Morgunblaðið - 10.12.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 33
Hvað sem því líður var ekkert til sparað til að
gera myndina sem glæsilegasta. Titilhetjan
kemst að því að hann getur bjargað Alagaësiu,
landi sínu, og þjóð með hjálp goðsagnakennds
dreka. Hann getur líka tortímt því en leggur
ótrauður í bardaga við harðstjórann, konung-
inn geggjaða Galbatorix (Malkovich) og lang-
vinn barátta fyrir frelsi Alagesíu er hafin.
Ævintýramynd. 120 mín.
FRUMSÝNINGAR UM JÓLIN
Artúr og Mínimóarnir –
Arthur and the Minimoys
Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Teiknimynd. Leikstjóri: Luc Besson.
Teiknimynd með ensku og íslensku tali. Ensk-
ar aðalraddir: Robert De Niro, Madonna, Sno-
op Dogg, David Bowie, Harvey Keitel. Ís-
lenskar: Árni Beinteinn Árnason, Guðjón
Davíð Karlsson, Sigríður Björk, Örn Árnason,
Björgvin Franz Gíslason, Inga María Valdi-
marsdóttir.
Ævintýri sem hefur öll einkenni íslenskrar
álfa- og huldufólkssögu segir af Artúr, ung-
lingspilti, sem leggur af stað út í heim til að
bjarga æskuheimili sínu þegar gráðugir fast-
eignabraskarar vilja komast yfir það. Afi hans
er þá horfinn á dularfullan hátt og til að finna
hann verður Artúr að hafa uppi á leyndarmál-
inu, hvernig hann á að komast inn í töfraveröld
Mínimóanna sem eru svo litlir að þeir eru
ósýnilegir venjulegu fólki. Með þeirra hjálp á
Artúr möguleika á að bjarga málunum.
Fjölskyldumynd. 90 mín.
Fánar feðranna – Flags of our Fathers
Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík,
Akureyri, Selfossbíó
Leikstjóri Clint Eastwood. Aðalleikendur:
Ryan Phillippe, Jesse Bradford, Adam Beach,
Paul Walker, Jamie Bell, Barry Pepper.
Við Íslendingar bíðum nýjustu myndar
Eastwoods með sérstakri eftirvæntingu þar
sem hún er tekin að miklum hluta hérlendis og
sýnir meira af landinu en nokkur önnur erlend
mynd til þessa. Hún segir söguna á bak við
eina frægustu fréttamynd allra tíma, a.m.k.
síðari heimsstyrjaldarinnar. Hún sýnir sex
bandaríska hermenn reisa fánann sinn á víg-
vellinum á Iwo Jima. Með hjálp óskars-
verðlaunahafans Pauls Higgis (Crash) rekur
Eastwood minningar eins sexmenninganna um
atburðinn sem markaði þáttaskil í einhverjum
blóðugustu átökum síðari heimsstyrjaldar-
innar, Kyrrahafsstríðinu við Japana. Það hófst
með árásinni á Pearl Harbour og var í al-
gleymingi á litlu eldfjallaeyjunni og mikilvægu
vígi Japana Iwo Jima.
Stríðsmynd. 132 mín.
Happy Feet – Fráir fætur
Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík, Ak-
ureyri, Keflavík, Selfossbíó
Teiknimynd með ensku og íslensku tali.
Leikstjóri: George Miller. Enskar aðalraddir:
Elijah Wood, Robin Williams, Brittany
Murphy, Hugh Jackman, Nicole Kidman,
Hugo Weaving. Íslenskar: Bergur Ingólfsson,
Björn Thorarensen, Vilhjálmur Hjálmarsson,
Rúnar Freyr Gíslason, Rafn Kumar Bonifa-
cius, Inga María Valdimarsdóttir o.fl.
Fráir fætur er teiknimynd með mikilli tón-
list og gerist hinum megin á hnettinum, á Suð-
urskautslandinu. Persónurnar eru hinar virðu-
legu keisaramörgæsir sem kunna heldur betur
við að geta skellt þér í diskóið. Það er ekki nóg
að geta tekið snúning; til að teljast mörgæs
meðal mörgæsa verðurðu líka að geta sungið,
sem er meira en aðalpersónan ræður við.
Fjölskyldumynd. 108 mín.
Lygilegt en satt – Stranger than Fiction
Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík
Leikstjóri: Marc Forster. Aðalleikendur:
Will Ferrell, Maggie Gyllenhaal, Dustin Hoff-
man, Queen Latifah, Emma Thompson.
Rithöfundurinn Kaye Eiffel (Thompson) á í
mesta basli með að ljúka við nýjustu og að öll-
um líkindum bestu bókina sína. Það sem
stendur í skáldkonunni er að kála aðalpersón-
unni, Harold Crick. Enga hugmynd hefur hún
um að Crick (Ferrell) er sprelllifandi og hress í
hinum raunverulega heimi en hann er að kom-
ast á snoðir um skáldskapinn og nú eru góð ráð
dýr. Hann verður að finna leið til þess að koma
í veg fyrir að rithöfundurinn slái sig af og upp-
hefst mikil spenna í skáldskap sem raunveru-
leika. Leikstjórinn á m.a. að baki hina bráð-
snjöllu Finding Neverland.
Rómantísk gamanmynd. 113 mín.
Tenacious D: The Pick of Destiny
Laugarásbíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Liam Lynch. Aðalleikendur:
Jack Black, Kyle Glass, JR Reed, Roonie
James Dio, Meatloaf, Ben Stiller, Tim Robb-
ins.
Flestir bíógestir kannast við hnellna gam-
anleikarann góða Jack Black. Hitt vita sjálf-
sagt færri að hann er einnig liðtækur tónlist-
armaður og er annar helmingur hljóm-
sveitarinnar Tenacious D. Hinn helmingurinn
er KG (Kyle Glass). Myndin segir frá sveita-
manni (Black) sem kemur til Los Angeles og
verður vinur borgarbúans KG. Þeir stofna í
sameiningu hljómsveitina fyrrnefndu og setja
markið hátt; hún á að verða mesta rokkband
veraldar. Til að ná því háleita marki verða fé-
lagarnir að grípa til örþrifaráða.
Gamanmynd. 90 mín.
Köld slóð
Smárabíó, Regnboginn, Háskólabíó,
Borgarbíó Akureyri. 29. desember
Leikstjóri: Björn Björnsson. Aðalleikendur:
Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk Ólafs-
dóttir, Helgi Björnsson, Anita Briem, Lars
Brygmann, Sólveig Guðmundsdóttir, Ólafur
Guðmundsson, Hilmir Snær Guðnason.
Það er gleðileg uppsveifla á íslenskum
myndum. Í kjölfar Mýrarinnar fáum við aðra
sakamálamynd en ólíka að efni og uppbygg-
ingu þar sem hún er frekar í ætt við spennu-
mynd. Hraðari og sögusviðið víðfeðmara og í
tengslum við virkjanaframkvæmdirnar á há-
lendinu. Köld slóð segir af leynilögreglumann-
inum Baldri sem kemst að því í myndarbyrjun
að hann er ekki rétt feðraður. Við rannsókn á
dauða manns í afskekktri virkjun kynnist
Baldur nánar bakgrunni föðurins og grefur í
fortíðina, þvert á vilja sinna nánustu og yfir-
manna. Er um slys eða morð að ræða?
Spennumynd. 90 mín.
Reuters
Vígvöllur Clint Eastwood leikstýrir Fánum feðranna á Íslandi.
Ósvikin jólamynd Leiðin til Betlehem fjallar
um aðdragandann að fæðingu Krists.
Reuters
Kunnuglegt Denzel Washington í hlutverki
sínu í myndinni Déjà Vu.
Gamanmynd Kynni á netinu hafa í för með sér húsaskipti, sem draga dilk
á eftir sér í rómantísku gamanmyndinni Hátíðarnar.
saebjorn@heimsnet.is