kl. 20 Miðaverð 4.800
Stóra sviðið kl . 20:00
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00, sun. 21/1 kl. 14:00.
PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur.
Fös. 8/12 uppselt, lau. 9/12 uppselt. Aukasýning sun. 10/12 örfá sæti laus.
Allra síðasta sýning!
BAKKYNJUR eftir Evripídes
Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti
laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá
sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Mið. 6/12 kl. 9:45 örfá sæti laus og kl. 11:00 örfá sæti laus, lau. 9/12 kl. 13:00 uppselt,
kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, sun. 10/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og
kl. 16:00 uppselt, lau. 16/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, sun.
17/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00 uppselt, fös. 22/12 kl. 13:00
uppselt, lau. 23/12 kl. 13:00 örfá sæti laus.
JÓLABÓNUS
Jóladagskrá Hugleiks fim. 7/12 kl. 21:00.
Miðasala í síma 551 2525 og á www. hugleikur.is.
Leikhúsloftið
Leikhúskjal larinn
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 örfá sæti laus, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl . 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus.
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is
Gjafakort fyrir alla fjölskylduna!
Sýnt í Iðnó
Fim. örfá 7.12
Fös. örfá 8.12
Lau. örfá 9.12
Lau. 13/1
Fös. 19/1
Lau. 20/1
Miðasala virka
daga frá kl. 11-16
og 2 klst. fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is og
www.midi.is
Sýningar kl. 20
Síðustu sýningar
fyrir jól!
Herra Kolbert
„Frábær skemmtun“ – „drepfyndið“ – „gríðarlega áhrifamikil sýning“
Fös 8. des kl. 19 örfá sæti laus
Lau 9.des kl. 19 Hátíðarsýn. örfá sæti laus
- Umræður með höfundi að lokinni sýningu
Fös. 15.des. kl.19 Örfá sæti laus
Lau. 16.des. kl.19 Nokkur sæti laus
Síðustu sýningar!
Ekki við hæfi barna. Tryggðu þér miða núna
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau 9. des kl. 14 örfá sæti laus
Lau 9. des kl. 15 UPPSELT
Lau 16. des kl. 14 Nokkur sæti laus
Lau 30. des kl. 14 Í sölu núna
Síðustu sýningar!
Styttri sýningartími – lækkað miðaverð!
www.leikfelag.is
4 600 200
Gjafakort
- góð
jólagjöf
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
FLAGARI Í FRAMSÓKN - The Rake’s Progress STRAVINSKY
Frumsýning fös. 9. feb. kl. 20 - nokkur sæti laus
2. sýn. sun 11. feb. kl. 20 – 3. sýn. fös. 16. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 18. feb. kl. 20
GJAFAKORT Í ÓPERUNA – jólagjöf sem gleður! Verð við allra hæfi.
IGOR STRAVINSKY
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
FÁAR SÝNINGAR - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
ATH! ALLIR 25 ÁRA OG YNGRI FÁ 50% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI Í SAL
Fimmtudagur 7. desember kl. 20
Sálmar 1...Sálmar jólanna
Sigurður Flosason saxófónleikari og Gunnar Gunnarsson
orgelleikari flytja spuna um þekkt jólalög.
Miðaverð kr. 1.500, nemendur kr. 500.
Sunnudagur 10. desember kl. 17
Sálmar 2...Jólin með Bach
Kammerkórinn Schola cantorum, stjórnandi Hörður Áskelsson.
Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari.
Fluttir verða þekktir aðventu- og jólasálmar og sálmforleikir eftir J.S.Bach.
Miðaverð kr. 1.500, nemendur kr. 500.
Miðasala í Hallgrímskirkju s. 510 1000
Jólatónlistarhátíð
Hallgrímskirkju
3.-31. des. 2006 á 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju
ÞÝSKI listmálarinn Tomma Abts
hlaut hin umdeildu Turner-
myndlistarverðlaun fyrir árið 2006.
Það var listakonan Yoko Ono sem
tilkynnti hver hefði hlotið verðlaun-
in á Tate-listasafninu í Lundúnum í
fyrradag. Verðlaunaupphæð Abts
nemur 25.000 pundum.
Að venju var mikið deilt um valið
á sigurvegaranum og þeim sem til-
nefndir voru í ár, en það voru
myndlistarmennirnir Phil Collins,
Mark Titchner og Rebecca Warren
sem kepptu við Abts um verðlaunin.
Dómnefndin telur verk Abts þess
eðlis að flókið eðli þeirra komi æ
betur í ljós því lengur sem menn
virði þau fyrir sér.
Verk Abts eru alltaf af stærðinni
48 x 38 sm og teljast til abstrakt-
listar. Abts segir þessa stærð hafa
höfðað það vel til sín að hún hafi
ákveðið að halda sig við hana.
Hún segist ekki ákveða fyrirfram
hvernig verkin eigi að vera heldur
komi það í ljós eftir því sem meira
er málað á strigann.
Turner-verðlaunin voru fyrst af-
hent árið 1984. Verðlaunahafinn
verður að vera búsettur á Bret-
landi, undir fimmtugu og hafa unn-
ið verk sem þykja framúrskarandi.
Damien Hirst hlaut verðlaunin
1995 og varð heimsfrægur í kjölfar-
ið líkt og Tracey Emin sem hlaut
þau fjórum árum síðar.
Reuters
Turner Verðlaunahafinn Tomma
Abts við eitt verka sinna.
Turner-
verðlaunin