Morgunblaðið - 06.12.2006, Page 51

Morgunblaðið - 06.12.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 51 edda.is Metsölulisti Mbl. 30. nóv. 4. LJÓÐ Óttar M. Norðfjörð, DV „Mögnuð og óvenjuleg“ „Einar Már Guðmundsson glímir við breyttan heim í óvæntri og áleitinni ljóðabók sem er enn ein sönnunin fyrir því að hér er ekkert meðalskáld á ferð.“ Ármann Jakobsson, kistan.is „Kitlandi skemmtileg ... kostir bókarinnar eru djörf einlægni, fyndni og óvæntar hugmyndir. Einar Már er yfirburðahöfundur.“ Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, Víðsjá „Ég stytti mér leið framhjá dauðanum er býsna margslungin bók, hún hristir upp í heimsmyndinni og fær lesandann oft og tíðum til að sjá margþvæld og hversdagsleg hugtök í öðru ljósi … mögnuð og óvenjuleg bók.“ Þorgerður E. Sigurðardóttir, bokmenntir.is „Það er meiri lífsháski í þessari ljóðabók en fyrri bókum Einars ... vegferð í gegnum heim nútímamannsins ... Í þessari bók eru meiri átök en í síðustu verkum hans og ekki laust við að slegnir séu nokkrir blústónar. Lestur hennar er skemmtileg glíma við frjótt ímyndunarafl.“ Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. Einar Már Guðmundsson Kvartett Kristjönu Stefánsdótturer með útgáfutónleika á Café Rósenberg í kvöld, 6. desember, kl. 22. Tilefni tónleikanna er að geisla- diskurinn Ég verð heima um jólin með kvartettinum er kominn út í nýrri útgáfu, en hann kom fyrst út fyrir áratug og seldist þá fljótlega upp. Hér er um að ræða djasstónlist með jólasniði. Kvartettinn skipa Kristjana Stef- ánsdóttir, söngur, Vignir Þór Stef- ánsson, píanó, Smári Kristjánsson, kontrabassi, og Gunnar Jónsson, trommur. Sérstakur gestur á Rósenberg í kvöld verður stórsöngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson.    Hljómsveitin Royal Fortune kem-ur fram, ásamt trúbadornum Helga Val, á Dillon við Laugaveg í kvöld kl. 21. Síðast þegar listamennirnir komu saman á Dillon mætti Harrison Ford á staðinn og saup með þeim viskí og verður því fróðlegt að sjá hver mætir þetta skiptið. Ókeypis er inn.    Upplýsingafulltrúi norsku kon-ungshallarinnar segir ekkert hæft í því að Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa hafi beðið blaðamann í Ósló að finna fyrir sig nýja vini. „Það hefur enginn tekið að sér að velja einkavini fyrir þau,“ sagði fulltrúinn, Astrid Versto, við frétta- vef norsku blaðamannasamtakanna, Jornalisten.no. Þegar Versto var spurð hvort þetta þýddi að Hege Duckert, umsjón- armaður fréttaskýringa á Dagbladet, hefði ekki hjálpað hjónunum að finna nýja vini svaraði hún: „Það velur eng- inn vini fyrir þau.“ Frá þessu greinir fréttavefur Aft- enposten. Það var helsti keppinautur Dagbla- det, VG, sem greindi frá því að Duc- kert hefði lagt sitt af mörkum til að fjölga í vinahópi Hákons og Mette- Marit. Hefur Duckert reyndar sætt gagnrýni, einkum frá öðrum blaða- mönnum, fyrir að lenda í hagsmuna- árekstrum með því að vingast of náið við kóngafólkið. Komst þetta í hámæli þegar upp- skátt varð að Mette-Marit var meðal gesta í brúðkaupi Duckerts, sem ekk- ert var fjallað um á síðum Dagbladet, á þeim forsendum að um væri að ræða „einkasamkvæmi“. Þó er blaðið duglegt við að greina í máli og mynd- um frá veislum fræga fólksins, eink- um konungsfjölskyldunnar. Blaðið var harðlega gagnrýnt og sakað um tvöfeldni. Einnig hafa Há- kon og Mette-Marit legið undir grun um að vingast við áhrifafólk í fjöl- miðlastétt í því skyni að tryggja sér vinsamlega umfjöllun. Á lista fjölmiðla yfir vini hjónanna hefur m.a. getið að líta nafn Terje Svabo, fréttamanns á NRK, sem hef- ur um árabil verið sambýlismaður upplýsingafulltrúa hallarinnar, Ast- rid Versto. Það var einmitt þessi sami Svabo sem var kvaddur til þegar við- tal var tekið við Hákon vorið 2000 er hann flutti norsku þjóðinni þær frétt- ir að hann ætti sér kærustu sem héti Mette-Marit.    Svartur kjóll, sem leikkonan Aud-rey Hepburn klæddist í kvik- myndinni Breakfast At Tiffany’s seldist fyrir 410 þúsund pund, jafn- virði nærri 56 milljóna króna, á upp- boði hjá Christie’s í Lundúnum í dag. Er þetta sex sinnum hærra verð en áætlað var. Andköf heyrðust í uppboðssalnum þegar tilboð fóru að berast í kjólinn og brutust út fagnaðarlæti þegar kjóllinn var seldur hæstbjóðanda, sem bauð gegnum síma. Hepburn klæddist kjólnum, sem hannaður var hjá Givenchy, í upp- hafsatriði kvikmyndarinnar. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.