Morgunblaðið - 06.12.2006, Qupperneq 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA 5–10 m/s,
hvassara NV og A
til. Bjart f. sunnan
og vestan en
stöku él allra syðst. Él eða
slydduél NA-lands, úrkomu-
minna NV til. » 8
Heitast Kaldast
2°C -5°C
aktu enga áhættu! eldu í jólamatinng i
FRELSUN litarins er heiti sýningar sem opnuð verður í
Listasafni Íslands 15. desember nk. Þar verða sýnd 52
verk eftir marga af fremstu listamönnum Frakka á 20.
öldinni, þ.á m. Henri Matisse og Auguste Renoir.
Verkin á sýningunni eru jafnt menningarsögulega
og fjárhagslega ákaflega verðmæt. Þau eru tryggð fyr-
ir tæpa tvo milljarða króna.
Sérstakur fylgdarmaður frá Fagurlistasafninu í
Bordeaux fylgir sýningunni hvert skref og er við-
staddur þegar verkin eru tekin úr umbúðunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Tryggð fyrir tæpa tvo milljarða
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
INNFLUTT fóður hækkaði ný-
verið um 4–6% og áburður hækkar
um 17–20% að því er innflytjendur
hafa tilkynnt. Þessar hækkanir
koma illa niður á mjólkurframleið-
endum því mjólkuriðnaðurinn hef-
ur lýst því yfir að mjólkurverð
verði óbreytt til ársloka 2007.
Þórólfur Sveinsson, formaður
Landssambands kúabænda (LK),
sagði að sér sýndist áburðarhækk-
unin geta numið nálægt 80 aurum
á hvern lítra mjólkur eða um 120
þúsund krónum á meðalbú. Kjarn-
fóðurshækkunin nú gæti numið
allt að 50 aurum á hvern lítra til
viðbótar eða um 75 þúsund krón-
um á meðalbú.
„Það er grafalvarlegt og kemur
beint niður á kjörum okkar ef
rekstrarvörur hækka á sama tíma
og við erum í verðstöðvun,“ sagði
Þórólfur. Sem kunnugt er lýsti
mjólkuriðnaðurinn því yfir, í
tengslum við aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til lækkunar matarverðs,
að mjólkurverð yrði óbreytt til
ársloka 2007.
Þórólfur sagði bændur ekki
hafa mörg úrræði í þessari stöðu
vegna verðstöðvunarinnar. Varð-
andi áburðarkaup væri helst til
ráða að leita hagstæðustu inn-
kaupa. Innflytjendur kjarnfóðurs
fylgdust nokkuð að og ekki margt
úrræða á því sviði. „Sjálfsagt verð-
ur þetta til að knýja enn frekar á
að það sem eftir er af fóðurtollum
á innfluttum fóðurblöndum verði
fellt niður. Það breytir engu um
framleiðslukostnað á þeim blönd-
um sem við erum að kaupa, en
kynni að skapa aðhald á markaði,“
sagði Þórólfur.
LK birtir á heimasíðu sinni
fréttatilkynningu frá Fóðurblönd-
unni hf. þar sem greint er frá
4–6% hækkun á öllu framleiddu
fóðri. Lífland tilkynnti svipaða
hækkun á sínu fóðri í gær. Í til-
kynningu Fóðurblöndunnar segir
ljóst að á yfirstandandi uppskeru-
ári muni fóður halda áfram að
hækka erlendis. Maís, bygg og
hveiti hafi hækkað um 24–37% er-
lendis frá síðustu verðbreytingu
fyrirtækisins. Þá hafi eina inn-
lenda hráefnið, fiskimjöl, hækkað
um 30% á sama tíma sem hafi áhrif
á þær tegundir sem það er notað í.
Innflutt kjarnfóður og
áburður hækka í verði
Í HNOTSKURN
» Maís, bygg og hveiti hefurhækkað um 24–37% er-
lendis vegna aukinnar eftir-
spurnar.
» Eftirspurn hefur m.a.aukist vegna aukinnar
framleiðslu á eldsneyti (bio-
diesel) úr þessum hráefnum.
» Bandarísk yfirvöld krefj-ast þess að 8% eldsneytis
séu úr þessum hráefnum.
Morgunblaðið/RAX
Skerðing Hækkanir á aðföngum til kúabúa eru alvarlegar og koma
niður á kjörum bænda, að sögn formanns Landssambands kúabænda.
Kúabændur hafa fá
úrræði vegna verð-
stöðvunar á mjólk
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
EKKI er langt í að hægt verði að inn-
heimta gjald fyrir veganotkun með
akstursmælingum með GPS-tækni í
stað þess að leggja skatta á bensín-
og olíunotkun, segir Árni M. Mathie-
sen fjármálaráðherra.
„Ég held að það sé ekki langt í
þann tíma að það sé hægt að beita
þessari aðferðafræði, og við eigum að
vera tilbúin með því að hefja undir-
búning og fara í þetta verkefni sem
fyrst,“ segir Árni.
„Staðan gæti þannig orðið sú, ein-
hvern tíma í framtíðinni, að það skipti
ekki máli hver raunverulega á vegi
landsins.“
Árni segir það sína skoðun að tví-
breikka eigi Suðurlandsveg hið
fyrsta, jafnvel þótt það kosti meira en
svokölluð 2+1-útfærsla. Kostnaður
við það geti numið fimm til sjö millj-
örðum og verkið gæti tekið þrjú til
fjögur ár.
Spurður um fjármögnun segir
Árni: „Ég held að við eigum að skoða
það mjög vandlega hvort ekki er
hægt að fara einkaframtaksleið í
þessu. Ég held að í því gæti falist hag-
kvæmni fyrir okkur.“
Tvöföldun þarf í umhverfismat
Ef tvöfalda á Suðurlandsveg í stað
þess að leggja þar 2+1-veg þarf
framkvæmdin að fara í umhverfis-
mat, sem myndi tefja verkið um
marga mánuði, segir Jón Rögnvalds-
son vegamálastjóri. Hann segir það
sína skoðun að heldur ætti að breikka
veginn í 2+1 og aðskilja akstursstefn-
ur, en eyða því fé sem hefði farið í að
tvíbreikka veginn í að auka öryggi
annars staðar á þjóðvegum landsins.
Hann segir að ekki náist miklu
betri árangur í fækkun slysa með því
að tvíbreikka veginn í stað þess að
láta 2+1-veg duga. Kostnaðurinn við
tvíbreikkun sé um 70% meiri, en hlut-
fallslega fáist litlu meira öryggi fyrir
þá auknu fjármuni.
Tugmilljóna kostnaður | 6
GPS-tækni í
stað olíugjalds
Skoða á einkaframkvæmd við tvöföld-
un Suðurlandsvegar, segir ráðherra
EIÐUR Smári Guðjohnsen átti drjúgan þátt í
að tryggja Evrópumeisturum Barcelona sæti í
16 liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu í gærkvöldi. Eiður skoraði síðara
mark Börsunga þegar þeir lögðu þýska liðið
Werder Bremen, 2:0, á Nou Camp í Barcelona
og var þetta níunda mark hans fyrir Katalón-
íuliðið á leiktíðinni. | Íþróttir
Reuters
Níunda mark
Eiðs Smára