Morgunblaðið - 10.12.2006, Page 30
daglegt líf
30 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Víkingagarður Langhús eru yfirleitt miðjan í víkingagörðum Norðurlanda. Þau eru endurgerð húsa frá víkingaöld, meðal annars húsa sem fundist hafa í gömlu hringvirkjunum í Danmörku. Myndin er
Gestirnir lifa sig
inn í fortíðina í
víkingagörðum
Víkingagarðar og lifandi sögusöfn eru fjölsóttir
ferðamannastaðir á Norðurlöndunum og hér á
landi eru nokkur slík verkefni í undirbúningi.
Helgi Bjarnason heimsótti nokkra víkingagarða
og kynnti sér stöðu mála hér.
Varðturn Björn kongungur í Foteviken er afar stoltur af nýja varðturn-
inum og lætur gæta hans vel. Úr honum sést vel yfir víkingaþorpið.
starfseminni, og síðan er gjarnan
byggð upp ferðaþjónusta til að nýta
aðstöðuna á sumrin.
Mikið líf var í Foteviken-safninu á
Skáni í Svíþjóð þegar ég kom þangað
um mánaðamótin júní og júlí. Þar
var þá hafinn stærsti víkingamark-
aður Svíþjóðar. Víkingar frá allri
Evrópu streymdu að, alls hátt í sex
hundruð frá yfir 50 löndum. Víking-
arnir seldu eigið handverk og fatnað
og unnu í smiðjum. Einnig voru
sýndir leikir fornmanna, bardagar,
sagðar sögur og sungið. Hátíðin var í
svipuðu formi og menn þekkja frá al-
þjóðlegu víkingahátíðunum í Hafn-
arfirði nema hvað allt var stærra í
sniðum.
Unnið hefur verið að uppbyggingu
lifandi sögusafns í Foteviken í ellefu
ár. Þar eru nú 22 hús í víkingaaldar-
stíl. Varðturninn er nýjasta bygg-
ingin, timburturn sem stendur á hól
og gætt er af vörðum. Þaðan er gott
útsýni yfir þetta vaxandi þorp.
Björn M. Jakobsen forstjóri
safnsins, Björn konungur eins og
hann kýs að kalla sig í víkinga-
heimum, situr í hásæti sínu þegar
hann veitir blaðamanni viðtal. Segir
að markmiðið sé að byggja heild-
stætt þorp frá seinni hluta
víkingaaldar, með götum og öllu til-
heyrandi. Hann segir að ætlunin sé
að koma upp aðstöðu til að sýna
hvernig líf forfeðranna var í raun og
veru.
„Þorpið er búið til fyrir víkingana.
En ferðafólkið er líka velkomið,“
segir Björn konungur.
Sænska eyjan Gotland á Eystra-
salti var útnefnd „víkingaeyja“ á
árinu 2005. Af því tilefni var lögð
sérstök áhersla á þann þátt í sögu
eyjarskeggja. Leonard Nordin, vík-
ingur í víkingabænum Tofta sem er
sunnan við höfuðstaðinn, Visby, seg-
ir að þessi nafngift hafi hjálpað mjög
við kynningu á víkingamenningu
eyjarinnar, ekki síst heimsókn Svía-
konungs sem efnt var til af þessu til-
efni. Á Gotlandi er vart þverfótað
fyrir minjum frá miðöldum og
forsögulegum tíma og er
reynt að gera þá aðgengilega
fyrir ferðafólk. Í Tofta hafa
verið byggð hús í víkingaald-
arstíl á síðastliðnum fimmtán árum,
hið stærsta er langhús en einnig á
annan tug smærri húsa. Víkinga-
þorpið er byggt upp af einstaklingi
sem hluti af ferðaþjónustufyrirtæki
og þarf aðgangseyrir að standa und-
ir kostnaði. Leonard segir að gestir
komi víða að, sumir frá fjarlægum
löndum í þeim eina tilgangi að kynn-
ast víkingatímanum.
Sögumiðstöð í hverju fylki
Byggður hefur verið upp bónda-
bær í víkingaaldarstíl á Bukkøy við
Ögvaldsnes (nú Avaldsnes) í Noregi,
í nágrenni Haugasunds. Víkinga-
bærinn er skammt frá Ólafskirkju
sem Hákon Hákonarson Noregs-
konungur byggði á Ögvaldsnesi um
1250. Bærinn er byggður upp eftir
niðurstöðum fornleifarannsókna í
nágrenninu. Langhús og nokkur
minni hús og svo stórt víkingaskip-
anaust.
Tilgangurinn er fyrst og fremst að
fræða börnin í skólum sveitarfé-
lagsins um líf fólksins á víkingaöld,
segir Cathrine Glette sem tekur á
móti blaðamanni. Lögð er áhersla á
að sýna daglegt líf fólksins en ekki
bardagamenninguna. Starfsmenn
eru aðeins tveir og þeir höfðu lítið að
gera þann daginn vegna þess að það
rigndi ósköpin öll og fáir lögðu það á
sig að ganga tíu mínútna leið frá
Ólafskirkju að bænum. Meira líf er
þar þegar börnin koma á heimsókn
og á víkingahátíðunum sem
þar eru árlega haldnar.
Á Ögvaldsnesi hef-
ur nýlega verið
byggð sögu-
miðstöðin Nordve-
gen þar sem lögð er
» Sagnaarfurinn skilur
íslensku verkefnin
vel frá hinum hefð-
bundnu víkingagörðum
á hinum Norðurlönd-
unum og skapar mögu-
leika á sérstöðu og fjöl-
breytni.
áhersla á að segja sögu þessa merka
staðar í Noregssögunni. Þaðan
stjórnaði Haraldur hárfagri samein-
uðum Noregi, svo eitt atriði sé nefnt.
Nordvegen er ein af mörgum sögu-
og menningarmiðstöðvum sem
Norðmenn reistu í tilefni árþúsunda-
skiptanna, árið 2000. Eitt safn var
sett niður í hverju fylki landsins.
Gestir taka þátt
Þróaðasti víkingagarðurinn sem
ég skoðaði er Víkingamiðstöðin í
Ribe á Jótlandi, en fjölmargir aðrir
víkingagarðar eru í Danmörku. Rétt
utan við Ribe hefur verið byggður
fjöldi húsa sem mörg hver eru stór
og mikil, eftir niðurstöðum fornleifa-
rannsókna í héraðinu. Þarna býr fólk
að víkingasið í húsum og tjöldum allt
sumarið og sýnir gestum vinnu-
brögðin. Fólki gefst kostur á að fara
í víkingabúninga og taka þátt í starf-
inu og ýmsum viðburðum. Skjóta af
boga, fylgjast með þjálfun veiðifálka,
vinna við járnsmíði og trésmíði og
gera skartgripi svo nokkuð sé nefnt.
Húsdýrin draga að sér börnin, ekki
síst íslensku hestarnir.
Markaðstorg er í víkingamiðstöð-
inni, byggt upp eins og borgin sjálf.
Ribe er elsta borg Danmerkur og
var í upphafi markaðstorg. Þar var
mikil starfsemi, ekki síst við járn-
smíði og skartgripagerð og að sjá
nokkuð lífleg viðskipti.
Inni í borginni er síðan safnið
Ribes víkingar. Borgin var ein af
mikilvægustu verslunarborgunum á
víkingatímanum og er sú saga sögð á
sýningunni.
Víkingagarðar í undirbúningi
Á Íslandi er aðallega einn staður
sem hægt er að tala um sem lifandi
sögusafn. Það er bær Eiríks rauða á
Eiríksstöðum í Dölum. Starfsfólkið
klæðist víkingabúningum og reynt
er að hafa umhverfið sem eðlilegast
miðað við þann tíma sem verið er að
fjalla um. Alltaf er eitthvað um að
vera og gestir geta tekið þátt í ýms-
um störfum og uppákomum. Stað-
urinn er orðinn vinsælasti ferða-
mannastaðurinn í Dölum. Þá er
verið að setja upp Leifssýningu í
Búðardal en hún er hluti af Eiríks-
staðaverkefninu.
Fleiri slíkir „víkingagarðar“ eru í
vinnslu. Nefna má Víkingaheima í
Njarðvík en þar verður vík-
ingaskipið Íslendingur í aðal-
hlutverki og Grettisból í Mið-
firði þar sem verið er að koma
upp fjölskyldu- og skemmti-
garði til heiðurs Gretti sterka.
Brautryðjandinn í því að
innleiða víkingaöldina inn í
ferðaþjónustuna hér á landi er þó
Jóhannes Viðar Bjarnason, veit-
ingamaður í Fjörukránni í Hafnar-
firði. Þegar hann stofnaði veitinga-
stað sinn fyrir sautján árum var
hann undir frönskum áhrifum.
Napóleon tók á móti gestum, sungin
voru frönsk lög og franskur matur
var á boðstólum. Þegar hann fékk
leyfi til að stækka staðinn með stóru
F
erðamenn sýna svokall-
aðri menningartengdri
ferðaþjónustu vaxandi
áhuga. Undir það fellur
sögutengd ferðaþjón-
usta og hefur hlutur hennar farið
vaxandi. Töluvert hefur verið byggt
upp til að mæta vaxandi eftirspurn,
meðal annars á Norðurlöndunum,
þar sem víða er að finna aðstöðu þar
sem ferðafólk getur upplifað söguna.
Hér á landi hefur einnig verið byggt
upp og mörg verkefni í bígerð og ný-
lega voru stofnuð Samtök um sögu-
tengdra ferðaþjónustu með þrjátíu
þátttakendum.
Áhugi á víkingatímanum er mjög
áberandi í Evrópu og fjöldi ferða-
fólks heimsækir víkingagarða og
söfn á Norðurlöndunum sem gera
sögunni skil. Ekki er óalgengt að
heyra töluna 40 þúsund þegar spurt
er um fjölda gesta yfir sumarið. Auð-
vitað er öðrum tímabilum einnig
haldið á lofti í söfnum, ekki síst lífinu
á forsögulegum tíma, járnöld, brons-
öld og steinöld, eftir því sem unnt er.
Einnig eru einstökum efnisatriðum
frá miðöldum og seinni tímum gerð
skil á sérstökum söfnum og sýn-
ingum. Í þetta sækir ferðafólk í vax-
andi mæli.
Talað er um tímabilið frá því um
800 og fram um 1050 sem víkingaöld.
Miðað er við þann tíma sem norræn-
ir sæfarar stunduðu kaupskap, sjó-
rán og strandhögg. Víkingarnir urðu
frægir fyrir hrottaskap sinn. Þeim
þætti í fari víkinganna, sem þeir þó
draga nafn sitt af, er ekki haldið
mjög á lofti í þeim víkingagörðum og
söfnum sem blaðamaður heimsótti á
Norðurlöndunum, heldur fremur
daglegu lífi þeirra, störfum og húsa-
kynnum. Bardagasýningar eru hins
vegar oftast í öndvegi á víkinga-
hátíðum enda draga þær gesti frek-
ar að en handverksfólk og lág-
stemmdari skemmtanir.
Sýna líf forfeðr-
anna
Í Danmörku, Sví-
þjóð og Noregi eru
víkingunum gerð skil á
mörgum stöðum. Grunnurinn er
oft endurgerð húsa sem hönnuð eru
samkvæmt vísbendingum sem feng-
ist hafa úr fornleifarannsóknum á
húsum frá víkingaöld. Smám sam-
an eru byggð heilu þorpin. Að-
staðan er síðan notuð til að
fræða skólabörn um þennan
tíma, það er í sumum til-
vikum meginþátturinn í