Morgunblaðið - 10.12.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 21
veidihornid.is
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 • Síðumúli 8 - Sími 568 8410
Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni
veidihornid.is
Simms Classic Guide
Gore-tex jakki.
Vatnsheldur jakki með góðri
útöndun. Merkið tryggir
gæðin. Jólatilboð
aðeins 26.995.
Sage FLi fluguveiðipakki.
9 feta, 4ra hluta stöng með lífstíðarábyrgð.
Sage hjól með góðri diskabremsu.
Vönduð flotlína ásamt baklínu. Hólkur fylgir.
Pakkaverð aðeins 39.900.-
Sage Launch fluguveiðipakki.
9 feta, 4ra hluta stöng með lífstíðarábyrgð.
Sage hjól með góðri diskabremsu.
Vönduð flotlína ásamt baklínu. Hólkur fylgir.
Pakkaverð aðeins 29.900.-
Scierra Avalanche fluguveiðipakki.
9 feta, 3ja hluta stöng. Scierra fluguhjól með
góðri diskabremsu. Vönduð flotlína ásamt
baklínu fylgir ásamt kastkennslu á DVD diski.
Mest keypti fluguveiðipakkinn í Veiðihorninu.
Veiðikortið 2007, veiðileyfi í 29
vatnasvæði fylgir ókeypis með”
Jólatilboð aðeins 21.900.-
Scierra Avalanche
fluguveiðipakki. 12,6 eða 14 feta
tvíhenda. Öflugt Scierra tvíhenduhjól
með góðri bremsu. Scierra skotlína
og kastkennsla á DVD með
Henrik Mortensen. Vinsælasti
tvíhendupakkinn á markaðnum.
Jólatilboð aðeins 37.900.-
Ron Thompson Travel Force
4ra hluta flugustöng í hólk ásamt
Scierra IC3 fluguhjóli með góðri
diskabremsu. Hjólinu fylgja 3
aukaspólur og hjólataska.
Jólatilboð aðeins 12.995.-
Scierra Norðurá jakki.
Vatnsheldur jakki með
góðri útöndun. Áralöng
frábær reynsla á Íslandi.
Jólatilboð 22.995.-
Scierra Aquatex jakki.
Vatnsheldur jakki með
góðri útöndun.
Jólatilboð 15.995.-
DAM veiðijakki.
Vatnsheldur jakki
með útöndun.
Jólatilboð 12.995.-
Danvise.
Vinsælasta öngulheldan
á Íslandi árum saman.
Jólatilboð aðeins 5.895.-
(plata á mynd er aukabúnaður)
Stonefly hnýtingatöskur.
Vinsælar og vel útfærðar töskur
fyrir fluguhnýtara þar sem gert
er ráð fyrir öllu hnýtingaefni og
verkfærum á einum stað.
Verð aðeins 16.995.-
Ron Thompson reykofnar.
Vinsælir reykofnar.
Veislumáltíð á fáum mínútum.
Verð aðeins frá 5.995.-
Einnig reyksag á 595.
Ron Thompson nestis/bak-
poki. Þessi hefur notið mikilla
vinsælda í veiðitúrinn, tjaldvagn-
inn eða útileguna. Diskar, glös
og hnífapör ásamt fylgihlutum
fyrir 4. Einangrað hólf með mat-
arílátum á baki pokans. Frá-
bært verð eða aðeins 4.995.-
Dr. Slick verkfærasett.
Vönduð bandarísk verkfærasett
í handhægu boxi.
Verð aðeins frá 4.495.-
Ron Thompson vöðlutask-
an vinsæla. Vatnsheldur
botn. Lok sem loftar. Burðar-
handfang og axlaról. Motta til
að standa á þegar farið er í og
úr. Verð aðeins 3.995.-
Scierra hjólataska.
Vandaðar og vinsælar töskur.
Verð frá 3.995.-
Scierra Explorer veiðitaska.
Einhver vinsælasta taskan í
Veiðihorninu. Sterk taska með
vatnsheldum botni.
Burðarhandföng, axlaról.
Verð frá 6.995.-
Erfitt að velja?
Gefðu gjafabréf í stærstu veiðiverslun landsins. Þar er úrvalið
Þú sérð jólatilboðin líka á veidihornid.is
- Opið alla daga - Síðumúli 8Hafnarstræti 5
Nefnd er sérstaklega deila Palest-
ínumanna og Ísraela. Í þessari
nálgun kunna því möguleikar að
vera fólgnir reynist áhugi fyrir
hendi í Washington.
Einn skýrsluhöfunda, Robert
Gates, hefur nú verið skipaður
varnarmálaráðherra og lýsti hann
yfir því í vikunni er hann kom fyrir
utanríkismálanefnd öldungadeild-
arinnar að Bandaríkjamenn væru
ekki á sigurbraut í Írak. Afdrátt-
arlaust er tekið undir þetta sjón-
armið í skýrslunni. Í henni er og
hvatt til víðtækrar pólitískrar sam-
stöðu um málefni Íraks því ella sé
utanríkisstefna Bandaríkstjórnar
„dæmd til að mistakast“. Boðskap-
ur Bakers og Gates er um flest í
samræmi við hefðbundna utanrík-
isstefnu Repúblíkanaflokksins sem
tekur hagsmuni fram yfir hugsjón-
ir.
Liðin vika var George W. Bush
erfið. Með afsögn Boltons hefur
hann misst öflugan málsvara þeirr-
ar herskáu stefnu sem Bandaríkja-
menn hafa á undanliðnum árum
fylgt á alþjóðavettvangi.
Nokkur upplausn sýnist ríkja í
þeim herbúðum forsetans sem fást
við utanríkismál. Enn hefur ekki
verið fyllt skarð Roberts Zoellicks,
sem sagði af sér í júlímánuði sem
næstráðandi Condoleezzu Rice ut-
anríkisráðherra og ráðgjafi hennar,
Philip Zelikow, hefur kunngjört að
hann hyggist hætta störfum nú um
áramótin.
Frumkvæðið horfið
í málefnum Íraks?
Með John Bolton er horfinn á
braut umdeildasti sendiherra
Bandaríkjanna í sögu Sameinuðu
þjóðanna. Nýju-íhaldsmennirnir
svonefndu og aðrir málsvarar þess
að Bandaríkin þurfi ekki á liðstyrk
annarra þjóða að halda hafa orðið
fyrir höggi. Í Íraksskýrslunni ræð-
ur „raunsæi“ fyrri tíma í utanríkis-
og öryggismálum för en stefnu
nýju-íhaldsmannanna sem mótað
hafa framgöngu Bush-stjórnarinn-
ar er hafnað. Sú skoðun nýtur nú
vaxandi fylgis vestra að stefna ein-
hliða ákvarðana fái ekki staðist,
Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að
halda í Írak, Afganistan og í við-
skiptum við stjórnvöld í Norður-
Kóreu og Íran.
Í ljósi þessa má túlka afsögn
Johns Boltons og skýrslu nefnd-
arinnar um Írak á þann veg að
Bush forseta gefist nú tækifæri til
að sanna að hugur fylgi máli þegar
hann boðar samstarf við nýja þing-
meirihlutann. Hætt er við að
skýrsla þingnefndarinnar móti alla
umræðu í Bandaríkjunum um
framtíð Íraks og stefnu forsetans
þar. Bush mun því þurfa á öllum
skriðþunga sínum að halda ætli
hann sér að halda frumkvæðinu í
málefnum Íraks. Það mun reynast
honum ærið verkefni.
er opnara og velmegun er greinileg
þótt hún nái síður en svo til allra
þrepa þjóðfélagsins. Aðgangur að al-
þjóðlegum fjölmiðlum er óheftur.
Hins vegar eru mörg merki um að
Rússlandi verði ekki lýðræðisríki á
vestræna vísu í bráð og Pútín hefur
beitt ýmsum brögðum til að draga til
sín völd á undanförnum misserum.
Dregið hefur verið úr valdi héraðs-
stjóra og þingið hefur verið væng-
stýft. Erlendum samtökum, sem
hafa gagnrýnt einræðistilhneigingar
í Rússlandi, hefur verið gert erfitt
fyrir og nú á að gera slíkt hið sama
við innlend frjáls félagasamtök.
Fjölmiðlum er ekki lokað, vinir Pút-
íns kaupa þá einfaldlega. Ljós-
vakamiðlarnir hafa verið sérlega
leiðitamir og nú er seilst til áhrifa í
prentmiðlum því að fjölmiðlahluti
Gasprom er að taka yfir dagblöðin
Ísvestíu og Komsomolsköju Prövdu,
sem er útbreiddasta blað Rússlands.
Gagnrýnendur Pútíns velta fyrir sér
hvort í hinu nýja Rússlandi sé orðið
jafn hættulegt að malda í móinn og
það var á dögum Sovétríkjanna.
»Hann telur hins vegar að Pútín geti
ekki hamið tiltekin öfl í
kringum sig.
’Við hyggjum að ef afstaðaÍslands til hvalveiða breytist
ekki muni eftirspurn eftir ís-
lenskum vörum í verslunum
okkar minnka og við verðum
tilneyddir til að leita eftir
vörum frá öðrum löndum.‘Úr bréfi Kenneths Mayers, forstjóra
austurstrandardeildar bandarísku
verslunarkeðjunnar Whole Foods Mar-
ket, t i l Einars K. Guðfinnssonar sjáv-
arútvegsráðherra.
’Þarna eru menningarverð-mæti sem eru að molna nið-
ur.‘Hreinn Valdimarsson, tæknimaður á
Ríkisútvarpinu, um gamlar upptökur út-
varpsins sem aðeins eru t i l sem við-
kvæm frumeintök.
’Ég treysti engum í umferðinni.‘Hrönn Veronika Runólfsdóttir sem lenti
í sumar í hörðum árekstri á Suðurlands-
vegi ásamt eiginmanni sínum, dóttur og
ófæddum syni.
’Á meðan þetta er svonaverða áfram slys.‘Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rann-
sóknarnefndar umferðarslysa, um
ástand Suðurlandsvegar í kjölfar bana-
slyss sem þar varð um l iðna helgi .
’Fyrir nokkrum árum þegarvið upplifðum átök í Líbanon
og á öðrum stöðum kölluðum
við þau borgarstyrjöld.‘Þetta er miklu verra Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, um
ástandið í Írak.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Einar Falur
Kynning Boðið upp á íslenskt lambakjöt í New York.