Morgunblaðið - 08.12.2006, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
LÆKNIR? JÁ? ÉG KOM
ÞESSU EKKI
UPP
EKKI
FREKAR EN
KJÚKLINGUR
AÐ REYNA AÐ
JÓRTRA
ÉG FÓRNAÐI
MIKLU TIL
ÞESS AÐ KOMA
OG SPILA Í
LEIKNUM
ÉG ÁTTI AÐ VERA AÐ ÝTA
SYSTUR MINNI UM HVERFIÐ
Í KERRUNNI SINNI...
NÚNA ER MAMMA MÍN
BRJÁLUÐ ÚT Í MIG!
EN ÉG GERÐI ÞAÐ FYRIR
LIÐIÐ! SKILUR ÞÚ ÞAÐ? ÉG
FÓRNAÐI MÉR FYRIR LIÐIÐ!
SKILUR ÞÚ ÞAÐ LÍSA! SKILUR
ÞÚ ÞAÐ? ER ÞAÐ?
HVAÐ ÆTLI
FUGLARNIR ÞARNA
UPPI SÉU AÐ HUGSA
ÉG TRÚI EKKI
AÐ ÉG HAFI
EYÐILAGT KÍKINN
HANS PABBA! VIÐ
ERUM
DAUÐADÆMDIR
VIÐ? HVAÐ VAR PABBI AÐ
HUGSA ÞEGAR HANN LEYFÐI
MÉR AÐ FÁ HANN? HANN
HEFÐI ÁTT AÐ VITA AÐ ÉG
MUNDI BRJÓTA HANN! ÞETTA
ER ALLT HONUM AÐ KENNA!
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA? ÞÚ
GETUR
ALLTAF
PRÓFAÐ AÐ
LJÚGA
ÞAÐ ER RÉTT!
EN ÉG VERÐ AÐ
FINNA GÓÐA
LYGI. ÉG GET
EKKI NOTAÐ
HVAÐ SEM ER
HVERT ERT ÞÚ
AÐ FARA?
GETTU HRÓLFUR FER ALLTAF NIÐUR Í „GETTU“
ÞEGAR HANN LANGAR Í BJÓR
ÞAÐ ER EKKI ÞÚ...
HELDUR ÞESSI
ASNALEGA TÓNLIST
SEM KEMUR Í HVERT
EINASTA SKIPTI SEM
ÉG OPNA DÓS AF
SPÍNATI
AULINN
ER
KOMINN
AFTUR
ÉG SKAL
REYNA AÐ
TALA VIÐ
HANN, ÉG ER
GÓÐ Í SVONA
LÖGUÐU
HÆ! ÞEGAR ÞÚ VÖKVAR
GARÐINN ÞINN, VÆRIR ÞÚ
NOKKUÐ TIL Í AÐ SJÁ TIL
ÞESS AÐ ÞAÐ SPRAUTIST
EKKI VATN Á PALLINN OKKAR
ÉG
SKAL
REYNA
EN ÉG HEF RÉTT TIL
ÞESS AÐ VÖKVA GARÐINN
MINN EINS OG ÉG VIL
EN SÁ
HÁLFVITI
ÉG GET EKKI FARIÐ
FRÁ NEW YORK BARA
SÍ SVONA!
EN ÞETTA
ER BARA Á
MEÐAN
TÖKUR ERU
Í GANGI
OG ÞÚ ERT
HVORT SEM ER
HÆTTUR HJÁ
BLAÐINU
EN ÉG ER EKKI
HÆTTUR AÐ VERA
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN
OG HANN
Á HEIMA
HÉR!
Blásið verður til hinnar ár-legu Tónlistar- og jóla-veislu í Reykjaskóla dag-ana 8. og 9. desember.
Veislustjóri er Gísli Einarsson
fréttamaður: „Þetta er fimmta árið í
röð sem veislan er haldin og vex
hróður hennar með hverju skiptinu,“
segir Gísli sem er þaulvanur í hlut-
verki veislustjóra. „Reykjaskóli
myndar mjög skemmtilega umgjörð
utan um fögnuðinn: þetta er gamall
héraðsskóli og verða myndarlegar
byggingarnar niðri við sjóinn í
Hrútafirðinum mjög jólalegar núna
þegar búið er að skreyta þær upp í
rjáfur.“
Tónlistin í fyrirúmi
Auk þess að bjóða upp á hefð-
bundið jólahlaðborð er mikið lagt
upp úr góðri tónlistardagskrá í
Reykjaskóla: „Maturinn svíkur að
sjálfsögðu ekki, en tónlistardagskrá-
in skipar óvenjustóran sess. Að
þessu sinni eru það úrvalstónlistar-
mennirnir í Mannakornum sem sjá
um tónlistina, og vita menn að hverju
þeir ganga þegar þeir snillingar stíga
á svið,“ segir Gísli, en síðustu jól var
tónlistin í höndum Ragnheiðar Grön-
dal.
Sérstakir heiðursgestir í Tónlist-
ar- og jólaveislu Reykjaskóla eru
Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunn-
lenska fréttablaðsins, 8. desember,
og Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra 9. desember: „Ég veit ekki
hvort á að kalla þetta þróunarhjálp,
að við skulum flytja inn framsóknar-
menn af Suðurlandi,“ gantast Gísli.
„En Guðni og Bjarni eru með
skemmtilegri framsóknarmönnum
og miklir snillingar, með fullri virð-
ingu fyrir öllum hinum. Þeir eru
stórkostlega skemmtilegir sögu-
menn og bind ég miklar vonir við
þessa gleðimenn.“
Hálfgert „trend“
Með hverju árinu aukast vinsældir
tónlistar- og jólaveislunnar: „Allt ár-
ið um kring er fólk að segja mér
hversu vel það skemmti sér í veisl-
unni. Í upphafi voru það einkum
Húnvetningar og nágrannar sem
komu til veislunnar, en nú er algengt
að fólk geri sér ferð frá höfuðborg-
arsvæðinu til að taka þátt í gleðinni.
Það má segja að þetta endi með að
verða hálfgert „trend“,“ gantast
Gísli, en boðið er upp á ágætis gist-
ingu í Reykjaskóla: „Þá er ágætt að
vakna í Hrútafirði eftir veisluhöld
næturinnar, og t.d. bregða sér í
prýðisgóða sundlaug staðarins eða
líta í gjafavörubúðir á Hvammstanga
þar sem oft má finna fágæta hluti og
skemmtilegt handverk heimamanna
sem ekki er hægt að kaupa í stór-
mörkuðunum í borginni.“
Skólahald hófst að Reykjum í
Hrútafirði 1931 með stofnun Héraðs-
skólans að Reykjum. Stóð skóla-
starfið nær óslitið til ársins 1988 að
undanskildum árunum 1940 til 1943
þegar breskt setulið hafði aðsetur að
Reykjum. Þar eru nú starfræktar
skólabúðir á veturna fyrir nemendur
grunnskóla.
Miðar á Tónlistar- og jólaveisluna
í Reykjaskóla eru óðum að seljast
upp. Nánari upplýsingar má fá í síma
451 0000.
Veisla | Jólatónar og jólamatur í Reykjaskóla
í Hrútafirði 8. og 9. desember.
Tónlistar- og
jólaveisla
Gísli Einarsson
fæddist í Lundi í
Lundarreykjadal
í Borgarfirði
1967. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Samvinnuskól-
anum á Bifröst
árið 1988. Gísli
starfaði um langt
skeið við verslunarstörf og sömu-
leiðis við landbúnað. Síðustu 10 árin
hefur Gísli starfað við fjölmiðla,
fyrst í héraðsfréttablaðamennsku
og síðar útvarpi og sjónvarpi. Gísli
er margreyndur veislustjóri. Eigin-
kona Gísla er Guðrún Hilda Pálma-
dóttir skrifstofumaður og eiga þau
þrjú börn.
LeikarinnTobey
Maguire hefur
íhugað að láta
staðar numið
við gerð þriðju
kvikmyndar-
innar um
Kóngulóar-
manninn og
taka ekki þátt í
gerð þeirrar
fjórðu, en sú þriðja verður frumsýnd
á næsta ári.
„Spider-Man 3 gæti verið góður
staður til að hætta á,“ segir leikarinn
sem er ekki samningsbundinn að
leika í fleiri myndum um hann Lóa.
Hann segir þó ekki útilokað að hann
taki þátt í gerð þeirrar fjórðu, hins-
vegar séu líkurnar meiri heldur en
minni á að sú næsta verði sú síðasta í
búningi veggjaprílarans.
Maguire, sem er 31 árs, langar
gjarnan til að takast á við meira
krefjandi hlutverki og þá vill hann
einnig verja meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni. Hann varð faðir í fyrsta
skipti í síðasta mánuði þegar unn-
usta hans, skartgripahönnuðurinn
Jennifer Meyer, eignaðist stúlkuna
Ruby Jane.
Maguire er þó ekki eini leikarinn
sem hefur íhugað að kveðja
Kóngulóarmanninn því Kirsten
Dunst, sem leikur kærustu Lóa,
Mary Jane Watson, segist einnig
vera spennt fyrir því að róa á önnur
mið og taka þátt í nýjum verkefnum.
Fólk folk@mbl.is
Bandarísku forsetahjónin, Lauraog George W. Bush, héldu ný-
lega móttöku í Hvíta húsinu í Wash-
ington, sem venjulega er ekki í frá-
sögur færandi. Laura var við þetta
tækifæri klædd í dýrindis módelkjól,
sem metinn er á rúma hálfa milljón
króna. Forsetafrúnni brá síðan held-
ur í brún þegar þrjár aðrar konur úr
hópi gesta mættu í samkvæmið
klæddar í eins kjól.
Húsfreyjan brá skjótt við, skrapp
afsíðis og skipti um föt en hinar kon-
urnar þrjár urðu að sætta sig við
hornaugu gestanna um kvöldið. Að
sögn fréttamiðla var Lauru þó ekki
meira brugðið en svo, að nokkrum
dögum síðar, þegar forsetahjónin
létu taka af sér mynd fyrir jólakort,
fór hún í kjólinn góða og geta les-
endur því virt hann fyrir sér á með-
fylgjandi mynd.