Morgunblaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 45
Það er aftur á móti mjög algengt að
fólk taki Jakobsstíginn í áföngum og
jafnvel á mörgum árum. Menn geta
alstaðar byrjað og alstaðar hætt.“
Sofið í kojum í
farfuglaheimilum
Hvernig er gistiaðstaða við stíginn?
„Gistiaðstaðan var yfirleitt mjög
góð, en eitt og eitt farfuglaheimili er
orðið gamalt og lúið. Þá eru alltaf að
bætast við nýir gististaðir. Farfugla-
heimilin bjóða upp á gistingu í kojum
og réðu menn hvað þeir borguðu fyrir
gistinguna – allt upp í átta evrur, sem
var hæsta verð. Kojunni fylgdi koddi
og teppi. Menn gátu fengið aðstöðu til
að þvo, en það kostar eina til tvær evr-
ur að fá aðgang að þvottavélum. Þá
var boðið upp á aðstöðu til að þurrka
föt og til að bregða sér í sturtu, sem
var inni í verðinu.
Heimilin voru af öllum stærðum og
gerðum – allt frá því að bjóða upp á
sex kojur upp í átta hundruð kojur, en
það var stærsta farfuglaheimilið –
gömul herstöð. Ég gisti ekki þar.
Mjög algengt er að tuttugu til þrjátíu
pílagrímar sofi í sama salnum.“
Heimamenn taka vel
á móti pílagrímum
Hvernig taka heimamenn á móti
pílagrímunum, sem eru á ferðinni um
Jakobsstíginn?
„Það kom mér mjög á óvart hvað
móttökurnar voru góðar og allir vildu
aðstoða pílagrímana. Ef maður var að
fara í ranga átt í litlum þorpum, komu
gamlar konur eða karlar – hóuðu í
mann og vísuðu manni réttan veg.
Það var alstaðar velvild. Þegar maður
var á göngu meðfram þjóðvegi flaut-
uðu ökumennirnir og fólk veifaði. Það
er greinilegt að fólk á þessum slóðum
gerir sér fyllilega grein fyrir þeirri
mjólkurkú sem pílagrímarnir eru
svæðinu – voru komnir til að eyða
peningum, en kostuðu lítið á móti.“
Pílagrímar frá
öllum heimsálfum
Hvaðan komu pílagrímarnir sem
voru á ferðinni á sama tíma og þú?
Náðir þú að kynnast einhverjum á
900 km göngu þinni og varst þú á ferð
á góðum tíma?
„Ég var á ferðinni á mjög góðum
tíma – áður en leikurinn fer að æsast
og fólk fer að fjölmenna á stíginn, sem
er genginn allan ársins hring. Ég hóf
á ferðina í byrjun apríl. Vorið er afar
hentugt fyrir okkur Íslendinga að
ganga um stíginn – veður er skaplegt
og allt svo hreint og fínt, nýmálað.
Farfuglaheimilin fylltust yfirleitt í
kringum kvöldmatinn. Ég sá menn
frá Kóreu, Frakklandi, Ástralíu,
Þýskalandi, Englandi, Brasilíu, Ír-
landi, Bandaríkjunum, Ítalíu, Austur-
ríki og víðar.
Það voru afar blandaðir hópar sem
voru á ferðinni. Mikið var um að tveir
vinir eða tvær vinkonur væru saman á
ferð, töluvert af hjónafólki og einnig
var mikið um að fólk væri eitt á ferð-
inni – eins og ég. Margir voru ekki að
ganga stíginn í fyrsta skipti.
Ég var eini Íslendingurinn sem
hafði komið á lokaáfangastað í San-
tiago á þessu ári. Það var yfirleitt létt
yfir mönnum og oft var stemningin á
kvöldin eins og um verslunarmanna-
helgi hér heima – þegar menn voru
búnir að borða og fá sér rauðvínsdrei-
til. Þá sungu menn saman og leikið
var á gítar. Fólk á öllum aldri var á
ferð – frá rúmlega tvítugu upp í sjötíu
og átta ára. Ég náði að kynnast
skemmtilegum Þjóðverja og höfum
við skrifast á síðan og hann hefur sent
mér mikið af myndum frá Jakobs-
stígnum í tölvupósti.
Ég upplifði ákveðna stemningu á
ferð minni og ég vil hvetja Íslendinga,
sem hafa áhuga á göngu og útiveru,
að pakka niður og halda á vit ævintýr-
anna við Jakobsstíginn – gerast píla-
grímar. Það er afar einfalt að komast
til Bilbao í gegnum London og frá
Bilbao að stígnum.
Það er öruggt að ganga stíginn – ég
varð ekki var við flugnabit og þá er
ekki ráðist að göngumönnum og held-
ur ekki stolið frá pílagrímunum.“
Jakobsstígurinn er goðsögn
Hverju eru menn að sækjast eftir á
Jakobsstígnum?
„Stígurinn er ákveðin goðsögn. Þú
getur tekið niður úrið – það eina sem
þú þarft að hafa gætur á er að vera
farinn út af farfuglaheimilunum
klukkan átta á morgnana. Annars
þarft þú ekkert að nota úr. Jakobs-
stígurinn er vel skipulögð gönguleið.
Ég get ekki sagt að þetta sé einhver
stórkostleg upplifun. Það er víða fal-
legt á leiðinni – fallegir bæir og borg-
ir. Ég komst í margar messur – fór til
dæmis í Gregorian munkamessu í
bænum Samos í Lugohéraði í Galesíu,
sem ég haf aldrei upplifað áður. Það
var mjög gaman. Bærinn var mjög
fallegur og um hann rann á full af urr-
iða.
Þú getur alltaf stoppað og þú getur
alltaf byrjað. Það er enginn sem rek-
ur á eftir þér. Þú getur valið að vera
einn sólarhring í farfuglaheimilum í
einu og síðan getur þú farið á gisti-
heimili eða hótel og stoppað eins lengi
og þú vilt. Tveggja manna herbergi á
gistiheimilum kostar frá þrjátíu til
fjörutíu og tvær evrur, en herbergi á
hótelum eru eitthvað aðeins dýrari.
Sumir eru þrjá mánuði á göngu, aðrir
fjórar vikur og enn aðrir nokkra daga.
Mér fannst dálítið einkennilegt á
ferð minni um stíginn – að það er aldr-
ei spurt um nafn. Það fá allir pílagrím-
ar hörpudisk, sem hangir á þeim eða
bakpokunum á göngunni. Þú ert bara
pílagrímur, svo einfalt er það. Stund-
um er spurt hvaðan þú kemur, en ekki
hver þú ert.
Þegar pílagrímarnir eru búnir að
ganga stíginn til Santiago de Comp-
ostela, fá þeir viðurkenningarskjal –
Compostelluna. Það skjal geta allir
fengið með því að ganga síðustu
hundrað kílómetrana, eða frá bænum
Sarria. Spánverjar gera mikið af því
að ganga aðeins frá Sarria – til að
tryggja sér skjalið.“
Aðstoð frá eiginkonu
og vinnufélögum
Guðbjörn Þór segist vera staðráð-
inn að fara aftur og þá með konunni,
en hún kom til móts við hann á Spáni
á lokasprettinum og gekk með hon-
um, 48 km, í þrjá daga – þá síðustu í
ferðinni til Spánar, frá Roncesvalles
til Pamplona 11. til 13. maí, þar sem
hann hóf gönguna 8. apríl. „Ég vona
að það verði sem fyrst en þá munum
við ganga einhvern annan hluta af
Jakobsstígnum. Konan fékk þrjá
stimpla í sitt vegarbréf og langar
mikið til að bæta stimplum við,“
sagði Guðbjörn Þór. Hann telur að
Jakobsstígurinn muni halda áfram
að toga í – og þá sérstaklega af því að
það sé svo lítið mál að komast á stíg-
inn í gegnum Bilbao.
Guðbjörn Þór segir að hann hafi
aldrei getað farið í þessa ævintýra-
ferð nema með aðstoð eiginkonunnar
og samstarfsmanna þeirra í Bunu-
stokki í Kópavogi.
„Ég get ekki annað en þakkað
þessari frábæru konu og starfs-
mönnum að gera mér kleift að fara.
Ég fékk að fara frá störfum í fimm
vikur, sem er lengsta frí sem ég hef
farið í á ævinni og hvað þá einn,“
sagði Guðbjörn Þór, sem hafði sam-
band heim á kvöldin til að láta vita
um ferðir sínar.
„Það er ekki hættulegt að ferðast
um Jakobsstíginn, heimamenn og
þeir pílagrímar sem eru á ferðinni
eru alltaf reiðubúnir til að aðstoða ef
eitthvað kemur upp á. Gönguferðin
var geysilega skemmtileg og ég ráð-
legg þeim Íslendingum sem hafa
gaman af að ganga – að bregða sér í
hlutverk pílagrímsins á Jakobsstígn-
um á Spáni. Stígurinn er afar vel
skipulagður – það er ákveðin hefð í
kringum hann. Það eru veitingastað-
ir og barir út um allt og þar eru gisti-
staðir af öllum gerðum og stærðum.
Sumir láta svefnpokann duga úti í
guðs grænni náttúrunni. Pílagrím-
arnir verða afslappaðir á göngu
sinni.
Ég er uppveðraður að hafa farið
þessa ferð – hún var skemmtilegri en
ég reiknaði með, en aðeins erfiðari
en ég bjóst við,“ sagði Guðbjörn Þór
Ævarsson, sem er nú þegar byrjaður
að hugsa um næstu Spánarferð.
„ÉG lenti einu sinni í kuldakasti, þar
sem hitastigið fór í mínusgráður. Þá
svaf ég í klaustri og gömlu farfugla-
heimili. Það var kalt þar inni og mað-
ur var ekki með íslensk ullarnærföt
með í ferð. Ég kvefaðist og var hóst-
andi í nokkra daga, eða þar til ég
fékk góða hvítlaussúpu á veit-
ingastað. Ég bað um extra sterka
hvítlaukssúpu. Þjónninn brosti og
stuttu síðar kom hann með rjúkandi
súpuna – sterkustu súpu sem ég hef
fengið á ævinni. Ég gerði mér ekki
grein fyrir því á meðan ég borðaði
hana. Styrkurinn kom í ljós síðar um
kvöldið er þegar lagðist í rekkju. Ég
vaknaði fljótlega upp í svitabaði. Ég
þurfti að skipta um föt og snúa svefn-
pokanum við, þar sem allt var á floti.
Morguninn eftir var kvefið farið,“
sagði Guðbjörn Þór Ævarsson.
Enska er ekki töluð á svæðinu
„ENSKA er ekki töluð á svæðinu,
þannig að það hrafl sem ég hafði lært
í spænsku kom að góðum notum
nokkrum sinnum. Fólk sem fer um
Jakobsstíginn verður að hafa með sér
góðar bækur, til að reyna að gera sig
skiljanlegt, eða vera búið að æfa sig í
spænskunni eins og ég gerði,“ sagði
Guðbjörn Þór.
Íslensk nöfn á Norður-Spáni
„ÞAÐ kom mér á óvart þegar ég
fór frá Santiago de Compostela –
með rútu og farið var um norður-
strönd Spánar – að mér fannst ég
vera á Íslandi, skógi vöxnu. Það er
meira af smábátum við ströndina en
hér heima. Það er rosalega fallegt
þarna og orðin eru mörg svo lík ís-
lensku. Ég man til dæmis eftir litlu
þorpi sem heitir Otur og þá hét mað-
ur sem vann á hótelinu sem ég gisti á
í Bilbao Jón. Hann sagðist eiga ættir
sínir að rekja til Spánar og sagði mér
að afi sinn hefði einnig heitið Jón. Sá
gamli hefur kannski heitið Jón Jóns-
son? Ég veit það ekki. Ég hef trú á því
að það sé tenging á milli Norður-
Spánar og Íslands,“ sagði Guðbjörn
Þór.
Þreytandi rútuferð
GUÐBJÖRN Þór sagði að hann
hefði verið einna þreyttastur á ferð-
inni á Spáni, þegar hann steig út úr
rútubíl í Bilbao, eftir rúmlega tólf
klukkustunda ferð frá Santiago de
Compostela – lokaáfangastaðnum á
göngunni um Jakobsstíginn. Rútan,
sem fór meðfram vogskorinni norður-
ströndinni, stansaði aðeins á leiðinni –
til að hleypa farþegum út og inn. „Ég
fékk marga sætisfélaga. Þar á meðal
var ensk kona, sem sagði mér að hún
færi til Norður-Spánar á vorin – hopp-
aði upp í rútur og ferðaðist þannig um
á milli þorpa, þar sem hún fengi sér
gistingu á hótelum og andaði að sér
kyrrðinni og fegurð landsins. Hún var
á ferð með með einn bakpoka – ekk-
ert annað!“
Mætti sem skreytt jólatré!
GUÐBJÖRN Þór sagðist hafa rætt
við spænskan verkfræðing, sem sagð-
ist alltaf nýta eina til tvær fyrstu vikur
af sumarfríi sínu til að ganga um Jak-
obsstíginn. Hann sagðist róa sig niður
með göngunni og kom síðan með
þessa líkingu: „Ég byrja sem jólatré,
með englahári og öllu tilheyrandi
skrauti – fullt af áhyggjum. Allt lítur
vel út og er pottþétt. En eftir nokkra
daga göngu verð ég orðinn – bara
jólatré – og vellíðan er mikil. Allt
skrautið farið – ég strípaður. Þá hætti
ég að ganga stíginn og fer heim til að
njóta lífsins með fjölskyldunni,
áhyggjulaus og afslappaður.“
„Sterkasta súpa
sem ég hef fengið“
sos@mbl.is
Fallegir bæir Einn af mörgu litlu bæjunum við Jakobsstíginn, þar sem var
hægt að fá gistingu í farfuglaheimilum.
Tré á akri Rioja-vínræktarhéraðið á Norður-Spáni er blómlegt á að líta.
Hér stendur stakt tré á akri undir bláum himni.
Guðs hús Kirkja inni í sandbergi við Jakobsstíginn, en mikið af kirkjum og
kapellum eru við stíginn.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á í ár-
mótaferð til Kúbu í beinu flugi 30. des-
ember þar sem dvalið er á vinsælasta
hóteli okkar í Havana - Hotel Occiden-
tal Miramar. Kúba er ævintýri sem læt-
ur engan ósnortinn. Ekki aðeins kynn-
ist maður stórkostlegri náttúrufegurð
eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er
einstök í mörgu tilliti.
Hotel Occidental er nýlegt og fallegt 4 stjörnu hótel í Miramar hverfinu í
Havana í aðeins um 10 mín. akstri frá miðbænum. Akstur á vegum hótelsins
til miðbæjar Havana. Á hótelinu eru rúmgóð herbergi með loftkælingu, síma,
sjónvarpi, minibar og hárþurrku á baði. Á hótelinu eru meðal annars; veit-
ingastaðir, barir, kaffihús, sundlaug, sundlaugarbar, internetaðgengi, versl-
anir, líkamsrækt, gufubað, nuddpottur, borðtennis, tennisvellir, blakvellir,
hárgreiðslustofa og listagallerí.
Breyttu út af venjunni og njóttu hátíð-
anna í hinni einstöku Havanaborg.
Bjóðum einnig aðra gististaði bæði í
Havana og á Varedoroströndinni.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Áramótaveisla á
Kúbu
30. desember
frá kr. 59.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 59.990
Flug, skattar og gisting í tvíbýli í viku á Hotel
Occidental Miramar **** með morgunverði og
íslensk fararstjórn, 30. desember.
Netverð á mann.
Aðeins 12 herbergi á sértilboði
Sértilboð á Hotel
Occidental Miramar