Morgunblaðið - 10.12.2006, Side 48
48 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UNDANFARIN ár hefur stytt-
ing náms til stúdentsprófs verið
mikið í umræðunni. Háar raddir
og sterkar skoðanir hafa fengið að
líta dagsins ljós og er ljóst að
skoðanir eru skiptar. Þrátt fyrir
mikil mótmæli fólksins sem stytt-
ingin hefur bein áhrif á standa
þessi áform enn eftir
því sem ég best veit.
Háttvirtur mennta-
málaráðherra hefur
gefið óljós skilaboð
síðastliðna mánuði og
vita flestir framhalds-
skólanemar ekki
hvort eða hvað stend-
ur til.
Umræðan um
„styttinguna“ hefur
þokast út.
Er okkur alveg
sama? Hefur rík-
isstjórn Íslands enn
og aftur tekist að þagga niður í
okkur með því einu að halda okk-
ur óupplýstum? Eða er samfélagið
uppgefið og segir „þetta mun ger-
ast sama hvað við segjum eða ger-
um“? Það er auðvitað draumur
stjórnmálamannanna, að þeir fái
bara að stjórna í bananalýðveld-
inu! Þetta er nákvæmlega það sem
er gerast! Áður en við vitum af þá
er styttingin orðin að veruleika og
við áttum okkur á að mennta-
málaráðuneytið hætti ekki skipu-
leggja voðaverkið þótt við höfum
hætt að hugsa um það!
Þetta hefur gerst svo oft áður
og má þar nefna laun grunnskóla-
kennara og aðstæður á leik-
skólum. Þó að kennarar hafi gefist
upp og hætt í verkfalli þá þýðir
það ekki að þeir séu ánægðir með
þessi svívirðilegu laun. Börnum á
leikskólum er ennþá sýnd ótrúleg
óvirðing, með eina menntaða
fóstru á hverri deild með tugum
barna og aðrir starfsmenn þurfa
bara að vera „svona fullorðins
eitthvað“.
Þessa baráttu er enn verið að
heyja en auðvitað
hafa ný umræðuefni
komið uppá yfirborðið
t.d. Kárahnjúkar,
glæný ríkisstjórn,
Ólafur Ragnar í Kína
o.fl. Hefur hitt þess
vegna lent neðar í
bunkanum yfir frétta-
efni í Kastljósinu.
Þessi málefni mega
ekki gleymast og er
nú tímabært í tilefni
af nýju skólaári að
taka upp þráðinn og
minna fólkið á efri
hæðinni á að það er ekki eitt hér á
Íslandi og á að vera að vinna í
þágu allra landsmanna. Það er
heildin sem á að ráða í lýðveldum.
Í mínum augum er menntun
æsku landsins eitthvað sem ætti
alltaf að vera í umræðunni! Ekki
bara stundum!
Nú eru alþingiskosningar í
vændum og ætti því að vera auð-
velt að hrinda umræðunni aftur af
stað, en mér finnst það ekki
ásættanlegt að það sé aðeins á
fjögurra ára fresti sem einhver
ráðamaður hlusti á mann. Þau
ættu alltaf að hlusta og það með
báðum eyrum og framkvæma það
sem við segjum þeim að gera, við!
Fólkið í landinu.
Stundum er það sem telst hag-
kvæmast og kannski sniðugast að
gera ekki það sem lýðurinn vill.
Þá hugsa alþingismenn að við
séum einungis vitleysingar sem
komust ekki á þing og gera það
samt, en bíddu við viljum þetta
ekki!
Árið 1992 var stofnuð nefnd af
menntamálaráðherra til að móta
menntastefnu ríkisins sú nefnd
lagði síðan til 1994 að námsárum
til stúdentsprófs yrði fækkað um
eitt. Ótal nefndum og fleiri
menntamálaráðherrum en hug-
myndum síðar kom út skýrslan
Breytt námsskipan til stúdents-
prófs – aukin samfella í skóla-
starfi. Þessa skýrslu las ég, heilar
73 blaðsíður, með opnu hugarfari
og þá von í hjarta að hún hefði
eitthvað til brunns að bera því
fólkið sem vann að henni var á
launum eins og allir sem hafa
komið að þessari breytingu –
margar milljónir króna. Því miður
varð ég fyrir vonbrigðum með
skýrsluna! Samt sem áður standa
nokkrir hlutir í mér, eins og t.d.
háu upphæðirnar sem sparast og
samanburðurinn við nágranna-
löndin o.fl.
Gert er ráð fyrir að sparist um
700 milljónir kr. á hverju ári en
ekki er greint frá því hvert þær
fari. Þá berum við okkur saman
við nágrannalöndin þar sem nem-
ar útskrifast einu ári á undan, en
ekkert er talað um að bæði at-
vinnumarkaðurinn og háskólar úti
segja útskriftarnema ekki nógu
vel undirbúna og þurfa flestir að
eyða minnst einu ári í aukanám.
Ekki er minnst á mánaðarlegu
styrkina sem nemendur í þessum
löndum fá frá ríkinu o.m.fl.
Gæti kannski verið að hug-
myndin um styttinguna sé léleg og
að það sé verið að reyna laga eitt-
hvað sem er ekki bilað.
Ég veit að þetta vitið þið flest
öll en aldrei er góð vísa of oft
kveðin!
Þó að styttingin standi mér
kannski næst af þeim öllum þess-
um málefnum þá eru ótal svona
mál sem ættu að vera í lagi og eru
það í mörgum löndum heims.
Stöndum nú upp, verum gagn-
rýnin og látum í okkur heyra
Nú tala ég beint til þín
Ásgeir Guðmundsson skrifar
um styttingu náms til stúd-
entprófs
» Vonandi fær þessipistill þig til að
hugsa, ekki endilega
vera sammála heldur
hugsa: Hvað getur þú
gert.
Ásgeir Guðmundsson
Höfundur er formaður Keðjunnar,
nemendafélags Kvennaskólans í
Reykjavík.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
164,6 fm einbýli með 38 fm sérstæðum bílskúr við Miðbraut á Seltjarnarnesi, alls
202,6 fm. Húsið skiptist í forstofu, gestasalerni, forstofuherb., stofu, garðskála,
arinskála, eldhús, svherbergisgang, tvö barnaherb., hjónaherbergi, baðherbergi,
þvottahús, geymslu/kyndiherbergi og bílskúr ásamt geymslu. 8029. V. 49,9 m.
Miðbraut – Seltjarnarnes
126 fm mjög góð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í nýlegu
þriggja hæða fjölbýlishúsi. Glæsilegt útsýni. Íbúðin skiptist í anddyri, rúmgóða
stofu, eldhús með borðkrók, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Í
kjallara er sérgeymsla. Sérinngangur. 7972. V. 29,3 m.
Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 16.00. Íbúð 106.
Kristnibraut 51A – Opið hús
109,3 fm góð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með aukaherbergi í kjallara. Íbúðin
skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, eldhús með borðkrók, rúmgóða stofu
með svölum í vestur, herb. í kjallara og sérgeymslu í sameign. 7980. V. 19,9 m.
Opið hús í dag milli kl. 15.00 og 16.00. Íbúð 303, Valur Norðhdal.
Hraunbær 86 – Opið hús
101,3 fm glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í þriggja
hæða húsi við Sólvallagötu. Íbúðin skiptist í hol, rúmgóða stofu, glæsilegt eld-
hús, borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með hornbaðkari. Í kjallara er
sérgeymsla. Amerískur tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi fylgja, bæði
stáltæki. Laus fljótlega. 8016. V. 24,9 m.
Sólvallagata
164,8 fm falleg 5 herb. íbúð í tvíbýlishúsi auk 18,1 fm geymslu, alls 182,9 fm.
Húsið er kjallari og þrjár hæðir og er íbúðin á tveimur efri hæðunum. Á neðri
hæð íbúðar er stigapallur, borðstofa, eldhús, búr, þvottahús, glæsilegt baðher-
bergi, hjónaherbergi og eitt barnaherbergi. Geymsla með útgangi út á litlar svalir.
Á efri hæð er stofa og svefnherbergi. 7969. Tilboð óskast.
Bjargarstígur - Laus strax
100 fm góð efri hæð í fjórbýlishúsi auk 36,8 fm bílskúrs, alls 136,7 fm. Íbúðin
skiptist í anddyri/gang, tvær stofur, tvö barnaherbergi, hjónaberbergi, baðher-
bergi og eldhús, í kjallara er geymsla og skápur. Bílskúr er rúmgóður með tveim-
ur geymslum, góð gryfja er í bílskúrnum. 8018. V. 29,7 m.
Bólstaðarhlíð - Með bílskúr
98,8 fm glæsileg, 3ja herbergja endaíbúð á efri hæð í 2ja hæða húsi í Garðabæ.
Sérinngangur. Íbúðin er með glugga á fjóra vegu. Íbúðin skiptist í forstofu,
geymslu, hol, stofu með mikilli lofthæð og vestursvölum, fallegt eldhús, baðher-
bergi með þvottahúsi innaf og tvö svefnherbergi. Skipti á stærri eign í Garðabæ
koma mjög vel til greina. Einbýli, parhús eða raðhús. 7941. V. 29,5 m.
Ögurás
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sölusýning í dag
Blikaás 56 H.firði - Parhús
Sýnum í dag mjög glæsi-
legt alls ca 170 fm parhús
á góðum útsýnisstað innst í
botnlanga. Húsið er fullbúið
að utan sem innan og er
mjög vandað í alla staði.
Iberaro-parket á gólfum
ásamt náttúrusteini. Upp-
tekin loft á efri hæð m.
innb. halogenlýsingu. Stór-
ar flísalagðar útsýnissvalir.
Mjög fallegur garður með
verönd. Sólskáli ca 8,5 fm.
Hellulagt bílastæði með
hitalögnum. Eign fyrir vand-
láta. Verð 44,9 millj.
Lárus frá fasteign.is tekur á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16
Glæsilegt 230 fm einbýlishús á einni hæð sem skiptist í anddyri, 3
svefnherbergi, baðherbergi, tvær stofur, eldhús, bílskúr og möguleika á
auka íbúð í rými við hlið bílskúrs. Stór lóð er með húsinu sem gefur
möguleika á að byggja um 280 fm hús á lóðinni sem væri sérbygging.
Nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofu. V. 59,0 m. 6265
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-15.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - Lækjarfit 12 1.h.einb.
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
Glæsilegt úrval
úra og skartgripa
Góð úr fyrir
sjóndapra