Morgunblaðið - 10.12.2006, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
mjög megi kenna því um loftslags-
breytingar og gróðurhúsaáhrif og
hver sé hlutur mannsins í þróuninni
og hver náttúrunnar. Fáir vilja þó
frýja manninn af allri sök og þess
vegna standi það okkur sjálfum
næst að grípa í taumana, hafa hemil
á skemmdarverkunum og helzt snúa
þróuninni við.
Út hafa komið margar skýrslur
vísindamanna um áhrif þess að ekk-
ert verði gert og ganga þær allar út
á það að mannkynið fljóti þá sofandi
að feigðarósi og hann sé hreint ekki
langt undan, reyndar segja sumir
hann í góðu sjónmáli. Þangað til að
honum kemur hlýnar jörðin, sjórinn
hitnar og súrnar, og hætta steðjar
að vistkerfum um láð og lög og ekki
bara lífinu, heldur líka landinu og
sjónum. Í skýrslu Umhverfisstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna um áhrif
loftslagsbreytinga, sem kynnt var í
tengslum við loftslagsráðstefnuna í
Naíróbí, segir m.a. að í hlýnun lofts-
lags með tilheyrandi hækkun sjáv-
armáls, flóðum og öðrum breyt-
ingum í náttúrunni felist ógn við
framtíð mannsins.
Og hver skýrslan rekur aðra. Nú
síðast sendi Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna
frá sér skýrslu um að húsdýrahald
valdi meiri gróðurhúsaáhrifum en
bílar og önnur flutningatæki og að
auki valdi greinin spjöllum á jarð-
vegi og vatni. Það er því í mörg
horn að líta.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, tók svo djúpt í árinni að segja
loftslagsbreytingar þegar ógna friði
og öryggi og krafðist þess að ráða-
menn sýndu mengun og loftslags-
breytingum ekki minni áhuga en
styrjöldum og tilraunum til að koma
í veg fyrir útbreiðslu gereyðing-
arvopna. Hann benti í leiðinni á að
þegar litið væri til baráttunnar gegn
loftslagsbreytingum byggi heim-
urinn við „skelfilegan skort á for-
ystu“.
Og umhverfisráðherra Íslands,
Jónína Bjartmarz, segir það skoðun
íslenzkra stjórnvalda að hefja þurfi
yfirgripsmikla endurskoðun á
Kýótósáttmálanum og að allar þjóð-
ir heims verði að grípa til hertra að-
gerða.
En það er þetta með orðin og
efndirnar. Það virðist nokkuð ljóst
að okkur ætli að ganga erfiðlega að
koma böndum á loftslagsbreytingar
af mannavöldum og að til áfram-
haldandi breytinga mun koma.
Þeirra gætir fyrst þar sem fyrir er
heitt og þurrt og þá til hins verra,
eins og við sjáum nú þegar á því að
fólk er farið að flýja slík heimkynni
sín vegna ótíðar. Slíku raski geta
fylgt hættur á átökum og ófriði.
Annars staðar, eins og á okkar slóð-
um, geta breytingar byrjað til hins
betra og menn íhuga nú þau tæki-
færi sem geta falizt í breyttu um-
hverfi á norðurslóðum.
Sannfærandi eða bull
En sem sagði eru ekki allir á einu
máli um þróun mála. Menn skiptast
í lið með og á móti. Margt er það af
einlægni og góðum hug en hags-
munir segja líka til sín þar sem ann-
ars staðar. Þannig voru olíufélög og
bílaframleiðendur sögð styðja af-
neitun á hættunni frá loftslags-
breytingunum leynt og ljóst, en nú
hafa bílaframleiðendur að minnsta
kosti vent kvæði sínu í kross og sett
upp rannsóknastofur sem eiga að
tryggja þeim áframhaldandi tilveru
með nýrri tækni. Vísindamenn eru
ekki frekar en aðrir á einu máli.
Sumir segja sterkustu varnaðar-
orðin sízt ofsögð, en aðrir malda í
móinn og segja fullmikið áróðurs-
bragð hafa lengi verið á umfjöllun
um gróðurhúsaáhrifin. Halldór I.
Elíasson prófessor talar hreint út
um kjánaskapinn í skýrslu Stern og
telur sjónarmið um gróðurhúsa-
áhrifin hæpin. Hann segir það bull
að tala um gróðurhúsategundir eins
og lofttegundir, sem myndi hvel um
jörðina. Katrín Ólafsdóttir hag-
fræðilektor segir hins vegar Stern-
skýrsluna mjög yfirgripsmikla og
sannfærandi.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasa-
fræðingur segir okkur ekki geta
tekið þá áhættu að horfa aðgerða-
laus fram hjá þætti mannsins í lofts-
lagsbreytingunum og Tómas Jó-
hannesson jarðeðlisfræðingur segir
mennina valda breytingum í gróð-
urhúsalofttegundum sem þegar eru
orðnar jafn miklar og náttúrulegar
sveiflur milli ísalda og hlýskeiða. Ef
breytingarnar verða margfalt meiri
er ljóst að afleiðingarnar verða
miklar.
Ný tækni og ný orka
En hvar liggur lausnin? Eigum
við að hverfa aftur til lífshátta
pabba og mömmu eða jafnvel afa og
ömmu? Engan finnum við sem mæl-
ir með slíkri lausn. Auðvitað getur
hver og einn lagt sitt af mörkum
með góðu lífslagi og sú viðleitni,
sem felst í Kýótóbókuninni er góðra
gjalda verð. En lausnin liggur í
nýrri tækni og nýjum orkugjöfum.
Enn er þó of litlu fjármagni varið til
rannsókna á þeim. Þeir sem hvetja
til meiri rannsókna segja að hættan
hljóti að herða á mönnum.
Rannsóknir á náttúrunni þarf líka
að auka. Þótt menn telji sig vita
margt á því sviði er fleira okkur hul-
ið. Ný sannindi líta stöðugt dagsins
ljós. Rannsóknir sýna að áta í Suð-
ur-Kyrrahafi hefur staðbundin áhrif
á skýjamyndun þar og nýlega birt-
ust í brezku vísindatímariti nið-
urstöður rannsókna, sem sýna að
Heklugosið 2000 olli staðbundinni
þynningu ósonlagsins, sem varði í
um tvær vikur og jafnaði sig að lok-
um. Við þurfum því stöðugt að vera
á tánum.
Við getum lappað upp á
Eyðing ósonlagsins skelfdi okkur
í eina tíð. Nú virðist það standa í
stað. Sumir segja það órækan vitn-
isburð þess, að hlutirnir lagist bara
af sjálfu sér. En Þór Jakobsson veð-
urfræðingur er á öðru máli. Hann
segir reynsluna varðandi ósónlagið
sýna okkur „að við getum lappað
upp á það sem við höfum skemmt.
En við þurfum að grípa til aðgerða.
Gegn eyðingu ósonlagsins brugðust
menn við með því meðal annars að
banna úðabrúsa. Þessar aðgerðir
hafa leitt til þess, að eyðingin virðist
hætt.“
Stern-skýrslan brýtur í blað
Kræfustu andstæðingar brezku
ríkisstjórnarinnar segja reyndar að
á bak við fyrirheit hennar um að
taka Stern-skýrsluna alvarlega búi
ekki áhugi á umhverfismálum held-
ur nýrri skattheimtu.
Hvað sem því líður má segja að
skýrslan brjóti í blað. Trausti Jóns-
son veðurfræðingur sagði í samtali
við Morgunblaðið að þótt fátt í
skýrslunni kæmi á óvart hvað veð-
urfræði áhrærði sýndi hún að um-
ræðan um loftslagsbreytingar væri
nú komin yfir á svið hagfræði og
stjórnmála.
Reuters
Á myrkum morgni Reykfylltur rennur dagurinn upp yfir byggingaverka-
menn í Cape Town, Suður-Afríku, sem trónir á toppi þeirra landa sem
framleiða hvað mest af gróðurhúsalofttegundum.
Loftslagsbreytingar af manna völdum
S
tern-skýrslan er mjög yfirgripsmikil og
um leið sannfærandi. Ég hef áður séð
hagfræðilegar úttektir á efnahags-
legum áhrifum loftslagsbreytinga, en
þessi sker sig frá þeim vegna þess hversu víða
Stern leitar fanga,“ segir Katrín Ólafsdóttir,
lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík,
sem hefur kynnt sér skýrslu hagfræðingsins
Nicholas Stern um efnahagsleg áhrif loftslags-
breytinga.
Í skýrslunni, sem Stern vann fyrir bresku
ríkisstjórnina, kemur fram að verði ekki gerð-
ar tafarlausar ráðstafanir til að stemma stigu
við loftslagsbreytingum í heiminum geti það
orðið til þess að heimsframleiðslan minnki um
5–20% á ári til frambúðar.
Katrín segir að efnahagsspám fylgi alltaf
mikil óvissa, hvað þá þegar reynt sé að horfa
öld fram í tímann. „Öllum tölum verður þess
vegna að taka með fyrirvara, en hins vegar eru
þau hlutföll, sem Stern setur fram, miklu
áhugaverðari. Hann áætlar hvað það muni
kosta mannkynið ef það heldur að sér höndum
og gerir enga tilraun til að draga úr áhrifum
loftslagsbreytinga. Á móti áætlar hann hver
lágmarks tilkostnaðurinn er við að stöðva
aukningu í losun á gróðurhúsalofttegundum.
Niðurstaðan er sú að kostnaðurinn við að
stöðva aukninguna og byrja strax er mun
minni en kostnaðurinn við að aðhafast ekkert.
Þetta er stóri boðskapurinn í skýrslunni.“
Katrín segir að 5–20% samdráttur í heims-
framleiðslu á ári séu gríðarlega háar tölur.
„Auðvitað er þetta bara vísbending, enda getur
margt gerst á 100-200 árum, sem við getum
ekki séð fyrir í dag. Hins vegar gerir Stern
ágæta grein fyrir forsendum útreikninga sinna
og mér finnst alls ekki hægt að hunsa niður-
stöður hans, eins og sumir vilja gera. Stern
færir góð rök fyrir því hverjar efnahagslegar
afleiðingar gætu orðið, ef við grípum ekki til
neinna aðgerða vegna loftslagsbreytinga.“
Áhrif misþung eftir svæðum
Í skýrslunni er einnig fjallað sérstaklega
um hve misþung áhrif loftslagsbreytinga
verða eftir heimshlutum. „Hlýnun loftslagsins
þarf ekki að vera neikvæð fyrir Norðurlöndin,
svo dæmi sé tekið. Ræktun verður til dæmis
auðveldari í hlýrra loftslagi og ferða-
mannastraumur eykst. Hins vegar eru svo
svæði sem verða afskaplega illa úti, eins og
Afríka og Asía, lönd sem núna eru skrefi á eft-
ir Vesturlöndum. Þarna er auðvitað fólgin
hættan á að ekkert verði gert, því afleiðing-
arnar verða minnstar í þeim heimshlutum
sem ráða yfir mesta fjármagninu. Aðgerðir
verða að ná til heimsins alls, en auðvitað blasa
við endalaus vandamál í framkvæmdinni. Þar
nægir að benda á hversu erfiðlega hefur
gengið að ná almennri sátt um Kyoto bók-
unina, um að minnka losun gróðurhúsa-
lofttegunda.“
Það blasir við, að þau ríki sem nú leggja
mesta áherslu á vöxt efnahagslífins, s.s. Kína,
munu seint sætta sig við að snúa af þeirri
braut, með vísan til þess að mengun í heim-
inum sé þegar of mikil, segir Katrín. „Vest-
rænar þjóðir bera mesta ábyrgð á losun gróð-
urhúsalofttegunda og aðrar þjóðir vilja
auðvitað fá sín tækifæri til betra lífs. Það er
því ekkert sjálfsagt mál að samstaða náist um
aðgerðir. Stern bendir líka á, að jafnvel þótt
við hættum að auka útblásturinn núna, þá
mun magn gróðurhúsalofttegunda halda
áfram að aukast á næstu árum. Ástandið á því
eftir að versna, áður en það batnar, jafnvel
þótt við snúum alveg við blaðinu núna.“
Hamfarir og heilbrigði
Stern segir að mannkynið þurfi að greiða
umhverfisskatta eða setja útblásturskvóta til
að afstýra efnahagsöngþveiti sem yrði á við
kreppuna miklu á 4. áratug 20. aldar. Aðrir
ganga lengra, t.d. sagði
umhverfisráðherra Bret-
lands að loftslagsbreyt-
ingar gætu kostað meira
en kreppan mikla og
heimsstyrjaldirnar tvær á
síðustu öld samanlagt.
„Þetta eru auðvitað svaka-
lega tölur,“ segir Katrín.
„Í úttektum af þessu tagi
hefur yfirleitt verið miðað
við almennan kostnað, en Stern gengur
lengra, því hann segir að loftslagsbreytingum
fylgi aukin hætta á miklum hamförum á borð
við fellibylinn Katrínu, sem færði New Or-
leans á kaf. Hann tekur kostnað vegna slíkra
atburða inn í útreikninga sína, sem mér finnst
skynsamlegt, en vissulega hækkar það töl-
urnar til muna. Hann gengur svo enn lengra
og tekur með ýmsan kostnað vegna áhrifa á
almennt heilbrigði og fleira af því tagi. Þegar
sá kostnaður er tekinn með er Stern kominn í
efri mörk útreikninga sinna, þ.e. að samdrátt-
urinn verði 20%.“
Þótt miðað sé við lægri mörk Stern, um 5%
samdrátt á ári, þá er sá samdráttur tilfinn-
anlegur. „Ef það kostar okkur aðeins 1% af
landsframleiðslu á ári að snúa þróuninni við,
þá finnst manni blasa við að það verði gert, til
að forðast verri niðurstöðu. Það eru helstu
skilaboð skýrslunnar.“
Nýir möguleikar
Í skýrslunni er m.a. nefnt að Ísland sé að
verða einn stærsti álframleiðandi heims, mið-
að við fólksfjölda og álframleiðslan byggist á
endurnýjanlegri orku. Þá nefnir Stern einnig
vetnisframleiðslu á Íslandi. „Hann setur þetta
hlutlaust fram og leggur t.d. ekkert mat á það
hversu mikil vetnisframleiðsla verði í framtíð-
inni.“
Stern sér ekki bara kostnað og erfiðleika
samfara því að snúa þróuninni við. Hagkerfi
heims myndu halda áfram að vaxa um leið og
umskiptin myndu skapa spennandi við-
skiptatækifæri með því að mynda eftirspurn
eftir nýrri framleiðslu og fjármálaþjónustu.
„Viðskipti með mengunarkvóta eru einn þess-
ara nýju möguleika og nýr markaður myndi
skapast fyrir tækni sem leiðir til minni los-
unar gróðurhúsalofttegunda. Ég ímynda mér
að hann hafi reiknað þessa jákvæðu þætti á
móti kostnaðinum, þótt ekki sé hægt að lesa
það beint út úr skýrslunni, enda erfitt að spá
um hag okkar af tækni sem enn hefur ekki
orðið að raunveruleika.“
Katrín segir að viðbrögð hagfræðinga við
skýrslunni séu almennt mjög góð. Hún þyki
mikilvægt innlegg í umræðuna um efnahags-
leg áhrif loftslagsbreytinga. „Stern setur
fram hugmyndir að ýmsum lausnum, t.d. að
huga að mengunarkvótum, leggja á umhverf-
isskatta og styðja við tækniþróun, til dæmis
með því að eyrnamerkja slíka skatta svo þeir
renni til rannsóknar- og þróunarstarfsemi.
Hann leggur áherslu á að engin ein töfralausn
sé til, heldur þurfi að sækja fram á öllum víg-
stöðvum.“
Niðurstaða Katrínar Ólafsdóttur er að
skýrsla Stern sé bæði mjög yfirgripsmikil og
sannfærandi. „Skýrslan er vel unnin og það er
auðvitað mikill gæðastimpill á henni að
Nicholas Stern hafi unnið hana. Hann er ekki
sérfræðingur á sviði loftslagsbreytinga, en er
afar virtur hagfræðingur, bæði fyrir fræði-
störf sín og fyrir stefnumótun sem fyrrver-
andi aðalhagfræðingur Alþjóðabankans. Í
skýrslunni eru ræddar allar hliðar málsins og
svo virðist sem Stern hafi kynnt sér flestar
fyrri rannsóknir um þetta efni. Reyndar hlýt-
ur heill her manns að hafa unnið að skýrsl-
unni, þótt hún sé sett fram í nafni Stern. Sem
dæmi má nefna að heimildaskrá hvers kafla
er oft upp á margar blaðsíður.“
Katrín Ólafsdóttir
ÓDÝRARA AÐ GRÍPA Í TAUMANA EN GERA EKKERT
Í HNOTSKURN
»Menn greinir á umástæður loftslagsbreyt-
inga og afleiðingar en fleiri
telja aðgerða þörf, þar sem
við höfum alla vega ekki
efni á því að taka neina
áhættu.
»Framkvæmdastjóri SÞkrefst þess að ráðamenn
sýni takmörkunum á lofts-
lagsbreytingum af manna-
völdum ekki minni áhuga en
styrjöldum og takmörkunum
á útbreiðslu gereyðing-
arvopna.
»Kýótó-bókunin um að-gerðir gegn útstreymi
gróðurhúsalofttegunda renn-
ur út 2012 og samkomulagið
frá Naíróbí í síðasta mánuði
felur í sér að menn verði þá
tilbúnir með framhaldið til
2017.
»Afleiðinga loftslagsbreyt-inga gætir til hins verra
þar sem heitt er og þurrt en
á norðurslóðum fara mál á
annan veg, þótt hvítabjörn-
inn eigi þegar bágt vegna
hlýnunar.