Morgunblaðið - 10.12.2006, Page 43
keyptu mannvirkin á „Hamrinum“
og stuttu seinna kom Haraldur Böðv-
arsson sér upp aðstöðu á „Snoppu-
nni“. Á vetrarvertíð 1916 gerði Har-
aldur út 5 báta en hafði auk þess 15
báta í viðskiptum. Þeir Loftur og
Þórður höfðu þá svipaðan bátafjölda
á sínum snærum svo alls hafa Akra-
nesbátarnir verið um eða yfir 40 tals-
ins. Þeim mun hafa fjölgað á næstu
árum. Skapaði þetta mikla vinnu og
auk aðkomusjómanna streymdi nú
fjöldi landverkafólks til vinnu í Sand-
gerði, sem gerðist nú landskunn ver-
stöð og hið fyrirheitna land til út-
gerðar vélbáta á vetrarvertíðum. Þar
var aðstaða mjög góð í landi og stutt
að sækja á miðin. Akurnesingar
gerðu út frá Sandgerði í 14 ár, eða
allt þar til Eyleifur Ísaksson á Lög-
bergi, hér á Akranesi, fann fiskimið
vestur í Flóanum, Akurnesingaslóð,
árið 1926 þar sem hann mokfiskaði,
en Eyleifur var þá formaður á Vík-
ingi, 10 brúttólesta báti Haraldar
Böðvarssonar. Þessi fundur varð
m.a. til þess að útgerð Akurnesinga í
Sandgerði lagðist af, þar sem stutt
var að sækja á þessi nýju mið. Upp-
hófst nú mikið uppgangs- og fram-
faraskeið á Akranesi, sem ekki er
hægt að gera skil í stuttu máli. Svona
uppgangur í atvinnulífinu hafði víð-
tæk áhrif. Íþróttir og alls kyns menn-
ingarstarfsemi blómstraði. Gullald-
arár hófust í knattspyrnu, sundi og
fleiri íþróttagreinum. Starfsemi
karlakórsins Svana, Leikfélags
Akraness og fleiri hópa tengdra
menningu og listum var í hámarki og
svo mætti lengi telja.
Þróun útgerðarinnar á seinni
hluta 20. og byrjun 21. aldar
Á árinu 1957 eru þilfarsskip á
Akranesi 26, flest vertíðarbátar, tog-
ararnir eru tveir, Akurey og Bjarni
Ólafsson, en opnir vélbátar, trillur
voru 45. Útgerðarfyrirtækjum fjölg-
ar, síldveiðar fyrir Norður- og Aust-
urlandi höfðu verið stundaðar sumar
og haust auk hefðbundinnar vetrar-
vertíðar fyrir sunnan. Einnig jókst
aflinn mikið eftir að loðnuveiðar hóf-
ust við Ísland árið 1964. Bátarnir
stækkuðu og tækninni við veiðarnar
fleygði fram. Kvótakerfið var tekið
upp – deiliskipulag sjávarins – með
væringum í þjóðfélaginu, sem ekki
sér enn fyrir endann á. Nokkur fyr-
irtæki töldu tilveru sinni best borgið
með sameiningu við önnur, þó svo að
margir óttuðust það mjög að setja öll
eggin í sömu körfuna. Á Akranesi
hófst þessi sameining, að frumkvæði
H. B. & Co. árið 1991 þegar fjögur
stærstu fyrirtækin sameinuðust,
þ.e.a.s. Haraldur Böðvarsson & Co.,
Heimaskagi hf., Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðja Akraness hf. og Sigurður
hf. Störfuðu þau síðan sem eitt félag,
undir nafninu Haraldur Böðvarsson
hf., og voru hlutabréf þess skráð á
markaði. Árið 1996 gekk Krossvík hf.
til þessarar sameiningar, en Kross-
vík hafði áður tekið yfir rekstur Haf-
arnarins hf., og á árinu 1997 gekk
Miðnes hf. í Sandgerði inn í fyr-
irtækið. Stofnandi Miðness hf. og
fyrsti framkvæmdastjóri var Ólafur
Jónsson á Bræðraparti á Akranesi,
en hann var einn þeirra Skagamanna
sem hófu útgerð sína í Sandgerði á
árum áður. Fleiri fyrirtæki bættust í
hópinn, síðast Grandi hf. í Reykjavík
(áður Ísbjörninn, Bæjarútgerð
Reykjavíkur og Hraðfrystistöðin).
Nú hefur þetta risafyrirtæki inn-
byrt öll stærri sjávarútvegsfyrir-
tækin á Akranesi og rekur þau undir
nafninu „HB Grandi“, og mun eign-
arhluti Akurnesinga í samrunanum
vera sáralítill, ef þá nokkur. „Hvar er
þín fornaldar frægð, frelsið og mann-
dáðin best?“, orti Jónas um árið, af
öðru tilefni. Akraneshöfn sem áður
iðaði af lífi sem sjálfstæð höfn Ak-
urnesinga er nú rekin undir fyr-
irtækinu Faxaflóahafnir í Reykjavík,
og er umferð um höfnina svipur hjá
sjón miðað við það sem áður var, og
hafa þó verið gerðar hér miklar hafn-
arbætur og höfnin dýpkuð bæði að
innan sem utan. Löndun sjávarfangs
á Akranesi er í sögulegu lágmarki,
dróst saman um 50% á síðasta ári, og
munar um minna.
Stórmerku hlutverki Akraborgar
er lokið, en hún fór fjórar ferðir dag-
lega milli Reykjavíkur og Akraness
með vörur, bifreiðar og fjölda far-
þega. „ – og skrautbúin skip fyrir
landi flutu með fríðasta lið, færandi
varninginn heim – “, orti Jónas áfram
í kvæðinu Ísland. Aðeins bárust 50
tonn af síld til Akraness haustið 2005,
en HB Grandi landaði allri síld til
vinnslu í landi austur á Vopnafirði,
þrátt fyrir allar þær miklu end-
urbætur sem orðið hafa á Síldarverk-
smiðjunni hér á Akranesi og full-
komið útskipunarkerfi á fiskimjöli,
mjöli sem er orðlagt fyrir hæsta
gæðaflokk. Minnkandi löndun á afla
þýðir minni tekjur, bæði fyrir Akra-
neshöfn, fiskverkunarstöðvarnar,
sjómenn, fiskverkafólk og ýmis
þjónustufyrirtæki; í raun alla byggð-
ina. M.a. hefur landsþekkt fyrirtæki
Nótastöðin hf. lagt upp laupana
ásamt veiðarfæraverslun Axels
Sveinbjörnssonar og fleiri fyrir-
tækjum í eigu Skagamanna. „ – Hvað
er þá orðið okkar starf í sex hundruð
sumur? Höfum við gengið til góðs
götuna fram eftir veg – ?“
Tímamót á Akranesi
Í ár eru tímamót á Skaganum hvað
sjávarútveg varðar. Reyndar eru
mörg skip og bátar gerðir út héðan
að nafninu til en þau fiskiskip eru
ekki í eigu Akurnesinga nema að litlu
leyti. Ungt fólk hefur takmarkaðan
áhuga á sjávarútvegi enda aðstæður
allar gjörbreyttar. Miklu skiptir því
hvert menn ætla að stefna. Ráða-
menn Akranesbæjar bera sína miklu
ábyrgð á ástandinu, sérstaklega sam-
runaferlinu, og verða þeir að axla þá
ábyrgð og bregðast við vandanum.
Við vonum samt að Eyjólfur hressist
og að ábyrgar fiskveiðar verði enn
um hríð stundaðar frá Skipaskaga,
og að bærinn standi þá einnig undir
nafni sínu sem hann hlaut sem fyrsta
útgerðarplássið, á dögum Brynjólfs
biskups, fyrir meira en 350 árum.
Grunnurinn að hinni miklu vel-
megun sem Íslendingar búa við í dag
var lagður fyrir 100 árum með til-
komu vélbátanna. Á Akranesi var
það þilfarsvélbáturinn Fram sem olli
þessum þáttaskilum, og er það því
við hæfi að þess atburðar sé minnst
hér, þó í stuttu máli sé.
Heimildir: Saga Akraness eftir Ólaf B.
Björnsson, Fræðasetrið í Sandgerði, minn-
ingar frá Sandgerði eftir Ól.Fr.Sig., minningar
Júlíusar Þórðarsonar, ýmsar fréttir úr blöðum
o.fl.
Akranesi“
Ljósmynd/Árni Böðvarsson
Höfundur er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri dvalarheimilisins
Höfða.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 43
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Viðskiptavinir Sparisjóðsins þurfa ekki að greiða neitt, bara velja
félag til að styrkja, og Sparisjóðurinn leggur þá fram 1.000 kr. til
félagsins. Farðu inn á www.spar.is eða komdu við í næsta
sparisjóði og veldu félagið sem fær þinn styrk.
Allir geta tekið þátt í söfnun til styrktar samtökum
sem vinna að úrbótum í geðheilbrigðismálum.
Geðveikt góð söfnun